Morgunblaðið - 07.03.1962, Síða 11

Morgunblaðið - 07.03.1962, Síða 11
Miðvikudagur 7. rgaxz 1,9.62 MORC TJNfíL 4ÐIÐ 11 Pétur Þorfinnsson Á ÖLDUM ljósvakans berst þessi hörmulega frétt: — m.s. Stuðlaberg hefur farizt með allri áhöfn. Þjóðin öll hljóðnar, drjúp- ir höfði í harmi, í bæn, í þökk — fyrir allt. Við þvílíkt stórslys sem þetta og svo mikinn mannskaða verð- ur ölíl þjóðin gripin sorg og hlut tekningu með þeim, sem um sár ast eiga að binda, því að svo stóran hlut og mikilvægan eiga sjómenn í lífsafkomu og farsaeld okkar fámennu þjóðar, að þegar hún verður á bak að sjá heiium skipshöfnum vaskra og valinna drengja, verður sú hugsun, sem af því leiðir, sem hugsun einnar og sömu fjölskyldu, — sem bræð ur og systur kenna allir hins sama harms. — Einn af þeim, sem fórst með Stuðlabergi var Pétur Þorfinns- son, stýrimaður frá Raufarhöfn. Hann var fæddur á Raufarhöfn 20. marz 1931. Foreldrar hans voni hjónin Sumarlína Gestsdótt ir og Þorfinnur Jón: on. Var Pét ur þriðja bam þeirra hjóna af 5, sem þau eignuðust. Systkini hans em Björn Ólafur, skipstjóri í Reykjavílk, Rósbjörg heima, Bergljót búsett í Reykjavík og Eggert heima. — Hann var kvæntur Svanhvíti Þorgrímsdótt ur frá Vestmannaeyjum. Þau áttu einn son ungan og einnig var á vegum hans ungur stjúpsonur. Pétur bar nafn Péturs Sveins sonar, sem var einkasonur Guð- rúnar Pétursdóttur, Guðjohnsen og Sveins Einarssonar kaup- manns á Raufarhöfn, en Pétur Sveinsson dó heima, á mjög svip legan hátt, er hann var í blórna lífsins. — Með Pétri Þorfinnssyni er horf 5 l sjónum, einn af hinum ágæt ustu drengjum, maður sem mik ils mátti af vænta í þeirri stétt, sem hann hafði skipað sér í og hvar sem annarsstaðar hefði >'er ið. Honum var sjómennskan í blóð borin, og hafði um langt Bkeið stundað þann atvinnuveg. Fyrst eftir að hann lauk námi í Sjómannasikólanum mun hann hafa verið með Birni Ólafi, bróð ur sínum, og var hann óðum að vinna sér traust og álit, vegna 6inna góðu kosta og hæfileika. Hann var greindur vel og þótti góður nemandi í skólum, er hann sotti. Hann stundaði nám að Reykj um í Hmtafirði, Haukadal og Minningargjafir FYRIR stuttu barst Reynivalla- kirkju gjöf, að upphæð 10.000 kr. til minningar um Guðmund Guð- laugsson frá Sogni í Kjós. Eru gefendur ekkja hans, Marsibil Eyleifsdóttir, búsett í Rvk og synir þeirra, Hermann Guð- mundsson, form. „Hlífar“ í Hafn- aríirði, og Hörður Guðmundsson í Reykjavík. Guðm. var fæddur í Sogni, 16/9 1689. Voru foreldr- er hans, hjónin Ragnhildur Guð- mundsdóttir og Guðlaugur Jak- ©bsson. Guðmundur lærði járn- smíði og síðar vélfræði og gerð- ist hann vélstjóri. Var hann vél- stjóri á Goðafossi og fórst með honum útaf Garðskaga 1944, þeg- er skipið var skotið niður. Einnig hefir mér borizt minn- ingargjöf með skuldabréfi að upphæð rúmar 10.000 kr., sem verja skal til kirkjugarðsins á Beynivöllum, til að fegra hann ©g prýða. Er sú gjöf gefin til minningar um hjónin Helgu Bjarnadóttur og Ólaf Einarsson frá Vindási í Kjós. Er gjöf þessi frá börnum þeirra, sem