Morgunblaðið - 05.08.1961, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 05.08.1961, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐ1Ð tiaugardagur 5. ágúst 1961 JfcrgajiiMaMtfc Útgefandi: H.f. Árvakur, Reykjavik. F Tmkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Lesbók: Árni Óla, sími 33045. Auglýsingar: 4rni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: \ðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: A.ðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 3.00 eintakið. RIKISÁBYRGÐIR OG ATVINL'ULÍFIÐ Ij'ins og getið er um á öð>r- •* *“' um stað í blaðinu, nema ríkisábyrgðir þær, sem fall- izt hefur verið á síðustu árin og svo hafa fallið á ríkissjóð, nú orðið geigvænlegum upp- hæðum. Eitt af því, sem Yið- reisnarstjórnin hefur gert til þess að uppræta sukkið og ábyrgðarleysið í íslenzkum fjármálum, var ákvörðun um meira aðhald við veit- ingu ríkisábyrgða. Framsóknarmenn og komm únistar hafa snúizt gegn því að heilbrigðri skipan yrði komið á í þessu efni. Þeirra ær og kýr eru pólitísk af- skipti og yfirstjórn á sem flestum sviðum þjóðlífsins. Takmarkalausar ríkisábyrgð- ir voru eitt af þeim ráðum, sem heppileg þóttu til að ná þeim markmiðum. Þeir sem í náðinni voru gátu fengið ríkisábyrgðir og þurftu síðan Ktlar eða engar áhyggjur að hafa af því, hvort atvinnu- rekstur þeirra skilaði arði eða varð gjaldþrota, ríkið borgaði tapið. Viðreisnarstjórnin fékk í arf geysiháar upphæðir slíkra vanskilaskulda. í sambandi við gengislækkunina hefur verið ákveðið að hluta geng- ishagnaðar skuli greiða upp í slíkar óreiðuskuldir og er það vel farið. Tímabært er bú að grynna á þeim og leggja ekki að nýju inn á slíkar brautir. EFNAHAGSMÁL í 'ÖÐRUM RÍKJUM Cjysturblöðin Þjóðviljinn og ^ Tíminn ræða í gær um efnahagsþróun í Vestur- Þýzkalandi og virðast nú allt í einu telja hana til fyrir- myndar. Við það sjónarmið geta stjórnarflokkarnir vel unað, því að þeir hafa ein- mitt tekið upp mjög svipaða stefnu í efnahagsmálum og fylgt hefur verið í Vestur- Þýzkalandi og raunar flest- um öðrum lýðfrjálsum lönd- um. — Síðan þessi nýja stefna var tekin upp hefur vissulega mikið áunnizt. Hitt er svo rétt, að skemmdarverk þau, sem í sumar voru unnin, munu tefja fyrir efnahags- þróuninni og almennum kjarabótum. — Framsóknar- menn og kommúnistar fram- kvæmdu þá gengisfellingu með svikasamningum SÍS. Þá gengislækkun hefur nú orðið að slaófesta til að forða því að aftur sígi á ógæfu- hliðina. í Vestur-Þýzkalandi eru kommúnistar nánast áhrifa- lausir sem vonlegt er, þar sem þjóðin hefur stöðugt fyr ir augum sér flóttamanna- strauminn að austan og fær bein og náin kynni af ógnar- stjórninni, sem þar ríkir. — Kommúnistum þar í landi hefur því ekki tekizt að grafa undan traustum efna- hag landsins, en þar að auki eru Vestur-Þjóðverjar svo gæfusamir að eiga engan Framsóknarflokk né nein skipulögð samtök, sem gætu látið sér til hugar koma að standa að skemmdarverkum með kommúnistum. Það hef- ur fram að þessu gert gæfu- muninn. Af orðum framsóknar- manna að dæma þessa dag- ana virðast þeir enn ætla að standa við hlið kommúnista. Að því leyti þarf það ekki að vera stjórnarflokkunum mik- ið harmsefni, að sá dagur kemur að þjóðin fær að kveða upp dóm sinn yfir slíkri afstöðu. í engu lýðræð- isríki hefur stjórnmálaflokk- ur, sem lýðræðissinnaður kallazt, komizt upp með jafn óábyrga afstöðu og Fram- sóknarflokkurinn. Yrði það því að teljast furðulegt, ef hann héldi velli, þegar kosn- ingar fara fram, viðreisnin hefur sýnt síg í verki og fólkið fær að dæma um hana. EFLING STOFN- LÁNADEILDAR SJÁVARÚTVEGS- INS 'HLfeðal ráðstafana þeirra, sem gerðar voru í sam- bandi við gengisbreytinguna, var hækkun útflutnings- gjalda um 4 til 5%. Gjöld- um þessum skal varið í þágu sjávarútvegsins. Þar er sér- stakt nýmæii um trygginga- mál " fiskiskipaflotans, en 32% útflutningsgjaldsins á að renna til tryggingakerfis- ins. Nemur