Morgunblaðið - 31.12.1961, Page 9

Morgunblaðið - 31.12.1961, Page 9
Sunnudagur 31. des. 1961 MORGVNnr, 4f)IÐ 9 RÆTT VIÐ AS vera géður sendiherra Harris: Þegar þér horfið nú yfir farinn veg, mynduð þér þá fremur kjósa, að þér hefðuð starfað í utanríkisþjónustunni áfram — gert það að æviat- vinnu yðar? Nicolson: Nei. Ég held ekki, að ég hafi haft þá hæfileika til að bera, sem gera mann að verulega góðum sendiherra. Það er ekki þess virði að vera sendi- herra, nema að vera verulega góður í starfinu. Sir Harold Nicolson er það nú. Þetta hefur svipt mig mörgu. Þar sem ég er ekki góður í stærðfræði, eru raunvís- indi ofar mínum . skilningi. Alveg eins og sumt fólk hætt- ir að fylgjast með, þegar trú- mál ber á góma, þá hverfur öll hugsun hjá mér, þeg'ar menn fara að ræða um raunvísindi. Við eigum okkur öll dag- drauma tii þess að bæta okkur upp ýmis konar vöntun og ó- fullkomleika. Minn dagdraumur er vísindalegs eðlis — læknis- fræðilegur. Ég hefði gaman a,f því að vakna morgun einn og lýsa því yfir, að ég hefði fund- ið upp læknislyf við gigtveiki, eða eitthvað í þá áttina. Það væri dýrlegt að vera annar Koch eða Pasteur. þroska þetta hugarástand? Nicoison: Ég held, að til þess að maður teljist „menntaður“ í mínum skilningi, verði hann að hafa þekkingu og hæfileika til að lesa bókmenntir annarra þjóða en sinnar eiginnar, a.m.k. bókmenntir annarrar þjóðar. Ég er ánægður með að geta notið bókmennta á frönsku, þýzku ög að nokkru leyti á ítölsku, eins vel og á ensku. Annars held ég, að það hafi aðallega verið franskan, sem máli skipti. Harris: Hversu mikilvæg tungumál teljið þér latínu og grísku? Nicolson: Mér getur ekki dottið neitt í hug, sem komið gæti í staðinn fyrir latínu og grísku, þegar námsefni er valið Harris: Hvernig vitið þér, hvenær sendiherra er „verulega góður“? Nicolson: Það er ekki hægt að vita, fyrr en hann er hættur að vera sendiherra. Þér getið ekki myndað yður raunverulega skoð un á sendiför eða embættis- rekstri sendiherra, fyrr en þér vitið, hvað um hann var sagt, eftir að hann fór. Menn geta verið góðir eða slæmir sendi- herrar á tvo vegu. Þeir geta verið vinsælir eða óvinsælir, og þeir geta verið áhrifamiklir eða áhrifalitlir. Jock (John Hay) Whitney, bandaríski sendiherr- ann, sem fór héðan í ársbyrjun, var mjög vinsæll. Ég ætla, að Gladwyn Jebb hafi ekki verið neitt ósköp vinsæll í París, en hann hafði mikil áhrif og mátti sín mikils, einkanlega við de Gaulle sjálfan. Harris: En kemur manngildi — persónuleiki — sendiherra mjög til álita í sambandi við það, hvort hann verður talinn „góður“ eða „slæmur“? Nicolson: Slíkt hefur mjög mikla þýðingu. Það er alger- lega komið undir persónulegum eiginleikum manns, hvers kon- ar sendiherra hann verður. Þeir eiginleikar skipta öllu máli, skapgerð, lundarfar og lyndis- einkunn. Framar öllu vil ég telja þessa þrjá eiginleika: Hug rekki, gáfur og þolinmæði. De Gaulle mat Gladwyn Jebb mjög mikils, vegna þess að Jebb lét hlut sinn hvergi fyrir honum. Hann kom alltaf til baka á fund forsetans, án þess að nokkurn kjark hefði dregið úr honum, og skýrði sjónarmið sín mjög skynsamlega og af ein- stakri þolinmæði. Það er bezta leiðin til þess að verða góður sendiherra, og þannig er hinn bezti sendiherra. Góður sendiherra getur breytt stefnu ríkisins, þar sem hann starfar. Það gerist ekki oft, en