Morgunblaðið - 05.08.1961, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 05.08.1961, Qupperneq 13
Laugardagur 5. ágúst 1961 MORGUN'tLAÐlÐ 3 Víðtæk vegaþjónusta aðstoð við bifrelðaeigendur 8! og UNDANFARIN ár hefur F.Í.B. heldið uppi víðtækri viðgerða- iþjónustu og aðstoð við bifreiða- eigendur á vegum úti um Verzl- unarmannahelgina. Þessi þjónusta félagsins hefur átt miklum vinsældum að fagna, enda hafa margir notið hennar foæði meðlimir í félaginu og aðrir ökumenn, — þótt svo sé að vísu til ætlazt, að félagsmenn gangi fyrir henni. Umferð á vegum bæði sunnan- lands og raunar um allt land, fer sívaxandi með ári hverju, en það gerir jafnframt aukna þjón- ustu F.Í.B. nauðsynlega enda hef ur félögum fjölgað mjög að und- anförnu. Enda hefur félagið nú foolmagn til þess að hafa fleiri og betri aðstoðarbíla á vegunum, en nokkru sinni áður. Einnig verða nú fleiri verkstæði opin, foetra samband við vegfarendur, meiri samvinna við ýmsar opin- foerar stofnanir, aukin þjónusta á ýmsan hátt. Vegaþjónusta F.f.B. starfar nú Kiljans- kvöld í HóSmínum Stykkishólmi, 25. júlí. ÁGÆTIS veður í gær og í dag. Sól og andvari. Góður þurrkur og margur hefur notað sér hann Vel og náð upp miklum heyjum. I gærkvöldi kom hingað til Stykkishólms ágætur leikhópur. Voru það þau Helga Valtýsdótt- ir, Haraldur Björnsson, Rúrik Haraldsson og Lárus Pálsson. Réttara sagt Leikflokkur Lárus- ar Pálssonar. Ósköp er langt síðan svona ágætur leikhópur hefur heimsótt Stykkishólm, enda skemmtu menn sér kon- unglega og dáðust að því hversu vel, já snilldarlega vel þessi sýn ing tókst. Leikurinn allur jafn og vel fluttur — þannig að tím- inn var liðinn áður en fólk átt- aði sig á því. Sýndir voru ýmsir kaflar úr verkum Halldórs K. Laxness. — Vmsir héldu óður en þeir sáu sýninguna að hér væri aðeins um upplestur að ræða. Að kalla þetta Kiljanskvöld hefur ef til vill ekki verið nógu skýrt til orða tekið. Nei. Þarna voru á ferðinni ágætir leikþættir og allir vel valdir nema að mínum dómi helzt einn kaflinn í Para- dísarheimt. Mér fannst honum hefði mátt sleppa og í hans stað koma þátturinn þegar Steinar kemur heim frá Kaupinhafn. — Þar nær verkið hámarki sínu. En hvað um það. Um þetta mó alltaf deila, en sýningin í heild var ágæt og þeir sem sáu, ánægðir og þakklátir hinum ágætu gestum fyrir heimsókn- ina. — í lok sýningar ávarpaði pró- fastur Sig. Ó. Lárusson leik- flokkinn og færði honum þakk- ir Hólmara fyrir ágæta og vand aða skemmtun. í dag hélt leikflokkurinn áfram ferð sinni og næsti áfanga staður var Logaland í Reykholts dal. — ★ Unnið er nú í Skógarstrandar- vegi og er þegar kominn ágætur vegur að Valshamarsá og vant- ar nú ekki nema tæpa 7 km til að vegurinn nái saman og skot- vegur sé frá Stykkishólmi inn í Búðardal. Þessir 7 km sem eft- ir eru eru líka afar leiðinlegur og vondur kafli og sjálfsagt tala margir eitthvað ekkj íagurt þegar þeir aka hann. af fullum krafti um mestu um- ferðahelgar ársins, eða s.l. helgi, næstu helgi (verzlunarmanna- helgina) og einnig um helgina 12.—13. ágúst. Á vegum F.