Morgunblaðið - 31.12.1961, Blaðsíða 20
20
MORGIJTSBLAÐIÐ
Sunnudagur 31. des. 1961
--------^
Margaret Summerton
HUSiÐ
VIÐ
SJÚINN
Skdldsaga
það var engin huggun. Einhvern
tíma.... og fyrir ævalöngu að
mér fannst... .höfðu ástarorð
farið okkar í milli, en ég gat
ekki hugsað mér, að hann myndi
endurtaka þau framar. Atvikið í
bílnum hafði fjarlægt okkur svo
mjög hvort öðru.
Áður höfðum við vorið tvær
mannverur með eitt og sama
markmið.... eða var það nú?
Hafði Mark viljað það, sem ég
vildi, eða var það alltsaman
látalæti?
Ég vissi, að ég átti mér spum-
ingu, sem ég varð að leggja
fyrir hann: ,,Hvað áttirðu við,
þarna í bílnum? Með þessu, að
Esmond væru allar bjargir bann
aðar og að lögreglan væri ekki
það eina sem harm hefði að ótt-
ast?“.
Hann lagði höndina á arm
mér. Farðu nú í rúmið og reyndu
að sofa, Charlotte. Trúðu mér tii,
elskan min að þú ert enginn
maður til að hugsa neitt að gagni
i kvöld.
Ég reif mig lausa. f»ú segir
mér að fara að hátta og sofa, en
hvemig get ég sofið þegar þú
heldur áfram að tala í gátum og
líkingum? Ég verð að fá að vita,
hvað þú átt við, Mark.
Við skulurn láta það '.-iga sig í
kvöld, endurtók hann. Þú hefur
ekki gott af meiru í bili.
Þessi tilraun hans ti-1 að draga
við sig svarið rak mig til nokk-
urs, sem var ekki nein snögg
hugdetta heldur hafði verið að
þróazt með mér undanfarnar
klukkustundir og náði nú há-
marki.
Eftir þetta flökt milli vonar og
ótta, eftir þennan dag, sem
hafði fært mér ástina en gerði
sig nú líklegan til að hrifsa hana
frá mér aftur, var ég orðin fram-
andi fyrir sjájlfri mér.
Höndin skall á kinninni á
Mark svo hún hvítnaði en roðn-
aði síðan. Mig hefði átt að hrylla
við þessu, en ég var gjörsamlega
tilfinningarlaus.
Hann hvorki strauk andlitið né
sýndi þess nein merki, að hann
hefði fundið til höggsins. Jæja,
Charlotte, ef þú vilt hafa það
svona skaltu líka fá það. Ég viidi
bara ekki segja þér það í kvöld.
En hér hefurðu það: Það er eng-
in öruggari leið til að myrða
mann án þess að upp komizt, en
að myrða þann, seotn þegar er tal-
inn dauður.
Ég starði á hann eins og bjáni.
Esmond? En hvern ætli langi til
að myrða hann?
Ivor. Röddin var örugg og
skjálftalaus. Og hugsanlega í
góðri samvinnu við Lísu!
vn.
Já, Mark hafði, með sinni ró-
legu og skjálftalausu rödd til-
kynnt mér, þá trú sína, að Ivor
og Lísa brugguðu Esmond bana-
ráð.
Ég hristi höfuðið og það var
þungt, rétt eins og ég væri að
rakna úr yfirliði. Síðan sneri ég
mér frá honum og gekk til dyra
en var komin út áður en hann
igæti opnað fyrir mér. Ég fór upp
á loft, án þess að geta hugsað í
nokkru samhengi. Þegar ég var
komin inn í herbengið mitt, sneri
ég lykl'inum í skránni.
Ég vaknaði með sölina skín-
andi beint framan í núg og með
reyk í nösunum. Á stól, sem
hafði staðið framan við snyrti-
borðið, sat Lísa með vindling
miili fingranna og starði út um
gluggann.
Ég reis upp við koddann og
við hljóðið sneri Lísa sér við.
Þú læstir dyrunum hjá þér í
gærkvöldi, sagði hún svo að þeg-
ar Ivy kom með teið þitt og
komst ekki inn, fór hún að gera
sér allskonar óhugnanlegar hug-
myndir í.sambandi við þetta og
ég varð að koma henni til hjálp-
ar. Sem betur fer, ganga 'flestir
lyklarnir hér að flestum hurðun-
um. Þú sefur vært eins og ung-
barn, er það ekki?
