Morgunblaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 1. maí 1962 MÖRCVNBLAÐ1Ð 5 Hrnðfr eftir Cuðmund H. Garðíirsson I FVRRI grein var í stórum dráttum skýrt frá sölu- og markaðs- stefnu Sölunt.iðstöðvar hraðfrystihúsanna og árangri hennar. — í þessari grein mun verða leitazt við að gefa lesendum nokkra hugmynd um eðli og þróun markaðsmála í sölu hraðfrystra fisk- afurða á síðustu árum. imarka Þýðing frystikeðjunnar. í sölu matvöru ryðja hrað- fryst matvæli sér æ meir til rúms. Eimkum eru það kjöt- og fiskafurðir, kjúfclingakjöt, græn- meti, ávaxtasafar og nú síðast brauð. Þyikir frysting góð að- ferð til að varðveita gæði og eiginileika þeirra afurða, sem þurfa að fara langa leið, áður en þær koma á borð hin-s end- anlega neytanda. Þessi geymslu aðferð er ekki gömul, en hún hefur niáð ótrúlega mikilli út- breiðslu í Norður-Ameríku, Evrópu og Sovétríkjunuim; enn- fremur eykst hún hröðum skref um í Japan. Til þess að unnt sé að hagnýta hraðfrystingu við framleiðslu og eölu innanlands sem utan, þarf fullikomin hraðfrystikeðja að vera fyrir hendi, þ.e. hraðfrysti hús, frystiigeymsluhús, flutninga- tæki (skip, bílar o.s.frv.), útbúin kæligeymslum, smásöluverzlanir, útbúnar kæliborðum o.þ.h., og síðast en ekfci sízt ísskápar á heimilum hinna endanlegu neyt enda. Þessi keðja, sem aldrei má rofna, útheimtir mikla nákvæmni með tilliti til þess, að jafnan sé hin frysta vara geymd við eðli legt hitastig (frystistig). Öll röskun getur framkaliað óæski- legar gæðabreytingar, sem geta haft í • för með sér, að varan skemmist eða spiliist, þannig að hún verði óneyzluhæf, eða það slæm, að neytandann fýsi efcki að kaupa slíka vöru aftur. Þetta veldur m.a. því, að það er annaff hvort framleiðsluhliff frystiiffn- affarins, sem leitast viff aff fylgja vörunni eftir allt tii neytandans, effa seljandahliðin, sem reynir aff tryggja sér eins sterkan yfir- ráffarétt yfir keffjunni, allt frá framleiðanda til neytanda, eins og unnt er. Þar sem hraðfryst vara er merkjavara, þ.e.a.s. seld undir ákveðnu heiti, sem leitazt er við að innprenta neytandan- um, að þýði gæðavara Og skapa með því árangursrífca sölu á sem ódýrastan hátt mleð hjálp nútíma auglýsingatækni, er afar áríð- andi að geta haft sem mest um- ráð yfir frystilkeðjunni og með ferð vörunnar. Skýrir það nokk uð þróun sölufyrirkomulagsins í frystum matvælum. Bandaríkjamarkaffur. Bandarí'ki Norður-Ameríku eru forystuland i sölu hrað- frystra matvæla. Á s.l. ári voru eeld fryst matvæli fyrir um 2.710.999.000 dollara; þar af voru ejávarafurðir 203.300.000 dollara, eða um 7,5%. Sala frosinna mat væla hefur meira en tvöfaldazt é síðustu 10 árum á þessum mark eði. Útflutningur íslendinga til Bandarikjanna 1961 var að verð mæti um 7.700.000 dollara. Hlut- ur Íslendinga í heildarverðmæt- iniu er hlutfallislega hærri en þessar tölur gefa til kynna, sem etafar af því, að stór hluti þessa útflutnings fer í vinnslu- verksmiðjur SH og SÍS í Ameríku og mynday nýjar Og verðmætar afurðir, sem eru m.a. fiskstengur og skammtar. Verk cmiðja SH framleiddi árið 1961 J7.300.000 lbs. (punda) af tilreidd um fiskafurffum. í USA eru nú ■tarfræfctar um 40 hliðstæðar verksmiðjur, og var heildar- fmmleiðsla