Morgunblaðið - 23.03.1962, Blaðsíða 5
I
Föstudagur 23. marz 1962
MORCITSBLAÐ1Ð
5
!
MENN 06
= MALEFNI=
Undanfarna daga hafa ver-
ið hér á vegum Loftleiða 15
ferðaskrifstofumenn frá megin
landinu. Aðalumboðsmaður
í Luxemburg, Einar Aakrann,
kom með þeim sem fararstjóri,
Einar er Norðmaður, sem hef-
ur langa reynslu sem starfs-
maður flugfélaga, byrjaði hjá
AOA 1949, fluttist yfir til Pan
American er það keypti AOA,
fór til Braathens 1953 o* það-
an til Loftleiða 1955, sem aðal-
umboðsmaður í Luxemburg.
Hann skýrði blaðamanni
Mbl. svo frá að Luxemfourgar
skrifstofan hefði 10 starfs-
menn, þar af væri einn í Par
ís, en undir Aakrann heyra
umboðin í París, Ziirieh,
Róm, Bruxelles og Antwerp-
en. Mjög mikil farþegauimferð
væri um Luxemburg, eftir 1.
apríl þegar 4 ferðir eru hafn
ar vikulega, mætti búast við
080 farþegum á viku. Hann
saglði að þriðji steersti at-
vinnuvegur ibúanna í Lux-
emiburg væri móttaka ferða
manna, það kæmi næst á eft
ir járn- og stálvinnslu, og
Loftleiðaivélarnar væru mjög
vel þoikkaðar þar í landi, því
þær kæmu með mikið af ferða
fólki, einkum frá Bandaríkj-
unum. Um önnur fúlög væri
ekiki að rœða hvað þetta
snerti.
1/40 af fslandi og tvöfalt að
íbúatölu.
Og hvernig land er þá Lux
emburg? Það er að stærð eins
og einn fertugasti hlutinn af
íslandi, ^ en íbúatalan er 2 á
móti 1 íslendingi.
Borgin Luxemburg er álíka
stór og Reyfcjavík. Það er
gamall bær mieð miklu af
söguilegum minjum, sem ferða
menn sækjast eftir að sjá. —
Árið 1963 verður haldið há-
tíðlegt 1000 ára afmæli borg
arinnar. Landslag er lífca fag
urt í sveitunum. Ferðamenn
sækja mjög baðstað, sem er
við eina hverinn þar í landi.
íslendingar fara gjarnan og
skoða Clerveaux-klaustur,
þar sem Halldlór Kiljan Lax-
ness dvaldi á yngri árum. —
Ferðamenn srteyma til bæj-
arins Eohrernaoh á hvíta-
sunnunni til að sjá hina sér
kennilegu Skrúðgöngu, sem
ífoúamir fara þá í til kirkj-
unnar, en öll hersingin stígur
þá þrjú skref áfram og tvö
aftur á bak alla leiðina. Nú
og ef menn hafa áhuga fyrir
járn- og stálvinnslu, þá er
suðurhluti landsins staðurinn
til að kynnast þvL
Einar Aakrann sagði að Mfs
kjör væru mjög góð í Lux
emfourg. Opinbera málið væri
þýzka, en börn lærðu frönsku
jöfmum höndum í skólanum,
og sín á milli töluðu Luxem
arar gjarnan sérstakt mál,
sem eiginlega væri séristök
þýzk málýska. Það mál sæist
stöku sinnum í bdöðum. En
annars vœri algengt í blöð-
Islendingar fœra
Luxemburg 680
ferðamenn á viku
um að sjá eina grein byrja
á þýzku og seinni hluta henn
ar væri svo á frönsku. E.t.v.
væri ástæðan fyrir því að ein
göngu ynnu Luxeroburgarar
á skrifstofu sinni sú, að
starfsfólk þyrfti að vera jafn
vígt á þýzku, frönsku og
ensku Og það væru flestir í-
búar Luxemfourg.
Nota háskóla og þjóðleikhus
nágrannanna.