Ég gerði það í nótt. Ég leit á
úrið mitt. 9.15. Höfuðið á mér
var þungt, þó að ég hefði ekki
beinlínis höfuðverk. Hálft glas
af viskíi? Varla gat það veitt
manni óslitinn svefn í níu klukku
stundir?
Nú komu atburðir gærkvölds-
ins fram í huga mínum í einni
röð — hvert atvik óskert og út
af fyrir sig rétt eins og röð af
einþáttungum. Og síðasti þáttur-
inn, þegar ég hafði beitt líkam-
legu ofbeldi, kom hvað allra
skýrast fram í hugann.
Teið þitt varð kalt, svo að Ivy
fór með það aftur, sagði Lísa ró-
lega. Ég S'kal ná þér í nýtt te ef
þú vilt. en fyrst verðum við að
tala saman. Ég fer út klukkan
tíu Annanhvorn föstudag fer ég
með Gretel ti'l Wel'knouth til þess
að láta leggja á henni hárið —
það er næstum skriflega tekið
frám j ráðningarsamningnum
hennar — og svo lœt ég líka
klippa Timmy ef þess þarf með.
Þú ert eitthvað hissa á svipinn?
Já, það skal ég játa, svaraði ég.
Hún rak upp hæðnishlátur.
Hingað til hefur allt sloppið vel,
af því að allir og ekki sízt ég.
hafa hagað sér eins og ekkert
væri um að vera.
Það hefur víst ekki verið sér-
lega auðvelt, játaði ég.
Ekkert hefur verið auðvelt síð-
an daginn, sem ég giftist Esmond.
Orðin komu með vaxandi styrk
og eitri, rétt eins og ungimeyjar-
hamurinn hefði dottið af henni
sem snöggvast. En svo fór hún í
haminn aftur. Það sem ég vildi
vita, er það hvernig Mark brást
við þessu öllu á leiðinni heim.
Mér varð stirt um svarið.
Já, hvernig brást harrn við?
spurði Lísa aftur óþolinmóð.
Þegar við skildum, var hann
að mestu sömu skoðunar og þeg-
ar þú hittir hann. Hann vill fara
í lögregluna með þetta.... Ég
þagnaði og gat alls ekki getið
mér til um athafnir Marks í
morgun.
En það má hann ekki! Þú get-
ur komið í veg fyrir það,
Charlotte. og það verðurðu að
gera.
Ég hörfaði ósjálfrátt undan
leiftrandi augnaráði hennar.
Já, eigum við ekki að koma að
efninu? sagði Lísa hvasst. Það
fer að verða tímii til kominn. Nú
var ungmeyjan gjörsamlega horf
in úr fasi hennar, og viljinn eða
hvaða metnaður það nú var, sem
rak hann áfram, var eitilharður.
Fyrst og fremst skulum við at-
huga nokkur atriði viðvíkjandi
Mark Halliwell. Þú þekkir hann
ekki mjög mikið. eða hvað?
Sannleikurinn var mér sárs-
aukakenndur. Nei, varð ég að
játa.
Lofaðu mér þá að leiða þig í
allan sannleika. Hann er greind-
ur ungur maður, ekki sem verst
stæður, en hefur þó hvorki eins
mikinn auð eða völd og hann
gætí óskað sér. Þessvegna hefur
hann alltaf látið eins og honum
þætti eitthvað óskaplega vænt
um Edvinu. Þú hefur sjá'lf séð,
hvemig hann þóttist geta komið
í kring sýningu á kl’essunum
hans Dannys. enda þótt hann
vissi vel. að það yrði vonlaust
verk. En það er ekki fyrsta afrek
ið hans. Um hvítasunnuna, þeg-
ar hann var hérna gestkomandi,
fór hann að reyna að koma sér
í mjúkinn hjá Danny, af því að
hann vissi. að hann var innundir
hjá Edvinu. Þá var tilgangurinn
hjá honum sá að reyna að hafa
út úr Edvinu fé til að setja í
bókaútgáfuna sína. En Edvina
var fijót að bíta hann af.
Og svo var það vitanlega auð-
vitað mál, að þegar Edvina sendi
eftir frænda hans og hann gat
ekki komið, gripi Mark tækifær-
koma sér þannig í náðina hjá
ið ti-1 að gera henni greiða og
henni.
Mér finnst hann nú ekki hafa
gert það sagði ég. Edvina veit
vel nú orðið, að hann vili ekki
hafa neinn veg eða vanda hvorki
af myndunum né dagbókunu'm.