fyrir getur það komið, og stundum getur hann breytt stefnu síns eigin lands. AB vera ekki góður í leikfimi Harris: Þér sjáið ekki eftir því, að hafa ekki orðið stjórn- málamaður, og þér sjáið ekki eftir því, að hafa ekki orðið diplómat. Iðrizt þér n o k k - u r s ? Nicolson: Mér þykir leiðin- legt, að ég skyldi ekki vera góður í leikfimi; ég sé eftir því, að ég skyldi ekki vera góður í stærðfræði; og ég iðrast þess að hafa aldrei brugðið mér til Kína. Harrls: Höfðuð þér raunveru- lega áhyggjur af því, þótt þér væruð ekki góður í leikfimi í skqla? Nicolson: Áhyggjur? — Þetta varpaði skugga á alla tesku mína. Það gerði mér dap- urt í geði á hverjum degi. Ég gekk- í Wellington-skólann, en í skólanum þeim var álitið frem- ur mikilvægt að vera duglegur í leikfimi, leikum og íþróttum. Ég man eftir því, að leikfimi- kennarinn sagði einu Sinni við mig: „Guð hjálpi mér, Nicol- UHI LISTENA AÐ LIFA, SKÁLDSBÍAP LEIKFIMI, ELLINA, DIPLÓIVIATÍ, GAGNRÝNI, FORVITNI OG FLEIRA SAMTAL það, sem hér fer á eftir, er síðari hluti við- tals, sem Kenneth Harris átti við Sir Harold Nicolson og birt var í brezká vikublaðinu „The Observer" fyrir skömmu í tilefni af 75 ára afmæli Sir Harolds. Sir Harold er þekktur fyr- ir skrif sín um sagnfræði og bókmenntir. Hefur hann gef- ið út fjöldamargar bækur á sl. 40 árum, allt frá „Ver- laine“ árið 1921 og til „Age of Reason“ árið 1960. Þá hef- ur hann getið sér gott orð sem bókagagnrýnir, einkum á síðari árum við „The Obser- ver“. Sir Harold er fæddur í Teheran árið 1886, og voru forldrar hans Carnock lávarð ur og lafði Hamilton. Sir Harold nam í Balliol í Ox- ford og gekk síðan í utan- ríkisþjónustu Bretlands. Starf aði hann í henni, unz hann sagði af sér árið 1929. Var hann bæði í Madrid, Mikla- garði, Teheran og Berlín, og í utanríkisráðuneytinu í Lundúnum um árabil. Hann var einn fulltrúa Breta við gerð friðarsamninganna 1 Versölum 1919—1920. Eftir að hann sagði af sér störfum í utanríkisþjónustunni árið 1929, fékkst hann við ýmis ritstörf og var m. a. í rit- stjórn „The Evening Stand- ard“ um tíma. Árið 1935 var hann kosinn á þing fyrir Verkamannaflokkinn og sat þar fram yfir stríðslok. Útvarpsstjóri BBC varð hann 1941 og gegndi því starfi um árabil. Eiginkona Sir Harolds er V. Sackville-West, og eiga þau tvo syni. Sir Harold er heimsþekkt- ur fyrir skrif sín um sagn- fræði, bókmenntir o. fl. — Fyrsta bók hans, „Verlaine“, kom út árið 1921. Þá má nefna bækurnar „Tennyson", ,,Byron“, „Some People", „Public Faces“, „Lord Car- nock“, „Peace Making 1918 —1919“, „Curzon — The Last Phase“,' „Dwight Morrow", „Small Talk“, „Helens Tow- er“, „Diplomacy" „Marginal Comment", „Why Britain is at War“, „The Desire to Please", „The Congress of Vienna“, „The English Sense of Humour", „Benjamin Constant", „King George V: His Life and Reign“, „The Evolution of Diplomatic Met- hod“ og „Good Behaviour". Síðasta bók hans, „The Age of Reason“, kom út í fyrra. Þá hefur hann getið sér gott orð fyrir bókagagnrýni, og hefur á seinni árum ritað í Observer. son! Þér eruð algerlega r o t - i n n “. Það var enginn napur- leiki í röddinríi, engin illgirni, óvild eða fyrirlitning. Hér var aðeins um hlutlausa en ein- dregna yfirlýsingu á staðreynd að ræða, og ég vissi, að hann hafði á réttu að standa. Það var hreint himnaríki fyr- ir mig að fara til