Morgunblaðið - 23.03.1962, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.03.1962, Blaðsíða 6
6 MORCTnvnrjÐlÐ Föstudffgur 23. marz 1962 Lætur ekki bólusetja sig MÁL skipstjórans á brezka tog- aranunt „Wire Mariner“ var tek ið fyrir í gær í Vestmannaeyj- um. Áhöfninni var ekki hleypt í land vegna bólusóttarfarald- urs í Evrópu ,og skipstjóri neit- aði að láta bólusetja sig og áhöfn sína. Ástæðan mun hafa verið persónuleg, og sagðist skipsíjórinn aldrei hafa verið bóíusettur á ævi sinni. Var því lögregluvörður settur um skipið. Kveðjuhóf fyrir Hilmar Stefánsson BŒNN 17. maíz sl. hélt Starfs- miannafélag Búnaðarbanka ís- lands Hilmari Stefánssyni, banka stjóra, kveðjuihóf í Þjóðleikhús- kjallaranum í tilefni af því, að Ihann hefir nú látið af störfum við bankann eftir að bafa verið bankastjóri í rúm 26 ár. Margar ræður voru fluttar, og var Hilmari þakkað fyrir giftu- drjúga stjórn bankans á þessu túmabili. Hilmar Stefánsson. Tryggvi Pétursson, deildar- stjóri talaði fyrir minni heiðurs- gestsins, en Haukur Þorleifsson fyrir minni frú Margrétar, konu hans. Ennfremur fluttu ræður Igólf- ur Jónsson, landbúnaðarráðherra, Jón Pálmason, form. bankaráðs Búnaðarbankans, og Magnús Jónsson, bankastjóri. Heiðursgesturinn, H i 1 m a r Stefánsson, tók því næst til máls og þakkaði starfsmönn- um bankans ágætt samstarf á liðnum árum og góðar árnaðar- óskir. Veizlustjóri var Magnús Fr. Árnason, hrl., form. starfsmanna- JBélagsins, og ávarpaði hann heið- ursgestina að lokum. ■'sV&'Z' "í’ít •»•••* Skipstjóri var fluttur í land til yfirheyrslu í dómhúsi Vest- mannaeyja í lögreglubíl, en áð- ur höfðu allir, sem nálægtmál- inu komu, verið bólusettir. Ekki þurfti að yfirheyra fleiri en skipstjórann, því að hann játaði brot sitt og lauk yfirheyrslu fljótlega. Mun dómur í móli hans verða kveðinn upp í dag. Þessi mynd var tekin við réttarhaldið í Vestmannaeyj um i gær. Frá vinstri: Gísli G. ísleifsson, lögfræðingur, Haraldur Björnsson, skip- herra á ÆGI, Páll Þorbjörns son og Freymóður Þorsteins- son, meðdómarar. — Fyrir framan borðið situr skipstjór inn á Wyre Mariner, Percy Bedford, og dómtúlkurinn. Tvítugl tímarit um uppeldismál og skóla Stjómmálamenn I Argentínu hikandi Buenos Aires, 22. marz. — AP — Frondizi, forseti Argentínu hélt í dag áfram viðræðum um stjóm armyndun í landinu og hyggst gera svo fram til helgar, en þá vonast hann til þess að ný stjóm geti tekið við völdum. Stjórnanólamenn hafa orðið försetanum til lítillar aðstoðar, því margir forystumenn floikk- anna eru sagðir á báðum áttum um það, hvort þeir eigi að fall ast á aðild að stjórn, sem skipuð sé að vild yfirstjómar hersins. Þegar hafa tveir af sjö lýðræð isfflokikum landisins neitað að taka þátt í stjórnarmyndun. — Annar er kristilegi lýðræðis- flokikurinn. Formaður hans Enrique Tevedia, sagði við fréttamienn eftir við- ræður við Frondizi í dag, að flokkur hans tseki ekki þátt í myndun samisteypustjórnar fyrr en herinn hefðj lagt niður stjórn í fylkj.unum fimm, þar sem per ónistar unnu sigur í kosningun- um á dögunum. Aðrir flokkar hafa ekki gefið endanlegt svar. * * Sem kunnugt er hafa 62 verka lýðsfélög, sem telja yfir tvær millj. félaga, lýst yfir allsherj arverkfalli næsta sólarhring og voru gerðar margvíslegar ráð- stafanir í dag tii þess að reyna að koma í veg fyir það. Ekki virðast þær þó líklegar til að bera árangur. Forystumenn per ónista lýstu því yfir í dag, að verkfallið yrði gert og þeir miyndu ekki hika við að beita valdi ef nauðsyn krefðL UM þessar mundir er tímaritið ,,Heimili og skóli“ tvítugt að aldri. Það var stofnað af Kenn- arafélagi Eyjafjaxðar og hefir verið gefið út á vegum þess í 20 ár. Það kemur út á Akureyri í 6 heftum á ári, hefir alla tíð verið selt mjög ódýrt, enda flestir unn- ið við það kauplítið. Það kostar nú aðeins 40 krónur árgangurinn ..... í tvo áratugi hefir ritið flutt uppalendum í heimilum og skólum mikinn fróðleik og lífs- hollan, verið þarfur vinur þeirra og ráðgjafi. Mun hver og einn sem flettir blöðum þess í dag verða þess áskynja, að jafnframt því sem þar er skyggnzt til starfs og stefna annars staðar og margt gott og nytsamt þaðan flutt, þá er flutt, þá er allur grunntónn þess fyrst og fremst þjóðlegur og kristilegur. Og það hefir verið góður og hógvær boðberi milli heimila og skóla og kennurunum góður vinur....