Morgunblaðið - 03.04.1962, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.04.1962, Blaðsíða 6
6 MO RGUI\ BLAÐIÐ Þriðjudagur 3. apríl 1962 að leik hans, en efeki kann ég að meta vissar handahreyfingar eða bendingar hjá honum, sem virð- ast vera orðnar einhvers konar helgisiður margra íslenzkra leik- ara í grínleikjum. Nína SVeinsdóttir og Aurora Halldórsdóttir léku farsann af sannri innlifun, og er ég ekki frá því að leikmáti þeirra hefði ein- mitt hæft bezt verkinu í heild. Aðrir leikendur virtust ekki hafa gert sér þess fulla grein, hvort þeir voru að leika farsa eða natúralískan gamanleik. Sig- ríður Hagalín og Helgi Skúlason áttu þó sínar góðu stundir, en stungu um of í stúf við umhverf- ið. Steindór Hjörleifsson gerði miður heppnaða tilraun til að leika farsa, en Guðmundur Páls- son og Þóra Friðriksdóttir héldu sig innan takmarka natúralism- ans með þeim árangri, að þau urðu næstum algerlega utanveltu við grínið. sonar voru látlaus og mjög hag. lega gerð, bæði stofan og hið skemmtilega brezka útsýni út um gluggann. Þýðing Ragnars Jóhannessonar virtisit mér slöpp, of margar endurtekningar og setningar sem voru yfrið hátíðiegar í munni þessara grínpersóna. Það er dapurlegt að geta ekki verið jákvæðari um þessa sýn- ingu Leikfélagsins, því það berst í bökk-um fjárhagsliega og þarf vissul-ega á stuðningi al'lra góðra manna að halda, en mér finnst það satt að segja vera farið að setja markið nokkuð lágt. „Taugastríð tengdamömmu“ er endahnúturiinn á leikári, sem verið hefur eitt hið dauflegasta í háa herrans tíð. í vetur hefur félagið aðeins frumsýnt tvö verk önnur, og var annað þeirra ekki nema rétt í meðallagi. Maður spyr með beyg í hjarta: Hvar endar þetta? Arndis, Aurora', Þóra og Sigríður leikfélag Reykjavíkur: TAUGASTRÍÐ TENGOAM0MMU Höfundar :Philip King og Falkland Cary Leikstjóri: Jón LEIKFÉLAG Reykjavíkur frum- sýndi á fimmtudagskvöldið grín- leikinn „Taugastríð tengda- mömmu“ eftir Bhilip King og Falkland Cary. Er hér um að ræða beint framhald „Tann- hvassrar tengdamömmu“, sem þótti slíkit afbragð skemmtileg- heita, að sýningar komusit upp í 128, sem er út af fyrir sig um- talsverð frammistaða, en kannski ekki tiltakanlega fagur vitnis- burður um leiksmekk íslendinga. Ég varð aldrei svo frægur að sjá þennan annálaða grínleik og get því ekki gert neinn samanburð á honum og framhaldinu. Hins vegar er „Taugastríð tengda- mömmu“ með köflum svo yfir- gengilega billegur farsi, að varla tekur umtali. Sigurbjörnsson ið, ef því er til að dreifa, en úr því verið er að taka svona verk til sýningar, ber að vanda til þeirra eins og kostur er, jafnvel þó leikstjóra og leikendur skorti áhuga, eins og ég hef lúmskan grun um að hér eigi sér stað. Meginljóðurinn á þessari sýn- ingu Leikfélagsins er sá, að hún er í Tauninni hvorki fugl né fisk- ur. Ef vel ætti að vera. þyrfti að setja leikinn upp sem hreinan farsa, því hann er ekki neitt annað. Það hefði þurft. að stíl- færa leikinn meira, gefa honum samfelldari svip. Hér vantar ail- an stíl og þann heildarsvip sem geri vitleysuna skemmtilega og sæmilega trúverðuga. Sýningin er ósamstæð, persónurnar koma bókstaflega úr öllum áttum og samlagast ekki. Það var ti'ltökumál á frum- sýningu hve mikið skorti á um hraða, nákvæmni og rétt blæ- brigði í tilsvörum. Nokkrir leik- endur virtust stirðir og óörugg- ir í textanum, ekki sízt Arndís Björnsdóttir, sem leikur aðal- hlutverkið og kemur nú fram hjá Leikifélag Reykjaví'kur í fyrsta sinn síðan 1949, en hún feom fyrst fram á vegum þess fyrir 40 árum. Tengdamamman varð í meðförum hennar virðulegur skörungur, en bað vantaði eitt- hvað af lífskraftinum og fjörinu, sem hjlutverkið býr óneitanlega yfir. Auk þess var eins og leik- konan félli stundum út úr rull- unni. Stafar það sennilega af ónógum æfingatíma. Beztan leik sýndi Brynjólfur Jóhannesson í hlutverki hins kúgaða og þrautpínda eigin- manns. Var