Morgunblaðið - 22.05.1962, Side 16
115. tbl. — Þriðjudagur 22. maí 1962
SIA-menn seilast til valda
í kommúnistaflokknum
f „RAUÐU bókinni", skýrsl-
um SÍA-manna, úir og grúir
af upplýsingum um valda-
streitu SÍA-manna og áform
þeirra um að ná áhrifum og
yfirráðum í kommúnista-
flokknum. Þeir hafa stofnað
„áhugamanna-aktiv“, því að
þessum skóluðu kempum
sárnar „niðurlægingin og
deyfðin” hér heima. Þeir
vilja „princip-trúleika og
proletarinternationalisma“ að
austrænum sið, en hafa litla
trú á „óbreyttum“ flokks-
mönnum.
Skal hér getið nokkurra tilvitn
anna úr skýrslum þeirra:
„Þess má geta, að fjórir af
fimm SÍA-mönnum Ihér í Reykja
vik voru kjörnir á þingið (þ. e.
17. þing Æskulýðsfylkingarinn
ar. innskot Mbl.) Allir sátu þeir
þingið í fyrsta sinn og saman
burði við fyrri þing verðum við
því að byggja á umsögn annarra
manna".
Stofna ,,áhugamannaaktiv“
,,Eins og félögum okkar er-
lendis er kunnugt, höfðum við
í haust huga á að freista þess að
beita áhrifum okkar innan ÆFR.
Stofnuðum við í þvi tilefni nokk-
urs konar ,,aktiv“ áhugasamra
félaga og kynntum skoðanir okk
ar Og sjónarmið. Má segja, að
við höfðum fengið mjög góðar
undirtektir, enda margir félag-
ar óánægðir og sárir yfir þeirri
niðurlægingu Og deyfð, sem fé-
lagið hefur orðið að bráð undan
farin ár.
Starfi þessa áhugamanna-
aktivs lauk svo með því, að aðal-
fundur ÆFR, sem haldinn var
um miðjan október, kaus þrjá
SÍA-meðlimi í stjórn félagsins
(Eysteinn Þorvaldsson — for-
maður, Vilborg Harðardóttir —
ritari, Franz Gíslason — gjald-
kerfi)“.. . „Menningarstarfsemin,
sem við höfum komið ó fót í fé-
laginu, (þ. e. Æikulýðsfylking-
unni, innskot Mbl.) hefur einna
mest mætt á SÍA-manninum
Árna Björnssyni, sem er formað
ur skemmtinefndar félagsins.
Björgvin (Salómonsson. Innskot
Mbl.) er starfsmaður félagsins
og auk þess í fræðslunefnd og
verkalýðsnefnd., svo að segja má
að allir SÍA-félagar í Reykja-
vík séu önnum kafnir í félags-
starfinu“.
Ná æðstu valdastöðum ÆF.
,,18. þing ÆF sátu ekki færri
en sex SÍA-félagar (Björgvin,
Eysteinn. Hjalti, Árni, Vilborg,
Franz). Sýnist þetta hafa verið
þeim princip- trúleika, og px-olet
arinternationalisma, sem SÍA á
að útplanta, þó nokkur trygging
þar á þinginu. Og SÍU-félagar
fá enn betra tækifæri hér eftir
en hingað til, til að láta að sér
kveða, þar eð úr þeirra hópi
faópi völdust ýmsir æðstu menn
sambandsins næsta starfsár
(Björgvin — varaforseti, Ey-
steinn — ritari).
Þetta þing varð að vísu allgott.
Rifrildi var ekkert um grund-
vallaratriði starfs og stefnu.
Lokatakmarkið — sósíalisminn,
var ekkert feimnismál, og kom
glöggt í ljós almennur pólitískur
raunsæisþroski. Einar Olgeirsson
flutti erindi á þinginu, vakti at
hygli á þessu síðasttalda, kvaðst
bæði dást að þfví og harma
það. Æska sinnar táðar hefði ver
ið full spámannalegra framtíðar
sýna og eldmóðs til að höndla
þær, en við vænxm eins og gaml-
ir pólitíkusar. Nærri því virtist
sem Einari finnist æskan megi
fyrr flest skorta en pólitískt hug
arflug — einkonar utópisma.
Athugar hann ekki að þjóðfélag
peninganna er raunsætt og líka
sú æska sem það elur upp, þó
aldrei nema til andstöðu?"
