Morgunblaðið - 01.05.1962, Síða 16
16
liGRGlllSni 4 ÐIÐ
ÞriSii’daeur 1. maí 1962
Þýzk-ítölsku IMPERIAL-sjúnvarpstækin
eru heimsþekkt fyrir gæði
Verksmiðjurnar hafa yfir 30 ára reynzlu í allri radíó-
tækni. Framleiða þær 1000 sjónvarpstæki á dag. Einnig
framleiða þær 600 radíó-tæki ug radíó-grammófóna
á dag.
Nokkrar upplýsingar:
10% stærri myndflötur en á eldri mót-
tökutækjum
★ skýrar og stöðugar myndir
ÍC óvenjulega góð móttökuskilyrði frá öllum
sendistöðvum
ir 23“ skermir með 110° halla
★ hefur auka-últrabylgjur
ÍT tengingar fyrir auka-hátalara
(KOMIÐ SJÁIÐ TÆKIN í GANGI)
Þér getið valið tækin í samræmi við húsgögn yðar.
Tækin eru úr vönduðum harðviði. — Fjölbreytt úrval.
Imperial
veitir yður 1. flokks þjónustu. Mjö g auðvelt að breyta kerfinu yfir á
Evrópu með litlum tilkostnaði. Hö fum í þjónustu okkar hér á landi
góðan serfræðing í sjónvarpstækn i.
F. inkaumboð á íslandi:
Magnús Haraldsson
umboðs- og heildverzlun
Aðalstræti 8
Símar: 16401 og 14501
Söluumboð:
Húsgagnaverzlun
Austurbœjar
kólavörðustíg 16,
NATO og kommúnismi
ÞRETTÁN ár eru nú síðan, að
það heillaspor var stígið, er
Norður-Atlantshafsbandalagið
var stofnað af 12 friðelskandi
lýðræðisþjóðum, og hafði hin
mikla vestræna lýðræðisþjóð,
Bandaríkin í Norður-Ameríku,
forgöngu um stofnun þessara
samtaka. Það var í aprílmán-
uði 1949, að eftirtaldar þjóðir
stofnuðu NATO, Bandaríkin í
Ameríku, Stóra-Bretland, Kan-
ada, Frakkland, Belgía, Holland,
Danmörk, Portúgal, Ítalía, ís-
land, Luxemburg og Noregur.
Síðar gengu í samtökin Grikk-
land 1952 og Tyrkland 1955, síð-
asta ríkið sem í samtökin gekk
var Vestur-þýzka lýðveldið. Að-
ildarríkin eru nú 15.
Á stríðsárunum og næstu ár-
um eftir stríðið flæddi heims-
kommúnisminn yfir Evrópu og
lögðu kommúnistar hvert land-
ið á fætur öðru undir jámhæl
kommúnismans, svo sem til að
byrja með, allgóða sneið af
Finnlandi. Þá lögðu Rússar und
ir sig Eystrasaltslöndin, Letland,
Litháen, ELstland, þannig var
haldið áfram að fótumtroða lýð-
ræðið og hvert fórnarlambið af
öðru svipt sjálfstæði sínu svo
sem Pólland, Búlgaría, Rúmenia,
Albania, Austur-Þýzkaland, Ung
verjaland og Tékkóslóvakía. —
Þannig lögðu Rússar undir sig
á fimm ára tímabili landsvæði,
nálægt 400.000 fermílur, með um
níutíu milljónir íbúa, og þetta
tókst peim án þess að hleypa af
einu skoti. Vopn þeirra voru þá
eins og ávallt síðar að skapa
glundroða og upplausn innan
þeirra þjóðfélaga, er kommún-
ismanum urðu að bráð. Það má
segja að máttur samtakanna sé
mikill, því síðan Nato var stofn-
að, hefur kommúnistum ekki
tekizt að svæla undir sig nein-
um fermetra lands hvað þá
meira.
