Morgunblaðið - 31.05.1962, Síða 2

Morgunblaðið - 31.05.1962, Síða 2
2 MORGWNnr/AÐIÐ Fimmtudagur:31. maí 1962 „Litlu verður Vöggur feginn“ TIMINN hefur verið mjög kotroskinn yfir kosningaúr- slitunum og m.a. státaS af því, að Framsóknarflokkurinn sé orðinn stærri en Alþýðubanda lagið í kaupstöðunum. og því næst stærsti stjórnmá.laflokk urinn þar. Þjóðviljinn var hinn versti yfir þessu í gær og kallaði þetta „Furðulegar reikningsfalsanir Tímans/' þar sem fylgi kommúnista í Kópa vogi og Ólafsfirði hefði gleymst. Er nú um langt skeið, sem alvarlega hefur sletzt upp á vinskapinn hjá þessum flokkum, enda við- kvæmur blettur á báðum, hvor eigi minna fylgi að fagna í kaupstöðum landsins. Endalaust má um það deila hver sé hinn raunverulegi mælikvarði, sem Ieggja beri á úrslit kosninga. Þannig leggur Tíminn út af bæjar- stjórnarkosningunum 1958, þegar hann talar um Sjálf- stæðisflokkinn, vendir síðan kvæði sínu í kross og talar um alþingiskosninglarnar haustið 1959, er hann talar um fylgi Alþýðuflokksins. Það sjá allir menn, að þetta getur ekki gengið. En sjálfsagt er þó að koma nokk uð til móts við Framsóknar- menn og miða við alþingis- kosningarnar vorið 1959, þar sem þær koma þarna á> milli og eru því eins konar m.sðal- tal. En í þeim kaupstöðum sem Framsóknarflokkurinn bauð l einn fram bæði þá og nú hef- ur hann bætt við sig 500 at- kvæðum. Má það sannarlega ekki minna vera, til að verj- andi sé að hafa fimm dálka á forsíðu, eins og Tíminn hafði á þriðjudag: „Þáttaskil hafa orðið í flokkaskipan landsins." Nú er það svo, að menr. vita það oft með sjálfum sér og verða varir við það, er þeir hafa viljandi tekið heldur djúpt i árinni, svo ekki sé meira sagt. Svo virtist þó ekki með Tímam.enn á þriðju daginn, þvi að þegar þeir sáu hina glæsilegu forsíðufyrir- sögn, fannst þeim ástæða til að leggja út af henni með þeim orðum í leiðara, að Fram- sóknarflokkurinn væri senni- lega orðinn „jafnoki SjáJfstæð isflokksins í kauptúnunum og vel það!“ Ekki er kyn þótt keraldið leki!“ Leikararnir í Kviksandi, talið frá vinstri: Þorsteinn Gunnarsson, Steindór Hjörleifsson, ErU ingur Gíslason, Bryndís Pétursdóttir, Brynjólfur Jóhannesson, Helga Bachmann, Helgi Skúla- son, Birgir Brynjólfsson og Gísli Halldórsson. L.R. fer með Kviksand út á LEIKFÉLAG Reykjavíkur er að Ieggja af stað í leikför um land- ið með leikritið Kviksand, sem sýnt hefur verið í Reykjavík í vetur við mikla aðsókn. Frum- sýning úti á landi verður n.k. laugardag á Akureyri. í leikflokknum eru 8 leikar- ar. Aðalhlutverkin leika Stein- dór Hjörleifsson, Helga Bach- mann, Gísli Halldórsson, Brynj- ólfur Jóhannesson og aðrir eru Helgi Skúlason, Erlingur Gísla- son, Birgir Brynjólfsson og Bryn dís Pétursdóttir. Verður farið með tjöld og allan útbúnað sem notaður var í Iðnó. Frá Akureyri verður farið Rætt um hluta- skiptin á síldeiðununk FULLTRÚAR útvegsmanna óg sjómanna hittust í gær hjá sátta