„Taka þátt í aðförinni að Rétti“
Um klúbb, sem nokkrir komm-
únískir menntámenn hafa stofn.
ag, segir í „Rauðu bókinni“:
„Stofnun klúbbs þessa virðist
okkar bera vott um tvennt: í
fyrsta lagi finnst okkur illt að
það skyldi ekki vera flokkurinn,
sem hafði forgöngu um þetta. í
öðru lagi finnst okkur þó gott, að
hópur manna skyldi þó sýna
þetta frumkvæði. Við álítum að
hópur sem þessi geti komið
flokknum að miklu gagni, ef
hann kann að notfæra sér mögu
leikann. Við teljum að róttækir
menntamenn ættu að vera bezt
til þess fallnir, hver á sínu sviði,
að rífa niður á vísindalegan hátt
blekkingax-vef hinna ýmsu borg-
arlegu ,,sérfræðinga“, sem ríkis-
stjórnir ota fram til réttlætingar
ilivirkjum. f hópi þessum gæti
auk þess verið vísir að stærri
stofnuxj, sem hefði það verkefni
að byggja stefnu flokksins upp
á vísindalegum grundvelli. Við
tökum undir að þarna gæti verið
liðsauki við SÍU á ferðinni.
Leggjum við til, að Reykjavíkur-
SÍA hafi samfaand við þennan
hóp, favetji hann til að taka þátt
í aðförinni að Rétti; til dæmis
gætum við ímyndað akkur fyrir-
lestur Ingvars Hallgrímssonar,
en aðrir slíkir gætu vel átt
heima í ritinu“.
„Sök Einars Olgeirssonar “
SÍA gefur út blað, sem nefnist
Vandi. Ágreiningur var um.
hverjir mættu sjá það og segir
um hann:
„Var því samþykkt að þeir
Guðmundur (Magnússon, inn-
skot Mbl.), Jón (Böðvarsson, inn
skot Mbl.) og Finnur (Hjörleifs
son, innskot Mbl.) skyldu eftir-
leiðis fá blaðið, en ekki skyldi
því dreift út meðal óbreyttra
fylkingarmanna, þar sem það
væri varla í samræmi við efni
þess. Guðmundur óskaði enn-
fremur eftir að sjá skrá yfir
áskrifendur Vanda".
í löngu máli er lýst ágreiningi
SÍA við Æskulýðsfylkinguna, en
hinir fyrrnefndu höfðu neitað að
láta Æskulýðsfylkingunni í té
upplýsingar um starfsemi sina.
Var sáttafundur haldinn, auðvit
að ekki á íslandi, heldur úti í
Rostock ög fóru þeir þrír, sem
áður voru nefndir, héðan til þess
fundar, en Einar Olgeirsson. var
þar einnig sem sáttasemjari. Um
þetta segir m. a.:
„Guðmundur tók nú til máls og
flutti álit forystu fylkingarinn-
ar. Gat hann þess að hann faefði,
ásamt Árna Björnssyni, verið kos
inn í nefnd til að ræða tillögur
um lausn þessara mála. Annars
var það einkum tvennt, sem Guð
mundur beindi gagnrýni sinni að.
f fyrsta lagi kvartaði hann undan
skorti á upplýsingum um starf
SÍA og önnur plögg, sem félag-
inu tilheyrðu. Á þetta hefði mjög
reynt s.l. vetur, þegar ÆF fór
að skipta séz af námsmannasend-
ingum austur fyrir tjald (það var
annars verkefni flokksins, inn-
skot Mbl.) Þá var kosin nefnd
til að safna upplýsingum um
námsfólk og mjög hefði á skort
að samvinnan við SÍA hefði
verið eins og bezt varð á kosið.
— Annað dæm; nefndi hann . . .
í því máli hefði ÆF staðið mjög
illa að vígi vegna skorts á upp-
lýsingum. Tryggvi skaut inn í,
að það rnundi vera sök Einars
Olgeirssonar Guðmundur svar-
aði því til að það byggðist á
ágreiningi Einars ög fram-
kvæmdanefndar í þessu máli.
Taldi hann því, að SÍA hefði átt
að gefa framkvæmdanefnd sem
allra beztar upplýsingar um mál
ið. Eysteinn skaut því inn í, að
Guðmundur mundi hafa fengið
bréf um málið. Guðmundur kvað
svo vera, en í því bréfi hefðu
verið ófullnægjandi upplýsingar.
