Morgunblaðið - 07.03.1962, Side 22

Morgunblaðið - 07.03.1962, Side 22
22 MORGINBLAÐIÐ Miðvikudagur 7. marz 1962 Gott að synda í heitu vatni Þrír norrænir sundmeistarar á sundmóti ÍR i kvöld 1 KVÖLD hefst í Sundhöll inni fyrsta og eina sundmót þessa vetrar, J>ar sem er- lendir sundmenn eru meðal þátttakenda. Þetta er afmæl- ismót ÍR og í tilefni afmæl- isins hafa ÍR-ingar boðið tveim sundmönnum og einni sundkonu frá Noregi og Sví- þjóð hingað til lands. Er víst að baráttan um sigrana verð- ur ákaflega hörð, og er það mikil nýlunda, því sigrarnir hafa yfirleitt verið auðsóttir fyrir okkar bezta sundfólk. En nú fær það verkefni sem það verðskuldar og nú er tækifærið fyrir fólk að sjá spennandi sundkeppni, bar- áttu um sekúndubrot, bar- áttu um sigur. • Erl. gestirnir Sundifólkið erlenda er frá Svíþjóð Kiristina Larison sem keppir í skriðsundi og flugsundi bvenna. Landi hennar Roland Lundin keppir í bringusundi karla og Norðmaðurinn Ohrister Bjarne keppir í sferiðsundi og flugsundi karla. Allt er þetta sundifólk í fremistu röð á Norður löndum. Sundfólkið æfði í gær- kvöldi uppi í sundhöll. Komu Svíamir tveir kl. 5 í gær en Norðmaðurinn s.l. sunnudag. ÖH létu þau mjög vel af sund höllinni. Roland Lundin sagði að vísu væri mikiU „sjógang ur“ í lauginn, en hann stafaði fyrst og fremst af því að of lítið var í lauginni. Þegar hann var fuUvissaður um að á sundmótum væri hún barmafull, var hann ánægður. • Góð heit laug. Öllum fannst þeim hitinn góð ur, en hér eru laugar yfinleitt heitari en erlendis tíðkast. Norð maðurinn sagði að það væri miiklu notarlegra að hafa laugina svolítið heitari. Hann er miikill „isprellikarl“ og kemur fólki Norska liðið Lyn til Kína NORSKA knattspyrnuiliöið Lyn náðgerir í haust að fara mikla reisu til Kína. Mun liðið taka styrfetarmenn úr öðrum félög- uim, aðallega Brann, með í för ina. Happdrætti HSI DREGIÐ HEFUR verið í happ- drætti Handfenattleikssambands ins. Aðalvinningurinn, hrærivél toom upp á miða nr. 714. Nr. 713 og 715 hlutiu Álafossteppi. Vinn inganna má vitja í Verzl. Ála- tfioss, Þingholtsstræti 2. fljótt í gott sfeap. • Hörð baráltta. Það er mikið fyrirtæki sem ÍR-ingar hafa ráðist í með þvi að bjóða hingað þessu sundfólki Þess vegna væntir sundfólkið þess að fólk fjölmenni í kvöld og annað kvöld í sundlhöllina. ísl. sundfólkið var ánægt og keppnisglatt í gærkvöldi á æf- ingunni. Það tók marga sund- Frh. á bls. 23. Valur tapaði fyrir ÍR og fellur í aðra deild Sigur ÍR öruggur og verðskuldaður ÞAÐ blasir nú við handknatt- leiksliði Vals að falla ofan í aðra deild. 1 fyrrkvöld lék liðið næst síðasta leik sinn í íslands- mótinu og tapaði honum sem hinum þremur fyrri. Á nú liðið aðeins eftir leik við Víking og jafnvel þó þeir vinni þann leik með 40 marka mun nægir það ekki til að halda liðinu í 1. deild. Og slíkur sigur eða stærri er óhugsandi. ic ÍR vann báða hálfleiki Valsmenn mættu ÍR í fyrra kvöld. Framan af — og reyndar lengst af — var keppnin hörð og jöfn og allt virtist geta skeð. Þó reyndist leikur ÍR-inga heil- steyptari og traustari og svo fór að lokum að ÍR vann með 4 marka mun, 21 gegn 17. í hálf- leik