Morgunblaðið - 03.04.1962, Blaðsíða 1
24 síður
Tvær herforingjastjdrnir í Sýrlandi
* Vii|<i báðar sameiningu
við Egyptaiand —
* Landamærunum lokað
* IJtgoaigubann um nætur
Lomdon, Kairo, Amman,
2. apríl AP. —
• Mikil ólga er ennþá í
Sýrlandi. Nú er svo kom-
ið, að lýst hefur verið yfir
myndun tveggja herforingja-
SÍÐUSTU FRÉTTIR
Síðustu fregnir frá NTB
í gærkveldi hermdu, að
Jþær óstaðfestu fréttir
ij hefðu borizt til Beirut í
Líbanon, að herinn í Sýr-
landi hefði fengið stjórn
Iandsins að nýju í hendur
þeim mönnum, sem reknir
voru frá með byltingu í
síðustu viku. Samkvæmt
þessum fregnum hefði Naz
em el Kudsi aftur tekið
við forsetaembættinu og (
þingið komið saman til
fundar. Loks fylgdi það
með, að leiðtogar bylting-
arinnar hefðu sjálfviljugir
farið úr landi.
stjórna, sem báðar staðhæfa
að þær eigi vísan stuðning
hersins. Situr önnur stjórnin
í borginni Aleppo — og krefst
sú sameiningar við Egypta-
land — en hin í Damaskus, —
og er það sú herforingjastjórn
in sem mynduð var á dögun-
um, er Nazem Kudsi forseta
og Maarouf Dawalibi forsæt-
isráðherra var steypt af valda
stóli.
• Damaskusstjórnin hefur lýst
yfir lokun allra landamæra að
nýju, hernaðarástandi í nokkrum
hluta landsins og útgöngubanni
um gervallt landið á tímabilinu
frá kl. 22 að kvöldi til kl. 5 að
morgni.
• En það er ekki aðeins ný
herforingjastjórn, sem stjórnin í
Damaskus á í höggi við í borg-
inni Aleppó, heldur einnig öflug-
ustu stuðningsmenn fyrrverandi
stjómar, Kudsi og Dawabili eru
báðir frá Aleppó.
• Síðdegis í dag höfðu orðið
nokkur átök milli sýrlenzkra her-
manna og landamæravarða
skamm.t frá landamærum Sýr-
Framh. á bls. 3
Jose Mario Guido forseti (í miðju) og tveir hæstaréttardómar
ar, er Guido hafði unnið embættiseiðinn 29. marz sL
Silfur Egils — aprílgabb
AÐ venju brugðum við á leik
1. apríl og birtum aprílgabb
um silfur Egils Skallagríms-
sonar. „Frétt“ þessi var, að
því er sjá má af viðbrögðum
fólks, lesin með sérstakri at-
hygli og létu margir gabbast.
Nokkrir hringdu niður á blað
í gær og spurðu, hvort rétt
væri, að fréttin um Egils-
silfrið hefði verið aprílgabb?
Við svöruðum játandi, en þeir
neituðu að trúa.
Þegar setjararnir fengu
fréttina til setningar á laugar-
dagsmorguninn sögðu þeir:
„Þetta er stórfrétt.“ Einn
sagði: „Þetta hef ég alltaf
sagt, íslendingasögurnar eru
heilagur sannleikur, það er
alltaf að koma betur og betur
í ljós.“ Þá gátum við ekki að
því gert, að við brostum 'út í
annað munnvikið uppi á rit-
stjórninni.
30. júní I fyrra birti Tím-
inn á forsíðu „frétt“ með svo-
felldri fyrirsögn: „Brot úr
skála Skaililagríms?" Upphaf
þeirrar „fréfctar“ var svohljóð-
andi:
„Sú fregn barst blaðinu I
gær ofan úr Borgarfirði að
fundizt hefði brot úr skála
Skallagríms Kveldúlfssonar á
Borg á Mýrum, þegar grafið
var fyrir nýju prestshúsi á
staðnum nú á dögunum."
En í lok „fréttarinnar" segir
blaðið svo:
„Fomleifafengurinn var
hins vegar ekki mikill, nokkr-
ir viðarbútar úr skála. Þessiir
viðarbútar eru sennilega frá
miðöldum og gætu jafnvel ver
ið frá síðari hluta þjóðveldis-
aldar, en fornminjaverðimir
töldu afar óliklegt að viður
þessi væri svo gamall að hann
gæti verið úr skála Skalla-
gríms sjólfs, Einnig mun hafa
orðið vart við gamla þró, sem
erfitt var þó að henda reiður
á“!
Þegar við lásum þessa
„frétt“ á sínum tíma, spurðum
við hvert annað: Er 1. apríl
í dag? En svo var ekki.
Svo leið langur tími, eða
fram í marz þetta ár. Hinn 21.
þess mánaðar birtist á forsíðu
Þjóðviljans „stórfrétt", sem
hófst með þessum orðum:
„í gær fékk Þjóðviljinn
spurnir af því, að í vetur
hefði prófessor Magnús Már
Lárusson fundið í sóknarlýs-
ingum Reykholtssóknar fró
1'842 heimild (leturbr. Mbl.)
fyrir því að þar í kirkjugarð-
inum í Reykholti hefði fund-
izt steinkista, er verið var að
taka þar gröf, en aðeins ein
steinkista hefur fundizt í
kirkjugarði hér á landi, kista
Páls biskups Jónssonar í Skál-
holti. Er hér því um merkan
fund að ræða, ef rétt er frá
greint og treysta má heimild-
inni.“
Sannleikurinn var sá, að
þessi Þjóðviljafrétt var ekkert
annað en það, að Magnús Már
Lárusson hafði fundið heim-
ild fyrir því að prestur nokk-
ur í Reykholti hefði í sóknar-
lýsingu til Bókmenntafélags-
ins sagt, að ónafngreindir
grafarmenn hefðu fundið
steinkistu einhvers- staðar í
kirkjugarðinum í Reykholti,
sem þó gat alveg eins verið
hellugröf, að því er sagði í
fréttinni!
