Morgunblaðið - 31.03.1962, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 31.03.1962, Blaðsíða 17
' Laugardagur 31. marz 1962 MORGVNBT. 4 T>1Ð 17 Jóhann Hjálmarsson Saint-Exupéry og litli prinsinn hans NU hefur verið þýdd á íslenziku ein-hver geðþekkasta og vinsæl- asta bók sem nokkur seinini tíma rithöfundur hefur skrifað. Hún (heitir Litli prinsinn (Le petit prince, á frum-málinu) og er eftir Frakka-nn Antoine d-e Saint-Ex- upéry, sem fæ-ddist í borginni Lyon árið 1900. Litli prinsinn, kom fyrst út í New York, 1943, og hefur síðan margsin-nis birzt á prenti með hin-um yndislegu teiknin-gum höfundarins sjálfs, sem í íslenzku útgáfunni njóta sín tæpleg-a, vegna bess að ekki hefur verið hi-rt um að koma lit- um þeirra til ski-la og þær hefðu tvímælalaust þurft stærra fbrm. Þýðin-gun-a h-efur annazit Þórar- inn Björnsson, en Mennin-gar- sjóður gefur bókina út í hinu-m snotra smábókaflokki sínu-m. (Það hefði verið ga-man að fá Ibókina ein-nig í umfangsmeira formi, og þá með litmyndum. IÞess-a útgáfu hefði mátt ætla yngstu lesend-unum sérstak-lega, því að Litli prinsinn á einnig erindi til þeirra þótt hann sé í eðli sínu barnabók hand-a fullorðn um.) Ekki verður samt ann-að sagt með sanngirni en hlutur þeirra sem standa að íslenzkri gerð bókarinna-r sé til sóm-a, ef frá eru skildir annmarkar þeir sem ég hef tæpt á. Vissu-lega eru þeir að kenna sta-kkin-um sem bókinni -hefur verið sniðin-n. Ég fyrir mi-tt leyti hef engu að síð- ur notið þess að kynnast litla prinsinum í þess-ari bók. Antoine de Saint-Exupéry var einn -af brautryðjendum fl-ugsins og lenti í mörgum mannraunum, Hann tók meða-1 a-nnars þá-tt í orrustu-nni um Frakkland 1940. í könnunarferð seni hann fór frá Korsíku var flugvél hans skotin iniður. Þar lét hann lífið, tæp- lega hálf fimmtugur. Bækur hans eru fáar en þykja afburðavel samd-ar. Þær fj-alla um áhættu- samt starf fll-ugmannsins. Litli prinsin-n hefst á því að BÖgumaður lýsir slæm-ri bem-sku leynslu sin-ni af fullorðna fólk- inu. Sex ára að aldri les hann bók um ævintýri frumskógarins. í henni er mynd af kyrkislön-gu Bð gleypa villidýr. H-an-n tei-knar fyrstu myndina sína af kyrki- Slön-gu sem' er að m-elta filvog ppyr fullorðna fól-kið hvort það eé ekkl hrætt við myndina. Það Bvarar: ,,Hvens vegna ætti mað- «r að vera hræddur við ha-tt.“ Sögumaður segir: „Myn-din mín itáknaði ekki ha-tt. Hún tákn-aði kyrkislöngu, sem var að melta fíl. Þá teiknaði ég kyrkislöngu ®ð in-nan, svo að fu-llorðn-a fóilk- ið gæti skilið. Það þarf a-lltaf að fá skýringar. Fullorðna fólk- Ið ráðlagði mér að hætta við þess- ar myn-d-ir af kyrkislön-gu-m, hvort 'heldur væru innan eða ut- anverðar, og snúa mér heldur Bð land-af-ræði, sögu, rei-kni-ngi og jmálfræði. Þannig var það að ég Bex ára ga-mall sagði skilið við Btórkostlegan lista-mannsferil. Ég hafði misst kjark við ósigur myndanna mi-nna. Ful-lorðna fólk ið skilur aldrei neitt sjálft, og það er þreytandi fyrir böm að gef-a því skýringar aftur og aft- ur.“ Sögumaður segir því næst frá því að hann hafi va-lið sér ann- að starf, ílugið, og nánara sam- ueyti h-ans við fullorðið fólk hafi sí-ður en svo breytt áliti BÍnu á því til hi-ns betra. Hann eegir: „Þegar ég hefi hitt fyrir einhvem fullorðinn, sem mér virtist fremur skýr, gerði ég til- raun á honum með fyrstu mynd- Jnní minni, sem ég hefi aliltaf gey-mt. Ég vild-i vita hvort bann væri í sannleika skilni-ngsnæmur. En h-ann svaraði jafnan: „Þetta er hattur". Þá tala-ði ég hvorki við hann um kyrkislöngur, frum- ekóga né stjörnur. Ég miðaði mál xni-tt við hæfi h-ans. Ég talaði við hann um bridge, um golf, um stjómmál og um hálsbindi. Og þessum fullorðna manni þótti vænt urn að komast í kynni við svo skynsaman mann.