Morgunblaðið - 01.05.1962, Síða 18

Morgunblaðið - 01.05.1962, Síða 18
18 M O R C V V n r 4 n l Ð ¥»riðjudagur 1. maí 1962 Eitt sullaveikistil- felli á siðasta ári Dró konu til dauða í haust Þegar losna tók um ísinn á Blöndu, notaði fjöldi krakka tækifœrið, til þess að fleyfa sér á jök- um á lóni við norðurbakka árinnar. Foreldrum er lítii þökk að slíku, en freistingin er of mikil fyrir athafnasama drengi. Ljósm.: Bj. Bergman. Fréttir úr Austur- Húnavatnssýslu Blönduósi, 26. aprfl. VETURINN gekk misjafnt yfir í A-Hún. í austurhluta sýslunnar var víðast næstum alger innistaða á sauðfé £rá því seint í nóv. og fram að sumarmálum. Fanndýpi var þó yfirleitt eloki mikið en svellalög Og hjarngaddur með allra mesta móti. f Vatnsdal, Þingi og Ásum var og oftast snjólaust að kalla. Tíðarfar var löngum 'óstöðugt og rysjótt og sauðfjárbeit nýttist hvergi vel. Hross voru óvíða tekin á hús en sums staðar gefið á gadd. Jörð kom allsstaðar upp um síðustu vetrahhelgi. Veturinn hefur yfir- leitt verið gjafafrekurogfjölmarg ir bændur þyldu illa vorharðindi. Mjólkurflutningar hafa aldrei truflazt að neinu ráði síðan i nóvember. Vegir spilltust talsvert í sumarmálahlákuimi vegna vatnsgagns í lækjum og aur- bleytu, en stærri ár gerðu ekki teljandi tjón og Langadalsvegur kom óskemmdur upp úr flóðinu Og ruðningnum í Blöndu. ís er enn á Svínavatni, Laxárvatni og Hópinu, en farið að lóna frá löndum. Nokkrir bændur á fremstu bæjum í Vatnsdal og Svínavatnshreppi hafa sleppt flestu sauðfé. Kjartan Jóíbannesson, söngkenn ari, var hér í sýslu frá miðjum febrúar Og fram í marzlok Og æfði fimm kirkjukóra. í lök kennslu hans héldu fjórir þeirra söngmót á Blönduósi. Var húsið fullskipað og söngnum mjög vel tekið. Mótinu lauk með kaffigildi að Hótel B’önduósi. Þar voru ræð ur fluttar og kórarnir færðu Kjartani Jóhannessyni veglega bókagjöf sem þakklætisvott fyrir mikið og vel unnið starf. Barna og unglingaskólinn á Blönduósi gekkst fyrir þvi að fá Ólaf Gunnarssön sálfræðing, til að dvelja hér dagana 13.—14. apríl. Flutti hann erindi um starfs fræðslu fynr nemendur unglinga skólans og elzta bekk barnaskól- ans og sýndi litkvikmyndina Sjó sókn og sjávarafurðir. í þessari ferð fór nann einnig til Höfða- kaupstaðar sömu erinda. Megin þorri unglinga í báðum þorpun- um leitaði upplýsinga um fjöl- margar starfsgreinar og sérnám. Ólafur Gunnarsson telur, að þörfin fyrir starfsfræðslu sé ekki minni í dreifbýlinu en í hinum þéttbýlu stöðum eins Og t. d. Reykjavík og Akureyri, en Blönduós Og Höfðakaupstaður séu fyrstu þorpin utan næsta ná- grennis Reykjavíkur, sem hafi óskað eftir slíkri fræðslu. Blönduósi, 26. apríl 1962. Mokveiði af síld Akranesi, 28. apríl. OFSAleg mokveiði var hjá bát- unurn undir Jökli í nótt, á svip- uðum slóðum og þeir fengu síld ina í fyrrmótt. Aflahæstur var Haraldur með 1900 tunnur, Skírnir 1500, Sigurður AK 1100, Höfrungur I 1000, Heímaskagi 650 tunnur, — Hér er Dranga- jökull og lestar frosinn fisk. — Oddur. KjarvaSs- málverk á 22,000 kr. Sl. föstud. hélt Sigurður Bene- diktsson síðasta listmunaupp- boð sitt á þessum vetri í Sjálf stæðishúsinu í Reykjavík, og var þar ýmislegt á boðstól- um. Hæst seldist málverkið Haust við Þingvallavatn, eft ir Kjarval, á 22.000 krónur. Önnur Kjarvalsmynd, Hug- mynd (Fantasi) var slegin á 10.000 krónur og þriðja Kjarv alsmyndin, Hugmynd, lítil, fór á 8,500 krónur. Mynd eftir Ásgrím Jóns- son, Frá Húsafelli með Eiríksjökul í baksýn, seldist á 21,000 krónur, og önnur lítil mynd eftir Ásgrím, Skóg- arjaðar, á 4000 krónur. • Venus með græna greiðu, ný mynd eftir Gunnlaug Blöndal, var slegin á 10,500 krónur og tvær gamlar mynd ir eftir Jón Engilberts fóru á 2.500 krónur hvor. SULLAVEIKI var hér