Morgunblaðið - 09.06.1962, Blaðsíða 11
Laugardagur 9. júní 1962
MORGVISBLAÐIÐ
11
Stúlka
helzt vön kvenfatasaumi óskast strax.
Verksmiðjan EYGLÓ
Skipholti 27.
Múrarar
Tilboð óskast í utanhúss múrverk á sam-
býlishúsi í Kópavogi-
Upplýsingar gefnar í síma 35116.
Opið á hvítasunnudag
FRÁ KL. 11 f. h. TIL KL. 23,30 e.h.
HÁTÍÐA MATIIR
HÁTÍBA KAFFl
IIÁTÍDA KAFFIBRAUÐ
UM HELGINA BORÐAR ÖLL FJÖLSKYLDAN A
MATSTOFU AUSTURBÆJAR
Annar í hvítasunnu opið
EINS OG VENJULEG FRÁ KL. 9 f. h.
HRAÐI — GÆÐI — I>ÆGINDI
MATSTOFA AUSTURBÆJAR
Laugavegi 116 — Sími 10312 — Laugavegi 116.
Útflytjendur pólsku
kolanna
„Weglokoks"
tilkynna heiðruðum viðskiptavinum sínum
að frá og með 1. apríl 1962 hefir firmað
Kol og Salt, Reykjavík tekið að sér einka-
umboð fyrir þá.
Jafnframt hættir firmað F. Kjartansson
Reykjavík að starfa sem einkaumboðs-
maður fyrir „Weglokoks '.
Kaupmannahöfn — 3 dagar til fróðleiks og skemmtunar. —
Rínarlönd — nokkrir dagar í hinum yndislegu þorpum og borgum við Rín, m. a. hinu
glaðværa Riidesheim, einnig Köln, Bonn, Koblenz, Sigling á Rín. Heidelberg, háskóla-
borgin fagra við Neckar. Eftir fegursta þjóðv egi Þýzkalands með bifreið gegnum Svarta-
skóg. hjá Rínarfossum til Sviss. 5 dagar í borgum og fjalladýrð Svisslands, fagrar borgir,
vötn, skógar og fegursta landslag Evrópu. — París. 4 dagar í fegurð, glaum og gleði
hinnar töfrandi heimsborgar. Þér getið dvalizt lengur í París og notað farseðil yðar
heim síðar með viðkomu í Bretlandi, ef þér óskið. Undanfarin ár höfum við ekki getað
sinnt öllum pöntunum í þessa ferð, sem í ár verður þægilegri en nokkru sinni fyrr. Engar
þreytandi dagleiðir, aðeins 4 dagar í bíl eftir fegursta hluta leiðarinnar. Gisting og fæði
á völdum stöðum, t. d. Stiftsmúhle — Heidelberg, Belvedere — Interlaken og Palais
d’Orsay í París. Þaulkunnugur fararstjóri leysir úr hverjum vanda. Fjölbreytt og skemmti
leg ferð fyrir ótrúlega lágt verð. — Örfá sæti laus.
til Austurlanda
6.-27. okt.
VÍNARBORG — ISTAN-
BUL — AÞENA —
DELFI — BEIRUT —
DAMASKUS —
JERÚSALEM — CAIRO
RÓMABORG - LONDON
Hér kemur tækifærið,
sem margir hafa beðið,
til að líta eigin augum
staðina, þar sem mann-
kynssagan hefur gerzt.
En þér kynnizt einnig
háttum og siðum Austur-
landabúa í seiðmögnuð-
um töfraheimi Þúsund
og einnar nætur. Ferð,
sem auðgar lífsreynslu
yðar, dýpkar þekkingu
yðar og skilur eftir
ógieymanlegar minning-
ar. Ferðin verður svo
þægileg sem hugsazt
getur. Gist verður á úr-
valsgistihúsum, t. d.
Hilton í Miklagarði og
Ambassadeurs í Aþenu.
Með fyrsta flokks uppi-
haldi og þjónustu kostar
ferðin aðeins sem svarar
fargjöldum í ferð ein-
staklings. Nú eru aðeins
12 sæti laus: Dragið ekki
að hafa samband við
skrifstofuna og leita nán-
ari upplýsinga.
BRETLANDSFERÐ
16.—28. júní
UPPSELT.
Enn eru nokkur sæti laus
í þessum ferðum:
PARÍS—LONDON
13.—25. júlí.
Hver heillast ekki af
glaðværð Parísarborgar
á þjóðhátíðardegi
Frakka?
Hálfsmánaðardvöl í
heimsborgunum tveim
fynr lágt verð. Hentug
verzlunar- og skemmti-
ferð.
MIÐ-EVRÓPU FERÐ
11.—28. ágúst.
KAUPMANNAHÖFN
— RÍNARLÖND — SVISS — PARÍS —
Hrífandi ferð til hinna fögru, lífsglöðu borga MADRID —
CORDOVA — SEVILLA — MALAGA — GRANADA —
ALICANTE — VALENCIA — BARCELONA með við-
komu í LONDON. Ferðin er góður sumarauki, farin á
bezta árstíma, meðan enn er hásumar en hiti hæfilegur
og hinir fjölbreyttu, litríku ávextir landsins glóa í allri
sinni dýrð. Hver er sá, sem ekki heillast af dönsum,
söngvum og gláðværð þessa töfrandi lands?
Ferðafélagið ÚTSÝN
Nýja Bíói, Lækjarg. 2 — sími 2-35-10.
ÞaS er ekki tllviljun, að ferðir Útsýnar hafa verið full-
skipaðar sl. 7 sumur. Það eru ferðir, sem njóta vinsælda
Og trausts, sökum þess að þær eru öruggar og skemmti-
legar og tryggja yður beztu þjónustu og aðbúnað fyrir
lægsta verö.
MEÐ ÚTSÝN TIL ANNARRA LANDA