— Það kemur fslendingum
sjálfsagt einkennilega fyrir
sjónir, af því það er svo ó-
líkt því sem þeir hugsa, sagði
Aakrann, að íbúar Luxem-
burg; eru ekkert hrifnir af að
— Hafið svo blýant og blað við
hendina.
Kennarinn: Hvað sagði Abra-
ham þegar guð kom til hans?
Óli litli þagði og gat ekki svar-
að.
Kennarinn: Hvað segir pabbi
Söfnin
IJstasafn íslands: Opið sunnud. —
þriðjudag. — fimmtudag og laugardag
kl. 1:30 tU 4 e.h.
Asgrimssafn, Bergstaðastræti 74 er
opið priðjud., fimmtud. og sunnudaga
(rá kl. 1.30—4 e.h.
Þjóðminjasafnið er opið sunnud.,
þnðjud., fimmtud. og laugard. kl.
1,30—4 e. h.
JListasafn Einars Jónssonar er lok-
®ð um óákveðinn tíma.
Minjasafn Reykjavíkurtoæjar, Skúla
túnl 2, opið dag’ega frá kl. 2—4 e.h.
nema mánudaga.
Tæknibókasafn IMSÍ, Iðnskólanum:
Opið alla virka daga kl. 13 til 19. —
Laugardaga kl. 13—15.
Bókasafn Kópavogs: — Utlán þriðju
daga og fimmtudaga í báðum skólun-
um.
Ameríska Bókasafnið, Laugavegi 13
er opið 9—12 og 13—21, mánudaga, mið
vikudaga og föstudaga, 9—12 og 13—lö
þriðjudaga og fimmtudaga
þinn vanalega, þegar gestir koma
til hans?
Óli litli: Farðu Gunna og sæ/ktu
notkkra bjóra.
Hreppstjóri nokikur skrifaði á
skjöl skipstjóra, sem sigldi skipi
sínu í strand: — Við dagbókina
er ekkert að athuga, skipið er
löglega strandað.
(Úr safni Einars frá Skeljabrekku).
Á meðan Lúðvík Kemp bjó á Illuga-
stöðum voru fjórir feðgar á Skíðastöð-
um. en lítið um kvenfólk, enda afneit-
uðu þeir því sem hverjum öðrum ó-
þarfa. I>ó fór svo að þeir náðu sér í
kaupakonu eitt sumar, en þá tókst
svo illa til að Guðmundur Sölvason
gerði henni barn. Eftir að þótti þeim
feðgum hann ekki húsum hæfur á
Skíðastöðum og fór hann þaðan að
næsta bæ Hvammi og átti þar heima
árum saman. Um þetta orkti Kemp
eftirfarandi:
Skírlífið til skammar var
Skíðastaða sonum.
Allir höfðu ítar þar
ýmugust á konum.
En góðan ávöxt Gvendur starf
gaf og skemmti vinum.
En lítilsháttar laga þarf
leiðslurnar í hinum.
Lánið kvenna löngum hér
leikur völtum kili.
En Skíðastaða ættin er
endurrcist í toili.
hafa sitt eigið mál, þeir háilf
skarrumast sín fyrir móllýsk
una sína. Þ«eir segja líka,
hverts vegna skylduim við
fara að koma upp eigin há-
skóla eða okkar eigin þjóðleik
húsi, þegar við höfum það
bezta af því tagi í nágranna
löndunuim og getum sótt allt
sem við viljum þangað. Land
þeirra ©r ekki rílbt í sjálfu
sér og landrými lítið, en þeir
sœkjast eftir að fá erlent fjár
magn inn og fá auðug fyrir-
tæki til að setja þar niður
verksmiðjur. Þeir lóta ítali
hafa vinnu í námunum sín-
um og Hollendinga á búgórð
unum og stjórna svö sjálfir
og hafa það mjög gott.
Aakrann flaug heim á mið-
vikudaginn. Nú er mikill við
búnaður á gkrifstofu hans til
að taka við sumarferðamanna
straumnum, en sumaráætlun
gengur í giildi hjá LoftLeiöum
1. apríl.
Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug:
Skýfaxi fer til Glasgow og Kaupmanna
hafnar kl. 08:30 í dag. Væntanleg aft-
ur til Reykjavíkur kl. 17:00 á morgun.
