Morgunblaðið - 23.03.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.03.1962, Blaðsíða 2
2 MORGVTSBL4ÐIÐ Föstudagur 23. marz 1962 Fjárhagsnefnd voru gefnar allar upplýsingar varðandi rikisábyrgð vegna bv. Brimness Á FTJNDI efri deildar Alþingis í gær urðu töluverðar umræður um ríkisreikninginn fyrir árið 1960. Kvörtuðu stjómarandstæðingar mjög um, að fjármálaráðiherra hefði ekki g-efið þeim kost á að sjá skýrslu níkisendurskoðanda varðandi útgerð togarans Brim- ness. Báðiherrann upplýsti þá, að ríkisendurskoðandinn hefði látið þeim í té allar þær upplýsingar, sem þeir hefðu óskað. Hins vegar settu þeir fyrir sig tiltekið bréf, sem ríkisendurskoðandi hefði rit- að sér og skrifað eigin hendi á, að væri trúnaðarmál. En bréf það fjallar um, hvaða meðferð og afgreiðslu málið skuli hljóta. Öll tilhliðrunarsemi sýnd Magnús Jónsson (S), fraansögu unaður meirilhluta fjáriiagsnefnd ar, kvað rétt að taika það fram, að samanburður haifi farið fram, svo sem venja hefði verið til, uim niðurstöðutöliir ríkiisreikn- ingsins og þeim borið saman. Á- greiningur sé því raunverulega enginn um það, að reikningur- inn sé að efni til að þessu leyti réttur og frum- varpið því tölu lega rétt. Stað- festingar hefði verið leitað á reikningum fyr- ir jód, sem er í samræmi við þá stefnu stjórnar- innar að flýta framlagningu Og staðfestingu reikningsins, sem að sjá'lfsögðu horfir mjög í jalkvæða átt, þar sem það hefur litla þýðingu að fjalla um rei'kn ingskil mörgum árum síðar. Á- stæðan til þess, að fnjmvarpið hafi dregizt svo, sé sú, að KK og BJ hafi talið sér nauðsynlegt að fá upplýsingar í sambandi við Brimnesmálið. Kvað hann alla tilhliðrunarsemi hafa verið sýnda í þessu miáli, sem auðið var og meir en það, þar sem hér er ekki um að ræða atriði, sem snertir afgreiðslu fumvapsins sjálfs efnislega. — Enga aðrar afihugasefdir hafa verið gerðar við ríkisreilkninginn í nefndinni, enda er engum af tillögum endur Skoðenda beint til aðgerða Al- þingis, eins og stundum hefur þó verið gert. Kvað hann meirihluta nefnd- arinnar leggja til, að ríkisreikn- ingurinn verði samþykktur, enda hafi enginn tölulegur ágreiningur um hann orðið, en hins vegar rétt að ta'ka fram, að gengið sé að sjálfsögðu út frá því, að fram- fylgt verði þeim athugasemdum, sem yfirskoðunarmenn rikis- reikninga hafi gert, bæði í sam- bandi við útgerð togarans Brim- ness og einnig annað það, þeir kunna að telja afihugavert. Afgreiðslu verffi frestaff Karl Kristjánsson (F) fram- sögumaður 1. minnibluta kvað óþarft að rifja það upp, hvernig útgerð tögarans Brimness komst á ríkið. En málið sé augljóslega svo mikið óreiðumál, að einstakt sé, Og því eðiilegt, að ríkisreikn- ingurinn fái sérstaka afgreiðslu á AlþingL Legði hann því til, að afgreiðslu þessa máls yrði frest- að. Kvaðst hann hafa lýst því yfir, að hann mundi lesa upp bréf skilanefndar í sambandi við þetta mál, ef réttmæti þessarar tillögu yrði véfengt. Las hann síðan bréfið upp, en ljóst væri af þeim athuga- semdum, að stór kostleg óreiða hefði átt sér stað í bókhaldi, sem hvörki væri bú- ið að upplýsa né gera skil á. Rík- isendurskoðenda hefði síðan verið falið málið, minnihlutamennirnir í fjárivags- nefnd hefðu æskt þess, að fá að sjá skýrslu hans, en