Morgunblaðið - 03.04.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.04.1962, Blaðsíða 2
2 MORGVJSBLAÐlh Þriðjudagur 3. apríl 1962 OAS-menn færast aftur í aukana Morð og rán í Alsír I gær París, Oran, Algeirsborg, 2. apríl — NTB — AP. VOPNAÐIR menn í þjónustu OAS-samtakanna, skutu í dag til bana tvo franska liðsforingja, annan þeirra einkennisklæddan, í miðri Oranborg. Morðin eru einn liður í aukinni hermdar- verkastarfsemi OAS maniua, eftir hlé það, er varð eftir handtöku Jouhauds, eins aðalforsprakka samtakanna, í siðustu viku. Morðingjar liðsforingjanna skildu eftir miða, festan við lík annars þeirra, en á miðanum stóð ..Morðingi í þjónustu Rocher Noir“. Boöher Noir eru liöfuð- stöðvar þær, sem fransiki herinn hefur komið sér upp, um það bil 30 mílum fyrir austan Algeirs borg. Fleiri hryðjuverk hafa verið unnin í Algeirsborg og Oran í dag, meðan Ohristian Fouohet, stjómarfulltrúi, og Jean Ailleret, yfirmaður franska herstyrksins, voru á eftirlitsferð í Constantine. Tveir Serkir og tveir Evrópubúar Sáttafundur ekki boðaður SÁTTASEMJARI ríkisins, Torfi Hjartarson toilstjóri, hefur ekki boðað fund að nýju með aðiljum í deilunni um kaup og kjör tog- arasjómanna, og er eíöki vitað, hvenær það verður. Söngur kórs S.V.F.Í. KÓR kvennadeildar Slysavarna- félags íslands hélt tónleika í Austurbæjarbíói í gærkvöldi. Stjórnandi kórsins er Herbert Hribersohek og einsöngvarar á þessum tónleikum voru Eygló Viktorsdóttir og Sigurveig Hjalte sted. Undirleik önnuðust Karel Paukert á píanó, Mariluise Draheim á hörpu og hornleik- ararnir Herbert Buchner og Wolfgang Múnchs. Efnisskráin var skemmtilega fjölbreytt, um helmingur við- fangsefnanna voru íslenzk lög, mörg þeirra smekklega raddsett af söngstjóranum. Frumflutt var geðlþekkt lag eftir Skúla Hall- dórsson, „I harmanna helgilund- um“. Önnur viðfangsefni kórsins voru Mansöngur eftir Schubert Og „Agneta og Hafmeyjarnar" eftir Gade. Kór úr óperunni Rienzi, eftir Wagner, og loks fjög ur lög fyrir kvennakór hörpu og tvö horn eftir Brahms. Söngur kórsins er vel æfður og samstilltur, en skortir nokkuð öryggi og fyllingu á jöðmm tón- sviðsins. Kom það einkum fram í laginu eftir Wagner. Einsöngv- aramir fóru vel með sín hlut- verk, og er sérstök ástæða til þess að nefna meðferð Sigur- veigar Hjaltested á lögunum eftir Schubert og Gade, svo og á tveimur einsöngslögum eftir söngstjórann. Karel Paukert er óður kunnur sem ágætur organ- leikari og allgóður óbóisti. Hér sýndi hann að hann er einnig dugandi píanóleikari. Hörpuleik- arinn, sem einnig lék einleiks- lag, átti við erfiðleika að stríða með hljóðfæri sitt, sem virtist vera í lamasessi, og vakti samúð viðstaddra. Homleikararnir skil- uðu sínum hendingum eins og til stóð. Jón Þórarinsson. voru drepnir í Algeirsborg. í Oran týndu þrír Evrópumenn og tveir Serkir lifinu, og tveir Serkir voru særðir að auiki. Einnig voru framin mörg rón í Algeirsborg í dag. Vopnaðir ræn ingjar komust yfir um 300.000 nýfranka í bönkum og póstihús- um. Þá kom til óeirða í Algeirs- borg milli franskra fallhlífar- hermanna og Serkja, og var bar- izt með ílöskum og hnífum. Sjö