O, það er nú bara af því, að
hann hefur haft hestas'kipti ef
svo mætti segja, svaraði Lísa
snöggt. Hann þarf ekki framar
á myndunum eða dagbókunum
að halda Hann hefur fengið þig
í staðinn.
Ég svaraði reiðilega: Bull!
Hún hristi höfuðið, ein,s og á-
sakandi. Nei. það er ekkert bull.
Ég er ekfci að segja, að Mark sé
ekki skotinn í þér í fullri alvöru.
Það gæti ég ekki um dæmt. En
það, sem ég vildi sagt hafa, er
það, að þetta fellur vel við fyrir-
ætlanir hans. Og úr því að svo
er. getur hann ekki sagt neitt
eða gert, sem gæti móðgað þig.
Með öðrum orðum, Oharlotte
mín: Þú getur haft hann eins og
þú sjálf vi'lt. Þig langar ekkert
að láta draga Esmond fyrir dóm-
arann. sakaðan um að hafa myrt
Danny, eða hvað? Nei. auðvitað
ekki. Hún þeytti vindlingsstubbn
um út um gluggann. Er það ekki
.skrítið, að þú skulir allt, í einu
rekast svona inn í líf Esmonds,
einmitt í tæka tíð ti! að bjarga
því?
Ég glápti á hana, alveg orð-
laius.
Láttu þér ekki bregða svona
við. Ég veit að ég hef verið ber-
sögul, en hér duga engin hálf-
yrði, og auk þess hélt ég, að
þetta væri þér sjálfri allt ljóst.
Þú getur að minnsta kosti ekki
annað en vitað, að þú ert sonar-
dóttir forríkrar gamallar konu.
Hún hatar mig. svaraði ég.
Æ, góða mín þú ætlar vonandi
ekki að fara að gera þér rellu
út af þessum smáhnippingum
ykkar í gær. Þetta er ekki nema
daglegt brauð hjá öllum, sem
hér eru nálægt henni. Hún horfði
á mig eins og hún vildi leggja
á mig eitthvert lokamál. Þú ert
viss að fá eitthvað eftir Edvinu,
þori ég að sverja. Og þú getur
meir að segja verið komin með
geislabaug um höfuðið, áður en
þú veizt af' Vitanlega vona ég,
að sá baugur verði ekki alltof
stór, en annars ætti að verða nóg
handa okkur báðum.
*
V
>f >f GEISLI GEIMFARI
>f >f >f
v
/ ■— Klimmer foringi, við handtök-
um Pétur á gamalmennaklúbbnum í
kvöld. Það er bezt að þér látið
borgaraklæddu lögreglumennina yð-
ar sjá þetta.
Tilkynning: Síðast þegar hann var
handtekinn bar Pétur geislabyssu.
Verður að telja að hann beri vopn
og sé mjög hættulegur.
— Og eitt atriði enn. Það er hugs-
anlegt að Pétur reyni að nota nýtt
banvænt eitur .... Glottandi gas!
ailltvarpið
Sunnudagur 31. desember.
(Gamlársdagur)
830 Létt morgunlög. — 9.00 Fréttir.
— 9.10 Veðurfregnir.
9.20 Morguntónleikar:
a) Grund Piéce Symponique eft-
ir César Franck (Marcel Dup-
ré leikur á orgel).
b) Noktúrnur eftir Debussy Sin-
fóníuhljómsveit Lundúna leik
fc ur; Leopold Stokowski stjórn-
^ ar.
c) Gérard Souzay syngur aríur
úr frönskum óperum við und-
irleik hljómsveitar.
d) Fiðlukonsert nr. 1 1 D-dúr
op. 6 eftir Paganini (Leonid
Kogan og hljómsveit tónlist-
arháskólans í París leika,
Charles Bruek stjórnar).
c) Karnaval op. 8 balletmúsík eft
ir Schumann (Hljómsveitin
Philharmonia; Robert Irving
stjórnar).
12.15 Hádegisútvarp.
13.00 Endurtekið leikrit: „Penelope'*
eftir William Somerset Maugham
(Áður útv. 3. okt. 1959). Þýð-
andi: María Thoroddsen. — Leik-
stjóri: Helgi Skúlason. v
14.25 Miðdegistónleikar:
í»ættir úr óperunni „Sígauna-
. baróninn** eftir Johann Strauss
(Hilde Guden, Anneliese Rothen-
berger, Karl Terkal, Erich Kunz
o.fl. syngja með kór og filhar-
monísku hljómsveitinni í Vínar-
borg; Heinrich Hollreiser stjórn-
ar. — Jón R. Kjartansson kynn-
ir).