Í.B. eru 6 aðstoðar- bifreiðar á vegunum sunnanlands og vestan, 3 þeirra eru stórir krana- og dráttarbílar, sem fyrir- tækið Þungavinnuvélar h/f legg- ur til. Þar að auki eru nokkrar aðstoðarbifreiðar á leiðinni Borg- arfjörður — Akureyri. Margir þessara bíla hafa talstöðvar. F.f.B. hefur samið við ýmis við- gerðaverkstæði um þjónustu við vegfarendur, Og eru þau helstu á Akureyri, Dalvík, Skagaströnd, Blönduós, Hvammstanga, Lauga- læk, við Miðfjarðará, Forna- hvamm, Hreðavatn, Borgarnes, Akranes, Hveragerðí, Selfoss, Hellu, Hvolsvöll og Vík í Mýr- c&l. Ökumenn eru beðnir að snúa sér til þeirra ef hægt er — frekar en að tefja viðgerðabílana á veg- unum. Landssími fslands veitir mikils verða þjónustu til að auðvelda þetta starf, einkum hvað snertir talstöðvaþjónustu. Stuttbylgju- stöðin að Gufunesi aðstoðar einnig við að halda uppi sam- bandi milli hinna ýmsu stöðva, — Útvarpið flytur öllum landsmönn um tilkynningar um framkvæmd þessarar þjónustu F.Í.B. og skýr- ir vegfarendum frá því hvar bif- reiðarnar eru staðsettar á hverj- um tíma. Þá hefur lögreglan í Reykjavík einnig tekið þátt í þess um aðgerðum, og geta allir snúið sér til hennar beint, eða bifreiða hennar með hjálparbeiðnir. Flugbjörgunarsveitin hefur lán að ýmis tæki og hjúkrunargögn. Um síðastliðna helgi var yfir 20 bifreiðum veitt ýmisskonar að- stoð í nágrenni Reykjavíkur, og má m. a. benda á atvik, sem kom fyrir á Þingvallaveginum, er fólksbifreið fór útaf og féll niður af mannhæðarháum vegkanti. Farþega sakaði ekki, en bifreiðin skemmdist talsvert. Vegaþjónusta F.Í.B. frétti af þessu í gegnum talstöðvarnar Og eftir 20 mín. hafði bifreiðinni verið náð upp á veginn — og gert við hana — svo hún gat haldið áfram leiðar sinn- ar. Til þess að fljót og góð hjálp geti borizt eru allir vegfarendur beðnir um að veita aðstoð sína við að koma skilaboðum áleiðis til viðgerðabílanna frá þeim sem hjálpar þarfnast. ÞAÐ, SEM þarf að athuga þegar myndir eru teknar, er í stiuttu máli þetta: Gæta verður þess að ljós komist ekki inn á filmuna þegar hún er sett í myndavél- ina eða tekin úr henni. Þeg- ar filman er tekin úr, verður að vefja rauða pappírnum vel utan um hana og sjá um að hún sé þétt vafin upp á keflið og límd aftur. Þegar filman festist í mynda vél, sem er því miður mjög algengt, er oftast búið að taka á meiri hluta filmunnar. Þá er réttast að taka filmuna úr vél- inni, því annars er hætta á að myndavélin brotni eða film an rifni. Ef verið er úti við, ^ er bezt að breiða yfir sig eða nota svefnpoka sem myrkra- herbergi. Filman er síöan los- uð, undin upp í höndunum og límd aftur. Er þá oftast hægt að bjarga myndunum. Fjarlægð verður að vera rétt stillt. Kassavélar taka ekki skýrar myndir nær en 2 m., flestar eru stilltar á 3 metra. Á þær er því hægt að taka myndir frá 2—3 m fjarlægð í óendanlegt. Hraðastilling: Á kassavél- um er hraðinn hægur 1/25 úr sek., svo að gæta verður þess að vélin sé stöðug þegar hleypt er af, svo að myndin verði ekki hreyfð. Á mynda- vélum, sem hafa breytilegan hraða, er hægt að nota 1/100 hluta úr sek. þegar myndir eru teknar úti við og ljósop F 11 í sól. Þegar birtan minnkar á að opna Ijósopiö, en ekki minnka hraðann. Hér er svo til hliðsjónar tafla, sem má nota þegar engin ljós- mælir er við hendina. Klipp- ið hana úr blaðinu og stingið henni í lokið á myndavéla- töskunni, þar sem auðvelt er að ná til hennar. Ljósop Sól 11—16 Skýjað en bjart 8 Þungbúið 5,6 Dimmt veður 3,5—4 • Umbúðirnar kopierast á filmuna Allar filmur eru stimplað- ar með dagsetningu, sem gef- ur til kynna hvenær filmatt er útrunnin. 