þeirra 130.000.000 Ibs. af fiskstöngum og Skömmtum. Hefur verksmiffja SH því fram- leitt um 13,5% af heildarfram- leiffslunni. Er hún meff stærstu verksmiffju sinnar tegundar, og sem slík hefur hún nú þegar mikil áhrif á bandaríska mark- aðnum. Þýffing tilreiddra fiskafurffa eykst stöffugt, eins og sjá má af því, aff áriff 1961 jókst heildar framleiffsla fiskstanga um 7 % og fiskskámmta um 22%. Þessi þróun hefur í för með sér stöðugt aukna blokkafram- leiðslu fyrir eitt þýðingarmesta markaðslandið, USA, en fram- leiðslu í smærri pakkningar, 1- lbs., 5-lbs. minnkar að sama skapi, enda í samræmi við eftir spumarþróunina. Bandaríski markaðurinn er annar af tveim þýðingarmiestu freðfisfc'sölumiörkuðunum okfcar. Árið 1961 var fluttur út þangað freðfiskur að verðmæti 324,4 millj. kr. Var það um 41,5% af hei'ldarútflutningsverðmæti freð fisks. Árið 1960 var það um 33%. hefur, miðað við framileiðslu- kostnað, verið tiltölulega óhag- stætt og ekki fullnægt þeim verðkröfum, sem fslendinigar hafa gert til markaðsins, en á s.l. ári varð nakkur breyting á þessu, og stafaði hún m.a. af því að fiskskortur var í Bretlandi á því ári. Útþensla í sölu frystna mat- væla er geysileg í Bretlandi. Á- ætluð sala árið 1960 var að verð mæti 128 millj. dollara. Er það 250% meira en sala ársins 1957. Fiskur og fiskafurðir í frosnu ástandi er um 30% af heildar- magninu. Á einu ári fjölgaði verzlun-um, sem gá-tu selt þessi matvæli úr 65.000 í 85.000, eða um 20.000. Stóraukin sala á ís- sfcápum hefur skapað nýja og betri sölumöguleika. Fiskstangaframileiðsluverk- smiðjur hafa risið upp í Bret- landi á síðu-stu árum. Eru þær m.a. í eigu Breta, Nörðmanna, Dana og fslendiniga. Þessi mark aður er erfiður, því að um ára- tugi hefur byggzt upp hefð- bun-dið sölukerfi þúsunda smá- sala, sem hafa eingöngu verzlað með ferskan fisk, auk þess sem rótgróin og sterfc fyrirtæki ráða miklu um sölu og dreifingu. Má sér §ölu og dreifingu afla þriggja verksmiðjutogara (Fair- try I, II og III). Aflinn er fryst- ur um borð, og er áætlað að skipin geti framleitt 6000 tonn af frystum fiskafurðum á ári. Flutningadeild Ross hefur yfir að ráða hvorki meira né minna en 500 ökutækjum. Stór hiluti þessara ökutækja eru kælibifreið ar, sem notaðar eru tiil að aka hinum hraðfrystu afurðum um allt Bretland. Ross Group er einkadreifandi í Bretlandi í kjöt afurðum danskrar fyrirtækjasam steypu. Þá selur Ross íslenzkar fiskafurðir frá Atlantor h.f. Tiil gamans má geta þess, að á s.l. ári ákvað stjórn Ross Group Ltd. að leggja enn meiri áherzlu á uppbyggingarstarf í framíleiðslu og sölu hraðfrystra afurða Og verja í því Skyni 1.000.000 £, eða um 120.000.000 ísl. kr. Var stofnuð sérstök deild, er skyldi annast þessi mál. Samisteypan er byggð upp af fyrirtækjum, sem sömu aðilar eiga meiri hluta ítöfc í, og eru fyrirtækin þess eðlis, að við myndiun samsteypunnar hef ur átt sér stað bæði lóðrétt og lárétt uppbygging sterkra aðila, sem eiga mifciilla hagismuna að Þessi markaður er háþróaður með tilliti til frystifceðjunnar og lífskjör fólksinis góð. Skapar hann því æskilegan grundvöll fyrir sölu hraðfrystra afurða, enda verðlag þar hátt og eftir- spum jafnt vaxandi eftir sam- keppnishæfum