15.30 Kaffitíminn: Jósef Felzmann
Rudólfsson og félagar hans leika.
16.00 Veðurfregnir. — Nýjárskveðjur.
— (Hlé).
18.00 Aftansöngur í Hallgrímskirkju
Prestur: Séra Jakob Jónsson.
Organleikari: Páll Halldórsson).
19.10 íslenzk alþýðulög og álfalög.
19.30 Fréttir og íþróttaspjall.
20.00 Ávarp forsætisráðherra, Bjarna
Benediktssonar.
20.30 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur.
Stjórnandi: Pál! Pampichler
Pálsson.
21.00 „í þungbæru gamni og glens-
fullri alvöru,“ samfelldur þátt-
ur í tali og tónum. Flosi Ólafs—
son dregur saman efnið og nýtur
fulltingis ýmissa skemmtikrafta,
ekki sízt Svavars Gests og hljóm-
sveitar hans.
23.00 Gömlu dansarnir: Hljómsveit
Guðmundar Finnbjörnssonar
leikur lög eftir íslenzka höfunda.
Söngfólk: Hulda Emilsdóttir og
Sigurður Ólafssen.
23.30 Annáll ársins (Vilhjálmur Þ*
Gíslason útvarpsstjóri).
23.55 Sálmur. — Klukknahringing.
Áramótakveðja. — Þjóðsöngur-
inn. — (Hlé).
00.10 Danslög, þ.á.m. leikur
danshljómsveit Björns R. Einars-
sonar.
02.00 Dagskrárlok.
Mánudagur 1. janúar
(Nýársdagur)
10:45 Klukknahringing. — Nýárssálmur
11:00 Messa í Dómkirkjunni (Biskup
íslands, herra Sigurbjörn Ein-
arsson, prédikar. Séra Jón Auð-
uns dómprófastur þjónar fyrir
altari. Organleikari: Dr. Páll Is-
ólfsson.
12:15 Hádegisútvarp. ^
13:00 Ávarp forseta íslands (Útvarpaff
frá Bessastöðum) — Þjóðsöngur-
inn.
14:00 Messa í Laugarneskirkju (Prest-,
ur: Séra Garðar Svavarssonu
Organleikari: Kristinn Ingvars-
son).
15:15 Kaffitíminn:
a) Leonard Pennario leikur létt
lög á tvö píanó.
b) Carl Billich og félagar hana
leika.
16:00 Veðurfregnir.
Nýárstónleikar: Níunda hljóm-
kviða Beetho\ ens (Bayreuth há-
tíðarhljómsveitin, Elisabeth
Schwarzkopt, Elisabeth Höngen.
Hans Hopf, Otto Edelmann og
Bayreuth hátíðarkórinn flytja.
Stjórnandi: Wilhelm Furtwang-
ler. — Hljóðritað á tónlistarhá-
tíðinni í Bayreuth 1951. — Flutt-
ar verða skýringar og lesin þýð-
ing Matthíasar Jochumssonar á
„Óðnum til gleðinnar" eftir
Schiller).
17:30 Barnatími (Helga og Hulda Val-
týsdætui :
a) Leikrit: „Kálfur og krummi'*,
Leikstjóri: Hildur Kalman.
b) Barnakór Landakotskirkju
syngur jólasálma.
c) „Ljúfa álfadrottning**, fram-
haldsleikrit með söngvum eft-
ir Ólöfu Árnadóttur; V. þátt-
ur. — Leikstjóri: Klemenz
Jónsson. Söngstjóri: Sigurður
Markússon.
18:45 „Skín frelsisröðull fagur“: Ætt-
jarðarlög sungin og leikin.
19:30 Fréttir.
20:00 Frá liðnu ári. Samfelld dagskrá
úr fréttum og fréttaaukum
(Högni Torfason býr til flutn-
ings).
21:30 Tónleikar: Sinfóníuhljómsveit ís-
lands leikur. Stjórnendur: Páll
Pampichler Pálsson, Hans Anto-
litsch og Bohdan Wodiczko. Ein-
leikari á fagott: Sigurður Markús
son.
a) „Galathea in fagra**, forleikur
eftir Suppé.
b) Konsertino fyrir fagott og
hljómsveit eftir Philipps
Burell.
c) Matinees Musicales eftir
Benjamin Britten.
22:05 Danslög. — 24:00 Dagskrárlok.