Morgunblaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 22
22 MORGI NBL AÐIÐ Þriðjudagur í. maí 1962 — Kúba jnannamótum, þar sem telur larrismonnum trú um ofsókn ír og glæpsamlegt athæfi annarra þjóða, einkum Banda ríkjamanna, hafa gert hann *ð nokkurs konar þjóðar- tákni. Hin misheppnaða inn- rás í fyrra, hefur styrkt vald- hafa í sessi, menn hafa misst trúna á slíkar aðgerðir í bili, og ekki líklegt að íbú- amir geri byltingu gegn vel vopnuðu herlði stjórnarinnar. Hins vegar líta valdhafarn ir í Sovétríkjunum efablöndn um augum á þróunina í -'fna- hagsmálum, sérstaklega, þar sem Castro hefur hvað eftir annað auglýst sig sem ,,Marx- Leninista“. Baráttam bak við tjöldin Bak við tjöldin á sér, hins vegar barátta stað. Castro hræðist Blas Roca, sem ætíð hefur staðið nærri ráðamönn um eystra. Roca og einn af samherjum hans fóru til Moskvu í september í fyrra, og þar munu vandamálin í sambandi við sérvizku og „viðvaningshátt Castros í leit að sósíalisma", hafa verið tek in til umræðu. Er Roca kom til baka, herti hópur hans sóknina, og innan tíðar var Castro settur af, sem formaður „Landibúnaðar- endurskipulagningarráðsins". f>á greip Castro til þess, að heimta nýskipan ráðsins, bætti í það nokkrum persónu legum stuðningsmönnum og tryggði sér á ný meirihluta. Margt hefur flogið fyrir um það. hve hallaði undan fæti fyrir Castro, m.a. orðrómur um að hann hefði leitað til erlendrar ríkisstjórnar (í Brasilíu), ef til þess kæmi að hann þýrfti að flýja land. Frá 4. til 26. febrúar s.l. kom Castro ekki opinberlega fram, og þótti það benda til þess, að ekki væri allt með felldu, því að áður fyrr hvarf hann aldrei almenningi úr ir. Síðan hefur hann gert ráð- stafanir til þess að tryggja eftirmann sinn, ef til kæmi. Hann skal verða Raoul Cas- tró, bróðir einræðisherrans. Þá hefur Castró gert svo harða hríð að einum af fylg- ismönnum Roca, Anibal Esca- Þórir Sigurðsson og Eggert Benónýsson Bridge ÍSLANDSMEISTARAR í tvi- menningskeppni urðu þeir Egg- ert Benónýsson og Þórir Sig- urðsson og hlutu 3391 stig. — Keppnin, sem var fjórar um- ferðir, var mjög spennandi og jöfn. Eftir fyrstu umferð voru þeir Jóhann Jónsson og Stefán Guðjohnsen í fyrsta sæti með 924 stig. I öðru sæti voru þeir Einar Þorfinnsson og Gunnar Guðmundsson með 916 stig, en Ásmundur Pálsson og Hjalti Elíasson í þriðja sæti með 910 stig. Þórir og Eggert voru þá í 5. sæti með 875 stig. Að tveim umferðum loknum voru þeir Stefán og Jóhann efstir með 1839 stig, en Þórir og Eggert voru í öðru sæti með 1838 stig og Ásmundur og Hjalti í þriðja sæti með 1697 stig. í þriðju umferð tóku þeir Þórir og Eggert forystuna með 2623 stigum, í öðru sæti voru Ásmundur og Hjalti með 2583 stig og í þriðja sæti voru þeir Stefán og Jóhann með 2540 st. Lokastaðan varð þessi: 1. Eggert Benónýsson og Þórir Sigurðsson, 3391 stig. 2. Ásmundur Pálsson og Hjalti Elíasson, 3316 stig. 3. Agnar Jörgenson og Róbert Sigmundsson, 3298 stig. 4. Kristinn Bergþórsson og Lárus Karlsson, 3242 stig. 5. Stefán J. Guðjohnsen og Jó- hann Jónsson, 3169 stig. FYRSTA heimsmeistarakeppnin í tvímenmngskeppni hefst nú um helgina í Cannes í Frakklandi. Ekki er enn vitað nákvæmlega um þátttöku, en vitað er um 80 pör frá 20 löndum, sem tilkynnt hafa þátttöku í ópna flokknum og 30 pör í kvennaflokknum. Ef öll lönd innan Alþjóða bridge- samíbandsins hefðu sent jafn- marga keppendur og þau höfðu heimild til, þá hefðu þátttakend- ur getað orðið 350 pör. Þykir því þessi þátttaka heldur léleg Og benda til