nú eru é lífi, Úlfhildi, Sigríði og Herdísi é Akranesi, Þórdísi og Jónasi í Beykjavík, Kristni á Selfossi, og Bjarna bónda í Króki í Flóa. Fyrir hönd sóknarnefndar og alls safnaðarfólks í Reynivalla- SÓkn, færi ég öllum þessum gef- endum einlægar þakkir fyrir iþá vinsemd og vinarhug, sem felst á bak við þessar minningar- gjafir. Steinl Guðmundsson. Sjómannaskólanum í Reykj,avík, þar sem hann lauk prófi fynr 3—4 árum. Það mun áhætt að fullyrða að fremur fáir á hans reki, hafi ver ið jafn vinsælir af starfsbræðr- um, félögum og yfirmönnum. Með honum bjuggu eiginleikar, sem gerðu alla, sem með honum störfuðu ríkari af trú á líf og starf. Meðal annars, í skólavist sinni, lagði Pétur rækt við hina fögru íþrótt, sundið og var ágætur sundmaður. Pétur var karlmenni til lik- ama og sálar, hár vexti, og liðs- n-aður góður til alls. Hann var æðrulaus, þegar miður gekk, en ákveðinn þegar þess þurfti með. Skapgerð hans var fágæt, hljóð lát tilfinning um dulinn og yfir lætislegan þroska, hæfilegt skyn á hógværri kímni, sem ekki var beitt til þess að særa, og glögg- skyggni á hið betra í fari ann- arra, gerði hann vinsælan, gaf samferðamönnum mynd af góð- um dreng. Þannig áhrifum verða menn aðeins fyrir frá þeim, sem búa yfir miklum mannkostum og drengskap. Nú er þessi ungi vinur okkar horfinn. Og allir, sem þekktu hann, minnast hans með sérstökum hlý hug og þökk. Eg er viss um að það er í anda Péturs Þorfinnssonar, sem við kveðjum nú með trega, að við sendum einnig þeim, sem með honum hurfu bak -við tjaldið ó- sýnilega, hlýjar kveðjur sem bræður og systur og þökkum af Eilhug starf þeirra og líf. Og í þannig hug vil ég enda þessa kveðju og biðja blessunar og huggunar öllum þeim, sem sorgin hefur nú rétt sina köldu, óumflýjanlegu hönd. Snæbjörn Einarsson. Frá Stykkishólmi Stykkishólmi, 28. febr. 1962 EINS OG víða um land hefir tíðarfarið verið mjög erfitt hér frá áramótum og því minna um róðra. Er þetta með erfiðari ver tíðum hvað það snertir en um mörg undanfarin ár. Sæmilega hefir aflast þegar á sjó hefur gef ið en þó ekki líkt og í fyrra enda hefir ekki verið um sam- felda róðra að ræða í viku hverri. Fimm bótar stunda héð- an veiðar með línu en einn, Arn finnur er kominn á net. Kvenfélagið Hringurinn minnt ist 55 ára afmælis síns hinn 17. þ.m. með góðum fagnaði. Var þar margt til fróðleiks og og skemmtunar og aðalræðu kvöldsins fluttu Kristjana Hann esdóttir formaður félagsins en hún hefir um nokkur ár verið formaður þess. Kvenfélagið hefir starfað með ágætum hér í þessu byggð arlagi og látið mörg menningar- mál til sín taka. Skólamót var haldið í Stykkis hólmi í dag á vegum Barna- og Miðskólans í Stykkishólmi og fé lags áfengisvarnanefnda í Snæ fellsness- og Hnappadalssýslu. Sigurður Helgason skólastjóri stjórnaði mótinu. Formaður skólafélags Miðskólans Ellert Kritinsson flutti ávarp, Pétur Björnsson erindreki áfengis- varnaráðs talaði um tóbaksnautn og áhrif tóbaks á heilsu og hag fólks, Björn Jónsson oddviti Kóngsbakka í Helgafellssveit flutti erindi