var staðan 10—8 fyrir ÍR. ic Bjartsýni hjá Val Fyrri hálfleikurinn var miklu sögulegri, ÍR-ingar tóku forystu í byrjun og hélduhenni örugglega uns Árni Njálsson skoraði tvö mörk í röð og breytti stöðunni 4—3 fyrir ÍR, í 5—4 fyrir Val. Síðan bættu Valsmenn 3 mörkum við og þetta leit ljómandi vel út fyr- ir Val en hálfilla fyrir ÍR, sem með tapi gat komizt í fallhættu í deildinni. ★ Sigurinn tryggður En hin mikla markskytta ÍR-inga, Gunnlaugur Hjálm- arsson, náði síðan góðum leikkafla og hann skoraði næstu 5 mörk liðsins, breytti Sundfólkið í Sundhöllinni í gær. Frá yinstri: Norðmaður- inn Bjarne, Guðm. Gíslason, Hrafnhildur, Kristina Lars- son, Roland Lundin og Árni Þ. Kristjánsson. (Ljósm. S. Þorm.) stöðunni úr 8—4 fyrir Val f 9—8 fyrir ÍR. Þetta reyndist rothöggið á Val — höggið niður í aðra deild. Aðeins einu sinni í síðari hálfleik tókst þeim að jafna en jafn- vel það var varla ógnun við ÍR. ÍR reyndist svo miklu stcrkara á lokasprettinum, að sigurinn var örugglega færður heim. ic Liðin Hjá Val bar enn sem fyrr mest á hinum skotsnögga Bergi og Egill í markinu verður ekki sakaður um ósigurinn. Hins veg- ar virðist Valsliðið í heild vanta þá festu í leik og uppbyggingu, sem nægir liðinu til stórátaks. Hjá ÍR bar Gunnlaugur a£ sem guU af eiri. Hermann er og máttarstójpi og má liðið hvorugan missa, ef ekki á Ula að fara. ic Ármann vann Sama kvöld léku Ármenn- ingar og Breiðablik í 2. deild. Þar varð um næstum algeran einstefnuakstur að ræða. Ár- mann vann með 40 mörkum gegn 17. Enska knattspyrnan 31. UMFERÐ ensku deildarkeppninnar fór fram s.l. laugardag og úrðu úrslit Hann skorar fyrir lR með einn Framaranna á bakinu. (Ljósm. Sv. Þorm.) 1. d c- Arsenal — Blackbum 0:0 Birmingham — Manchester U. 1:1 Bolton — Blackpool 0:0 Bumley — West Ham 6:0 Everton — Wolwerhamton 4:0 Fulham — N. Forest 1:1 Ipswich — Sheffield U. 4:0 Leicester — Chelsea frestað ManchesWr City — Tottenham 6:2 Sheffield W. — Aston Villa 3:0 W. B. A. — Cardiff 5:1 2. deild. Derby — Rotherham 1:1 Huddersfield — Leeds 2:1 Leyfcon Orient — Sunderland 1:1 Luton — lirighton 2:1 Middlesbrough — Charlton 3:2 Newcastle — Bury 1:2 Plymouth — Bristol Rovers 3:1 Preston — Stoke 1:2 Southampton — Scunthorpe 6:4 Swansea — Norwich 0:3 Walsall — Liverpool 1:1 í Skotlandi urðu úrslit m.a. þessi: Celtic — Dundee 2:1 Dunfermline — Stirling 3:0 Hearts — St. Johnstone 1:1 Kilmarnock — Patrick 1:1 Motherwell St. Mirren 2:1 Rangers — Third Lanark 3:1 Staðan er nú þessi: 1. deild (efstu og neðstu liðin) Bumley 29 19-4-6 90:51 42 Ipswich 30 17-4-9 71:52 38 Tottenham .... 31 15-7-9 60:51 37 N. Forest 31 10-7-14 50:59 27 Cardiff 31 7-11-13 36:53 25 Chelsea 31 9-5-17 49:66 23 Fulham 31 7- 18 41:58 20 2. deild (efs tuog neðstu liðin) Liverpool 30 20-5-5 74:28 45 L. Orient 31 17-6-8 57:33 40 Plymouth 32 16-7-9 60:54 39 Southampt 32 15-7-10 63:47 37 Middlesbor. .. 9-6ulö 54:62 24 Brighton ........ 31 7-10-14 31:62 24 Charlton ....... 28 8-6-14 45:53 22 Leeds 31 8-6-17 37:53 22 í Skotlandi er Rangers efst með 42 stig, en Dundee er í öðru seeti með 39 stig.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.