Síðan ræðir blaðið um það
að líklegt sé að hér sé um
steinkistu Snorra Sturlusonar
að ræða!!
Þegar við sáum þessa frétt,
datt okkur aftur í hug að nú
væri 1. apríl ltominn, en svo
var ekki. Þá sagði einhver:
„En ætli þeir fari ekki eftir
rússneska tímatalinu."
Upp úr þessu datt okkur í
hug, hvort við gætum ekki
birt í Morgunblaðinu 1. apríl-
gabb, sem væri jafnmikil
„fréfct" og þær tvær sem að
framan greinir. Eins og sjá
má af „fréttinni“ um silfur
Egils eru margskonar heimild-
ir fyrir því, að Egill hafi
grafið silfur sitt í Mosfells-
sveit. Það er því ekkert annað
eftir en finna þetta siliur, en
því miður hefur það ekki
fundizt enn. Þannig er einnig
um skála Skallagríms; auð-
vitað hefur hann byggt sér
skála, en skálinn hefur bara
ekki fundizt ennþá. Og nú er
fundin heimild um það, að
„eitt sinn hafi menn, þegar
gröf var tekin í Reykholts-
kirkjugarði, hitt ofan á fóta-
gaflsenda steinlíkistu,“ eins og
Þjóðviljinn segir — en stein-
kistan hefur bara ekki fundizt
ennþá!
★
Það er von okkar, að les-
endur Morgunblaðsins hafi
haft ánægju af þessu vel-
heppnaða aprílgappi.
Fjöldi lesenda hefur haft
samband við blaðið út af því,
flestir ánægðir, en nokkrum
fannst súrt í broti að hafa bit-
ið á agnið. En vonandi verða
þeir fljótir að fyrirgefa glens-
ið. Meðal þeirra, sem hringdu,
var maður nokkur, sem sagði:
„Ég er einasti erfingi Egils
Skallagrímssonar á lífi. Viljið
þér gjöra svo vel og afhenda
mér silfrið."
Við svöruðum: „Ef þér eigið
rétt á silfrinu, getið þér sótt
það upp í Mosfellssveit. En
þér verðið sjálfur að hafa
fyrir því að finna það.“
Nicolin
frá SAS
f DAG kom framkvæmda-
nefnd flugsamsteypunnar SAS
saman til fundar í Stokkhólmi
til þess að ákveða skipan í
nokkrar mikilvægar stöður,
' þar á meðal stöðu aðatfor-
stjóra, sem Kurt Nicolin skip
ar nú. Hann hefur aðeins
skipað þessa stöðu skamma
hrið en hyggst nú taka aftur
við fyrra starfi sínu sem að
alforstjóri Sænska stórfyrir-
tækisins ASEA. Nicolin mun
þó áfram eiga sæti í fram-
kvæmdanefnd SAS.
Sem kunnugt er fór Nicolin
héðan frá íslandi á laugardag
irm var og hafði þá rœtt við
stjórnir íslenzku flugfélag- (
anna, sem vörðust allra frétta í
af viðræðunum.
í NTB-frétt frá Stoikíkhólmi
í gær segir, að hjá SAS þar
í borg séu menn almennt
þeirrar skoðunar, að viðræð
ur framikvæmdanefndarinnar
geti tekið nökikurn tiima, þvi
að sikoðanir séu skiptar um
þá menn, sem tii greina komi.
Ennfremur segir NTB, að milk
ið sé rætt uim, að í þefcta sinn
verði ekki ráðinn sænstour
maður í stöðu aðalforstjórans
en hingað til hafa eingöngu
Svíar Skipað þann sess.
Meða-1 þeirra sem ti'lnefndir
hafa verið í stöðuna, segir
NTB, ber einna hæzt nafn
Danans Eriik östbirk, yfir-
manns danska flugfélagsins
Nordair, en í Stokkhólmi er
því neitað, að hann sé hinn
líklegasti til að hreppa stöð-
una.
Berlingske Tidende skýrir
sl. sunnudag frá fyrirhuguð-
um fundi framkvæmdanefnd-
ar SAS og ræðir nokkuð ufn
Erik östbirk. Segir blaðið, að
verði östbirk ráðinn aðalfor
stjóri SAS megi gera ráð fyr I
ir því, að lögð hafi verið á
ráðin um að koma á náinni
samvinnu norrænna flugfé-
laga, — samvinnu, sem að
Frh. á bls. 23.
Jouhaud
fyrir rétt
París, 2. apríl (AP—NTB).
FRA þvi var skýrt opinber-
lega í París í dag, í fyrsta
skipti, að það hefði verið
OAS-foringinn Edmond Jou-
haud, sem handtekinn var í
Alsír í fyrri viku. Jafnframt
var sagt frá því, að réttarhöld
in yfir honum myndu hefjast
11. apríl.
Ákæruskjalið var undirritað af
De Gauille forseta, en jafnframt
rituðu undir það Michel Debré,
innanríkisráðherra, Bernard
Chenot, dómsmálaráðherra og
Pierre Mesmer, landvarnaráð-
herra.
Samlkvæmt skjalinu, sem lagt
var fram í dag, er Jouhaud ekki
aðeins gefið að sök, að hafa stað
ið að hryðjuverkuim, sem einn
af æðstu foringjum OAS, heldur
er honum einnig stefnt fyrir þátt
töku sína í uppreisn hensins í
Alsír í fyrra.
r*
f