Morgunblaðið - 01.05.1962, Side 4

Morgunblaðið - 01.05.1962, Side 4
4 MORGl’WRT 4 01Ð Þriðjudagur 1. maí 1962 IMagnús Kjaran stórkaupmaður In Memoriam Féll að velli kunnur kappi. Konungborin hans var sál. Enn má dauði hrósa happi hampar tíðum banaskál. Hljóðlát gerist harpan strengja hún mun g-eyma dýran sjóð. Gott er að minnast góðra * drengja Og göfugra, með vorri þjóð. Stefán Kafn. Við lát Magnúsar Kjaran verð ur mér hugsað til persónulegra kynna okkar, en þau hófust ár- ið 1934. Ég var þá sautján ára og vann við verzlun í miðbaenum, og var mér falið að annast inn- kaupin. Féll mér vel að eiga viðskipti við heildverzlun Magn- úsar Kjaran, og fann ég fljótt, að þar fór drenglyndur maður og skemmtilegur í senn. Nánari kynni síðar sannfaerðu mig um að slíkt var honum eiginlegt. Fyrir tveimur árum, er Magn- ús Kjaran var sjötugur, skrifaði ég um ha-nn afmælisgrein og gat ég hans þá sérstaklega sem bóka manns og bókasafnara, og enn vil ég minnast hans sem slíks, því þau bönd tengdu okkur ná- ið, og skal þó ekkert endurtekið af því er fyrr var sagt. Dýrmætar bækur voru Magnúsi Kjaran sem helgir dómar. Glampi augna hans er hann handlék einhvern kjörgripinn sagði oft meira en langt mál. Það var falslaus ást. , Hann var svo lánsamur að hafa efni á að velja bókum sm- um góð klæði. Snillingurinn Ársæll sál. Árnason, bókibands- meistari batt mikið irm fyrir hann, svo og systur tvær Stefáns dætur, Eiríkssonar inns oddhaga, sem eiimig gera við bækur. Man ég hvað Kjaran dáðist að viðgerð þeirra á maturtabók Egg erts skálds Ólafssonar, er útgef- in var í Kaupmannahöfn 1774. (Fágæt). Eintakið sem hann fékk þeim í hendur hafði verið illa farið, og þótt það ætti að heita complet var það alls ekki stafheilt. En eftir að þær höfðu þvegið, límt undir nokkur blöð, teiknað nokkra stafi og loks bundið bókina inn, var hún óþekkjanleg. Enda var það sön-n gleði, er speglaðist á andliti Kjarans, er hann var að segja mér frá þessu. Magnús Kjaran eignaðist með tímanum eitt dýrmætasta og vandaðasta bókasafn í einkaeign hérlendis, lagði hann sig eink- um eftir fornum bókum, íslenzk- um og um íslenzk efni á erlend- um málum. Á ferðum sínum erlendis hér áður, gerði hann stundum góð kaup hjá fornbóka sölum. Man ég t.d. eftir þvi að eitt sinn er hann var staddur í Hamiborg í Þýzkalandi datt hann niður á úrvals eintak af Anr.ál- um Bjarnar á Skarðsá (Stærri útgáfunni með latneska tekstan- um) útgefnum í Hrappsey 1774—75. (Mjög fágæt). Fékk hann það fyrir lítið verð. Ein- tak af því verki var selt nýlega fyrir hálft sjötta þúsund krón- ur, eða rúmlega það. í bókfræði var Magnús Kjar- an vel heima og gaman að ræða við hann um slíka hluti. Hann ibar ;einnig gott skynbragð á skáldskap, jafnt í bundnu máli, sem óbundnu, hafði þroskaðan smekk og kallaði ekki allt ömmu sína í þeim efnum. Sjálfur var hann hagmæltur en fór dult með það og ekkert birti hann eftir sig af því tagi. Hins vegar liggja frá hans hendi nokkrar greinar | i blöðum og tímaritum þar á með al ritgerð um tölusettar bækur, sem birtist í Árbók Landsbóka- safnsins fyrir árin 1957—1958. Einnig sérprentuð. Á sínum tíma var mælzt til þess við mig að ég læsi handrit hans yfir og endurbætti — ef þörf gerðist — áður en það var prent að. Varð ég undrandi en jafn- framt glaður yfir því hversu vel það var unnið, og verður það höfundi sínum til ævarandi sóma. Magnús Kjaran var aðalstofn- andi Bókfellsúsgáfunnar, sem er þjóðþrifafyrirtæki hugsjóna- manna og hefur