Morgunblaðið - 31.12.1961, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 31.12.1961, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 31. des. 1961 verður að hafa alla gát á svo að ofþensla verði ekki. ^ Góð afkoma Hagur ríkissjóðs er góður og unnt var að afgreiða fjár- lög tekjuhallalaus án hækk- unar skatta. Tollar á ýmsum vörum voru þvert á móti lækkaðir í nóvember. Á árinu var haldið áfram að auka frjálsræði í innflutningi. Innflutningur á allmörgum vörum var gef- inn frjáls í ársbyrjun, þ.á.m. leðurskófatnaði. í september- lok var innflutningur á bif- reiðum gefin frjáls. Af öllu þessu hefur leitt meira vöruúr val en nokkru sinni áður og verðlag á mörgum vörum hef ur verið hagstæðara en áður vegna aukinnar samkeppni og tollalækkana. Hefur al- menningur orðið þessa áþreif anlega var nú um jólin. Ber mönnum saman um, að jóla- verzlun hafi nú verið óvenju mikil og er það vitni al- mennrar velmegunar. Hefur og atvinna sjaldan verið meiri heldur en hina síðustu mánuði. Góð síldveiði, bæði á sumar- og haustvertíð, hef ur ráðið úrslitum, þó að vetr arvertíð brygðist sums staðar og aflaleysi togara sé geig- vænlegt. Ætla má, að framleiðslu- verðmæti sjávarafurða reikn- að á föstu verði muni verða svipað á árinu 1961 og á ár- inu 1959. Á árinu 1960 var það hins vegar 8% lægra en 1959. Þess ber þó að gæta, að á árinu 1961 hefur verið kostað mun meira til að afla verðmætanna en á árinu 1959, bæði með stærri og betri bátaflota og mjög aukn- um tækjum til veiða einkum að því, er síldveiðarnar snertir. Verðlag útfluttra sjávarafurða er og enn tals- vert lægra en á árinu 1959, líklega um 3—4%. Það sem nú reynir á, er hvort menn vilja á ný stofna í hættu því, sem áunnizt hefur, með því að leggja út í nýjar kaupdeilur og verk- föll, sem engum verða til góðs eða hvort þeir vilja taka upp ný vinnubrögð í þessum efnum. Kanna verður til hlítar, hverju má áorka með betri vinnutilhögun og öðr- um ráðstöfunum, sem einar eru líklegar og mögulegar til raunhæfra kjarabóta. Enda ber að minnast þess, að nú þegar er samið um 4% kaup- hækkun síðar á árinu, auk hækkunar kvennakaups nú þegar. Framkvæmdaáætlun — stóriðja Framkvæmdaáætlunin, sem nú er unnið að, er í beinu framhaldi viðreisnarinnar. — Ein af orsökum sjálfheldunn ar, sem við höfum komizt í, er, að við höfum reynt að gera of margt samtímis án þess að gera okkur grein fyrir, hvernig fjár skuli afl- að og hverja framkvæmd við í raun og veru kjósum helzt. Gífurlegt verk er að semja slíka framkvæmdaá- ætlun í fyrsta skipti og var okkur mikið happ að fá til verksins norska sérfræð- inga, sem eru alvanir slíku starfi úr heimalandi sínu. Aðstæður þar eru um margt svo líkar að til mikillar leið- beiningar varð hér, en hið glögga gestsauga kom einnig að góðu haldi þannig að ætla má, að margt sé betur séð en þótt íslendingar sjálfir hefðu einir unnið að verk- inu. Hér er þó enn einungis um frumdrög að ræða, sem eftir er að vinna úr, og skal ekki á þessu stigi fullyrt, hve nær því verki verður til fulls lokið. Athuganir þessara sérfræð inga hníga