Morgunblaðið - 18.03.1962, Blaðsíða 24
Fxéttasímar Mbl
— eftir 1 o k u n —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
Reykiavíkurbréf
Sjá bls. 13
65. tbl. — Sunnudagur 18. marz 1962
180 fulltrúar á fundi
Norðurlandaráðs
Fagerholm kosinn forseti raðsins
Helsingfors, 17. marz AP
TÍUNDI furídur Norðurlandaráðs
ihófst í Heisingfors í dag og sitja
liann 180 fulltrúar frá öllum
Norðurlöndum Fráfarandi forseti
ráðsins Eirk Eriksen fyrrver-
andi forsæfisráðherra Danmerk-
ur, setti fundinn og sagði m. a.
að sikiptar skcðanir væru um það
Ihve nána samvinnu Norðurlönd-
in ættu að taka upp við önnur
ríki Evrópu. En hann lagði á-
herzlu á að því meiri, sem sam-
vinnan væri innbyrðis milli Norð
urlandanna því meiri stoð væri
Söfnunín
nálgast
eína millf.
Söfnunin vegna sjóslysanna 3
I GÆR fékk blaðið þær upp-
lýsingar að söfnunin vegna
sjóslysanna nálgaðist nú eina
milljón króna. Biskupsskrif-
stofan hefir þegar tekið á
móti hálfri milljón. Hjá Egg-
ert Kristjánssyni stórkaup-
manni hafa safnazt 325.470,00
kr. og Morgunblaðinu iiöfðu
í fyrrakvöld borizt 150 þús-
und krónur. Þania mun með-
talinn ágóði af skemmtunum,
sem haldnar voru til styrktar
söfnuninni. Fleiri aðilar taka
á móti fé til söfnunarinnar, en
ekki var blaðinu kunnugt um
hve miklu fé það nemur.
Kafnarfjörðnr
Það er annað kvöld kl. 8:30
sem Sjálfstæðiskvennafélagið
Vorboðinn heldur fund í Sjálf
stæðishúsinu. Auk fundar-
starfa verður spiluð félags-
vist og kaffi framreitt. Félags
konur eru beðnar að fjöl-
menna og taka með sér gesti.
Blaðamenn
ADALFUNDUR Blaðamannafé-
lags íslands verður haldinn í dag
ki. 2. Fundurinn verður í ítalska
salnum í Klúbbnum við Læikjar-
teig. Dagskrá' Venjuleg aðal-
fundarstörf. — Félagar fjölmenn-
i8.
það Norðuriöndunum í heild Og
hverju landi fyrir sig.
Forseti Norðurlandaráðs var
kjörinn Karl August Fagerholm
fyrrverandi forsætisráðherra
Finnlands. Hann kvaðst sammála
Eriksen um ágæti norrænnar sam
vinnu Og lýsti ánægju sinni yfir
afstöðu ríkisstjórna Norðurland
anna til þessa máls. Samvinnu-
samningunnn, sem er til um-
ræðu á þessum fundi Norður-
landaráðs gefur oikikur öllum fast
an starfsgrundvötl, sagði Fager-
holm.
Þrír varaforsetar Norðurlanda-
ráðs voru kosnir þeir Gísli Jóns-
son, Erik Eriksen frá Danmörku,
Bertil Oh'in frá Svíþjóð Og Nils
Hönsvad frá Noregi.
(Ræða Gísla Jónssonar á fundi
Norðurlandaráðs birtist á bls. 6.)
Frá fundi skógarvarðanna. Talið frá v. sitjandi: Daníel Kristjánsson, Einar G. E. Sæmundsen, j
Sigurður Jónasson, Ármann Dalmannsson, Ágúst Árnason, ísleifur Sumarliðason og 'Garðar
Jónsson. Að baki þeirra standa Hákon Bjarnason og Baldur Þorsteinsson Á myndina vantar
Sigurð Blöndal, sem ekki gat komið sökum veikinda og Snorra Sigurðsson. __________________
Gróöursettar verða ein og
hálf mill jón plantna í vor
SÍÐASTLIÐNA viku hefir staðið
yfir fundur skógarvarða Skóg-
ræktar ríkisins hér í Reykjavík.
