Morgunblaðið - 31.03.1962, Qupperneq 1
24 síður með Barnalesbólt
49. Srgangur
76. tbl. — Laugardagur 31. marz 1962
Prentsmiðja Morgunblaðsim
DrangajíM
Red Crusader
Oréttmæt valdbeiting Dana
gegn brezkum togara við Færeyjar
strandaöi í ndtt
( Kaupmannahöfn, 30. marz.
Einkaskeyti til Mbl.
D A N S K A freigátan Niels
Ebbesen beitti óréttmætu
vopnavaldi er hún skaut föst
um skotum að brezka togar-
anum Red Crusader við Fær-
eyjar. Ekkj hafa verið lagð-
ar fram sannanir fyrir því að
Red Crusader hafi verið að
veiðum í færeyskri landhelgi
þegar hann varð fyrir árás
danska herskipsins. Þetta er
Úrskurður alþjóðarannsóknar
nefndar, sem hefur unnið að
því að undanförnu að rann-
saka átökin út af Myggenæs
í Færeyjum hinn 29. maí
1961. — Rannsóknarnefnd
þessi vann á vegum ríkis-
stjórna Danmerkur og Eng-
lands og var úrskurðurinn
birtur samtímis í Kaup-
mannahöfn og London í dag.
„BLÁA LÍNAN".
Forsaga málsins er I stuttu
máli þossi: Flotayfirvöldin á
Færeyjarsvæðinu sendu freigát-
unni Niels Ebbesen tilkynningu
hinn 29. maí í fyrra um að Red
Crusader og þrír togarar aðrir
væru grunaðir um fiskveiðar inn
an fiskveiðimarka þeirra, seim
riúkisstjórnir Danmerkur og Eng-
lands höfðu samið um við Fær-
eyjar. En markalínan umisamda
hefur verið nefnd „Bláa línan“.
Niels Ebbesen hélt þegar til móts
við togarana og sendi þeim boð
um að nema staðar. En Red
Red Crusader sinnti ekki tilkynn
ingu herskipsins og var þá skotið
að togaranum lausu sköti. Var
skipstjóranum á Red Crusader
síðan tilkynnt að hann væri tek-
inn fastur og ætti að sigla skipi
sínu til Thorshavn í fylgd með
freigátunni. Tveir menn af Niels
Ebbesen voru settir um borð í
togarann og síðan haldið af stað.
En á leiðinni til Thorshavn lét
brezki skii>stjórinn menn sína
handtaka dönsku sjóliðana.
Breytti hann síðan um stetfnu Og
hélt út úr færeyskri landhelgi.
Þegar yfirmaðurinn á Niels
Ebbesen sá hvað um var að
vera, lét hann skjóta kúlurn að
togaranum og hætfðu tvö skotin
Red Crusader.
Framh. á bls. 23.
er ekki I yfirvofandi hættu
DRANGAJÖKULL, hið nýja skip Jökla h.f. tók
niðri á Tálknafirði um kl. 2 sl. nótt. Skipið var
að lesta fisk til útflutnings og var á leið milli
hafna. Eru um 25 þúsund kassar af fiski í
skipinu.
Af samtölum, sem skipið átti við land, mátti
ráða að það var ekki í yfirvofandi hættu, en
það tilkynnti að leki væri kominn að skipinu
í fremstu lest.
Skipsmenn báðu um að stærsta skip land-
helgisgæzlunnar yrði sent á vettvang. — Var
Óðinn þegar í stað sendur áleiðis til hins
strandaða skips.
Guido brábabirgða-
forseti í Argentínu
Ráttarhöld í vænd-
um í Svrlandi
Beirut og Damaskus, 30. marz.
— (AP-NTB) —
AÆTLAÐ er að herinn í Sýr-
landi hafi látið handtaka um
100 sýrlenzka áhrifamenn,
þeirra á meðal fjóra fyrrver-
andi forsætisráðherra. — Hefur
Abdui Karim Zahreddin, yfir-
maður hersins, lýst því yfir á
fundi með fréttamönnum að all-
ir þeir, sem hafa framið afbrot
gegn ríkinu, verði dregnir fyrir
þjóðardómstóL
Haft er eftir áreiðalegum
heimildum í Damaskus að
meðal hinna handteknu séu
Marouf Dawalibi, sem var for-
sætisráðherra áður en herinn
tók við völdum að nýju á mið-
vikudag, Mamoun Kuzbari, sem
varð forsætisráðherra eftir bylt-
ingu hersins í september sl., og
fyrrverandi forsætisráðherrarn-
ir Khalid el Azm og Sabri el
Assali. Ekki er vitað með vissu
um Koudsi, fyrrverandi forseta,
en talið að honum hafi verið
eleppt úr haldi.