mjög í sömu átt og okkar eigin íhuganir um, að til þess að styrkja efna- hagslíf okkar þurfum við á fleiri undirstöðuatvinnuveg- um að halda, og þá fyrst og fremst stóriðju, sem geri mögulega virkjun fallvatna í stærri stíl en áður. Gæti hún orðið undirstaða margs kon- ar smærri iðnaðar, jafnframt því sem hér skapaðist at- vinnuvegur, sem veitti þjóð- inni allri meiri öryggi, held- ur en þeir, sem fyrir eru. Sumir óttast, að með þessu yrði hagur hinna eldri at- vinnuvega skertur. Að mínu viti fer fjarri að svo muni fara, því að einmitt á þenn- an veg einan er hægt að létta af þeim byrðum, sem þeirnú þurfa að bera og gera þeim samkeppni við útlenda at- vinnuvegi erfiða. Á hinu nýja ári eru ærin verkefni framundan. Treysta verður þá atvinnuvegi sem fyrir hendi eru og byggja upp nýja, sem tryggi betur örugga velsæld íslenzku þjóð arinnar. Megi Islandi og íslending- um vel farnast. Gleðilegt ár! Gylfi í álnum í FRÉTTABRÉFI frá sjávar- afurðadeild SÍS er skýrt frá því að reykhúsið, í Hafnarfirði, er reykja skal ál, eigi að geta hafið stárfrækslu í vor. Sé hafin bygg- ing reykihússins og skuli fyrsta áfanga lokið í vor. Valgarð J. Ólafsson er nýkominn úr stuttri ferð til Hollands til að ræða um framkvæmdaatriði við Hollend- inga. Og loks er sagt fré því að ráðinn hafi verið maður til að veita reykhúsinu forstöðu, Gylfi Guðmundsson, hagfræðingur að mennt. Hann hefur unnið hjá Hval h.f. og verið kallaður Gylfi í hvalnum. Nú verði hann vænt- anlega kallaður Gylfi í álnum. Ræningjaher í LEOPOLDVILLÉ, 21. ' des. — í kvöld brutust þúsundir Bal- uba-manna út úr flóttamanna- bú'ðunum í Elisabethville og fóru í, ránsferðir um borgina. — Fóru þeir um íbúðarhverfin eins og ræningjaher og greip mikil skelfing borgarbúa. Um 40 þúsund Baluba-menn eru í flóttamannabúðum SÞ skammt utan við borgina og voru her- menn SÞ önnum kafnir við að handsama Baluba-mennina úti um alla borg. Þegar síðast frctt- ist stóð þetta ógnarástand enn og reyndist SÞ-mönnum erfitt að hafa hemil á þeim, sem eftir voru í flóttamannabúðunum. Sigurður Pálmason, Hvammstanga Verzl. S. Ó. Ólafsson, Selfossi Verzlunarfél. V.-Skaftfellinga, Vík, Mýrdal Verzlunarfél. Borg, Borgarnesi Verzlunarfel. Austurlands, Hlöðum, Lagarfljótsbrú Verzlunarfél. Dýrfirðinga, Þingeyri Húsgagnaverzlun fsafjarðar Bólstruð húsgögn h.f., Akureyri z$Hl *9 Teppi h.f. Austurstræti 22, Reykjavík Pöntunarfélag Eskfirðinga, Eskifirði Verzlun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík Kaupfélagið Þór, Hellu Kristinn Magnússon, Reyðarfirði Sigurður Sölvason, Skagaströnd, Sölvi Ólafsson, Fáskrúðsfirði Verzlunin Vökull, Sauðárkróki Höskuldur Stefánsson, Neskaupstað Verzlunarféiagið Grund h.f,, Grafarnesi Áki Gránz, Norðurstíg 5, Ytri-Njarðvík *9 «9 <9 „ «9 <9 Haukur Jónasson, Slgluflrði **9 Marinó Guðmundsson, V estmannaey jum Vöruhúsxð, Dalvík Þorsteinn Húnf jörð, Blönduosi Verzlun N."C. Nielsen Kaupfélagið Dagsbrún, Ólafsvík Verzlun Sigurðar Ágústssonar Stykkishóimi ^ ' ^ ^9 <S9 «9 <$9 <i9 <9 «9 I :

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.