hæfilegt farsabragð I Arndís Björnsdóttir og Brynjólfur Jóhannesson í hlutverkum. Þetta er alls ekki gamanleikur í eiginlegum skilningi heldur það sem enskir kalla „slapstick comedy“. Grínið felst að sára- litlu leyti í hnyttnum orðræðum og skoplegum athugasemdum, heldur fyrst og fremst í afkára- legum og stundum fjarstæðum atvikum. Hér er sem sagt um að ræða farsa af frumstæðri gerð, þar sem mest veltur á skringi- legum tilburðum, hjákátlegum „slysum“, misskilningi, leiðrétt- ingum o. s, frv. Að sjálfsögðu er margt af þesisu ærið kátlegt, enda var oft hlegið hressilega í Iðnó á fimmtu dagskvöldið, en samt var eins og sýningin skilaði sér ekki full- komlega yfir sviðsbrúnina. Þetta stafaði greinilega af því, að sýn- ingin var ekki nógu vel unnin. Ýmis leikbrögð höfundanna fóru út um þúfur, af því þau voru hroðvirknislega sett á svið, t. d. ■kassa-atriðin bæði. Verður þetta að skrifast á reikning leikstjór- ans, Jóns Sigurbjömssonar, sem virðist ekki hafa haft nægilegan tíma eða áhuga til að vinna fylli- lega úr efninu. Ég lái honum ekki áhugaleys- • Sólgið í allar pillur Lengi heíur verið vitað að eittbvað af fólki á fslandi neytti lyfja, sem notuð eru ti-1 lækninga, en verða að nautna- lyfjum og skaðleg, sé þeirra meytt í óhófi og lengi. Nú ný- lega hefur komið á dagirrn, að meiri brögð eru. að þessu, en fóik gerði sér grein fyrir. Sveinn Sæmundsson. yfirlóg- regluþjónn, lét þau orð falla við fréttamenn í sámbandi við eina af þessum fréttum, að ásókn unga fólksins í allt sem héti pillur virtist takmarka- laus. Það þyrfti endilega að reyna eitthvað nýtt, eitthvað æsandi og spennandi, og gripi til þess að fara að borðu alts konar piilur, sem það heldur að veiti örvandi álirif og séu banmaðar. • Dularfullur kvenmaður Eitt dæmi sagði hann um þetta. Tveir ungir sjómenn komu í land og vildu nú gera sér glaðan dag. Þeir höfðu heyrt að á ákveðnum veitinga- stað væm menn með nautna- lyf og Þéldu að það gæti nú kannski orðið ægilegt ævin- týri að komast í það. Þeir fóru þar inn og komu auga á kven- mann. sem þe.im rannst ákaf- lega duIarfuHur. Annar fór að gefa sig á tal við stúlkuna, og hún hafði Iagt fingurinn á m'unninn, sem hann túlkaði þannig að nú þyrfti að fara varlega o-g tala saman utan dyra. Stúlkan kom honum út og eftir nokkrar umræður spurði pilturinn um nautna- lyf. Nei, 'hún hafð. það ekki, en er að henni vai lagt kvaðst hún þó geta útvegað sígarett- ur með marihuana í en til þess þyrfti hún 300 kr.. sem hún fékk umsviíalausL Nokkr-u seinna kom stúlkan með vam- inginn, sígarettupappir og svo- lítinn skammt af tóbaki. Fiit- arnir komu sér nú afsíðis, vöfðu sér vind'linga og fóm að reykja. AUt ; einu stynur ann- ar: — Þetta er bara andskot- ans grúnó! • Kviksandur fjallar um þetta Ekki fær þó þessi ævintýra* löngun alitaf svona góðan endi. Sumir venjast á lyf, sem notuð em sem svefntöfiur, megrunarlyf, róandi töfiur eða eitthvað þess-háttar. Flest. utn mieðuilum fyigja einhverj. ar aukaverkanir, sé þeirra ekki neytt í hófi og í samráði við lækni. Og getux þá illa farið. Slíkar piil'lur eru að vísai ekki hin svokölluðu eiturlyf, svo sem ópíum og þess háttar sem lítið er oröið um að menn ánetjist hér nú orðið, vegna þess hve erfitt er «ð ná i þau, En það er nógu slæmt fyrir það. Líklega 'hafa þessir ungling- ar sem pillurnar eta ekki hug. mynd um hvað þeir eru að gera í fikti og barnaskap. Um þessar mundir er verið að sýna í Iðnó afbragðs leikrit um þetta efni, sem getur ein. rnitt gefið góða hugmynd um hvað hér er á seyði. Og ættu sem flestir unglingar að sjá það. Hér á ég við „Kviksand". f því túlkar Steindór H.jörleifss, svo vel á sviðinu böl pil'ts, sem hefur vanizit á eiturlyf, að inieð ólíkindum er. í leikritinu er e.t.v. sú fræðsla um verkan- ir þessara lyfja, sem ungiing. ar þurfa að vita um og má þeim að gagni koma. /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.