Er þetta 11. fundurinn í röðinni.
Við hittum skógarverðina þar
sem þeir sitja á rökstólunum að
Grettisgötu 8. Tilgangur þessara
funda er að ákveða starfsskrá
fyrir komandi starfsár, þar sem
hverjum er ætlað sitt verk og
jafnframt að gera kostnaðaráætl-
un. Fundurinn byrjaði sl. mánu-
dag og lýkur væntanlega um
þessa helgi.
Rúmur helmimgur til skógræktar-
félaganna
í vor er áætiað að IVz milljón
trjáplantna verði tiltækar til
plöntunar og að þær verði gróð-
ursettar. Gert er ráð fyrir að skóg
ræktarfélögin taki um 800 þús.
plöntur, en skógræktin verður að
sjá um gróðursetningu á 700 þús.
plöntum. Gert er ráð fyrir að
kostnaður við gróðursetningu
þeirra plantna, sem skógræktin
sér um, kosti 1,1 rnillj. kr. Kostn-
aður við gróðrarstöðvarnar er
hins vegar um 1,5 miiljónir.
Þar að auki eru svo gróðrarstöðv
arnar í Reykjavik og Akureyri,
sem reknar eru af skógræktar-
félögunum á hvorum stað.
Viðhald girðinga er ráðgert á
árinu 515 þúsundir króna, en þær
eru nú yfir 300 km að lengd.
Verður þó ekki bætt neinum nýj-
um girðingum við á þessu ári.
Slæm umgengni
Sem kunnugt er eru hin ýmsu
skógarsvæði á landinu vinsæll
samkomustaður fólks, sem vill
njóta sumarferðalaga. Af þessu
leiðir að allmikill kostnaður er
við að halda þessum svæðum
hreinum og þrifalegum. Skógar-
verðirnir létu illa yfir umgengni
fólks. Þeir tóku fram að þeim
væri sönn ánægja að fólk nyti
skóganna okkar. Hitt væri leið-
inlegur ósiður og raunar skríls-
háttur að geta ekki gengið þokka
lega um þessa staði. Til þess m.a.
að standa straum af þessum
kostnaði hafa skógræktarfélög
stundum reynt að halda skemmt-
anir, t. d. freistaði eitt þeirra
fyrir norðan sl. sumar, en fékk
’fyrir rótarskammir í vikublaðinu
„Degi“ á Akureyri.
Danmörk vann Island 13-11
Island var 2 mörk yfir i hálfleik —
en féll á breyttri leikaðferð
1 SKEMMTILEGUM, fjör-
ugum og spennandi leik
unnu Danir íslenzka ungl-
ingalandsliðið í handknatt-
leik í gærdag með 13 mörk-
um gegn 11. íslendingarnir
áttu mjög góða byrjun og
höfðu tvö mörk yfir í hálf-
leik 6—4. En með meiri leik-
reynslu tókst Dönum að
vinna það forskot íslendinga
og ná öruggum sigri, þó all-
knappur væri.
Mbl. hafði í gærdag samtal
við Axel Einarsson aðalfarar-
stjóra ísl. liðsins. ísland og Dan
mörk áttu fyrsta leik dagsins í
glæsilegri íþróttahöll í Næst-
ved sem rúmar 2000 manns í
sæti, en húsfyllir var ekki, þó
margt væri áhorfenda. íslend-
ingar höfðu rétt lokið leik sín-
um þegar við náðum sambandi
við Axel. og honum sagðist svo
frá.
Island 2 yfir í hálfleik
Danir byrjuðu að skora, en
Gylfi Hjálmarsson jafnaði með
góðu skoti stuttu seinna. Síðan
hefðu ísl. piltarnir ótt að kom-
ast yfir, en dómarinn sem var
sænskur og dæmdi yfirleitt vel,
var of fljótur á sér þegar brot-
ið var á Sig. Einarssyni. En
honum tókst samt að skora, en
dómarinn hafði flautað og tók
þar með mark af íslendingum.