Hann sagðist heldur ekki hafa
fengið nægar upplýsingar frá
SÍA-mönnum á fslandi. Kvart-
aði hann undan því að deild
þessi starfaði sem leynífélags-
skapur og vekti talsverða tor-
tryggni. Mcðlimir hennar kæmu
skýrslum aldrei út fyrir sinn
hring: Gat hann þess m. a. að
skýrslu Sigursveins um starf-
^pina á Siglufirði hefði hann
aldrei séð og fylkingin enga
skýrslu fengið um þau efni frá
Siglufirði. í stuttu máli sagt,
þar sem væri íslandsdeild SÍA
væri kominn upp vísir að klíku-
starfsemi“.
Sloápur nr. 1
Ján Böðvarsson tók einnig til
máls Og sagði m. a.:
„Eðlilegast væri að skýrslur
SÍA yrðu geymdar í skjalasafni
ÆF í skáp nr. 1. Þá gat Jón
þess, að ríkjandi væri það álit
meðal margra fylkingarfélaga,
að SÍA liti niður á fylkinguna.
Þessa og aðra tortryggni gegn
SÍA væri nauðsynlegt að ræða
til botns“.
Tryggvi Sigurbjarnarson sagði:
.Sá ótti virðist hafa gripið um
sig innan hinnar sósíalísku hreyf
ingar á íslandi, að SÍA-menn
hyggðu á valdatöku".
,,Pólk innan flokksins og fylk
ingarinnar er nú mjög tekið að
spekúlera í og spyrja um, favað
þessi SÍA sé nú eiginlega og eru
margir hverjir tortryggnir í garð
samtakanna".
Karlakorinn Geysir frá Akureyri hefur verið í söngför hér á Suðurlandi og sungið við góðar
undirtektir í Keflavík, Vestmannaeyjum og í gærkvöldi á Seifossi. Söngstjóri er Ámi Ingimund-
arson, en einsöngvari Jóhann Konráðsson. Kórinn kemur hingað til Reykjavíkur í dag og syngur
í kvöld í Austurbæjarbíéi.
Framsóknarmennirnir
fengu samband viö Rússa
I UM MIÐJAN nóvem.ber i
fyrra voru hér á ferð tveir
Rússar á vegum Æskulýðs-
fylkingarinnar, samtaka ung-
kommúnista Annar þeirra
mun hafa verið aðalrit-
ari ungkommúnistadeildarinn
ar í Volgagrad, en hinn for-
maður stúdentafélags sinnar
háskóladeildar í Moskvu, og
stundaði „pólitísk fræði“. Má
segja, að þessi heimsókn út af
fyrir sig sé ekki í frásögur
færandi jafnmargir „íslenzk-
ir“ ungkomxr.únistar og notið
hafa gestrisni austur í
Moskvu, þegar þeir hafa
brugðið sér þangað til
„náms“, né heldur hitt að
Rússarnir skyldu hafa áhuga
á að komast inn á Keflavík-
urflugvöll.
Hitt mun þykja forvitni-
legt, að tveir af forystumönn
um ungra Framsóknarmanna,
þeir Hörður Gunnarsson
og Örlygur Hálfdánarson,
skyldu óska einkaviðtals við
Rússana og halda með þeim
tvo fundi.
Rússarnir munu hafa haft
mikið gaman aí viðtoiunum
við þessa tvo forystumenn
ungra Frairoóknarmanna, en
spurning er hvort allir Fram-
sóknarmenn gleddust, ef þess
ir tveir heiður«menn fengjust
til að upplýsa, um hvað þeir
ræddu við þessa erindreka
Moskvuvaldsins.
Þing Samhands ísL
barnakennara
SAMBAND islenzkra barnakenn
ara hefur ákveðið að halda full-
trúaþing sitt í sumar, þegar skól
ar hafa lokið störfum, og ræða
þar þau mál stéttarinnar, sem
nú eru efst á baugi.
Þingið verður sett í Melaskól-
anum í Reykjavík sunnudaginn
3. júní. Rætt verður um launa-
og kjaramál kennara og þau við-
horf, sem þar hafa skapazt,
barnabókmenntir, námsbækur,
fræðslumyndir o. fl.
Dr. Símon Jóh. Ágústsson flyt-
ur erindi um barnaibókmenntir,
og í sambandi við það verður
efnt til sýningar á íslenzkum
barnabókmenntum.