gefið út mörg öndvegisrit ýmislegs efnis. Er gleðilegt að fyrirtækið er í ör- uggum höndum sonar hans Birg- is, sem kunnur er fyrir smekk- vísi á íslenzkt mál j ræðu og riti. Magnús Kjaran var ágætur ræðumaður þá sjaldan hann tók til máls. Flutti hann mál sitt skörulega enda var maðurinn engi veifiskati. Minnist ég þess að eitt sinn bauð hann mér til hádegisverðar í Oddfellow. Sagði það væri lokaður „klúbb- ur“ (Lions). Hann hefði tekið saman erindi um bækur, og ég ætti að vera heiðurgestur, eins og hann orðaði það. Hvort tveggja var að fyrirlestur hans var vel saminn og flutningur- inn áheyrilegur, enda var gerð- ur góður rómur að máli hans. Magnús Kjaran var alla æfi íþróttamaður — ekki í orði held ur á borði. — Á yngri árum glímumaður góður og á efrum árum sínum snjall „golf“ iðk- andi. Stundum er ég talaði við hann í síma um hádegisbil á sunnudögum sagði hann. „Ja, ég er nú búinn að vera í „golfi“ í allan morgun." Hann var gamall ungmennafélagi og hugsjón sinni trúr. Drenglyndi var hans aðals- merki. Með léttan mal en bjartsýni hóf Magnús Kjaran verzlunar- störf hjá Th. Thorsteinsson, kaupmanni, unz hann varð með- eigandi verzlunarinnar Liver- pool, og um langt skeið aðaleig- andi hennar. Unz hann árið 1930 stofnaði heildverzlun þá er ber nafn hans og sem er með traust- ustu og beztu fyrirtækjum sinn ar tegundar hérlendis. — Magnús Kjaran naut þess -heiðurs að vera falin fram- kvæmdarstjórn Alþingishátíðar- innar 1930 og leysti það vanda- sama hlutverk svo vel af hendi, að athygli vakti meðal framandi þjóða. Vararæðismaður Svía var Magnús Kjaran um fjölmörg ár. Hann flutti og til lands Lions hreyfinguna, sem nú telur marga „klúbba“ Einnig var hann stjórnarnefndarmaður Rauða kross íslands um langt árabil, svo og Félags Lsl.. stór- kaupmanna. Margt fleira mætti um hann segja, en ljóst er að hér var enginn meðalmaður á ferð. Heldur drenglyndur hug- sjónamaður, Einn af vormöim- um íslands. 1 persónulegri viðkynningu HVEITIÐ sem hver reynd húsmóðir þekkir ... og notar í allan baksfur var Magnús Kjaran skemmtileg- ur maður. Af öllum þeim mörgu skáldum sem ég hefi kynnst er Stefán frá Hvítadal mér minnis- stæðastur. En í stétt kaupsýslu- manna Magnús Kjaran. Síðast talaði ég við hann í síma nokkru fyrir síðustu jól, kvaddi hann, því ég var að flytja úr bænum. Hann bað mig blessaðan að bíða við á meðan hann sendi mér eina eða tvær nýútkomnar bæk- ur. Ég yrði þó að fá samtalsbók þeirra Matthíasar Jóhannessens og Páls ísólfssonar. Svona var Magnús Kjaran. Hans mun ég lengi minnast því hann var drengur góður Eftirlifandi eiginkonu hans, börnum, og tengdabörnum sndi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Hveragerði 1. maí 1962. Stefán Rafn. Ódýrasta sælgætið 'ngr Ingimundarson héraðsdomslógmaður nálflutningui — lögfræðLstörí Cjarnargötu 30 — Simi 24753. Hreinlœtistœki frá SPHINX, Hollandi WC tæki og handlaugar Mjög vönduð og falleg vara Kynnið yður verð og gæði Heimsþekkt vörumerki A. fJóUcUM&SOn & Braufcarholti 4 — Sími 24244 NAUDUIMGARUPPBOÐ sem auglýst var í 106., 107. og 108 tbl. Logbirtinga blaðsins 1961 á vélskipinu Hratnkell NK-100, eign h.f. Hrafnkels, fer, að kröfu Fiskveiðasjóðs íslands, Landsbanka íslands, Útibúsins á Eskifirði, Stofn- lánadeildar Sjávarútvegsins o. fl., fram í skrifstofu embættisins, Miðstræti 18, Neskaupstað föstudaginn 4. maí 1962 kl. 14. Bæjarfógetinn í Neskaupstað 18/4 ’62 Ófeigur Eiríksson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.