Morgunblaðið - 31.03.1962, Síða 6

Morgunblaðið - 31.03.1962, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 31. marz 1962 Aætlunarbifreið rann stjórnlaus á skúr Tveir snáOar Sauðárkróki, 29. marz UM KLUKKAN 11 miðvikudag- inn 28. þ.m. voru staddir í Varma Ihlíð í Skagafirði bílar Norður- leiða á leið frá Akureyri og bíl'l frá Sauðárkróki, sem annast fólksflutninga í sambandi við ferðir Norðurleiða. Öllum bílun- um var að venju lagt á flötinn austan við veitingahúsið í Varma hlíð. Unnu nú ökumenn að flutn ingi farangurs milli bílanna, en farþegar voru inni í veitingasal. Skiptin munu hafa tekið ca. 25 mín., en bá gengu þeir Valdi- mar Magnússon, ö'kumaður Sauð- árkróksbifreiðarinnar K-260 og annar Norðurleiðabílstjórinn, Svavar Ejnarsson, inn í Varma- hlíð, til að ganga frá pósti. Hinn voru í henni Norðurleiðabílstjórinn, Sigtrygg- ur Guðmundssori varð eftir hjé bílunum og áleit að Valdimars bíll væri að renna af stað, er hann tók eftir því að vörugeymsl an var ólokuð. Klappaði hann á hlið bílsins, til að gera Valdimar aðvart, en í sömu svifum rann reiðin fór þarna af stað. — Jón bifreiðin af stað niður túnið nokk uð sunnan vegarins Og staðnæmd ist inni í vörugeytmslu við sölu- skúr V. Lindemanns, sem stend- ur niður við þjóðveginn. Sigtryggur sá þegar bíllinn rann þarna á eigin spýtur án ökumanns og 'hraðaði för sinni á eftir bílnum og þom þá í ljós að tiveir smápattar, 3—4 ára voru Framh. á bls. 8. • Tæpur helmingur frá Frakklandi Á árinu 1954 voru 1.200.000 íbúar í Alsír skráðir opinber- lega undir samiheitinu .Evrópu búar“. Þar af voru 325.000 fæddir á Spóni, eða börn spénskra innflytjenda, aðal- lega búsettir í ÓranamtL 100.000 voru af ítölskum upp- runa, einkum búandi í Bone Og Constantine og nógrenni. 50.000 manns, sem bjuggu mest megnis á sömu svæðum og ítalirnir, voru ættaðir fré Möltu. 140.000 manns voru Gyðingar, sem urðu franskir ríkisborgarar samkvæmt til- Skipun frá árinu 1870, og ríf- legur helmingur þeirra var af júðaættum, er búið höfðu 1 Alsír siðan snemma á miðöld- um. 42.000 í viðbót voru inn- flytjendur frá ýmsum Mið- jarðanhafslöndum, svo sem Grikkiandi og Júgó-Slavíu, Þannig er meira en helmingur „Evrópubúa“ í Alsír ekki af frönskum ættum. Sameiginleg fortíð þeirra er sú að hafa átt heima í lélegum landbúnaðar hérhðum í Suður-Evrópu. Þa3 sýnir góða stjórn og framfara- semi Frakka í Alsír, að allt þetta fólk Skyldi flytja búferl um suður yfir haf til að nema þar land. Þetta var fátækt fólk, einkum fré Andalúsíu, Kalabríu, Sikiley og Möltu, sem vildi öðlast betri lifskjör en heimahagarnir buðu upp á. — Með þakklæti fyrir vænt- anlega birtingu, „Fjórtándi júlí“. ©PIB COPENHAGEH Aðstöðugjald athugasemd frá Svavari Pálssyni 1 GREIN sem Bjami Bragi Jónsson hagfræðingur skrifarí Vísi 29/3 og í grein sem Haukur Eggertsson skrifar í Mbl. sama dag, um aðstöðugjald skv. frum- varpi til laga um tekjustofna sveitarfélaga, gætir nokkurs misskilnings, sem nauðsynlegt er að leiðrétta. Báðir greinarhöf- undar virðast gera ráð fyrir að með ákvæðum frumvarpsins sé þegar ákveðið hve hátt að- stöðugjald hvert einstakt fyrir- tæki skuli greiða. Svo er ekki. Ákvæði frumvarpsins eru há- marksákvæði og má aðstöðu- gjald aldrei vera hærra en 2% og aldrei reiknast af hærri upphæð en veltu fyrirtækis. Báðir leggja greinarhöfundar áherzlu á að aðstöðugjaldið muni leggjast á mörgum sinn- um, ef framleiðslustigin eru mörg og hvert hjá sérstöku fyr- irtæki og réttara sé því að leggja á vinnsluvirði eða verð- mætisaukningu hjá hverju fyr- irtæki. Þetta þarf þó engan veginn að verða svo. Ekkert er til því til fyrirstöðu