“. Þannig blasir þetta við kunn- ugum nú, er ritið leggur út á 3. áratuginn. Sami maðurin* hefir frá upp- hafi verið ritstjóri þess, Hannes J. Magnússon, núverandi skóla- stjóri á Akureyri. Hann segir nú er hann lítur um öxl: „.... Ritið hefir aldrei verið ádeilurit, þótt á margt megi deila í uppeldisháttum okkar og skóla- málum. Það hefir því aldrei hald- ið uppi neikvæðum málfluttn- ingi, en aftur leitast við að flytja mál sitt á jákvæðan hátt, benda frekar, á það sem er til fyrir- myndar og vekja athygli á heil- brig^íum uppeldisháttum, t. d. beita þeirri uppeldisaðferð, að lofa fremur en lasta. Þá hefir það einnig vakið athygli á krist- inni trú og lífsviðhorfum sem hinum traustasta grundvelli alls Frh. á bls. 23. Þessi mynd var tekin inni á Laugarnessvegi i gærmorgun. og sýnar brunann í íbúðarshkúr þar. — (Ljósm. Sv. Þonm), Tveir brunar í gær EIDUR kom upp á tveimur stöð- um í Reykjavík á sjötta tímanum aðfaranótt fimmtudags. Kl. 5.07 var slökkviliðið kvatt inn á Laugarnesveg, þar sem kviknað hafði í mannlausum skúr beint á móti Kirkjusandi. Þar var slökkt fljótlega. Sennilega hefur verið kveikt í skúrnum af krökkum. Kl. 5.20 var tilkynnt um eld 1 íbúðarhúsi á Fífuhvammi nr 5. Húsið er kjallari, ein hæð og ris. Eldurinn kom upp £ húsgagna- tróði á 1. hæð og var fljótlega slökktur. • Bragur um Kvossanessálfa Skáldið cx hefur sent Vel- vakanda kvæðiskom það, sem hér er prentað á eftir. Fjallar það um nýorðinn atburð norð- ur á Akureyri, þar sem beðið var með að sprengja kletta- snös, meðan álfar fluttu bú- ferlum. „Eyjafjörður, finnst oss, er“ frumlegt pláss á landi hér, þar er Framsókn, þar er mús, þar er Kea og veggjalús. Meyjafjöld margt eitt kvöld mönnum gefa undir fót. AUs kyns skarfar eru þar, íhaldsmerm og rauðálfar. Þar er gnótt af þorski og síld, þar er líka vömbin kýld. Einhvers staðar út til Hlés ágætt liggur Krossanes. Fyrrum þcir til farsældar frægir Norðmenn áttu bú, horskur stýrði Holdö þar höfuðbóli velsældar. Forðum síldar- metin -mál margra áttu hug og sál, fínu taugar Framsóknar fóru mjög úr skorðum þar, Tímamenn töldu senn tjón og voða búinn þjóð. — Akureyrar- á nú -bær úrelt skran og grútarþrær. Uppi á landi eru þar álfaborgir veglegar. Álfar þola ágang sízt illu laima. — Það er víst. Kátt er oft þó kólgar loft kyrja álfar dægurlög, -<•> iðka þar og, utan stanz, álfameyjar húladans. Með ógnahraði á nú þar upp að hressa bryggjumar, klambra timbur, kljúfa grjót, kunn er svoddan athöfn fljól Splundra þar sprengingar og spilla góðum álfaranr.. Athöfnum til óþurftar álfar trylltu vélarnar. Yfirmanna- ágætt -lið álfa vildi semja við, létu Ólaf Liljurós Ijúfa hitta álfadrós. Átti tal við vífaval, verinn kunnur álfasið rýma álfa burtu bað búa um sig á öðrum stað. Álfur gamall út þá kom, •— ótti stóð af þessum vom, - aldinn mælti Ólaf við: „Ættuð nú að hafa bið meðan við að sveitasið snúum okkar búi á leió, rekum burtu fólk og fé, fá til þassa verðum hlé“. Hættu störfum höldar þá, hræddir stara bergið á, allt er hljótt og ytra þar ekki heyrast sprengingar. Skatna fjöld koldimm lcvöld kojum sínum lúrir í, óttast bráða álfahefnd ef að störfin verða nefnd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.