Gullfaxi fer til Oslóar, Kaupmanna-
hafnar og Hamborgar kl. 08:30 í fyrra
málið.
Innanlandsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar, Fagurhólsmýr-
ar, Hornafjarðar, ísafjarðar, Kirkju-
bæjarklausturs og Vestmannaeyja. Á
morgun: er áætlað að fljúga til Akur-
eyrar (2 ferðir). Egilsstaða, Húsavíkur,
ísafjarðar, Sauðárkróks og Vest-
mannaeyja.
Loftleiðir h.f.: I>orfinnur Karlsefni
er væntanlegur frá New York kl. 05.30.
Fer til Luxemborgar kl. 07.00. Kemur
til baka frá Luxemborg kl. 23.00. Fer
til NY kl. 00.30. Eiríkur rauði er vænt-
anlegur frá Hamborg, Kaupmanna-
höfn, Gautaborg og Osló kl. 22.00. Fer
til NY kl. 23.30.
Eimskipafélag íslands h.f.: Brúarfoss
er á leið til NY. Dettifoss er í NY.
Fjallfoss fór frá Hafnarfirði 22. til
Akraness og Rvíkur. Gullfoss fer
frá Rvík kl. 18:00 1 dag til Ham
borgar og Khafnar. Lagarfoss fer
frá Wismar í dag til Rostock. —
Reykjafoss er í Rotterdam. Selfoss
er í Rotterdam. Tröllafoss er í Rvík.
Tungufoss er á leið til Gdynia. Zee-
haan er í Grimsby.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er í Rvík
Esja er á Austfjörðum á suðurleið.
Herjólfur fer frá Rvík kl. 21 í kvöld
til Vestmannaeyja. Þyrill er á Norður-
landshöfnum. Skjaldbreið fór frá Rvlk
í gærkvöldi til Breiðafjarðar og Vest-
fjarðahafna. Herðubreið er á norður-
leið.
Skipadeild SÍS: Hvassafell er í Rvík.
Arnarfell fór 20 þm. frá Bremerhaven
til Reyðarfjarðar og Rvíkur. Jökulfell
fór 20. þ.m. frá Rieme til Fáskrúðs-
fjarðar. Dísarfell fór 21 þm. frá Brem-
erhaven til Eskifjarðar. Litlafell fór
í gær frá Reykjavík til Eyjafjarðar-
hafna. Helgafell er á Hvammstanga.
Hamrafell fór frá Batumi 13 þm. til
Rvíkur. Hendrik Meyer er væntanleg-
ur til Gufunes 24. þm. til Rvíkur.
*
Eg er að velta því fyrir mér,
hvort menn sem styggja endunrar á tjörninni séu ekki
andstyggilegir. —
Nauðungaruppboð
það, sem auglýst var í 6. 7.’ og 8. tbl. Lögbirtdnga-
blaðsins 1962 á eignahluta Fríðu Ágústsdóttur, Ás-
braut 3 (5) (2 herbergja íbúð), fer fram á eign-
inni sjálfri mánudaginn 26. marz 1962 kl. 14,15
samkvæmt kröfu Benedikts Sigurjónssonar hrl. o.fL
Bæjarfégetinn í Kópavogi
VORUBILL
Dodge vörubill, 4 tonna árgerð 1954 með 120 ha.
Benz-dieselvél, nýlega sprautaður og vel með farinn,
er til sölu ef viðunanlegt tilboð fæst. — Tilboð skilist
til Halldórs Benediktssonar, sími 15, Hellissandi,
sem gefur allar frekari upplýsingar fyrir 30. þ.m.
Ung stúlka
óskast nú þegar til símavörzlu og sendi.
ferða.
Sænsk íslenzka frystihúsið
Loftpressumaður
Vanur loftpressumaður óskast strax.
ALMENNA BYGGINGAFÉLAGIÐ H.F.
Borgartúni 7
Flatningsmenn
óskast strax
Fiskverkunarstöð
Jóns Gíslasonar
Hafnarfirði — Sími 50165 og 56865