þess að spilarar vilji heldur sveitakeppnir. ■ 8 pör frá Bretlandi taka þátt í keppni þessari og eru keppend- ur m. a. Reese og Shapiro Gardne og Rose, Goldstein og Tarlö, Glint og Harrison-Gray, Gordon og Markus. Evrópumeistaramótið fer að þessu sinni fram í Líbanon og hefst 7. september n.k. Að sjálfsögðu er enn ekki vitað um þátttöku, en England, frland, Sviss, Finnland, Þýzkaland, Spánn Pólland, Belgía og Egypta land senda crúgglega lið í opna flokkinn. Gestgjafarnir eru mjög rausnarlegir Og bjóðast til að greiða 50% af fargjöldum allra keppenda og þar að auki greiða þeir hluta af uppihaldi. í SÍÐUSTU uihferð fslandsmóts- ins í bridge spilaði sveit Einars við sveit Hilmars og var leikur- inn sýndur á sýningartöflunni. Spilið, sem hér. fer á eftir, var spilað í byrjun þessa leiks. og var afar slæmt fyrir sveit Hilm- ars. Á því borði, þar sem Einar Þorfinnsson og Gunnar Guð- mundsson sátu N.-S. og Jón Arason og Jakob Bjarnason A.-V. gengu sagnir þannig: Austur Suður Vestur Norður pass pass 1 gr. pass 2 gr. pass 3 A pass 3 gr. pass pass pass A 10 9 3 V K D G 9 4 ♦ 10 5 4 9 84 4 Á K D 5 4 ¥ 10 6 3 ♦ Á 7 4 + Á 10 4 G 6 ¥ Á 7 5 ♦ 9 8 6 2 ♦ 7 6 5 3 Ekki er hægt að segja að loka sögn A.-V. sé góð, enda tóku N.-S. 5 fyrstu slagina á hjarta. Sérstaklega er 3ja granda sögn Austurs vafasöm, þar sem hann á enga fyrirstöðu í hjarta. Aftur á móti er það regla hjá mörgum spilurum að opna ekki á grandi, nema þeir eigi fyrirstöðu í öll- um litum og kann að vera að Austur hafi álitið það vera svo í þessu spili. Á hinu borðinu spiluðu Ásmundur og Hjalti 4 spaða og þar sem ekki var komið út í hjarta unnust 7 spað- ar. Sveit Einars fékk því sam- tals 810 fyrir spilið eða 14 stig. 4 8 7 2 ¥82 ♦ K D G 3 * K D G 2 lente, að hann er nú í útlegð í Tékkóslóvakíu. Uppgjör framundan ? Kommúnistar vilja losa sig við Castro. Hvenær rétti tím- inn til þess kemur, er ekki gott að segja. Castro fellir sig ekki við alkommúnistisk- ar starfsaðferðir, þótt hann kenni sig við Marx og Lenin. Hins vegar hefur honum ekki tekizt það, í nafni þeirrar og að honum skuli ekki hafa tekizt það í nafni þeirrar stefnu, sem hann segist fylgja, er kommúnistum þyrn ir í augum. Báðir aðilar hafa sínar sterku hliðar. Castro, mynd hans, sem öll þjóðin þekkir, nýtur víða vinsælda. Komm- únistarnir hafa til að bera meiri skipulagshæfileika, hafa sýnt kaþólsku kirkjunni meiri þolinmæði, og telja sig vafalaust geta komið betra lagi á efnahagsmálin, enda trúaðir bókstafsmenn. Sem stendur virðast báðir aðilar þannig hafa nokkra þörf fyrir hinn, þrátt fyrir baráttu undir niðri. Hve lengi það ástand varir, og hver verða úrslitin er erfitt að spá um. Fundabann Ndola, Norður Rhodesíu, STJÓRNIN í Norður Rhodesíu hefur lagt bann við öllum funda- höldum og mannamótum í Ndola. Bannið íekur gildi á laugardag og stendur um óákvæðinn tíma. f Ndola og nágrenni hafa nokkr um sinnum i Iþessum mánuði orð ið óeirðir og mokkrir Afríku- menn látið lífið. Neskaupstab Þiljuvöllum 14 Kjörgarði — Laugavegi 57 Sími 16975 HornafirBi Þorgeir Kristjánsson MEZZINA Gullfallegt. fyrirferðalítið, sterkt og vandað sófasett. Mezzina ber mjög hrelnan og fagran svip og uppfyll- ir því óskir ungu hjón- anna, sem gera miklar kröfur til smekks og þæg- inda. Mezzina-sófasettið ber svipmót ítalskra hús- gagna eins og nafnið bendir til. Mezzina settið hentar í allar stærðir af stofum. Mezzina fæst með mörgum mismunandi gerð um og litum af áklæði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.