áður fyrr einn algengasti sjúkdómurinn sem hrjáði íslendinga, en nú er sullaveiki liðin hér undir lok að heita má. Fyrir rúmu ári kom þó eitt tilfelli. Sjúklingur reyndist vera með sull í mjaðmarbeini og dró það hann til dauða á sl. hausti. Frá þessu segir Bjarni Jónsson, læknir, í grein í síðasta hefti af Læknablaðinu. Kona kom utan af landi til læknisins vegna verkja í hægri mjöðm og var lögð inn á Landa- kotsspítalann 7. marz 1960. Við uppskurð fundust sullablöðrur og þrátt fyrir annan uppskurð til að fjarlægja allt hið skemmda bein, sem var orðið eins og graut ur, tókst ekki að bjarga henni, lézt hún 10. október í haust. I grein sinni rekur Bjami Jóns Sænsk-íslenzk orðabók verður samín AÐALFUNDUR íslenzk-sænska félagsins var haldinn í Þjóðleik húskjallaranum miðvikudaginn 25. apríl. Formaður félagsins, Guðlaugur Rósinkranz, flutti s'kýrslu um störfin á síðastliðnu starfsári en á því ári voru haldnir fjórir fræðslu- og skemmtifundir. Hann gat þess sérstaklega, að nú væri fjár- hagslega tryggt með fjárfram- son heimildir um sullaveki héi á landi og segir hana hafa verið svo útbreidda, áður en menn vissu um orsakir hennar og gátu gert ráðstafanir til úrbóta, að álitamál sé, hvort ekki hafi nærri allir landsbúar verið solln ir, þer eru náðu fulloðinsaldri. En sullur í beini virðist hafa verið mjög sjaldgæfur hér. Eftir að farið var að gera ráðstafanir til árása á sullinn, m.a. með hundahreinsun og að gæta þess að gefa ekki hundum sollin innyfli, fór að miða í rétta átt og skv. krufningarskýrslum hef ur varla fundizt sullur í nokkr- um manni, sem fæddur er eftir 1890. Um þessar mundir er rúmt ár, síðan síðasti sullurinn kom íí leitinar, segir Bjarni Jónsson i lok greinar sinnar. Ef allir þeir, sem á umliðnum árum hafa feng izt við slátrun, hefðu gegnt ský- lausri skyldu sinni, gert það, sem þeir vissu að þeir áttu að gera, að brenna eða grafa djúpt í jörð öll sollin líffæri, svo að hundar næðu ekki í þau, þá væri ekki eitt ár, heldur áratugir, síð an seinasti sulluinn sást. -------------------- i 25. félagsbréf AB komið út ÚT er komið 25. hefti Félags- bréfa Almenna bókafélagsins. Er efni þess sem hér segir. Kjartan Sveinsson, skjala- _ --- vörður, ritar um dr. Hannes- lögum frá Svíþjóð og Islandi að , Þorsteinsson, þjóðskjalavörð; hafizt yrði handa um samningu Tómas Guðmundsson, skáld, rit- sænsk-íslenzkrar orðabókar. Af henti hann orðabókarnefnd fé það, að upphæð nær 10000 kr., sem útvegað hefði verið fyrir löngu í þessu skyni og verið hefur í vörzlum félagsins. Halldór Kiljan Laxness, sem verið hefur í stjórn félagsins frá stofnun þess, var kjörinn 1. heið ursfélagi þess. Stjórn félagsins skipa nú: Guðlaugur Rósinkranz, þjóð- leikhússtjóri, formaður, Vigdis Finnbogadóttir, gjaldkeri, Guð- mundur Pálsson, arkitekt, Hall- dór Halldórsson prófessor, Jón Magnússon. fréttastjóri, Sveinn Einarsson, fil. kand.. dr. Sigurð ur Þórarinsson, jarðfræðingur. ,Klerkar í klípu6 í llrútafirði HINN 10. marz s.l. héldu nem- endur Reykjaskóla árshátíð sína var hún að vanda fjölsótt sótti hana fólk víða að, enda bílfært um allt. Nemendur hafa ávallt lagt mikla vinnu í undirbúning árs- hátíðar sinnar. Var sitt af hverju tagi tii skemmtunar s. s upplestur, leikiþættir, söngur, íþróttasýningar, þjóðdansar o. fl. Hafði Skólinn fengið til starfa við undirbúriing dagskrárinnar Eirík Eiríksson frá Reykjavók, einnig hvílir undirbúningur mikið á kennurum skólans. Heilsufar hef ur eigi verið sem bezt í skólanum fná áramótum inflúenza herjaði, einnig hettusótt, hafa veikindi þessi að vonum tafið nemendur frá námi. 1. og 2. bekks prófum lýkur upp úr miðjum þessum mánuði en landsprófsdeild skólans stend- ur sem venja er fram í