Morgunblaðið - 31.03.1962, Qupperneq 10
10
MOnajnvnr 4ntr>
Eaugardagur 31. marz 1962
VOPNAFIRÐI, 25/8. 1962 _ Ef
heyskapartíð hefði verið hag-
stæð í Vopnafirði síðastliðið sum
ar, mætti fullyrða, að árið 1961
hefði verið bezta atvinnu- og af
feomuár, sem koomið hefur í þessu
sveitarfélagi.
Byggt yfir fól-k og fénað.
Nú má segja, að bændur séu
búnir, að koma upp fé sínu eftir
fjárpestimar marg um ræddu.
Hafa undanfarin ár verið þeim
timi mikilla átaka og erfiðis,
því segja má, að þeir hafi orðið
að byggja yfir bæði fólk og fén
að, ásamt því að rækta jarðir
sínar og koma upp fjárstofninum
á nýjan leik. Þetta hefur tekizt
svo vel, að á s.l. hausti lóguðu
bændur um 19 þús. fjár, eða
um helmingi meira en áður en
fjárpestirnar byrjuðu. Er það
noklkur mælikvarði á afkomu
möguleika þeirra, þó búin þurfi
nú meiri og dýrari rekstrarvör- 1
ur en áður. Nú er í undirbún- I
Á 12 dögum sl. haust var skipað út afurðum fyrir 1 millj. kr. á dag tU jafnaðar.
Fréttabréf frá Vopnafirði:
Vinnandi fdlk hefur
aldrei lifað við betri kjör
Verksmiðjustjóri og vaktarformaður standa fyrir framan
verksmiðjuna eftir 146 þús. mála vertíð.— Ef við hefðum
haft 5000 mála afköst hefðum við bætt við 200.000 málum.
Oft þurfa flutningaskipin að bíða eða víkja fyrir strandferða-
skipunum, því hafnarbryggjan er aðeins ein.
ingi stofnun mjólkursamlags
fyrir Vopnafjarðarhrepp.
Alðrei meiri atvinna.
í kauptúninu hefur atvinna
aldrei verið meiri og jafnari, en
áarið sem leið. Skapaðist það, að
nökkru leyti af því, að hrað-
frystiihúsið tók til starfa í marz
mánuði. Var þá almenn atvinna
eftir það fram að síðastliðnum
áramótum. Aðalatvinnan er þó
í samlbandi við síldina bæði sölt
un og bræðslu. Það er því óhætt
að fullyrða, að vinnandi fólk
hér, hefur aldrei búið við betri
Hfskjör, en s.l. ár. Þrátt fyrir
það, heyrast þó alltaf einhverj-
*tr óánægjuraddir, einkum frá
hinum yngri. Eg sem þessar lín-
ur rita og þekkti atvinnu og af-
komuskilyrði í þessu byggðar-
lagi fyrir 35—40 árum, held að
hinir óánægðu hafi þörf fyrir
þekkingu og samanburð á lífs-
baráttu verkafóltos hér á þeim
tíma, ef þeir eftir þann saman-
burð, gætu orðið ánægðari með
sitt hlutskipti. En þá var dag-
launavinna aðallega nokkrar vik
ur í vegavinnu ytfir hásumarið,
sem var verið að reyna að skipta
sem. jafnast milli heimilisfeðra.
Er mér óhætt að fullyrða, að
það þurtfi talsverðan manndóm
til að verða etoki óvildarmaður
meðbróður síns í keppninni um
það náðarbrauð. Nú ganga menn
glaðir til starfs, veitandi séir
þægindi, sem áður var óhugs-
andi að menn gætu lagt sér til.
Það er fleira athyglis- og á-
nægjulegt við vinnu verkafólks
ins á Vopnafirði, en bætt .ifs-
afkoma þess sjálfs. Þetta fólks,
ásamt nokkrum aðkomumönn-
um, hefur á síðasta ári breytt síld
og öðrum sjávarafla í ca 50—60
miillj. króna útflutningsverð-
mæti, eða sem svarar 150—160
þús. kr. á hvern íbúa í kaup-
túninu. Auk þess lögðu tæplega
60 bændur í Vopnafjarðarhreppi
til um 19 þús. fjár í matvæla-
framleiðsluna.
