Morgunblaðið - 21.03.1962, Blaðsíða 16
Miðvikudagur 21. marz 1961
16
MORGINBLAÐIÐ
Helios Ijósaperur
flestar algengustu stærðir, Telam flúrskinspípur,
40W og 20W, startarar, 40W og 20W.
Heildsölubirgðir
TRANS-OCEAN
Hólavallagötu 7 — Sími 13626
Framfíðarstarf
Ungan mann vantar í fulltrúastarf. Þarf að kunna
bókhald. Enskukunnátta æskileg. Umsókn sendist
blaðinu merkt: ,Framtíð —4204“.
Okukennarafélag
Reykjavíkur
Fundur verður í Breiðfirðingabúð í kvöld kl. 8,30.
Fundarefni: Ökuskótinn.
STJÓRNIN.
r
Hanover Fair
29 April - 8 May
1962
HAIOVER KAUPSTEFNAN
verður haldin 29. apríl til 8. maí. 5400 aðilár sýna
allar greinar vestur-þýzkrar tækniframleiðslu og
mikið af frarnleiðslu annarra Vestur.Evrópuþjóða.
Hópferð verður farin á sýninguna. Aðgönguskír-
teini gisting, flugfarseðlar. Hafið samband við
oss sem fyrst.
FERÐASKRIFSTOFA RiKISIIMS
sími 1 15 40.
Svarf Crepefni
í kjóla
Svart kambgarn
í dragtir, í pils
MARKAÐURINN
Hafnarstraeti 11.
Steingrímur Jóhannesson
framreiðslumaður
M É R féll þungt að þurfa að
flytja félögum mínum andláts-
fregn vinar míns, Steingríms
Jóhannessonar, á aðalfundi fé-
lags framreiðslumanna, en hann
hafði látizt daginn áður, 13.
marz síðastliðinn, 52 ára að
aldri.
Steingrimur Jóhannesson var
fæddur 17. júlí 1909 hér í
Reykjavík. Mín fyrstu raunveru
legu kynni af Steingrimi voru
er við unnum saman að fram-
reiðslu um borð í ms. Gullfossi
árið 1953. Tók ég þá strax eftir
hversu heilsteyptum persónu-
leika hann hafði yfir að ráða,
sem hann notaði af slikri nær-
gætni heimsborgarans að unun
var að sjá og heyra, enda var
Steingrímur framreiðslumaður
á heimsmælikvarða. Varð það
sjálfum honum og ekki hvað
sízt stétt hans til framdráttar.
Steingrímur var, að mér er
sagt, annar neminn sem tók sér
framreiðslu að iðn hér á landí
og hefur nær 40 ára starfsferill
hans verið með eindæma glæsi-
brag. Steingrímur var einn af 7
stofnendum samtaka matreiðslu-
og framreiðslumanna, sem stofn-
að var 12. febrúar 1927. Hafðir
hann strax í byrjun ríkan áhuga
á velferð og framgangi samtak-
anna, var um árabil stjómar-
meðlimur þeirra og formaður í
tvö ár, prófnefndarmaður og
ritstjóri félagstíðinda um langan
tíma. Skrifaði hann margar
stórathyglisverðar greinar um
starf og skyldur framreiðslu-
mannsins, tók einnig til umræðu
allt það sem varðaði veitinga-
mál, þar var hann vel á verði
um málefni samtaka sinna.
Mörgum öðrum trúnaðarmál-
um vann hann að fyrir stétt
sína. Steingrímur byrjaði starf
sitt sem framreiðslumaður hjá
A. Rósenberg fyrri hluta árs
1922 í veitingastað þeim er var
í kjallara Nýja Bíós, svo síðar
í þeim húsakynnum, þar sem
Reykjavíkur apótek er starf-
andi nú (1924—27) og frá 1927
til 1944 að Hótel ísland eða þar
til það brann. Samfleytt í 22 ár
vann hann hjá hinum kunna
veitingamanni A. Rósenberg,
eftir það vann Steingrímur að
framreiðslustörfum að Hótel
Skjaldbreið, veitingahúsinu Höll,
ms. Gullfossi, en þó lengst af
og síðast á Hótel Borg.
Steingrímur átti lengi við
erfiðan sjúkdóm að etja, sem
hann bar með sannri karl-
mennsku. Oft var ég undrandi
á því hvernig hann gat staðið í
fæturna og unnið eins þjáður
og hann var. Þannig var Stein-
grímur einbeittur og þolinmóð-
ur, gafst aldrei upp fyrr en í
fulla hnefana. Ég vil svo færa
systrum hans og venzafólki
mínar hjartans samúðarkveðjur
og þakkir flyt ég Steingrími
fyrir góða viðkynningu og enn-
fremur þakkir félags fram-
reiðslumanna fyrir gott braut-
ryðjendastarf í þágu samtaka
okkar og vel unnin störf á liðn-
um árum. Hvíli hann í guðs
friði.