um áfengismálin, minntist hversu bannárin — hin raunv.erulegu bannár frá 1916— 1921 hefðu fært þjóðinni mikla blessun. Hann sagði að áfengis- nautn og velmegun þjóðarinnar færu saman að því leyti að eftir því sem áfengisnautn væri minni vegnaði þjóðinni betur og svo öfugt, Varpaði þeirri spurningu fram hvort þjóðin hefði á því efni að setja ekki meiri skorður við notkun áfengisins. Þrír skólanemendur höfðu hamið rit- gerðir í tilefni af skólamótinu og fluttu þær þar og verðlaun- aði áfengisvarnanefnd Stykkis hólms ritgerðirnar með bóka- verðlaunum. Sex stúlkur léku á gítara og sungu og einnig voru sýndar fræðslukvikmyndir . Formaður félags áfengisvarna í sýslunni, Magnús Guðmunds- son sóknarprestur í Ólafsvík tal aði í upphafi skólamótsins en Árni Helgason formaður áfengis varnanefndar Stykkishólms sleit því. Var þetta mót hið merkasta og þeim sem að því stóðu til verð- ugs sóma. Vegurinn um Skógarströnd í Dali hefir verið illfær og jafn- vel ófær um nokkurt skeið. Hef ir víða runnið úr honum og við gerð ekki lokið. Einnig hefir Vals hamarsá verið erfið og eins áin skammt frá Vörðufelli en hún er ein stærri áa á Skógarströnd sem enn er óbrúuð. Var mikill jakaburður í henni fyrri hluta vikunnar. Pósturinn sem fór inn í Dali s.l. þriðjudag var lengi á leiðinni og ætlaði varla að kom ast yfir sumar torfærurnar. Bifreið frá Stykkishólmi sem fór í Búðardal s.l. sunnudag með nokkra menn úr Bridgefélagi Stykkishólms til keppni við Dala menn varð að fara suður Borg arfjörð og Bröttubrekku. Leiðin út í Grafarnes er mjög örðug vegna aurbleytu og alls ekki fær nema góðum jeppum. — Fréttaritari \T 4LFLUTNIN GSSTOFÆ Aðalstræti 6, III hæð'. Einar B. Guðmundsson Guðlaugur Þorláksson Guðmundur Pétursson Kaupum hreinar léreffstuskur PRENTSMIÐJA Hreingerningakonur óskast KLIJBBIJRINIM Pökkunarstúlkur og karlmenn óskast. Fæði og húsnæði Mikil næturvinna HRAÐFRYSTISTÖÐ VESTMANNAEYJA Sími 11 og 60 (i Reykjavík 19-4.20) Ríkisskuldabréf Vil kaupa all mikla fjárhæð í ríkisskuldabréfum með 7% ársvöxtum til 15 ára. — Tilgreinið þá upp- hæð, sem í boði er í tilboði og afföll af bréfunum. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 10 marz n.k. merkt: Ríkisskuldabréf — 4070“. Til sölu Tveggja herb. íbúð á fyrstu hæð, ásamt herbergi i risi, í Hlíðunum. FASTEIGNA- OG LÖGFRÆÐISTOFAN Tjarnargötu 10 — Sími 19729. Vistleg hótel FORMICA plötur gera öll herbergi á hótelum vistlegri —. og þér getið valið úr 100 mismunandi litum, mynstrum og fallegum litasamsetningum. FORMICA er ódýrt þegar tillit er tekið til endingar. Það er endingarbetra en nokkuð annað efni af líkri gerS. Það er helmingi ódýrara að halda FORMICA hreinu, því að nægilegt er að strjúka yfir það með rökum klút, þá er það aftur sem nýtt. Forðist ódýrari eftirlíkingar. Látið ekki bjóða yður önnur efni í stað FORMICA, þótt stælingin líti sæmilega út. — Ath. að nafnið FORMICA er á hverri plötu. G. Þorsteinsson & Johnson hf. Grjótagötu 7 — Sími 24250

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.