Morgunblaðið - 05.08.1961, Page 8
8
M O R c. 17 7V R T A Ð 1 Ð
taiip'ni'rTacrur 5. agúst 1961
Lmferðarsífta Morgunblaftsins
Aídrifaríkt augnablik!
Ökutæki, sem ekið er á eftir öðru ökutæki, skal vera í svo
mikilli fjarlægð frá því, að eigi sé hætta á árekstri, þótt,
ökutækið, sem á undan er, stöðvist eða dregið sé úr
hraða þess.
Þar sem sett hefur verið biðskyldumerki, skal sá, sem
kemur af hliðarvegi, skilyrðislaust víkja fyrir umferð
þess vegar, sem hann ekur inn á eða yfir, hvort sem um
aðalbraut er að ræða eða ekki
Þegar tveir ökumenn stefna svo, að leiðir þeirra skerast,
skal sá víkja, sem hefur hinn á vinstri hönd. Sá, sem
kemur frá vinstri, skal þó gæta fyllstu varúðar.
ÍSLENDINGAR HAFA eignazt
ný umferðarlög, skýr og skil-
merkileg. Það er skylda þjóð-
félagsins að láta kenna ungum og
öldnum lög þessi. Það er ennfrem
ur skylda laganna varða, að gæta
þess að lögunum sé hlýtt.
Ef sérhver vegfarandi færi að
lögum í þessum efnum, yrði sjald
an eða aldrei umferðarslys.
Megingreinar umferðarlaganna
eru þessar: Vegfarendum er skylt
að sýna varúð í umferð, gæta
þess að trufla ekki né tefja að
óþörfu aðra vegfarendur og
valda eigi þeim eða öðrum, sem
búa eða staddir eru við umferðar-
leið, hættu eða óþægindum.
Sérhvert ökutæki skal svo gert
og við haldið, að ofnotkun þess
Ieiði hvorki óþarfa hættu né ó-
þægindi, þar með talin hávaði,
reykur eða óþefur eða hætta á
skemmdum vegi.
UM VERZLUNAR-
MANNAHELGINA
verða fleiri ökutæki
á vegum úti en venju
lega. Við það eykst
slysahætta. Morgun-
blaðið beinir þeirri
eindregnu ósk til allra
vegfarenda að þeir
beiti Varúð og um-
burðarlyndi í önn um
ferðarinnar.
Að beiðni Morgun-
blaðsins hefur Jón
Oddgeir Jónsson val-
ið myndir á umferðar
síðuna, ásamt viðeig-
andi texta úr umferð-
arlögunum. — Mætti
þetta verða til þess að
vekja athygli öku-
manna á varúðar-
skvldum þeirra — og
fækka slysunum.
Ökuhraða skal ávallt miða við gerð og ástand ökutækis,
staðhætti, færð, veður og umferð og haga þannig, að akst-
urinn valdi ekki hættu eða óþægindum fyrir aðra veg-
farendur.
Skylt er að gefa merki um breytta akstursstefnu, þegar þörf
er á, til leiðbeiningar fyrir aðra umferð. Merki þessi skal
einkum gefa, þegar breytt er um akstursstefnu á vegi eða
vegamótum eða ekið er af stað frá brún akbrautar.
Sá, sem fram fyrir hefur ekið, má ekki aka að vinstri brún
akbrautar, fyrr en hann er kominn svo langt, að hinu öku-
tækinu geti ekki stafað hætta eða veruleg óþægindi af.