júní. • Skáksveit frá skólanum tefldi við lið Hrútíirðinga og sigruðu Reykjaskólamenn eldri mennina. í skólanum eru í vetur á annað hundrað nemendur og er hvert rúm skipað, Ungmennafélagið Dagsbrún í Hrútafirði hefur nú um nokkur ár haldið uppi leikstarfsemi hér í héraðinu, hefur þó háð starf- semi þessari mjög húsnæðisleysi félagsins, það sem hefur bjargað félaginu í þeim sökum er sá skilningur sem skólastjóri Reykja skóla hefur á starfsemi félagsins Hefur hann verið svo vinsam- legur að lána félaginu hið nýja íþróttahús skólans til leikæfinga svo og til sýninga. S. 1. tvö ár hefur félagið feng ið til leiðbeíningar við leiksýn- ingar Höskuld Skagfjörð og hefur yfirleitt bótt vel takast með þau viðfangsefni sem félagið hefur valið sér, hefur félagið farið með þau hér j nærliggjandi sveitir og verið vel fagnað. Nú í ár fékk félagið til leik- stjórnar Erling Gíslason og var frumsýning á leikritinu „Klerkar í klípu“ eftir Philip King í Reykja skóla s.l. sunnudag, voru áhorf- endur um þrjú hundrtið. Var leiknum ágætlega tekið, má segja að leikhúsgestir hafi ekki linnt hlátri leiksýninguna út enda leikrit þetta sprenghlægilegt. Eitt aðalhlutverkið í leiknum er leik- ið af leikstjóranum Erlingi Gísla- syni. Aðrir leikendur eru: Lára Helgadóttir, Jón Jónsson, Þór- björg Kvaran, Ragna Helgadóttir, Jón Kvaran, Magnús Þorbergs- son, Hanues Lárusson og Magnús Gíslason. Féligð hyggst sýna leikritið á nokkrum stöðum næstu vikur og óhætt mun vera að benda þeim á sem vilja hlæja eina kveld- stund að sjá „Klerka í klípu“ hjá Dagsbrún. — gg. Afli glæðist í Sandgerði SANDGERÐI, 28. aprí'l. — Sára lítill afli hefur verið hér að und anförnu þar til í gær, en þá bár ust hingað rúmlega 216 lestir af 19 bátum. Aflahæstir voru Mun- inn með 33,1 lest, Þorsteinn Gísla son 29,2 lestir og Jón Gunnilaugs með 20 lestir. — Pá'll. • Algeirsborg, 25. apríl (NTB) Að minnsta kosti 14 menn voru drepnir í ceirðum í Algeirsborg í dag. Flestir hinna drepnu voru Serkir. Tveir mannanna fórust er plastsprengja sprakk í bifreið á götu í Algeirsborg. Særðust þá um 20 manns. ar um skáldið Hannes Hafstein, og Eiríkur Hreinn Finnbogason ritar um Torfhildi Þorsteinsdótt ur Hólm. Þá er þarna gamansag an Brennivínshatturinn, eina sag an, sem til er eftir Hannes Haf- stein; tvö ljóð eftir Þórunni Elfu. Alexander Jóhannesson birtir þýzka þýðingu eftir sig á Bikarnum eftir Jóhann Sigur- jónsson, en um bækur skrfa þeir Gísli Gestsson og Þórður Einars son. Ennfremur eru þarna rit- stjórnargreinar og nokkur sýnis horn úr bók Torfhildar Hólm, Þjóðsögum og sögnurn. Fremst í heftinu eru tilkynn- ingar um næstu félagsbækur AB, en þær eru: Hannes Þor- steinsson, — sjálfsævisaga (apríl bók), Ítalía eftir Herbert Kubly, þýðandi Einar Pálsson (maíbók) og Fuglabók AB — Evrópufugl- ar — í þýðingu dr. Finns Guð- mundssonar (júníbók). „SiVló“-síldin „SIGLÓ“-SÍLDIN, sem getið hefur verið um í blöðum, er nú komin í verzlanir í Reykjavíik, en hún er eins og kunnugt er framleidd í hinni nýju niður- lagningarverksmiðju á Siglu- firði. Hún er seld í flökum eða gaffalbitum í vínsósu, lauksósu, dillsósu og ávaxtasósu. Dósa- stærðir eru þrjár. Ó Johnson & Kaaber hf. hafa heildsölubirgðir af „Sigló“-síld. 467 millj. í umferð f LOK marzmánaðar voru seðl- ar í umferð að upphæð 467.975.000,00, skv. auglýsingum Seðlabankans í síðasta tölublaði Löbirtingablaðsins. Seðlaveltan er tryggð með gullverði innan- lands skv. gullverði í New York og gildandi dollaragengi kr. 43.657.842,00, með erlendum verðbréfum í frjélsum gjaldeyri á markaðsverði og óveðbundið kr. 801.102.495,00 og inneign I erlendum bönkum í frjálsum gjaldeyri kr. 187.045.913,00.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.