semjara ríkisins, Torfa Hjartar syni, til að ræða ágreiningin um hlutaskiptin á síildveiðunum, en hætt er við að síldarflotinn stöðv ist um mánaðarmótin, náist ekki samkomulag. Var skipuð sérstök undimefnd til að athuga ágrein ingsefnin. í henni eiga sæti Haf steinn Baldvinsson og Svanur Sigurðsson fyrir útvegsmenn, og fyrir sjóm«nn Tryggvi Helgason og Jón Sigurðsson. Sat nefndin á fundi alian daginn í gær. Humarveið- in byrjuð AKRANESI, 30. maí — Þr,V humarbátar komu hingað inn af veiðum í dag. Aflahæstur var As björn með 7 lestir, Sæfaxi 4)6 og Ásmundur 3,2 lestir. Humar inn er stór og fallegur. Auk hum arsins fengu þeir slangur af þorski, ýsu, skötusel og fleiri fisktegundum. Mikil vinna verð- ur kringum humarinn. Oddur. Nýtt listasafn verður reist í Kópavogi eðo Reykjavík Lisfaverkabók getur gefið 7,5 millj. i byggingarsjóð ER Ragnar Jónsson, forstjóri gaf í fyrra Alþýðusambandi íslands málverkasafn sitt, var það hug- mynd hans að málverkin yrðu stofn að alþýðulistasafni og fylgdi gjöfinni fyrirheit um að 1 NA /5 hnúhr\ H Snjóioma 1 y SV 50 hnúhA * Úii Kf Skúrir K Þrumur W*£, KuUashi! ‘Zs' HiUtkH H Hm$ f, ,4at£. . Svart: Svein Johannessen, ósló ABCDEFGH m m. ■ r 4 ABCDEFGH Hvítt: Ingi R. Jóhannsson 16. Rbl—d2 Eins og kortið ber með sér, er háþrýstisvæði yfir austan verðu Atlantshafi og norður um ísland og Austur-Græn- land. Hins vegar er regn- svæði yfir sunnanverðu Græn landshafi að þokast norðaust ur á bóginn. N-áttin hér á landi er að fjara út og suðlæg átt verður sennilega ríkjandi næstu daga — með hlýnandi veðri. Um hádegið var 2 st. frost á Grímsstöðum, um 7 st. hiti í Rvík. Veðurhorfur kl. 22 í gærkvöld: Suðvesturland og miðin: — SA og síðan S stinningskaldi og síðan rigning. Faxaflói, Breiðafjörður og miðin: Vaxandi SA-átt og þykknar upp, kaldi eða stinn ingskaldi og rigning þegar líður á nóttina, sunnan stinn ingskaldi og súld, þegar kem ur fram á daginn. Vestfirðir og miðin: SA- stinningskaldi og rigning með morgninum, S og SV-stinn- ngskaldi og súld, þegar kem- ur fram á daginn. Norðurland og miðin: Hæg suðlæg átt og skýjað í nótt, kaldi og dálítil rigning á morg un. Norðausturland og Aust- firðir og miðin: SV-goIa, bjart veður. Suðausturland og miðin: Þykknar upp með S-kalda í nótt, dálítil rigning eða súld á morgun. fyrirtæki hans Helgafell, mundi gefa út 5000 eintök af yfirlitsbók um íslenzka myndlist, og skyldi andvirði bókarinnar renna til að byggja safnhús. Er nú verið að fara af stað með áskriftasöfnun að bók þessari, sem kemur út á næsta ári. Stjórn Listasafns ASÍ, sem er sjálfseignarstofnun, ræddi við fréttamenn í gær, og skýrði for- maður hennar, Hannibal Valdi- marsson svo frá, að nefndin hefði sótt um lóð fyrir listasafn- ið bæðj til Reykjavíkurbæjar og Kópavogskaupstaðar, og ekkj ein ungis venjulega byggingarlóð, heldur nokkurra hektara land, til að mynda umgjörð um safnið, þar sem yrði gróður og högg- myndir úti, í