Morgunblaðið - 03.04.1962, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.04.1962, Blaðsíða 10
10 MORGVNBLAÐIB Þriðjudagur 3. apríl 1962 Unglingar óskast iil að bera blaðið í eftirtalin hverfi FLÓKAGÖTU ÓÐINSGÖTU Sími 22480. Kventiiziiur — Kventðzkur Höfum aftur fengið Hinar marg eftirspurðu hollenzku og frönsku kventöskur: — Höfum einnig fengið hálsfestar í fjölbreyttu úrvali. Mjög fallegar fermingargjafir. Domubúðin LAUF9Ð Hatnarstræti 8 b_yggingavörur h.f. Laugavegi 178 — Sími 35697. SMIÐJUBÚÐIN við Háteigsveg — Sími 10033 Blöndunartæki nýkomnir [Þerstorp- CPlatan Úrvalsplastið á borð og veggi Nýkomið í miklu litaúrvali — Mikil verðlækkun — Greiðslur fyrir læknishjálp VEGNA fréttar, sem birtist hér í blaðinu fyrir nokkru hefir stjórn Læknafél. Reykjavíkur óskað eftir svofelldri skýringu. Lög þau sem samþykkt voru á Alþingi í fyrradag varðandi greiðslur fyrir læknislhjáln (10 kr. fyrir viðtal og 25 kr. fyrir vitjun) gilda að- eins um samningsfoundna heim- ilislækna. Um greiðslur til ann- arra lækna og sérfræðinga fer eftir texta Læknafélags Rvíkur eða eftir sérstökum samningum, er gérðir verða. Áðurnefnd lög um greiðslu til heimilislækna koma.því aðeins til framkvæmda að samningar náist um störf heimilislækna. FYRIR helgina gerðist það við Varmahlíð í Skagafirði að stór áætlunarbíll rann stjórnlaust af stað niður brekkuna af hlaðinu og hafn aði á söluskúr niður við veg- inn. Voru tveir Iitlir snáðar einir í bifreiðinni. Efri myndin sýnir bílinn, eftir að hann lenti á sölu- skúrnum. Og sú neðri sýnir hvemig umhorfs var í búð- inni, eftir að þessi óvænti gestur kom þar inn. Einhver ónáttúra virðist hafa gripið bíla í Skagafirði, skrifar fréttaritari blaðsins. Með stuttu millibili hafa tveir bílar tekið sér vald bílstjór- anna og ekið að eigin annar í Héraðsvötnin og hinn á söluskúrinn við þjóðveginn við Varmahlíð. Ásdís Andrésdótiir írá Reykjavöllum í D A G fer fram frá kapellunni í Fossvogi útför Ásdísar Andrés- dóttur. Hún var fædd að Reykja völlum í Sltagafirði 10. maí 1901, dóttir hjónanna Guðrúnar Jóhannesdóttur og Andrésar Björnssonar bónda þar. Þó eigi séu löng kynni okkar af Ásdísi getum við eigi orða bundizt, að þakka henni fyrir þessi fáu ár, sem við nutum ní.vistar hennar. Fyrstu kynni okkar hjónanna af Ásdísi hófust er við vorum stödd í verzlun í nágrenninu; og sonur okkar bað, eins og börnum er títt, um girnilegt leikfang í verzluninni. Víkur sér þá að okkur roskin góðleg kona, og segir, „ég get ekki hlustað á lítið barn biðja svo vel, og fá ekki það sem það biður um.“ Víkur hún sér siðan að af- greiðslumanninum, og gefur syni okkar leikfangið. Þannig var Ásdís. Allt henn- ar líf var ánægja við að gleðja aðra. Fram á síðustu daga vann Ás- dís erfiðisvinnu, sem mörgum imgum manninum hefði fundizt erfið, en aldrei heyrðist hún kvarta. Og ekki vann hún til þess að safna veraldarauði, held ur fyrir ánægjuna af að miðla öðrum, og gleðja eftir beztu getu. Alltaf var hún boðin og búin að hjálpa, ef eitthvað var að, og ef hún hélt að hún gæti orðið einhverjum að liði. Við minnumst þess hve mikla ánægju og yndi hún hafði af blómum, og ótöld eru þau blóm in, er hún kom með sem litla afleggjara til okkar og gaf okk- ur, og fylgdist hún síðan vel með þeim, eins og um lítil börn væri að ræða. Enda munu fáar ömmur geta hafa verið eins góðar og hún var sonardætrum sínum tveim- ur, og svo sannarlega missaþær mikið, áð svo snöggt skyldi skor ið á jarðnesku þöndin sem raun varð á. En í þeim efnum er hvorki spurt um stað né stund. Við vitum að Ásdís hefði getað gert svo margt enn, og glatt svo marga bæði smáa og stóra. Ásdís var mjög trúuð kona og trúði á áframhaldandi líf af einlægni og efaðist ekki. Að loknum þessum fátæklegn orðum, Asdís mín, viljum við þakka hér af alhug viðkynning. una og vináttuna, og þakka þér fyrir að við fengum að kynnast þínum góðu mannkostum, er þú áttir í svo ríkum mæli. Við vottum einkasyni þínum, tengdadóttur og sonardætrum innilegustu samúð. Blessuð sé minning þín. G. E. ggl^-lpHqsqlq GUÐMUNDAR BERGPÓRUGÖTU 3 • SÍMAR: 19032-36870 Plymouth station ‘55 tilsýnis og sölu í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.