Morgunblaðið - 21.03.1962, Page 6
6
MORGVNBL AÐ1Ð
Miðvikudagur 21. marz 1962
Garðyrkjuskóli oð
Reykjum í Ölfusi
ÞESSI mynd er af 11 tonna
trillu, sem á að fara að gera
út á net. Eigendur eru Ólafur
og Guðmundur Grímssynir.
Heitir tryllan Gullskór og skrá
setningarnúmerið er GK 270.
Verður hún gerð út frá Vog-
um, en á henni verða tveir
menn auk bræðranna. Þeir
gera ráð fyrir að verða með
80 net. Trillan er frambyggð
og netin tekin inn rétt aftan
við stýrishúsið og síðan eru
netin dregin aftur í skut og
þau lögð þaðan. Fiskstíur eru
með síðunum beggja vegna
við netarennuna. Myndin er
tekin fram eftir Gullskó í gær
og sjást þeir bræður, Guð-
mundur t. v. og Ólafur þar
sem þeir eru að ganga frá
metunum í skutnum.
Lijósm. Mbl. Sv. Þorm.
LAUGARDAGINN 3. marz sleit
Unnsteinn Ólafsson, skólastjóri,
Garðyrkjuskólanum á Reykjum
í Ölfusi. Var þar m'argt manna
saman komið. Meðal viðstaddra
var Ingólfur Jónsson, landbún-
aðarráðherra.
18 nemendur hafa verið í skól
anum í vetur. Af þeim braut-
skráðust 10. Hæstu einkanir
hlutu þeir Guðlaugur Sigur-
jónsson 8,50 og Gretar Gríms-
son, Syðri-Reykjum, Grímsnesi,
8.45. —
í ræðu sinni sagði skóla-
stjóri, að þetta væri í fyrsta
skipti í sögu skólans sem land-
búnaðarráðherra væri viðstadd-
ur skólaslit Garðyrkjuskólans
og fyrir þetta vildi hann þakka.
— Þá sagði skólastjóri að þetta
yrði að öllum líkindum síðasta
sinn, sem skólaslit færu fram í
þessu gamla skólahúsi, því haf-
in væri bygging nýs skóla og
væri það von sín að hinn nýi
skóli gæti tekið til starfa á
næsta skólaári. — Mörg hvatn-
ingarorð og heilræði fengu nem-
endurnir í veganesti.
Næstur tók til máls landbún-
aðarráðherra og talaði ráðherr-
an um rekstur Garðyrkjuskól-
ans og hvatti nemendur til lær-
dóms og dugnaðar og óskaði
farsællri framtíð, svo og nem-
endum.
Séra Helgi Sveínsson þakkaði
skólastjóra og nemendum gott
samstarf, sem hefði í alla staði
verið til fyrirmyndar.
Guðjón Björnsson, garðyrkju-
maður, afhenti f. h. Neðra-As í
Járnsmiðir og
vökulög
Eftirfarandj samiþykikt var
gerð á fraimihaldsaðalifundi Fél.
járniðnaðarmanna í Reykjavík
laugardaginn 17. marz:
„Framihaldisaðalfundur í Fél.
járniðnaðarmanna haldinn laug
ardagainn 17. marz 1962, sam,-
þykkir að láta í ljós megna and-
úð á framkominni málaleitun
Fól. ísl. botnvörpuskipaeigenda,
um breytingar á vökulögunum í
þá átt að lengja vinnutíma tog
arasjómanna".
„Ljenharður
fógetiw leikinn
í Hornafirði
HÖFN, Hornafirði, 19. marz: —
Ungmennafélagið Máni í Nesj-
um frumsýndi s.l. laugardags-
kvöld sjónleikinn „Ljenharð fó-
geta“ í Mánagarði. Ljenharður
var leiikinn aif Rafni Eiríikssyni,
Skólastjóra, Guðný Ingólfsdóttir
var leikin af Hólmfríði Leiifsdótt
ur og Torfa sýslumann lék Sig
urjón Bjarnason. Rafn Eiríks-
son gerði leiktjöld og fór hann
einnig með leikstjórn. — Leik
urinn tókst með ágætum, og var
leikurum klappað lof í lófa.