“ Sögumaður lifir þannig ein- m-ana, án þess að hafa nokkurn til að tala við. uns han-n verður fyrir vél-arbilun á Sahara eyði- mörkinni. Hann neyðist ti-1 að reyn-a -að gera við fl-ugvélina sjálfur og fyrsta kvöldið sofn-ar hann í sandinum í þúsund mílna fj-arlægð frá öllum manna-bú- stöðum, ein-angraðri en skip- brotsm-aður á fleka úti á regin- hafi. Hann verður því m-eira en liítið hissa þegar -hann í dögun er vakinn af veikri og einkenni- legri Töd-d, sem segi-r: „Viljið gera svo vel . . . teikna fyrir mig kind.“ Hann sér fyrir sér bendir enn -glögglega á heimsku t fullorðna fólksins: „Ef þú segir við fuil-orðið fóik: „Ég sá fal-legt hús úr rósrauðum tígulsteinum með blóm í glug-gum og dúfur á þakinu . . tekst því ekki að ímynd-a sér slíkt húis. Það verð-ur að segja við það: „Ég sá h-ús, sem kostaði milljón". Þá hrópar það upp: „En hvað það er fa-llegt.“ Litli prinsin-n segir sögumanni frá stjörn-unni sinni. H-ann segir honum frá baóbab trjánum, sem ota fyrst mein-lausum sprotum feimnisl-ega í átt til ljóssins, en eru bölvað illgresi sem verður að reyta j-afnóðum og það sprett- -ur. H-ann segir honum frá blóm- inu sem hann elskar, en vegna -þess að ha-nn er of ungur t-i-1 að skilja ást þess, flýr h-ann af Litli prinsinn á smástiminu B 612. Teikning eftir Saint-Exupéry. lítinn, óvenjulegan náunga sem ber þess engin merki að vera villuráfandi barn in-ni í eyði- mörkinni. Þa-r með hefjast kynni han-s af litla prinsinum, sem skilur teikningar hans umsvifa- la-ust, vegna þess að hann er óspilitur af kenjum fu-llorð-na fólksins. Litli prinsinn kemur frá dálít- illi stjörn-u úti í himinhvolfinu, sem hann á sjálfur. Sögum-aður gefur henni nafnið B 612, vegn-a þess að ful'lorðna fólkið els-kar töl-ur: „Og ef þú segir við það: „Sönnun -þess, að li-tli prinsinn hefir verið til, er sú, að hann er yndislegur, að hann hló og vild-i flá kind. Þegar maður vil-1 fá kind sannar það, að maður er ti-l“, þá mun það yppta öxlum og k-alla þi-g bam. En ef þú segir við það: „Stjarnan, sem hann kom frá, er smástir-nið B 612“, mun það sannfærast og ekki ónáða þig með neinum spurnin-gum. Fullorðið fólk er þannig. Okk-ur má ekki gremj-ast við það. Börn eiga að vera umburð-alynd við fullorðið fólk.“ O-g sögumaður -hól-mi, og við fáum að fyl-gjast m-eð hon-um á leið hans frá stjörnu til stjörnu, þar til hann nemur jörðu. Hann hittir marg- ar mann-gerðir, spegil-myndir ýmislegs í fari man-na, svo sem stjómsemi, græðgi, og sjálfs- elsku. Og eftir margskonar sam- skipti hans við fu-liorðið fólk, verður niðu-rstaða hans sú, að það sé ábyggilega mjög skrýtið. Litli prinsinn verður fyrir mikl-um von-brigðum þegar -hann kem-ur til jarðarinnar að hitta fyrir blóm, sem eru alveg eins og blómið hans, en skil-ur seinna að rósin hans er einstök í hei-m- inu-m. Hann segir því við jarðar- rósirna-r: „Þið eruð fallegar, en þið efuð tómar. Það er ekki hægt að d-eyj-a fyrir ykk-ur. Auðvitað er það svo með rósina mína. að venju-legur vegfarandi mundi halda, að hún líkitist ykkur. En hún ein er meira virði en þið allar, af þvi að það er h-ún, sem ég hefi vökvað, hún, sem ég hefi sett undir hjálm. hún, sem ég h-efi drepið af li-rfumar (nema tvær eða þrjár vegna fiðrild- Iðnaðarfyrirtæki óskast Iðnaðarfyrirtæki með léttum iðnaði óskast til kaups. Tilboð ásamt uppl. skilist á afgr Mbl. fyrir n.k. þriðjudagskvöld merkt: ,,S — 4313“. anna); af því að það er hún, sem ég hefi heyrt kveina, eða gorta, eða jafnvel stu-ndum þegja; af því að hú-n er rósin mín.