gæðavörum. Auk íslendinga selja Kanada- menn og Norðmenn mikið magn af freðsfiski á þessum markaði, og eiga Norðmenn m.a. fisk- stangaverksmiðju í Bandaríkjun um. Hefur norska fyrirtækið Frionor farið inn á svipaðar brautir í sölu freðfisks í Banda- ríkjunum, eins og SH. Bretlandsmarkaffur. Árið 1961 verður sú breyting í útflutningi freðfisks, að Bret- land verður annað mesta við- skiptalandið; kau-pir 9.844,7 tonn fyrir 137,6 mililj. kr. Var það um 50% aukning miðað við magn næsta árs á undan. Sé far ið lengra aftur í tímann, var út- flutningurinn 1955 aðeins 126 tonn, eða svo til enginn. Á því ári og næsta áfi gerffi SH ráff- stafanir til að auka sölu á brezka markaffnum, m.a. meff því aff kaupa nokkra fisksölustaffi og síðar meff því aff koma á fót verksmiffju, sem framleiddi fisk stengur og skammta. Árangurinn hefur orðið sá, að af hálfu SH hefur frefffiskútflutningur til Bretlands aukizt verulega, svo sem sjá má af fyrrgreindu. Þá er þess að geta, að verð á fryst um fiski á brezika marfcaðnum m.a. geta þess, að á öllu Stóra- Bretlandi framileiða og selja raunverulega þrjú fyrirtæfci 66% af heildarhraðfrystiframleiðsl- unni, en þau eru: Ross Group Ltd., Associated Fisheries og Mac Fisheries Ltd. — Bird’s Eye Food. Geysileg samrunaþróun fyrir tækja í sjávarútvegi og fiskiffn- aði hefur átt sér staff í Bretlandi á s.I. tveim árum. Sem dæmi mætti nefna, að í fyrirtækja- samsteypunni Assocated FiSher- ies eru nú 115 togarar, en sam- steypan ræður auk þess yfir vinnslu- og dreifingarfyrirtækj- um og kæligeymslufyrirtæfcjum. Fjárhagslega er hún mjög sterk Og leitast við að tryggja að- stöðu sína hvar sem hún getur komið því við í þessar atvinnu- grein. önnur sterk samsteypa er Ross Group Companies, en innan hennar eru um 55 fyrirtæki, sem fást við hin ólílkustu verk- efni innan fiskiðnaðar og sjáv arútvegs. Innan Ross Group eru útgerðarfyrirtæki, fisksölufyrir- tæki í heildsölu og smásölu um al'lt Bretland, flutningafyrir- tæki, eða fyrirtæki sem hefir yfir að ráða skipum, og bif- reiðum, hraðfrystihús, fisk- stangaverksmiðja, fyrirtæki, sem framleiðir frystitæki o. s. frv. Togarar innan samsteypunnar eru nú 62 skip, og eru á þessum flota um 1900 manns frá Grims- by og Hu-11, en á sömu stöðum vinna í landi u-m 2000 manns í hinum ým-su fyrirtækjum Ross. í janúar 1961 tók samsteypan að gæta í sjávarútvegi og fiskiðnaði og sölu fi-skafurða. Danir, Norðmenn og íslend- ingar hafa reynt að komast inn á brezka markaðinn og tryggja hagsmuni sína eftir beztu getu utan þessara stóru fyrirtækja, m. a. með eigin verksmiðjum og dreifingu fra-mleiðsluvara með eigin bifreiðum til smásalanna. Hvort þessar smáþjóðir hafa ár- angur sem erfiði £ þessari . við- leitni þeirra að tryggja jafna og örugga sölu á Bretlandi, sker framtíðin úr. Meginlandsmarkaffirnir. Vestur-Evrópa hefur á undan förnum árum veriff aff opnast í sölu hrafffrystra fiskafurffa, en þó er markaffsverff þar ekki eins gott samanboriff viff tilkostnað, eins og í Bandaríkjunum, Bret- landi og Sovétríkjunum. Sala á frosnum matvælum í Evrópu hefur á síffastliffnum 10 árum aukizt úr 2% í 6% af heildarir.atvælasölunni. Afcvinnu hættir Evrópu taka nú miklum breytingum. Fleiri konur