fjármálaráð herra neitað að verða við kröfum þeirra. Synjun ráðherrans sé furðuleg og hljóti að vekja grun- semdir um, að fram hafi komið óþægilegar upplýsingar. Kvað hann ríkisreikningnum ekkert liggja sérstaklega á, fyrr en allar upplýsingar hefðu verið gefnar um Brimnesmálið. Ýtir undir grunsemdir Bjöm Jónsson (K), framsögu- maður 2. minnihluta, kvað aðal- atriði þessa máls, að fjármálaráð herra neitaði að verða við til- mælum um upplýsingar, . sem fram kæmu í skýrslu ríkisendur- skoðanda, en slíkt væri illt for- dæmi, sem var- ast bæri, enda ætti þingnefnd og Alþingi rétt á öllum upplýs- ingum um þetta atriði. — Kvað hann eðlilegt, að deildin fjall- aði ekki meir um ríkisreikn- inginn, fyrr en henni hefðu verið látnar slíkar upplýsingar í té. Ella hlytu að vakna grunsemd- ir um, að ýmislegt fleira sé at- hugavert um þetta mál. — Þá kvaðst hann ekki hafa kynnt sér þetta mól sérstaklega umfram það, sem í ríkisreikningnum stæði, en rifjaði upp þær athuga- semdir, sem þar komu fram frá yfirskoðunarmönnum, og áður hafa verið ítarlega raktar hér í blaðinu. Gumnar Thoroddsen fjármála- ráffherra kvað það vekja nokkra undrun, er ríkisreikningurinn fyrir árið 1960 lægi fyrir, að minni hlutarnir, sem þó báru ekki gæfu til að skila sameigin- legu áliti, skyldu ekki gera rik- isreikninginn sjálfan að uimtals- efni. Menn gætu þó látið sér detta í hug, að þeir teldu ein- hverju skipta, Ihvernig tekizt hefði um fjánmálastjórn og af- komu rikiis og ríkisstofnana eða hvort orðið hefði greiðslu-balli eða greiðsluafgangur. Þannig sáu þeir ekki ástæðu til að víkja að því, að greiðsluafgangur varð uimrætt ár, þótt verið hafi sitt á hvað síðasta ára tuginn, enn frem ur urðu útgjöld undir átælun fjárlaga í fyrsta skipti í sögunni, þótt otft áður hafi verið um verulegar um- framgreiðslur að ræða. Því sé líkast, að þetta skipti þjóðina engu máli. f þessu sambandi er ástæða til að minnast þess að sú venja hef ur á orðið, að Alþingi hefur ekki fengið ríkisreikninga til af- greiðslu fyrr en þrem til fjórum árum eftir reikningsárið. Öllum er ljóst, að slíkur dráttur er ekki heppilegur fyrir fjárstjórn ríkis- ins, enda síður en svo til fyrir- myndar og getur jafnvel verið Framh. á bls. 17. ■ : Bjarni Benediktsson dómsmálaráóhcrra og Aase Bjarkhoi frá NoregL „Þetta er eins og að fá stóra vinninginn í happdrættinu" Sagði Eyvind Johnson við mót- töku bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Einkaskeyti til Mbl. frá Hels- ingfors, 22. marz. — í DAG var haldið hátíðlegt 10 ára afmæli Norðurlanda- ráðs með samkomu í hátíða- sal háskólans í Helsingfors. Þar var saman kominn mikill fjöldi merkra manna, m. a. Uhro Kekkonen, forseti Finn lands. Þar fór m. a. fram afhending bókmenntaverð- launa í fyrsta sinn og hlaut þau sænska skáldið Eyvind Johnson. Karl August Fag- erholm, núverandi forseti ráðsins, afhenti verðlaunin eftir að dr. Steingrímur J. Þorsteinsson prófessor hafði flutt ræðu sína og gert grein fyrir vali verðlaunanefndar. Sagði prófessorinn að Eyvind Johnson teldist til hinna mestu rithöfunda Norður- landa. 