Þegar við lítum yfir farinn
veg, sjáum við fljótlega að starf-
semi Nato er ekki aðallega hern
aðarlegs eðlis, þó þess gæti að
sjálfsögðu að nokkru, hinsvegar
sjáum við að þessar friðelskandi
lýðræðisþjóðir hafa náið menn-
ingarlegt og efnahagslegt sam-
band sín á milli, og vinna ör-
ugglega að því að eyða tor-
tryggni og ósamkomulagi þjóða
á milli. Þessu göfuga takmarki
hefur Nato náð, því meiri skiln-
ingur, vinátta og bræðralag rík-
ir nú meðal þjóða en þekkzt hef-
ur áður. Þá má örugglega full-
yrða, að Nato hafi með samtök-
um sínum og styrkleika, forðað
heiminum frá hræðilegum örlög
um, sem hefði orðið þriðja heims
styrjöldin, hefðu óvinir mann-
kynsins kommúnistar fengið að
ráða. Hér á íslandi hafa komm-
únistar unnið leynt og ljóst að
því að ófrægja Nato, reynt að
gera samtökin grunsamleg, og
telja fólkinu trú um að okkur
stafaði hætta frá Nato. Þessir
menn, kommúnistar, hafa ferð-
azt um landið þvert og endilangt
og gert allt sem í þeirra valdi
hefur staðið til þess að spilla
fyrir Nato. Þeir hafa stofnað
svokölluð hernámsandstæðinga-
félög. Þá hafa þeir sett á fót hér-
aðsnefndir, safnað undirskrift-
um og þá oft á fölskum forsend-
um. Þetta þjóðhættulega starf
hafa kommúnistar fengið að
vinna óáreittir og án þess að
þeim væri verulega mótimælt,
þar til á síðasta ári að með
stofnun Varðbergs var stigið
spor í rétta átt, en betur má ef
duga skal. Nato-vina félög og
nefndir ætti að stofna í hverjum
einasta kaupstað, kauptúni og
sveitum landsins, til þess að
vinna upp á móti því sem komm
únistum hefur tekizt að spilla
fyrir þessum göfugu samtökum
víðsvegar um landið.
Sumir eru svo grunnhyggnir
og ef til vill saklausir, að þeir
•halda að íslenzkir kommúnistar
séu frábrugðnir bræðrum sínum
á Rússlandi, en slikt er hin
mesta fjarstæða. Kommúnistar
allra landa eru eins, og íslenzkir
kommúnistar þar í engu frá-
brugðnir. Fólk, sem stutt hefur
kommúnista á undanförnum ár-
uim, ætti nú að hugsa sig vel um
áður en það gefur kommúnistum
atkrvæði sitt við komandi sveita-
stjórnarkosningar. íslendingar
viljum við ödl vera, okkur ber
því skylda til að vinna af alefli
gegn heimskommúnismanum og
tryggja þannig frelsi og sjálf-
stæði íslenzku þjóðarinnar.
Árni Ketilbjarnar.
Félagslíf
Knattspyrnufélagið Fram
Knattspymudeild
Athugið vel æfingatöfluna fyr
ir sumarið.
Mánudagur:
5. fl. C og 4. fl. C kl. 6.30.
Meistaraflokkur og 1. fl. kl.
7.30. 2. fl. kl. 9.
Þriðjudagur:
5. fl. A og B kl. 6.30.
4. fl. A og B kl. 7.30.
3,fl. A og B kl. 8.30.
Miðvikudagur (Mélavöllur) •
2. fl. kl. 6.30—7.30.
. Meistaraflokkur og 1. fl. kh
, 7.30.
Miðvikudagur (Framvöllur):
5. fl. C og 4. fl. C kl. 6.30.
5. fl. A og B kl. 7.30.
3. fl. A og B kl. 8.30.
Fimmtudagur:
5. fl. A og B kl. 6.30.
4. fl. A og B kl. 7.30.
3. fl. A og B kl. 8.30.
Föstudagur:
4. fl. A og B kl. 6.30.
2. fl. kl. 7.30.
Meistaraflokkur og 1. fl. kl. 9.
Laugardagur: ,
Knattþrautir KSÍ kl. 5.30. f
Ath. '
Þessi tafla gengur í gildi I
næstu viku. Allar æfingar verða
á Framvellinum, nema á mið-
vikudögum fyrir Meistara 1. og
2. fl.
Nefndin.
Frá stjórn K.D.R.
hefst ’ ánudaginn 30. apríl hlI. 9
á Lindargötu 50.
Vorar fyrir vestan
ÞÚFUM, N.-ls, 26. apríl. —
Hér er góð vorveðrátta dag-
lega og gróðurnál farin að
koma. Bændur eru famir að
sleppa sauðfé, og er útlit hið
bezta með árferði. — Sýslu.
nefndarfundur Norður-lsafjarð-
arsýslu hófst á ísafirði í gær,
og liggja að venju mörg mál-
efni fyrir fundinum. — P.P-