1—2 árum eftir þann tíma hefur hún tapað það litlu af ljósnæmi sinni að ekki ætti að saka. Þetta á samt ekki við allar filmur, sem hér hafa fengizt. Sumar duga varla út þann tíma, sem stimplaður er á kassann. — Algengast er að með timanum kopierist af pappírnum, sem vafinn er utan um filmuna og koma þá jafnvel tölustaf- irnir af pappírnum fram á filmuna. Ástæðan fyrir þessu virðist helzt vera sú, að þess- ar filmur þoli illa hita og ætti því að varast að skilja myndavélina eftir í sól lang- an tíma, eða geyma hana í mælaborðinu í bílnum. UPPLÝSINGAR þessar fengum við í F o t o f i x í Vesturveri. : Nýtt samkomu - og veitingahús opnað á Egilsstödum UM næstu helgi verður tek- ið í notkun nýtt samkomu- og veitingahús í Egilsstaða- kauptúni á Héraði. Heitir það Ásbíó, og stendur að því 20 manna hlutafélag. Húsið er um 220 fermetrar að stærð, tveir samliggjandi sal- ir, annar fyrir veitingar en hinn ætlaður til kvikmynda- sýninga og dansleika. Bætt úr þörf. Fyrir um það bil 5 árum tóku fimm menn í Egilsstaðakauptúni Síldarbáturinn Arnkell frá Rifi var aldeilis drekk- hlaðinn af „silfri hafsins", er hann kom inn til Norð- fjarðar í fyrri viku, eins og sést á meðfylgjandi mynd. Enda tolldi sildin ekki á sínum stað, heldur sprengdi skilrúmið inn í lúkarinn og flæddi þar inn. Náði síldin upp að efri kojum. Sem betur fór var enginn skipverja þar inni, og kokkhúsið á bátn- um er aftur í. Þessvegna sakaði engan, en verkun- in á Iúkarnum var víst ekki sem geðslegust, þeg- ar búið var að losa hann. sig saman og hófu kvikmynda- sýningar þar á staðnum. Voru það þeir Árni Björnsson, Einar Stefánsson, Garðar Stefánsson, Sverrir Ólafsson og Einar Ólafs- son. Ráku þeir kvikmyndahús um nokkurt skeið, en fyrir 2 ár- um skemmdust vélar og hús af eldi og lagðist þessi starfsemi þá niður. A síðastliðnu vori er kunn- ugt varð að gistihús Sveins bónda Jónssoanr á Egilsstoðum, sem hann hefur rekið áratugum sam- an af mikilli prýði yrði ekki leng u,r starfrækt, hófust eigendur Ás- bíós handa og stofnuðu hlutafé- lag. Var gamla bíóhúsið stækkað um helming og er smíðinni nýlok ið. Yfirsmiður var Hjalti Guðna- son. Rekstur hússins. I þessu nýja húsi eru veitingar á boðstólnum allan daginn. Er sjálfsafgreiðsla, beini seldur vægu verði og öllu fyrirkomið á hinn haganlegasta hátt. Auk þess verða haldnir í húsinu dansleik- ir um helgar eins og áður segir. Kaffidrykkja fréttamanna. í fyrrakvöld var fréttamönnum boðið til kaffidrykkju í húsinu og skýrðu þeir Þórður Benedikts- son og Ari Björnsson þá frá að- draganda þessara framkvæmda og fyrirhuguðum rekstri hú sins. í stjórn Ásbíós hf. eru. Þórðuir Benediktsson, formaður, Ari Björnsson og Guðmundur Bene- diktsson, en frú Erna Elíasdóttir sér um veitingar. — J Dragnótatrill- urnar einar fiska AKRANESI, 3. ágúst. — Sj. dragnótatrillur voru á sjó í gæi Aflahæstur var Hafþór með : lestir, helmingur koli, hit þorskur. Happasæll fékk 1301 kg. Sigursæll 1100, Flosi 100C Björg 900 og Sæbjörg 800. — Enginn fiskur fæst á handfær og lítið sem ekkert á ýsulóð. fyrradag fiskaði ein trillan tvæ: stórlúður. — Oddur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.