1 þakkarávarpi sínu brá skáldið á glens og sagði m.a., að sér liði líkt og hann hefði unnið stóra vinninginn í happdrætti. Bar hann Norð- urlandaráði kveðju allra nor- rænna rithöfunda og þakkaði stofnun þessara verðmætu verðlauna, — en þa.u nema 50 þús. dönskum krónum. Verðlaunaveitingin var há- mark hátíðarinnar en mikla hrifningu vakti einnig ræða Francis Bull, prófessors um samhengið í norrænum bók- menntum. Hann lýsti ánægju sinni yfir veitingu bókmennta verðlaunanna, sagði að með þeim yrði' í framtíðinni unnt að létta kjör margra rithöf- unda og þau opnuðu víðtæka möguleika til þess að ritverk norrænna höfunda næðu til fleiri lesenda um öll Norður- löndin. Áður en fyrrgreind atriði fóru fram hafði strengjasveit sinfóníuhljómsveitar finnska útvarpsins leikið og sænski þingmaðurinn Bertil Ohlin, prófessor, haldið ræðu um störf og markmið Norður- landaráðs, en hann var einn helzti hvatamaður að stofn- un ráðsins. Ohlin vakti máls á því í ræðu sinni, hvort ekki væri kofninn tími til þess að Norðurlandaráð kæmi sér upp sinni eigin framkvæmdastjórn í líkingu við framkvæmdastjómir Sam einuðu þjóðanna, Efnahags- bandalagsins og Evrópuráðs- ins, — þótt aldrei yrði í eins stórum mæli. En slík fram- Jsvæmdastjórn undir forystu hámenntaðs aðalritara, sem Eyvind Johnson. hefði sömu afstöðu gagnvart stjórn síns eigin lands, sem annarra ríkisstjóma á Norð- urlöndum, gæti haft geysi- mikla þýðingu fyrir sam- vinnu Norðurlandaþjóðanna í framtíðinni. Hánn sagði það ennfremur skoðun sína, að hinn nýi sam vinnusáttmáli Norðurlanda — Helsingfors-sáttmálinn — væri gleðilegur árangur góðr- ar samvinnu ríkisstjórna, þing manna og sérfræðinga Norður landa. Athöfninni í hátíðasalnum var útvarpað og sjónvarpað. — í kvöld var fyrirhugað að halda hátíðhöldum áfram með veizlu. • Norræn stofnun á íslandi Á Viðræðufundum Norð- urlandaráðs fyrr í dag, var einkum rætt um ráðstafanir til þess að taka fyrir starfsemi ólöglegra útvarpsstöðva á Norðurlöndum, en þær starfa yfirleitt rétt utan landhelgi þjóðanna. Felld var tillaga fulltrúa finnska kommúnistaflokksins um að komið skyldi á 40 klst. vinnuviku um öll Norðurlönd. Vakti athygli, að jafnvel Aksel Larsen, formaður sósíal- íska þ j óðf lokksins í Dan- mörku var andvígur tillög- unni. Þá var ennfremur rætt nokk uð um kirkju — og mennta- mál. Menningarmálanefnd ráðsins beindi þeim tilmælum til ríkisstjóma Norðurlanda að komið verði í framkvæmd hugmyndinni um norræna stofnun á íslandi. Nefndinni hafði borizt bráðabirgða- skýrsla sérstakrar nefndar, sem kjörin var til þess að kanna möguleikana á fram- kvæmd hugmyndarinnar. For- maður nefndarinnar Bent A. Kooh, ritstjóri í Kaupmanna- höfn, en fulltrúi fslands Þórir Kr. Þórðarson prófessor. Nefndarmenn voru fyrir skömmu staddir í Rvík til þess að kanna undirtektir ýmissa aðila — en fullnaðar- skýrsla nefndarinnar liggur ekki fyrir, fyrr en í maí eða júnímánuðL I j .. - -^nfLLr riii—Él> —■ ^ Aflabrögð í Sandgerði SANDGERÐI, 22. marz: — Á þriðjudag komu hingað 23 bát- ar með saimtals 165,9 lestir. Línu bátarnir Hrönn II og Smiári höfðu mestan afla, 12,8 tonn og 10,4 tonn. Á miðvikudag komu 25 bátar með 186,1 tonn. Af linuibátuim voru aflahæstir Smári með 11,4 lestir, Stefán Þór og Muninn með 10,3 lestir hvor. Af netabétum fengu mest Þorsteinn Gíslason 29,2 lestir og Freyja 11,8 lestir. / — Fréttaritari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.