Balliol. Þang- að til ég fór frá Wellington, var lífið mér ekkert nema leið- indi, en síðan hefur mér aldrei leiðst. í Balliol var stórkostlegt að vera. Á þeim árum átti ég margar góðar stundir. Ég kem þangað oft, og mér sýnist allt vera hið sama og þá: Sama stranga, . hörkulega herbúða- andrúmsloftið, viðfeðmur skiln- ingur og samúð í andlegum efn- um, andstyggð á eyðslu, hvort heldur um er að ræða á tíma, fjármunum eða öðru, sami smá- vottur af drambi eða ofmetn- aði. „Áreynslulausir yfirburðir", sagði Asquith. Harris: Er ekkert, sem þér hafið á móti Balliol, eins og hann var á yðar tíma? Nicolson: Jú. Við vorum allir ákaflega hrifnir af Swinburne, en þar missást okkur illilega. Á þeim árum þótti mér hann yndislegur. Nú hata ég hann. Harris: En þetta með stærð- fræðina. Gátuð þér hreint e k k - e r t í reikningi? Nicolson: Nei, ég var mjög slæmur. Það er bara þannig, að ég get ekki hitt bolta, og ég get ekki lagt saman tölur. Svona Að vera menntaður 'Harris: Eigið þér við það, að þér hefðuð heldur viljað vera vísindamaður en nokkuð annað? Nicolson: Já, ég á við það. Það er enginn vafi á því. Húm- anísk fræði þroska tilfinningar, en vísindi og tæknifræði þroska hugsanir. Þær síðarnefndu eru áhrifameiri, öflugri. Húmanísk fræði breyta fólki — dálítið, en vísindin breyta heiminum — og fólki líka. Ég myndi láta mér það nægja, ef ég gæti rétt aflað mér nógrar þekkingar á raunvísindum til þess að geta fylgzt með. Eins og er veit ég svo lítið, að ég er einfaldlega sambandslaus við — eða get ekki umgengizt — fólk, sem ég veit, að er bæði skemmtilegt, fróðlegt að kynn- ast, og áhrifamikið. Þetta er auðmýkjandi fyrir mann, sem trúir því, eins og ég geri, að allur tilgangur menningarinnar sé að auka samband hvers og eins við annað fólk og við lífið. Harris: Hvað eigið þér við með orðinu „menning", þegar þér talið um tilgang menning- arinnar? Nicolsorí: í öllu samhengi er „menning“ orð, sem lýsir hug- arástandi manns; ástandi manns- hugar; ekki innihaldi hugarins, heldur viðhorfum hans: Áhuga, hugðarefnum, ánægjuefni, for- vitni, umburðarlyndi. Harris: Eru einhverjar hlut- lægar forsendur fyrir því að handa gáfuðum strák, sem hjálpa á til að verða að mennt- uðum manni. Þessar námsgrein- ar kenna honum að leggja hart að sér og vinna vel. Þær veita honum ýmislegt, sem er þess virði að eiga við lok námsins, og það beinir honum svo inn á aðrar brautir; leiðir til nýrra hluta. Harris: Hverja listgrein teljið þér nauðsynlegasta og mikil- vægasta fyrir menninguna? Nicolson: Skáldskap. Harris: Hvers vegna? Nicolson: Yegna þess að hann dýpkar tilfinningalífið. Skáldin hafa varðað og markað fyrir okkur hina þröngu stígi, sem liggja niður til dýpstu meðvit- uðu tilfinninga okkar. Skáldin kenna okkur, hvernig okkur á .að verða innanbrjósts, þegar við hugleiðum rnikla hluti. Þess vegna sagði Shelley: „Skáld eru óviðurkenndir löggjafar heims- irts“ o. s. frv. Þau lýsa hugsjón- um okkar með minnisstæðum orðum. Þau upphefja okkur og geta komið okkur í algleymis- ástand, sérstaklega þegar þau eru ekki alveg viss, um hvað þau eru að tala. Við getum ekki lifað á kveð- skap eingöngu. Skáldsagnahöf- undar dýpka tilfinningalíf okk- ar ekki eins mikið og ljóðahöf- undar, auka næmleikann ekki eins mikið, en þeir færa út til- finningasvið okkar, víkka skynj- unarsviðið, breikka það