samræmi við þá stefnu sem nú er í byggingar- málum listasafna í heiminum. Lágar byggingar í fögrum garði Hafa stjórninni borizt tilboð frá báðum aðilum, Reykjavíkur- bær býður 600 ferm. hornlóð á gatnamótum Miklubrautar og Háaleitisvegar. En Kópavogs- kaupstaður alls tveggja hektara lóð á utanverðu Kársnesi, við sjóinn niðri við Fossvoginn. Er sú lóð allt að 2 hektarar af góðu landi, en rétt við hefur verið sótt um leyfi til að reisa og koma upp fiskasafni, sem stjórn- in telur að mundi vera gott að hafa í sambýli við safnið. Annars hafa engar ákvarðanir verið tekn ar um hvor staðurinn verður fyr ir valinu. Hugsar safnstjórnin sér að miða bæði staðsetningu bygging- ar við að þetta verði safnbygg- ing í nútíma skilnimgi, lágar byggingar, þar sem hægt er að hafa hljómleika og fyrirlestra í safnhúsinu og eins útistöðu fyrir höggmyndir 1 garði, líkt og er t. d. í Lousiana safninu danska, sem er 34 km frá Kaupmanna- höfn. Framb. á bls. 23 austur um land og sýnt á öllumi stærri stöðum. í bakaleiðinni verður komið í stærri kauptún á Norður- og Vesturlandi, þar með taldir Vestfirðir. Undanfarin ár hefur Leikfé- lag Reykjavíkur farið í leikferð ir um landið, en venjulega með gamanleiki, Tannhvassa tengda- mömmu, Deleríum bubonis o.fl., en Kviksandur er fyrsta leikrit- ið alvarlegs eðlis, sem farið er með slíka ferð á seinni árum, Enda segir formaður félagsins, Helgi Skúlason, að flokkarnir hafi orðið þess varir á íerðum sínum, að fólk óskar eftir að fá að sjá einhverjar af betri sýn- ingum félagsins. Og síðan „Allir synir mínir“ var á ferðinni, er þetta það leikritið, af þessu tagi, sem bezt hefur gengið í Reykjavík. Leikförin er farin með stuðn- ingi menntamálaráðs, sem þann ig vill stuðla að kynningu á list úti á landsbyggðinni. Sjálíkjörið í Garðahreppi ER FRESTUR rann út hlnn 23. þessa mánaðar til að skila fram- boðslistum í Garðahreppi til væntanlegra kosninga til sveit- arstjórnar í júnílok varð Ijóst að aðeins einn listi kom fram. Listi þessi var borinn fram af óháðum kjósendum í hreppn- um, studdur af Sjálfstæðisfélag- inu og fulltrúum annarra flokka í hreppnum. Því verður um- ræddwr listi sjálfkjörinn og fara því kosningar til sveit- arstjórnar eða sýslunefndar í Garðaihreppi ekki fram að þessu sinni. Listinn er skipaður eins og hér segir: Aðalmenn í sveitarstjórn: Ein- ar Halldórsson, Setbergi, Björn Konráðsson, Vífilsstöðum, Sig- ríður Johnsen, Marklandi, Guð- mann Magnússon, Dysjum, Sveinn Ólafsson, Silfurtúni. Varamenn: Kristján Guð- mundsson, Hrafnbólum, ólafur Vilbjálmsson, Bólsstað, Skafti Þóroddsson, Silfurtúni, Viktor Þorvaldsson, Vífilsstöðum, Gisli Guðmundsson, Hlíð. Það var einnig einróma álit allra, sem listann báru fram, að tryggja bæri að núverandi sveit- arstjóri hreppsins, Ólafur G. Einarsson, gæfi kost á sér til á- framhaldandi starfa sem sveit- arstjóri Garðabre^-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.