Morgunblaðið - 01.05.1962, Side 1

Morgunblaðið - 01.05.1962, Side 1
Þribjud. 1. ma'i 1962 1. MAÍ ÁVARP ALÞJÚÐASAMBANDS FRJÁLSRA VERKft- LÝÐSFÉLAGA *• Verkamenn allra landa! Enn einu sinni sendir Alþjóðasamband frjálsra verka- lýðsfélaga ykkur sínar innilegustu bróður- og félagskveðj- ur á þessum alþjóðlega hátíðisdegi verkamanna, þessum degi, sem þið helgið minningunni um brautryðjendurna, er ruddu leiðina til þeirra afreka, sem samtök frjálsra verka- manna hafa unnið, þeim degi, er þið lítið af festu og hug- rekki til framtíðarinnar og strengið þess heit að gera líf ykkar og barna ykkar enn hamingjusamara og bjartara en það nú er. Nú eru liðin 12 ár síðan Alþjóðasamband frjálsra verkalýðsfélaga þeytti lúður sinn og kallaði verkalýð allra frjálsra landa til dáða í baráttunni fyrir brauði, friði og frelsi. Á þessum árum hafa margir sigrar verið unnir fyrir tilstilli sameinaðs máttar hinnar alþjóðlegu og frjálgu verkalýðshreyfingar. Enn er samt margt óunnið Qg--4rwK£* helgar Alþjóðasamband frjálsra verkalýðsfélaga á nýjan leik alla krafta sína þeirri baráttu, sem framundan er: — baráttunni fyrir friði og afvopnun með alþjóðlegu eftirliti, svo endir verði bundinn á martröðina af yfirvof- andi eyðileggingu kjarnorkuvopnanna. Sú staðreynd að nú hafa að nýju hafizt viðræður um afvopnun á vegum Sam- einuðu þjóðanna, hefur vakið nýjar vonir meðal þjóðanna um að þetta megi takast. Látum leiðtogum heimsins skilj- ast að verkamenn allra landa kref jast þess að þeir sýni nú einhvejm árangur af viðræðum sínum. — baráttunni fyrir frelsi og endanlegri útrýmingu síð- ustu leifanna af úreltri nýlendupólitík í Afríku og Asíu, baráttunni fyrir frelsi verkalýðshreyfingarinnar til þess að verja réttindi verkamanna — því frelsi, sem á stundum hefur kostað engu minni baráttu í sjálfstæðum löndum en þeim nýlendum er lotið hafa yfirráðum annarra ríkja, bar- áttunni fyrir frelsi undan þeirri plágu kynþáttakúgunar og misréttis, sem enn hrjáir allt of margar þjóðir, einkum í Suður-Afríku og nýlendum Portúgals. — baráttunni fyrir nægri arðbærri atvinnu, sem hver og einn velur sér af frjálsum vilja, baráttunni fyrir at- vinnuöryggi, styttri vinnutíma, mannsæmandi húsnæði, nægilegri vernd og tryggingu gegn þeirri áhættu, sem er samfara elli, sjúkdómum og örkumlum, og baráttunni fyr- ir batnandi lífskjörum allra verkamanna heims. — baráttunni fyrir því að gert verði sameiginlegt og alþjóðlegt átak til þess að hjálpa þeim löndum, er eiga við algjöra efnahagslega stöðnun að búa, svo þau geti hafið þá iðnvæðingu og viðreisn, og öðlast það efnahagslega sjálf- stæði, sem hlýtur að vera forsendan fyrir auknu pólitísku frelsi og félagslegum framförum. Til þess að ná þessu takmarki verða hin frjálsu verka- lýðsfélög að sameina krafta sína, efla samstöðu sína og endurskoða baráttuaðferðir sínar þannig að þau standi enn betur að vígi en áður til að leysa af hendi þau verkefni og vandamál, sem hvarvetna steðja að samtökum verkamanna og háð eru stöðugum breytingum í heimi nútímans. í þessu efni er það nauðsynlegt að hin eldri félagasambönd haldi áfram að veita fjárhagslegan styrk til yngri og fá- tækari félaga, sem eru að berjast fyrir því að koma undir sig fótum í vanþróuðum löndum. Öll þessi vandamál, sem eru hin mikilvægustu fyrir velgengni verkafólks um heim allan, verða tekin til ræki- legrar athugunar og umræðna á T. þingi Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga: í Berlín, eftir tvo mánuði, koma fullgildir verkalýðsleiðtogar frá 5 heimsálfum saman til fundar á sannkölluðu heimsþingi verkalýðsins. Þar munu þeir, á fullkomlega lýðræðislegan hátt, endurskoða ræki- lega það fulltingi, sem þeim hefur verið veitt til þess að standa í fylkingarbrjósti fyrir baráttu verkafólks í öllum löndum fyrir brauði, friði og frelsi, og jafnframt munu þeir þar ákveða í stórum dráttum hvernig haga skuli þeirri baráttu, sem framundan er. Verkamenn allra landa! Þetta er ykkar barátta. Fylk- ið ykkur um frjáls samtök ykkar. Eflið Alþjóðasamband frjálsra verkalýðsfélaga í sókn þess um víða veröld fyrir BRAUÐI. FRIÐI og FRELSI til handa öllum þjóðum! r J

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.