og stækka. Virginia Woolf kenndi mér að taka eftir mörgu, sem ég hefði annars ekki séð. Hún hefúr aukið við það svið, sem vitund mín gerir sér grein fyr« ir. Skáldsagnahöfundurinn fær- ir út takmörk tilfinningasviðs- sin, en ljóðskáldið dýpkar það. Að vera skáid Harris:. Hvað vilduð þér hafa orðið, ef þér hefðuð verið skapandi listamaður? Nicolson: Ljóðskáld. Allir myndu vilja verða skáld, ef þeir gætu það. A.m.k. hver sá, sem ber eitthvert skynbragð á, hvað það þýðir að vera skáld. Harris: En ef þér hefðuð ekki getað orðið skáld? Hvað hefð- uð þér viljað vera þá? Nicolson: Voltaire. Harris: Hvers vegna? Nicolson: Vegna þess sem hann var — einstæð samblönd- un háðs og samúðar — eða vorkunnar. Harris: Njótið þér samtíma- skálda? Nicolson: T. S. Eliot er skáld. Auden er skáld. Ég dáist aS sumum kvæðum Stephens Spenders, einkum eldri kvæðum hans. Ég held, að á árunum milli heimsstríðanna hafi skáld- skapurinn — með nokkrum undantekningum — villzt af vegi, runnið út af sporinu og sé ekki kominn upp á það aftur. Vandræðin stafa af tilraunum til þess að öðlast samtímabund- inn innblástur, nýja andagift, og til þess að tala samtíma- máli. Þessar tilraunir eru full- komlega réttar og heilbrigðar, en samt hafa þær komið skáldskapn- um úr snertingu og tengslum við hina sameiginlegu reynslu, þetta sam-mannlega, sem býr í okkur öllum. Nútíma skáldskap- ur hefur orðið að leyndarmáli, einka-samskiptum, bréfaskrift- um innan þröngrar klíku. Auðvitað kemur andsvar, endurverkun, eins og alltaf. Skáldskapur, ekki skáld, ákveð- ur framtíð skáldskaparins. Við eigum eftir að hverfa að nýju á vit ríms og hljóðfalls, kveð- andi, þessa lýsandi afls í ljóð- listinni, sem lýsir öllu svo vel og knýr kvæðið áfram, og gömlu bragarhættirnir, eins og t.d. „blank verse“, koma aftur til sögunnar. Og það leikur enginn vafi á því, að þegar tím- ar líða fram, mun skáldskapar- arfleifðin verða enn auðugri vegna þessa hlés^ Þetta var það, sem gerðist, þegar rómantísku skáldin komu til sögunnár. Mjög glæsilegt skáldskapartímabil var á síðari helmingi átjándu aldar að enda í einhæfri gerviskreytingu og skrúðmælgi, en það leið sann- arlega ekki á löngu, áður en eitt aflmesta og frjósamasta tímabil í skáldskap tók við — rómantíkin. Rómántísku skáld- in kvöi’tuðu einmitt um þetta, — að skáldskapurinn hefði losnað úr tengslum við hinn venjulega mann, venjulegt fólk. Harris: Njótið þ é r kvæða eftir Wordsworth og Coleridge? Nicolson: Það geri ég svo sannarlega. Wordsworth fer að vísu oft niður á óþolandi lágt stig með innantómu orðagjálfri og hversdagsleika, en við skul- um taka hann eins og hann er, jafnvel með öllu ruslinu, og þá er hann eitt með mestu skáld- um veraldar. „Prelude“ er mjög gott kvæði, hvaða mælikvarði sem lagður á það er. Ég tel Coleridge vera mikið skáld fyr- ir alla tíma. Ég held, að hann sé mest van- metinn af öllum brezkum skáld- um. Tennyson var lítils metinn um nokkurt árabil, en hefur nú rétt við aftur — fljótara heldur en Coleridge. Margar skoðanir og hughrif Tennysons fældu fólk frá honum, en nú erum við nægilega fjarlæg honum til þess að láta okkur það engu skipta og koma auga á höfuð- atriðið: mikilleika hans. Ein- göngu fyrir vald hans á mann- legu máli, tungutaki, skipa ég honum í sérflokk, e.t.v. með

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.