Zahreddin hershöfðingi kall-
aði erlenda sendifulltrúa á sinn
fund í dag og fullvissaði þá um
að Sýrland héldi áfram hlut-
leysisstefnu sinni.
Allt var með kyrrum kjörum
í Damaskus í dag. Útgöngubann,
sem sett var á eftir valdatöku
hersins, hefur nú verið afnumið
og ferðalög heimiluð yfir landa-
mærin. — Flugsamgöngur eru
hafnar að nýju og símasamband
tekið upp við önnur ríki.
JOSE Maria Guido, forseti öld-
ungadeildar Argentínuþings, tók
í dag við forsetaembætti lands-
ins við hátíðlega athöfn. Ekki
er þó búizt við að hann gegni
því embætti lengi, því sam-
kvæmt landslögum ber honum
að boða til nýrra kosninga inn-
an 30 daga.
Áður en Guido sór embættis-
eið sinni hafði Raul Poggi hers-
höfðingi, yfirmaður hersins, fyr
irskipað hermönnum að hverfa
aftur til stöðva sinna og að gera
alit til að viðhalda friði og
reglu og sönnu lýðræði í land-
inu. —
Hinn nýi forseti hefur í mörg
ár verið náinn vinur og sam-
star^smaður Frondizis, fyrrver-
andi forseta, sem fluttur var í
fangelsi í gær. Enginn varafor-
seti er í Argentínu, og hefur
Guido, sem forseti öldungadeild-
arinnar, oft gegnt forsetaemb-
ætti í fjarveru Frondizis. En í
fyrstu leit út fyrir að hann
væri nú tregur til að taka að
sér embættið fram að kosning-
um og kom það nokkuð á óvart
er tilkynning var getfin út um
að hann hefði svarið embættis-
eið í dag.
Áður en Guido tók við emb-
ætti átti hann þriggja klukku-
stunda fund með yfirmönnum
Frh. á bls. 23.
Einnig báðu þeir þess »5
Vatnajökull, sem nú er í
höfn í Reykjavík kænii á
staðinn, ef vera kynni að
flytja mætti farminn eða
hluta hans milli skipa.
Veðrið þarna um slóðir var
í nótt NNA. 6 slæmt skyggni.
Skipstjórinn á Drangajökli
er Ingólfur Möller. Skipið er
nýtt, kom til landsins 17. des.
s.l. það er um 2000 brúttó-
lestir að stærð.
Fangar Castros játa
Havana Kúbu 30 marz (AP).
í DAG var haldið áfram í
Havana rébtarhöldum yíir
rúmilega 1100 föngum sem
teknir voru í innrásinni á
Kúbu í apríl 1060. Voru fang-
arnir leiddir fyrir herrétt í
gær og í dag skýrðu blöðin í
Havana frá því að allir hefðu
„viðurkennt afibrot sín.“ Jatfn-
ar Bandaríkin fyrir að hafa
undirbúið og kostað innrásina.
Bréfið er ritað til Castros for-
sætisráðherra og dagsett 10.
maí 1961. ,
Dagblaðið Hoy gegir að fang
arnir hafi viðurkennit að hatfa
gert innrás í föðurland sitt,
tekið þátt í innrás, sem var
undirbúin, skipulögð og kost-
framt birtu blöðin langt bréf uð af bandarískum heimsvalda
frá einum leiðtoga fanganna, sinnum og að þeir óski ekki
Jose A. Perez San Roman hötf- etftir að gefa nánari yfirlýs-
uðsmanni, þar sem hann ásak- ingar.
Sett hafa verið upp dýrmæt geislamælingatæki í nýrri rann-
sóknarstofu í nýbyggingu Landspítalans, og þau tekin í
notkun. Hér sést dr. Bluhm, eðlisfræðingur, er starfað hefur
að uppsetningu þeirra, við mjög vel einangraða þró, þar sem
hægt verður að geyma um 100 mc af geislajoði. Sjá nánar
á blaðsíðu 3. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)