“ Kunningi hans refurinn segiir honu-m þessi mikilvægu sa-nnindi: „Þú berð að eilífu áhyrgð á því sem þú hefur bund- ist böndum. Þú berð ábyrgð á rósimni þinni.“ Sögumanni tekst lofesins að gera við vélina og litli prinsinn hverfur til stjömu sinnar á hinn eina mögulega hátt, með hjálp vinar sín_s höggormsins, sem tek- ur hann af lífi á hálfri mínútu. Þau verða örlög litla prinsins, sem langar til blómsins síns. Og stefn-umóti An-toin-e de Sain-t- Exu-péry við barnið í sjálíum sér er lokið. Draumkennda, hug- ljúfa sag-an hans u-m litla prins- inn vek-ur okkur sem erum fu-U- orðin til umlhugsunar u-m margt, en hún skilur umfram allt eftir hálei-ta fegurð í brjóstum okkar, óvenju-legan tærleika einfaldra mynda, leitar okk-ur uppi í hrað- Antoinc de Saint-Exupéry. lesti-nni þar sem við sofum eða geispum. Einungis bömin flletja nefið á rúðunum. Litli prinsinm sagði: „Það eru aðeins börnin sem vita að hverju þau eru að leita. Þau eyða tí-ma í tusku- brúðu, og hún verður þeim mjög miki-ls virði, og ef hún er tekin frá þeim, fara þau að gráta . . Og að lokum þessi orð hans: „A-ugun eru blind. Það verð-u r að leita með hjartanu." Tilkynning um Lágmarkskaup og kjör Iðnnema: Samkvæmt heimild í 14. gr. laga nr. 46/1949 og reglu- gerð nr. 93/1960 um iðnfræðslu, eru hér með sett eftir- farandi ákvæði um lágmarkskaup og önnur kjör iðn- nema: 1. Kaup nemenda skal vera viku- eða mánaðarkaup, miðað við fulla vinnuviku og er óheimilt að skerða það, þó verkefni skorti hjá meistara. Vinnutími skal vera hinn sami og samningsbundin er fyrir sveina í hlutaðeigandi iðngrein. 2. Meistara eða iðnfyrirtæki er skylt að veita nem- anda frí frá störfum með fullu.kaupi, þann tíma er nem_ andi sækir iðnskóla. Þá skal nemar.di fá 3ja vikna sumarleyfi árlega með fullu kaupi. Meislari eða iðnfyrirtæki greiði allan kostn- að er leiðir af iðnskólanámi nemanda, svo og tryggingja- og sjúkrasamlágsgjöld hans. 3. Kaupgreiðslur til nemanda miðist við hundraðshluta af samningsbundnu kaupi sveina í sömu iðngrein, eða viðurkenndum kauptaxta, og má kaupið eigi vera lægra en hér segir: A. í iðngreinum með þriggja ára námstíma: 1. ár 30%: 2. ár 40%: 3. ár 60%: B. I iðngreinum með fjögurra ára námstíma: 1. ár 30%: 2. ár 40%: 3. ár 50%: 4. ár 60%: C. í iðngreinum með fimm ára námstíma: 1. ár 30%: 2. ár 40%: 3. ár 50%: 4. ár 60%: 5. ár 70%: Framangreint kaup tekur aðeins til dagvinnu. Sé um eftirvinnu að ræða, er greiðsla fyriir hana háð samkomu- lagi aðila. 4. Þau ákvæði gildandi samninga, sem kunna að fela í sér lakari kjör, iðnnemum til handa, en ákvæði þessi eru ógild. Framangreind ákvæði gilda frá og með 1. aptfl 1962 þar til annað verður ákveðið og taka til allra náms_ samninga sem í gildi eru þá. Jafnframt er úr gildi numin augiýsing um sama efni frá 20. júní 1955. Þetta birtist hér með til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Reykjavík. 28. marz 1962. IÐNFRÆÐSLURÁÐ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.