Frakkar særðust í þeim átökum, en enginn lét lífið, enda gripu menn ekki til skotvopna. Bifreiðin, sem valt í Mosfellssveit á sunnudagsmorgun. — Ljósm. Þórir Hersvelnsson. Nýr Keflavíkurvegur í stað nýrrar flugvallargerðar UM sl. helgi hélt Samband ungra Sjálfstæðismanna stjómmálanám skeið í Keflavík, og lauk því sl. sunnudag með því að Ingólfur Jónsson samgöngumálaráðherra flutti ræðu um raforku- og sam- 'göngumál og stjórnmálin al- mennt. í upphafi ræðu sinnar ræddi lóðherrann um raforkumálin, um hinar stórstígu framfarir og framkvæmdir, sem átt hafa sér stað sl. áratug og þær áætlanir, sem verið er að vinna að. Minnt- ist hann m. a. á athugun á gufu- virkjun í Hveragerði og um virkj anir í Hvítá hjá Hestfjalli, í Þjórsá hjá Búrfelli og við Detti- foss. Þá ræddi róðherrann og rækilega um raforkumólin að því leyti, sem sérstaklega snertir Suðurnesin. Því næst ræddi Ingólfur Jóns- son um samgöngumálm og um óánægjuraddir sem heyrðust út af því, að mikið fé væri lagt í samgöngumál þéttibýlisins, þ, á m. að nú væri byrjað að leggja steinsteyptan veg til Keflavíkur og um sama leyti rætt um nýjan flugvöll í nágrenni Reykjavík- ur, en eins og kunnugt er hafa að undanförnu verið sett- ar fram hugmyndir um bygg- ingu flugvallar á Álftanesi. Talið er, að slíkt mannvirki mundi koeta ekki minna en 500 millj. krónur. Kvað ráðherrann þá hugmynd að gera nýjan flugvöll vera mjög fjarlæga, ekki sízt ef sjó mætti, að só flugvöllur yrði innan fárra áratuga inni í höfuð- borginni, en hins vegar væri nú ráðið að hraða lagningu hins nýja Keflavíkurvegar og mundi hann því koma í staðinn fyrir nýjan flugvöll. Það fé, sem færi í nýjan flugvöll mætti nota til margs sem nú bíður og vantar fé til. Kvað ráðherrann þennan nýja steinsteypta veg gera það fært að flytja allt millilandaflug- ið til Keflvíkurflugvallar, þegar tímar líða, en a.m.k. fyrst í stað gæti innanlandsflugið notazt við Reykjavíkurflugvöll, en vera mætti, að það yrði einnig flutt til Keflavíkurflugvallar síðar. Taldi samgöngumólaráðherra á- ætlað kostnaðarverð hins nýja vegar ca. 130-140 millj., en ef byggja ætti nýjan flugvöll, mundi hann aldrei kosta undir 500-600 millj. og auk þess ætt- um við þar sem Keflavíkurflug- ) AUSTLÆG átt var um allt land í gær. Henni fylgdi víða éljagangur við ströndina, en í innsveitum vestanlands og orðan var heiðskírt að kalla og víða talsvert frost, t. d. 10 st. í Möðrudal kl. 12 á hádegi. Djúpa lægðin suður af land- inu hreyfðist ASA og olli stormi á Rretlandseyjum með miklu vatnsveðri, en hér á landi mun hún hætt að hafa áhrif. Norðanvert við Ný- fundnaland sér á nýja lægð. Vonandi kemur hún með hlýrri loftstrauma, þegar hún fer að nólgast landið á morg- un. Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi: SV-mið: Austan og SA átt, stinningskaldi og smáél aust- an til, kaldi vestan til. SV-land til Norðurlands og Faxaflóamið til norðurmiða: Austan og SA gola eða kaldi, • bjart veður. NA-land til SA-lands og miðin: Austan og NA gola, smóél á stöku stað. Horfur á miffvikudag: Austlæg átt, allhvasst á mið- unum fyrir sunnan land, ann- ars staðar hægari. Smáél á NA-landi og við suðurströnd- ina, annars bjart veður. völlur er einn bezta flugvöll í N-Evrópu. Að lokum ræddi ráðherrann stjórnmálaviðhorfin og talcLi á- stæðu til bjartsýni í þeim efn- um, ef haldið væri áfram á þeirri alhliða uppbyggingu, sem við- reisnarstjómin hóf. Mjög góður rómur var gerður að móli ráðherrans. Alfreð Gíslason bæjarstjóri og alþingismaður stjórnaði nám- skeiðinu, sem í alla staði tókst svo vel sem bezt var á kosið og var það fjölsótt. Alls voru flutt á námskeiðinu 6 erindi og verð- ur þeirra nánar getið síðar. Róin losnaði og bíllinn fór út af UM kl. sex á sunnudagsmorgun var station-Chevrolet-bifreið á leið til Reykjavíikur uppi í Mos- fellssveit. Nálægt Korpúlfsstöð- um losnaði ró í hægra framlhjóli, svö að bíllinn fór út af veginum og valt heila veltu. í bílnum voru alls 12 manns, og meiddust f jórir þeirra, en enginn alvarlega. Ægir flytur fólk til Grímseyjar Á SUNNUDAG flutti varðskipið Ægir farþega fró. Akureyri út í Grimsey, en til Akureyrar kom skipið frá Raufarhöfn með sjúkl ing, eins og skýrt hefur verið frá hér í blaðinu. Fólkið mun hafa beðið flutnings út í eyna vegna veðurs. Skólavör&ustígur 11 fluttur að Árbæ? Á FUNDI borgarráffs sl. föstu- dag var lagt fram bréf frá Ljós- mæffrafélagi Reykjavíkur um flutning á steinbænum, sem stendur á lóff nr. 11 viff Skóla- vörffustíg, í byggðasafn Reykja- víkur aff Árbæ. Málinu var vrsað til umsagnar skjala- og minjavarðar Reykja- víkurborgar, Lárusar Sigur- björnSRonar, og spurði Mbl. hann um þetta mál. Hann kvað húsið hafa mikið menningarsögulegt og byggingar- sögulegt gildi. Jörgen Guðmunds- son byggði það árið 1357, og er það fyrsti steinbær reistur í Reykjavík. Hann er og merkileg- ur fyrir þá sök, að hann er beinn arftaki gömlu tómthúsanna. Veggirnir eru hlaðnir úr óhöggnu grjóti. Ljósmæðrafélag Reykjavíkur beitir sér fyrir þessu móli vegna þess, að þar bjó Þorbjörg Sveins- dóttir, hin nafnkunna ljósmóðir, um langan aldur. Hún mun hafa keypt húsið á árinu 1659 og átti þar heima síðan. Bróðursonur hennar var Einar Renediktsson, Jón Pálmason á Alþingi JÓN PÁLMASON hefur tekið sæti séra Gunnars Gíslasonar á Alþingi, en Gurínar mun ekki geta sinnt þingstörfum um skeið sökum embættisanna. skáld, og nam hann skólalær- dóm sinn þar uppi á lofti. Síðar eignaðist Ólafía Jóhannesdóttir, hjúkrunarkonan fræga, húsið, en Renedikt Sveinsson keypti það árið 1903. Sparisjóður Reykjavíkur og ná- grennis á húsið og lóðina nú. Sjónvarp með gervi- tunglum í sumar LONDON, 31. marz. — Til- raunir til þess að senda sjón- varpsefni yfir Atlantshaf með aðstoð gerfitungla munu hefj- ast í júní í sumar. Er kostn- aður við tilraunir þessar greiddur af bandarísku firð- skiptafyrirtæki, American Telephone & Telegraph Co. Verður gervitunglinu, sem notað verður við tilraunirnar, og gefið verður heitið Tele- star, skotið upp frá Canaveral höfða á Florida af geimferða- stofnun Bandaríkj anna, NASA. Brezka póst- og síma- málastjórnin mun leggja fram 750 þúsund sterlingspund til að koma á stofn sérstakri móttöku og sendistöð í Com- wall.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.