að þeir sem ákveða aðstöðugjaldið geti ákveðið það mishátt svo að álögurnar verði þær sömu í heild hvort sem framleiðslu- stigin em í einu eða fleiri fyr- irtækjum, allt innan hámarks- ákvæða frumvarpsins. Benda má á að veltuútsvar hefir stund um verið lagt á hvert fram- leiðslu-stig innan sama fyrir- tækis og þannig mætti einnig reikna aðstöðugjald. Aðstöðugjald má ákveða frá 0% allt að 2% og allt þar á milli. Veltuútsvar í Reykjavík mun lægst hafa verið reiknað 0,2— 0,3% og hæst 3% og allt þar á milli. A svipaðan hátt hlýtur aðstöðugjald að verða á lagt. Einu má gilda fyrir atvinnu- fyrir.tæki hvort það greiðir 1% aðstöðugjald af 10 millj. kr. rekstrargjöldum eða 2% af 5 millj. kr. verðmætisaukningu. Ef leggja mætti eingöngu á verðmætisaukninguna yrði himdraðshluti gjaldsins að verða miklu hærri. Má það hverjum manni ljóst vera. Sá vandi sem hér um ræðir er meiri er svo að leystur verði með breyttu formi á þessu gjaldi. Því skal þó ekki neitað að nokkur hætta geti verið á að til tvísköttunar geti komið, en ef þeir, sem leggja gjaldið á, reyna að forð- ast það mun það mega takast. Með þessu er ekki sagt að engir vankantar séu á frum- varpi þessu. Þeir eru því miður nokkrir, en hvorugur ofan- nefndra greinarhöfunda virðist koma auga á í hverju þeir eru fólgnir — en það skal ekki nán- ar rætt að sinni. Allgóður afli hefir verið hjá V estmannaey jabátum unð- anfarna daga og voru menn farnir að vona að þetta væri undanfari hrotu, sem oft kem ur um þett leyti. Vonirnar voru þó heldur að dofna í gær kvöldi, því þá var afli bát- anna mun minni. Föstudaginn 23. var heild- araflinn 925 lestir, 24. 945 Iestir, 25. 840 lestir, 26. 730 lestir og 27. marz 747 lestir. Þessar myndir sendi ljós- myndari blaðsins í Eyjum, Sigurgeir Jónasson, okkur og sýnir önnur mikla fiskikös um borð í vélbátnum Jötni og eru skipsmenn í óðaönn að landa fiskinum. Hin er af Spánverja, sem eyðir vetrardögunum við fiskverkun í Eyjum. Galli er, að nánast enginn getur við hann rætt en félagar hans taka stundum lagið „Senjo- rítumar suðrá Spáni“ þegar þeir geta ekki rabbað við Spaníolann um annað. • Útvarpið og Alsír „Fjórtándi Júlí“ skrifar Vel- vakanda frá Siglufirði: „Oft hef ég undrazt frétta- lestur Rtkisútvarpsins og Skrif blaða um atburðina í Alsír. Virðist mér, að þeir, sem til- reiða fregnir handa íslending um, séu lítt kunnir mönnum og málefnum þar syðra. í þeirri von, að fréttamenn bæti kunnáttu sína á þessu sviði, langar mig að biðja Velvakanda að birta tvö atriði um málið. Leynihreyfing morðingj- anna, sem skammstöfuð er OAS á frönsku, er iðulega nefnd „Leynihreyfing hersins“ í fregnum útvarpsins og stund um í dagblöðum lófca. Væri það héiti rétt, ætti dréps- mannaflokkur þessi að nefnast „OSA“ en ekki „OAS“. Rétt- nefni á islenzku er „Félags- skapur hins leynilega hers“. Þótt vitað sé, að margir helztu liðsoddar OAS séu á launum í franska hernum, er hreyfing þess þó ekki mynduð úr her- mönnum í franska lýðveldinu, og sýnist mér óþarfi hreinn, að íslenzkir fréttamenn séu að skíra lið þetta upp að nýju, eftir að þeir hafa sjélfir gefið sér nafn. Þé er annað atriðið. Ég hef margöft heyrt útvarpið kalla menn af evrópskum ættum í Alsír „franskættaða menn“. Rétt er að geta þess, að stund- um hafa þeir verið nefndir „menn af evrópskum ættum“, en einungis með höppum og glöppum Án þess að ég taki nokkra afstöðu til hegðunar þeirra í Alsír, sem ekki eru af ættum Méra, Kabýla eða annarra, vil ég gjarnan, að eftirfarandi staðreyndir komi fram. -----------------------------♦ I fisk- vinnu r I Eyjum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.