vinna úti, og sjónvarpið ryður sér til rúms á svipaðan hátt og í Banda ríkjunum. Milljónir manna eiga bifreiðir og eru bar af leiðandi hreyfanlegri en áður fyrr. Þetta þýðir, að í framtíðinni munu þægindin verða stöðugt þýðing- armeiri, og fryst matvæli eru þægindavörur. Vestur-Þýzkaland. Þrátt fyrir hina miklu iðn- væðingu landsins og vel-megun, hefur það dregiszt aftur úr J neyzlu frystra matvæla. Um 45.000 verzlanir munu nú eiga tæki til þess að selja fryst matvæli. Árleg heildarsala á frystum matvælum í Þýzkalandi hefur verið um 50.000 smálestir, þar af helmingur kjúklingar. Þjóðverjar kynntust frystum matvælum fyrir og í heims- styrjöldinni síðari, en fengu ekiki góða reynslu af því. Fiskneyt- endur hika þv£ nokfcuð við að snúa sér eingöngu að neyzlu frystra matvæla. Þetta er la-mt sem áður að breytast, og Þýzkaland stendur á þröskuldi mikillar þróunar í sölu og vinnslu frystra mat- væla. Mörg stór, fjársterk, þýzik fyrirtæki eru farin að sýna á- h-uga á fryst-um matvaelum, og má bú-ast við stórfelldri þróun í þessum málum í Þýzkalandi á næstu tveim til þrern árum. Við skipti í frystum matvælum voru á árinu 1960 fyrir um 2.500 millj. kr. 1963. Helztu fyrirtæfcin, sem fram- leiða og selja fryst mabvæli á vesfcur-þýzika matvælafrysti mark-aðnum, eru Unilever (í gegnum fyrirtækið Solo Fein-. frost), neytendasamvkin-Hsam- tökin GEG, JOPA, Etifca- Centralen, Neckermannversandt, Karstad, Kjöpak-aufhaus og Stamper- und Israel. Fyrirtækið Solo-Feinfrost, dótturfyrirtæki Unilever, hefur byggt stærstu hraðfrystimiðstöð í Evrópu í Hannover. Það er bæði geymslufyrirtæki og verk smiðja, sem framleiðir tilreidd- ar afurðir. Fyrirtækið hyggst ná 60—70% af sölu frystra mat- væla á markaðnum. Holland. Holland, sem hefur fleiri íbúa á hvern ferkílómetra en nokkurt annað land í heiminum, býður upp á mi'kil og góð tækifæri í sölu frystra matvæla. Rúmlega 12.000 verzlanir hafa nú kæli- borð, og er búizt við því, að 20.000 muni hafa þau innan þriggja ára. Stærsti aðilinn i sölu frystra mafcvæla er Unilever í Utrecht, sem sel-ur undir vörumerkinu IGLO. Fyrirtæki þetta hefur komið sér upp nýju og stóru frystigeymsluhúsi £ Amsterdam. Það er byggt til að gtyma IGLO-frystiafurðir og getur tek ið á móti 4.000 smálestum af- urða. Talið er, að IGLO hafi komiS upp um % hlutum allra kæli- borða í hollenzkum verzlunum, sem tryggir örugga sölu á vör- um þeirra. Svissland. Svissland er eitt af þeim lönd um, þar sem nægilegt framiboð er á frosn-um matvælum til þess að fullnægja eftirspurn neyt- endanna, og má segja, að Sviae- land sé það land í Evrópu. sem lengst er komið á veg í að viður kenna fryst matvæli sem fastan lið í neyzluvenjum þjóðarinnar. Leiðandi fyrirtæ'ki á sviss- neska markaðnum eru Frisco, Migros, Birds Eye (sem ekki er í eigu Unilever) og Ditzler. 14,2% íbúanna neyta frosinna matvæla reglulega, og um það bil 10.000 verzlanir hafa kæli- borð. Svíþjóff. Heildarneyzla hraðfrystra mat væla heldur áfram að aukast í Svíþjóð. Neyzla slíkra matvæla árið 1961 reiknast vera um 26.000 tonn, eða 5.000 tonnum hærri heldur en árið áður. Þessi hraðfrystu matvæli selj- ast ein'kum í neytendapakkning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.