sú upphæð væntanlega nálægt 40 millj. króna. . Þá er einnig ákveðið að styrkja stofnlánadeild sjáv- arútvegsins, en til hennar renna 30% útflutningsgjald- anna. Þannig fær sá sjóður einnig nálægt 40 milljónum króna árlega. Er þetta mjög þýðingarmikið, þar sem stofnlánadeildinni verður þá ■ ■ ■•:•••■•• :•••■ ■ . ■ :í. „Sveröið ávallt unú- anfari plógsins" —segir m. a. í „Annarri bók Hitlers” EIN S og sagt var frá í frétt hér í blaðinu á dög- unum, hefur verið gefin út „ný“ bók eftir Adolf Hitler í Þýzkalandi — og nefnist hún einfaldlega „Hitlers Zweites Buch“ (þ. e. „Önnur bók Hitlers“). Mörgum mun þykja sem Hitler hafi gefið nægilegt yfirlit yfir öfgafullar og brjálsemikenndar skoðanir sínar í „Mein Kampf“ — enda telja þeir, sem látið hafa „Annarrar bókarinn- ar“ að einhverju getið, að ekki sé hún til þess fallin að auka hróður höfundar- ins. — Væntanlega hefur tilgangur útgefenda ekki heldur verið slíkur, held- kleift að greiða fyrir fram- kvæmdum ti] að auka hag- kvæmni og bæta rekstur fiskvinnslustöðva og atvinnu tækja sjávarútvegsins al- mennt. Með viðreisnarráðstöfunun um skapaðist í fyrsta skipti grundvöllur og hvöt til auk- innar framleiðni í útvegin- um. Áður mátti útvegsmönn- um vera nokkuð sama hver tilkóstnaðurinn var, því að hann var greiddur af rík- inu, samkvæmt reikningi, um hver áramót. Héðan í frá skila þau fyrirtæki ein arði, sem vel eru rekin, og frum- skilyrði er fyrir sérhvern at- vinnurekanda að gæta fyllstu hagkvæmni. ur hafa þeir að líkindum gert sér vonir um, að bók eftir þennan mis- fræga höfund — svo ekki sé meira sagt — mundi verða allgóð söluvara, en ágóðanum skal verja til styrktar þeim, er um sár- ast eiga að binda af hans völdum, eða „fórnarlömb- um nazismans“, eins og segir í tilkynningum út- gefendanna. ADOLF IIITLER — hamar eða steðji.... Væri svo sem ekki nema gott um það að segja, ef Hitl- er gseti þannig óbeint orðið til þess að baeta örlítið fyrir illvirki sín — en nú hefir það reyndiar heyrzt í fréttum, að TALIÐ er, að um 700 Túnis- menn hafi fallið í bardögum við Frakka um Bizerta, sem stóðu fyrir um hálfum mán- uði. Sunnudaginn 23. júlí var gerð útför margra tuga hinna föllnu í einu. Fyrst fór fram kveðjuathöfn — eða sorgarhátíð, eins og það var kallað í opinberum til- kynningum — á aðaltorginu í Bizertaborg. — Er þessi mynd tekin við það tækifæri, og sjást þar nokkrar af lík- kistunum, sem allar voru sveipaðar hinum túniska fána. — Vopnahlé var komið á, þegar athöfn þessi fór fram. Mjög mikil ólga ríkti þó í borginni, en lögreglu og herliði tókst að halda almenn ingi í skefjum, svo að ekki sauð upp úr að nýju. En frið- urinn er því miður ótryggur enn.... _ almenningur í Þýzkalandi sé ekki ýkia áfjáður í þetta les- efni. Eitt' blað (raunar enskt) birti örstutta frétt um þetta undir fyrirsögninni „Mein Flopf“ (sem mun eiga að þýða „skellur minn“ eða því- líkt). ★ Fór á flæking. Eftir því sem næst verður komizt, hefir handritið að um- ræddri bók verið vélritað eftir upplestri Hitlers árið 1928 — en aldrei fór það víst til út- gefandans. — Segir svo ekki meir af handritinu fyrr en ár- ið 1945. I»á fékk bandarískur höfuðsmaður, sem falið hafði verið að safna saman skjölum nazista, sent handrit, sem reyndist vera afrit af þessari óbirtu bók Hitlers. Síðan fór hamdritið, ásamt bunka af öðr um nazistapappírum, til Was- hington — og bar það einungis númerið EAP 105/40. Má nú j segja, að það hafi fallið í al- | gera gleymsku. I»ar kom þó, S að ,,spæjarar“ frá sögurann- k sóknastofnuninni „Institut ? fúr Zeitgeschichte" í Múnehen J röktu slóð þess — og fengu 1 leyfi bandaríska utanríkisráðu | neytisins til þess, að stofnunin mætti gefa bókina út í Þýzka landi. ★ Ófögur lýsing. EiWs og fyrr segir, þykir „Önnur bók Hitlers" litt til þess fallin að vimna höfundi sínum aukið álit. — Banda- Framhald á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.