— Gunnar.
Hveragerði, 500 kr., sem á að
veita fyrir beztu teikningu að
tiliöguuppdrætti að skrúðgarði í
Hveragerði. Margar teikningar
komu fram og mikill vandi að
velja á milli og erfitt að gera
upp á milli þeir^-a. Úrslit urðu
þau að tvær teikningar hlutu
verðlaun, en þær gerðu Guðm.
H. Benediktsson og Úlfur J.
Hreiðarsson.
Margar ræður voru fluttar af
kennurum og nemendum, sem
allir lofuðu þann góða anda,
sem ríkti í skólanum. — Að
lokum var setzt að veizluborði
og var það til fyrirmyndar fyrir
ráðskonu skólans, Guðbjörgu
Guðmundsdóttur.
— Georg.
Dagsektir
lögboðnar
Á fundi neðri deildar á mánudag
var frumvarp um heilbrigðissam-
samþykktxr samiþykkt sem lög frá
Alþingi, en það felur m. a. í sér,
að heimilt sé að knýja fram sam-
þykktir heilbrigðisnefndar með
dagsektum. Þá var frumvarp um
skólakostnað saroþyfckt við 3. um
ræðu og sent efri deild til af-
greiðslu. Frumvarp um almanna-
tryggingar, sem felur í sér hækk-
un á viðtals- og vitjunartímum
læfcna var samþykkt við 2. um-
ræðu.
í efri deild voru við 2. um-
ræðu samþykkt frumvörp um
heyrnleysingjaskóla og eyðingu
svartbaks. Frumvarpi um kirkju
byggingarsjóð var vísað til 2. um
ræðu og menntamálanefndar, en
frumvarp um fiskimálasjóð sam-
þykkt við 3. umræðu Og sent
neðri deild til afgreiðslu.
• Útrýming svartbaks
Velvakandi hefur fengið eft
irfarandi tilskrif frá Ófeigi J.
Ófeigssyni lækni:
Þetta um soðnu eggin og
veiðibjölluna, sem birtist í
dálkum þínum í dag (16.
marz), hefur skolazt svolítið
til sem eðlilegt er, því við
vorum að tala um allt annað
efni, þegar svartbakinn bar
lauslega á góma. En þó varð
mér hálf bilt við, þegar ég
las að stjóða ætti eggin á
prímus og að veiðibjallan
myndi liggja á eggjunum ár
eftir ár. Ef fugl hefur einu
sinni yfirgefið hreiður sitt
með eggjum, vitjar hann þess
aldrei aftur.
Af því að hið háa Alþingi er
enn einu sinni að ræða hvern-
ig útrýma megi veiðibjöll-
unni, langar mig að biðja þig
fyrir eftirfarandi, ef verða
mætti að Alþingi sæi sér fært
að taka tillögur mínar til
raunhæfra nota.
Eg er viss um að draga
mætti stórlega úr veiðibjöllu
mergðinni hér við land með
því að koma í veg fyrir að
eggin ungist út án þess að
fuglinn finni að þau hafi ver-
ið skemmd.
f hvert sinn áður en fuglinn
klekur út, ætti að seiida menn
í sem allra flest varplönd
hans. Menn þessir gætu geng-
ið svo þétt saman, að flest
hreiðrin fyndust. Eggin væru
gerð ófrjó án þess að vera
hreyfð og án þess að á þeim
sæi. Líklega væri þetta bezt
með smá raftækjum, sem
gæfu frá sér nægilegan hita
til þess að gera eggið ófrjótt.