Má því segja að startfið hafi
verið frjótt fyrir þjóðarbúið.
En hér verður ekki nurnið stað
ar, því framleiðsluna er hægt að
stórauka. Til þess þarf að vísu
lánstfé, og hvert á frekar að beina
fjármagnmu en til þeirra staða,
sem skila margföldu framileiösju
verðmæti fyrir hverja krónu,
sem þeim er látin í té.
Hafnarbóta þörf.
Þær framkvæmdir, sem nú ríð-
ur mest á að fá, eru haifnarbæt-
ur, því yfir sumartímann má
segja, að til stór vandræða horfi
vegna skorts á viðleguplássi,
bæði fyrir síldarbáta og flutn-
ingaskip, en að vetrinum þarf
að verja fyrir sjávargangi.
Fyrirhugaðar framkvæmdir
við sílldarverksmiðjuna á árinu
1962 eru annað löndunartæki, á-
sarnt stækkun á löndunar-
bryggju, bygging 2500 tonna lýs
isgeymis og aukin afkastageta
verksmiðjunnar í 5000 mál/ á
sólarhring. Þá er líka nauðsyn-
legt að auka og bæta aðstöðu til
síldarsöltunar.
Byggingar.
8 íbúðarhús voru í byggingu í
hreppnum mieð 11 íbúðum, 6
íbúðirnar voru teknar í notkun
á árinu. í haust var byrjað að
steypa grunn undir stórt vöru-
geymsluhús, sem Kaupfélag
Vopnfirðinga ætlar að byggja á
þessu ári. Einnig var byrjað að
steypa 4 ker í löndunarbryggju
síldarverksmiðjunnar og varnar
garða fyrir 700 rúmm. uppfyll-
ingu undir lýsisgeymi þann sem
byggja á í vor.
Framfarahugur og bjartsýni.
Yfirleitt má segja, að hér ríki
framfara hugur og bjartsýni,
svo framarleiga að nauðsynlegt
fjármagn fáist til framikvæmda.
Uppbygging hafnarinnar og
vatnsveitunnar eru frumskilyrði
þess að nýting sjávarafla megi
aukast hér og dafna. Ek'ki þurf
um við Vopnfirðingar að óttast
að síldin bregðist okkur að
nokkru ráði, því alltaf gengur
hún hér fyrir á leið sinni austur
í hafið, eða það hefur hún að
minnsta kosti gert s.l. 30—40 ár
og er það þá mest undir veðri
komið og eins hvað hratt hún
gengur hve mikið berst á land
af henni og svo vitanlega mót-
tökuskilyrðunum í landi.
Læknisbústaður og skóli.
Vegna heilbrygðis- og menn-
ingarmálanna, eru það fyrst og
fremst tvær byggingar, sem við
þurfum óumflýjanlega að
byggja. í fyrsta lagi læknisbu-
stað, í þeirri von að þá setjist
að hjá okkur læknir til fram-
búðar. í öðru lagi barnaskó'la og
Skólastjóraíbúð, því kennslu-
skyldu verður varla fullnægt í
þeim húsakynnum, sem nú er
kennt í, bæði í hinu gatnla og
hrörlega skólahúsi og utan þess,
Unnið verður að byggingu lækn
isbústaðarins í sumar og þegar
er farið að vinna að því, að komj
barnaskólabyggingunni inn í
fjárlög.
Félagslíf.
Félagslíf hefur lifnað nokkuð
við síðan félagsheimilið tók ul
starfa, en nú starfa hér leikfé-
lag, bridge- og taflfélag, þá ei u
sýndar kvikmyndir tvisvar til
þrisvar í viku, nokkrir merin
iðka svo badminton sér til
hieilsubótar.
— Sigurjón.
Verkamenn óskast
Upplýsingar í síma 38219.
Véltækni hf.
KEFLAVÍK OG NÁGKENNI
Ódýrt — Ódýrt
Salan er í fullum gangi á bókamarkaðinum að Hain_
argötu 79, fjóldi ódýrra og góðra bóka fyrir ótrú_
lega lágt vcii ö. Opið til kl. 10 í kvöld.
Komið og gerið góð kaup.
STEFÁN GUÐJÓNSSON.