Danir ná forystu 2—1. En
Árni Sam. jafnar með ágætu
skoti og skorar litlu síðar ann-
að mark. 3—2 fyrir Island.
Leikurinn var hraður og spenn
andi. Danir skora tvö næstu
Frh. á bls. 23
Ýmsar nýjungar
Auk áætlana, sem skógarverð-
irnir gera í samráði við skóg-
ræktarstjóra á fundum þesum,
ræða þeir ýmsar nýjungar er
koma mega skógræktinni að
gagni. Fylgjast þeir með því
hvað gerist hjá nágrönnum okk-
ar bæði með því að heimsækja
þá og kynna sér rit þeirra og
skýrslur. Geta má þess t. d. að í
fyrra voru hér notaðar nýjar
skóflur, sem fengnar eru frá
Þýzkalandi og spöruðu þær
vinnu við gróðursetningu sem
svarar 25% þar sem þeim verður
við komið. Þá eru stöðugt að
koma á markaðinn ný og ný
eyðingarlyf, sem bæði eru notuð
við grisjun skóglendis og til eyð-
ingar illgresi. Þetta sparar allt
vinnu.
Á þessu ári er gert ráð fyrir
að skógræktin velti 6,6 milljón-
Framh. á bls. 22.
Góður afli
AKRANESI, 17. marz: — Afli
22ja báta héðan var í gær 226
lestir. Mest hafði Fiskaklettur
rúmar 20 lestir, Ólafur Magnús
son, 17,2 lestir og Sveinn Guð-
muindisson 16,5 lestir. — Oddur.
Flensan
í rénun
Kennt í barnaskól-
unum á mánudag
DR. JÓN Sigurðsson borgarlækn
ir tjáði blaðamanni Mbl. í gær,
að aJllt útlit væri fyrir, að flenz-
an væri í renum. Kvaðst hann þá
ekki hafa tölur lun það, en marka
það af umsögn lækna ©g lyfja-
búða, svo og því, hve vel hefur
verið mætt í unglingaskólunum,
En barnaskólarnir munu taka til
starfa á mánudag.
13. útgáfa af
skáldsögu Gunn-
ars Gunnarssonar
GYLDENDALS-FORLAGIÐ f
Kaupmannahöfn hefur sent á
markaðinn nýja vasaútgáfu aí
hinni kunnu sbáldsögu Gunnara
Gunnarssonar, ,,Salige er de en-
foldige", og kemur hún út í bóka-
flokki sem ber heitið „Gylden-
dals Traneböger“.
„Salige er de enfoldige“ (Sælir
eru einfaldir) kom fyrst út I
Danmörku árið 1920, og er hér
um að ræða 13. útgáfu skáldsög-
unnar. Hefur hún þá alls verið
prentuð í 39.000 eintökum á
dönsku. I hinni nýju útgáfu er
bókin 224 blaðsíður og kostar
3,75 danskar krónur. ,•
Umfangsmikið þjófnaðarmól
í rannsókn d Akranesi
RANNSÓKN stendur nú yfir
á all umfangsmiklu þjófnaðar-
máli á Akranesi. Þar hefir að
undanförnu verið brotist inn
hjá f jóruir. fyrirtækjum í bæn
um, en ekki komist upp hver
valdur hefir verið að þjófnuð-
unum, sem þar hafa verið
frámdir.
Nú mun hins vegar vera
húið að upplýsa að hér hefir
einn og sami maður verið að
verki og er málið í rannsókn.
Bæjarfógetaembættið á staðn-
um verst allra frétta um málið
enn sem komið er.
Fyrirtækin, sem var brotist
inn í voru Haraldur Böðvars-
son & Co, Fiskiver h.f. Sigurð-
ur Hallbjörnsson og Verzlun
Axels Sveinbjörnssonar.
Ekki er blaðinu kunnugt um
hve miklu var stolið á hverj-
um stað, en sum innbrotanna
voru framin á s.l. ári.