Hvernig þessu skyldi hagað
væri auðvelt að rannsaka á
hænueggjum áður en varp
veiðibjöllunnar hefst. Eins
þyrfti að afla upplýsinga urn,
hversu lengi mætti búast við
að svarbakurinn lægi á ófrjóu
Um heybirgðir
og skepnuhöld
á Hólastað
VEGNA orðróms Og blaðaskrifs
um heybirgðir og skepnuhöld hér
á Hólum bið ég yður vinsamleg-
ast að birta eftirfarandi yfirlýs-
ingu í blaði yðar:
„Af gefnu tilefni og að beiðni
sfcólastjórans á Hólum í Hjalta-
dal höfum við undirritaðir forða
gæzlumenn Hólahrepps sfcoðað í
dag heybirgðir á Hólastað Og
ástand búpenings.
Við getum fúslega vottað, að
allar skepnur eru vel fóðraðar og
í ágætu ástandi. Ennfremur álít-
um við að aflökinni sköðun og
mælingu heybirgða, að á Hóla-
stað sé nóg heyfóður handa bú-
stofninum fram úr í öllu venju-
legu árferði Og vandræðalaust að
mæta vorharöindum með auk-
inni notkun fóðurbætis.
Hólum í Hjaltadá'l 15/3, 1962,
Guðmundur Ásgrímssoni, Hlíð
(sign)
Hallgrímur Pétursson
1C j arvalsstöðum
(sign)
Strandamenn rauð
ir af rauðmagaáli
GJÖGRI, Ámeshreppi, 19. marz:
Mikil rauðmagaveiði hefur verið
á Gjögri að undanförnu, og eru
Árnesshreppsbúar að verða rauð
ir af rauðmagaáti, þvi að rauð
maginn er nú óseljanlegur til
SÍS, sem hefur keypt hann tdl
reykingar s.l. ár, sdðan Niels
Dungal hélt fyrirlestur sinn um
að allur reyktur matur væri ó-
hollur. Sennilegt er, að grá-
sleppuveiði verði lítið stunduð á
Gjögri í vör vegna þess að SÍS
liggur með miklar birgðir af
grásleppuhrógnum óseldum frá
því í fyrra. Er þetta miikill tekju
missir fyrir menn, sem stundað
hafa grásleppuveiðar undanfarin
ár. — Regína.
eggjunum, áður en hann yfir-
gæfi þau og byggði sér nýtt
hreiður. Með þessu einfalda
ráði ætti að vera hægt að
koma í veg fyrir að fuglinn
yki kyn sitt ár eftir ár. Gamli
fuglinn myndi þá smám sam-
an deyja út af sjálfu sér. Eg
held að þetta yrði mannúðleg-
asta og áhrifamesta leiðin til
útrýmingar svartbakinum.
Rétt er að geta þess, að
mig minnir að ég hafi ein-
hverntíraa heyrt minnst á eða
lesið, að aðferð þessu lík hafi
verið reynd einhvers staðar
erlendis.
• Sumarklukkan
vitlausa
Þ.F.E. skrifar undir ofan-
greindri fyrirsögn:
Nú líður að þvi að klukk.
unni verði flýtt, skv. venju,
En getur þú Velvakandi góð.
ur, upplýst mig það, hvað
þetta á að þýða nú á dögum.
Upphaflega var ætlunin að
spara ljósmetið, en sú ástæða
er fyrir löngu úrelt. Eg lít á
sjónarmið vinnandi manna,
sem útivinnu stunda. Þeir eru
búnir að þreyja þorrann og
Góuna áður en birtir og hlýn-
ar á morgnana. En svo þegar
loks þetta er að koma, þá
kemur klukkan og rekur
menn aftur á bak í morgun-
kuldann. Eg hefi oft óskað
þeim sem halda þessuro hé-
góma uppi, að þeir væru
komnir upp á verkpalla og
húsþök í norðaustan næðingi
og vita hvort þeim þætti nokk
uð verra þó sólin væri komin
upp. Legg ég því til að við
fáum að hafa okkar réttu
klukku ðhreyfða nú í sumar
og framvegis.
V?> ~f-/7\-f
Mtc,-
mM
7 / l\
^)ONGX
h:
= V
mm
í c
/n:
U(Q^ ÍÁTÍJ
n
m