Morgunblaðið - 12.11.1961, Qupperneq 11
Sunnudagur 12. nóv. 1961
MORGVNBLAÐ1Ð
11
— Existensialismi
Framh. af bls. 9.
styrjaldanna. Stefna hans hélt
velli þegar nazisminn hrundi.
Það skar ekki úr þótt Nazistar
héldu ýmsum existensíalistum í
fangelsi, eða gerðu aðna land-
ræka, svo sem blaðamenn, rit
höfunda o.fl.
Ahrifaríkur samferðamaður
Heideggers var Karl Jaspers,
sem enn lifir og læur til sín
taka á mörgum sviðum. Von-
andi gefst tækifæri til að greina
frá þeim merka, hugsuði síðar.
I Frakklandi ryður stefnan sér
til rúms fyrir áhrif G. Marcels
og J. P. Sartre, sem eru þó mjög
ólíkar manngerðir, þar sem ann-
ar er guðleysingi, en hkin trúað-
ur kaþólskur maður. En báðir
eru mikilvirkir sem skóld og rit-
höfundar.
Að öllu samanlögðu hefir
stefnan verulega mótað og sveigt
andlegt líf Evrópu á síðari ára-
tugum, einkum bókmenntir, en
einnig aðrar listir og hugvísindi,
guðfræði, uppeldisfræði, sálar-
fræði og sóciologi (almenna fé-
lagsfræði). Kaldranaleika efnis-
hyggju og andúðar gegn trúar-
brögðum gætir nú miklu minna
en áður, meðan þróunarhyggjan
og efnishyggjan mótuðu hugsun
manna. Afstaðan til kirkjunnar
hefir einnig tekið miklum breyt-
ingum. Innan kaþólsku kirkjunn-
ar hefir vakning Ný-Thómismans
verið samtíma existensíalisman-
um. Má finna ýms skyld ein-
kenni sameiginlega báðum stefn-
um, þótt þær séu um margt ó-
líkar. Meðal hinna fremstu hugs
uða er að finna trúhneigða eða
trúaða menn í herbúðum beggja.
Menn skyldu gefa gaum að
nýjum hugtökum, sem að vísu
voru til áður, en Heidegger o.fl.
hafa gefið heimspekilget gildi.
Fáir ganga lengra en hann í því
að vara menn við múgmennsk-
unni, sem nútíminn elur stöðugt
á, einkum með vélvæðingu and-
legrar menningar, í skemmtana-
iðnaði, kvikmyndum, útvarpi og
sjónvarpi. Þessi múgmennska,
líf og áhrifavald „Mennisins“
leiðir marga til glötunar (Verlor
enheit) þegar um satt og fagurt
mannlíf er að ræða. „Mennið"
treður hugsjónir hins fagra og
göfuga lífs undir fótum sér. Sálin
verður út undan. Enda tala geð-
læknar um sívaxandi vandamál
hugrænna kvilla og staðfesta
þar með þessa skoðun.
Meðal hinna nýju hugtaka eru
mörg hugtök mannlifsins, sem
menn könnuðust að vísu við, en
gáfu áður lítinn gaum. Þannig
eru t.d. samúð, andúð, umhyggja,
angist (kvíði af óljósum upp-
runa) glötun, tímanleiki, örvænt
ing, iðrun, atfurhvtrf, vitnis-
burður, dauði, eignlegur og ó-
eiginlegur existens — hið sanna
og hið falgka lif. Allt er þetta
greint og tekið til fræðilegrar
rannsóknar í ljósi fjölda dæma
og mikillar reynslu. Myndir eru
dregnar upp af lifinu, mögu-
leikum þess og takmörkum í
frelsi og ábyrgð.
Ef lífið skiptir oss einhverju
máli, þá mætti ætla að það skipti
oss máli hvað fremstu hugsuðir
aldar vorrar hafa um það að
segja. Skipti lífið hins vegar litlu
máli eða engu, þá getur það auð-
vitað verið féþúfa skemmtana-
iðnaðar og annarrar múg-
mennsku. Slíikt líf nefna existens
íaistarnir „óeiginlegan existens“
þ.e. sams konar tilveru og dauðir
hlutir hafa, án ábyrgðar, án á-
kvörðunar, án markmiðs. Eitt af
skáldum vorum talar um að
„fljóta sofandi að feigðar ósi“ og
tjáir þar með greinilega það, sem
Heidegger og ýmsir aðrir hugsuð
ir leggja kapp á að vara menn
við. Þeir hika ekki við að segja
að sú stefna leiði til glötunar og
tortímingar. Og hvað skal segja?
Er ekki öll framtíðarvon vor
bundin við að menn vakni til
vakandi ábyrgðar á möguleikum
sínum, náunga sínum og sjálfum
sér? En vakna menn nema ein-
hver veki þá?
Hér með erum vér, að dómi
existensialistanna, komnir að
hlutverki hinna hugsandi manna,
skálda, kennara, presta, rithöf-
unda, blaðamanna — einnig að
hlutverki foreldranna í uppeld-
inu. Það er að ala upp vakandi
og ábyrga menn, ekki nautna-
sjúka sérhyggjumenn og vesal-
inga, sem allt vilja taka, en ekk-
ert gefa.
Helztu heimildir:
Dr. H. A. Winsnes: Filosofiens
historie, Osló 1959. Heinemann:
Neue Wege der Philosophie. D.
Runes o.fl.: The Dictionary of
Philosophy 4. útg.
VÖLUNDARSMIÐI
. á hinum fræga Parker
Líkt og listasmiðir löngu liðinna tíma, vinna Parker-smið-
irnir nú með óvenjulegri umhyggju við að framleiða eftir-
sóttasta penna heims Parker “51”. Þessir samvizkusömu
listasmiðir ásamt nákvæmum vélum og slitsterkara efni, er
það sem skapar Parker “51” penna. . . , viðurkenndur um
heim allan fyrir beztu skrifhæfni. ,
íyrir yður eða scm gjiiíparker 51’*
A PRODUCT OF <£> THE PARKER PEN COMPANY
...
‘?o:(e*Xor ^
%
VSk %
wipfifgl
VcV9 -
’LSwtf-e'