Símon Sigurjónsson.
I. O. G. V.
St. Mínerva nr. 172.
Fundur í kvöld kl. 20.30. —
Kosning embættismanna. Mætum
öll stundvíslega.
Æt.
St. Einingin nr. 14.
Fundur í Gt-húsinu í kvöld kl.
8.30. (Yngri stjórna). — Inntaka
nýliða. Bræðrakvöld. Sameigin-
kaffidrykkja. Dagskrá, sem bræð
urnir sjá um..
ASSA
Utidyraskrár
Innidyraskrár
Arvinnurekendur
Maður 36 ára gamall óskar
eftir vellaunaðri vinnu. Er
vanur vélgæzlu og járniðnaði.
Hef bílpróf. Tilboð merkt:
„Gott kaup — 4209“ ósfcast
sent Mbl. fyrir 26. marz.
Poftar
Pönnur
Margir litir.
Margar gerðir.
areaAúnaenf
Samkomur
Æskulýðsvika KFUM og K,
Laugarneskirkju:
Föstuguðsþjónusta í kvöld kl.
8.30. Séra Garðar Svavarsson
prédikar.
Hjálpræðisherinn
Major Henny Driveklepp, er
starfaði hér árin 1946-47, talar
á samkomunni í kvöld og annað
kvöld kl. 8.30. Foringjar og her-
menn aðstoða. Föstudag: Hátíðar-
kvöld. Allir velkomnir.
Fíladelfía
Unglinga samkoma í kvöld
kl. 8.
Kristniboðssambandið
Samkoman í kvöld fellur 'nið-
ur.
Boðun fagnaðarerindisins
Almennar samltomur
Hörgshlíð 12, Reykjavík kl. 8
e. h. Almenn samkoma.
Hermann
hættir að selja
rollukæfu
GJÖGRI, 19. marz: — Okkaí
ágæti oddviti, Guðjón Magnús-
son og frú hans fóru með Skjald
breið í gær til Reykj ivíkur. —
Ætlar oddviti að tala og ráðg-
ast við þingmenn Vestfjarða-
kjöidæmis um hið ískyggilega á
stand, sem rikir í atvinnumálum
Árnesshrepps, en af því leiða
miklir fólksflutningar úr byggð
arlaginu. Margir bændur hér
eru að hugsa um að hætta bú-
skap á þessu ári, en flestir
þeirra hafa stundað aðra at-
vinnu jafnframt, til þess að geta
lifað sómasamlegu lífi.
Hermann hættir nú for-
mennsku í Framsóknarflokíknum,
og allir búast við þvi, að hann
verði ekíki í framiboði við næstu
alþingiskosningar. Jafnframt hef
ég heyrt að Hermann hafi til-
kynnt bændum hér um slóðir, a5
hann muni alls ekki selja fyrir
þá kæfu og sláturafurðir fram-
vegis. Er þetta mikill skaði fyr-
ir bændur i Árneshreppi, því að
allar sláturafurðir og rollukæfa
eru bændum alveg verðlausar
hér í byggðarlaginu.
Oddvitahjónin halda til I
Reykjavík á Hringbraut 111 og
verða þar í u.þ.b. 20 daga.
— Regína.
Félagslíf
Valur — Handknattleiksdeild
Knattspyrnudeild —- 4. flokkur.
Munið skemmtifimdinn í félags
heimilinu miðvikudaginn 21/3
kl. 19.30.
Frá Körfuknattleiksdeil K.R,
Piltar — Stúlkur!
Þeir, sem eiga eftir að greiða
ársgjaldið, eru beðnir að gera
það á næstu æfingu, en þeir, sem
eru búnir að greiða það, beðnir
að sýna félagsskírteini.
Stjómin.
Þróttarar — Þróttarar
Útiæfing verður á íþróttavell-
inum í kvöld kL 8 fyrir mfl. og
2. fl. Athugið, aðeins mánuður
til móta. Mætið vel og stundvís-
lega.
Þjálfarinn.
Þróttarar
Útiæfing á Melavellinum f
kvöld kl. 8 fyrir meistara-, 1. og
2. flokk. Áríðandi að þeir mæti
sem ætla að vera með í sumar,
Þjálfarinn.
Ármenningar, eldri og yngri!
Gamalmennahátíðin verður
haldin í Jósepsdal næstu helgi.
Allir Ármenningar og gestir
þeirra velkomnir. Ferð í bæinn
á laugardagskvöldið.
Skíðadeild Ármanns.
Knattspymufél. Valur
Knattspyrnudeild
2. flokkur.
Fjölmennið á æfinguna I kvöld.
Kaffi- og skemmtifundur eftir
æfinguna.
Þjálfari
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðir er verða sýndar í Rauðar-
árporti fimmtud. 22. þ.m. frá ki. 1—3. Tilboðin
verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
Flatnings og
fiskverkunarmenn
vantar nú þegar til Grindavíkur.
Upplýsingar í síma 34580