Morgunblaðið - 09.06.1962, Qupperneq 20
20
MORGlJyBLAÐlh
Laugardagur 9. Júní 1962
___ Alexander Fullerton 3
Guli Fordinn
Næsta morgun var ég á fótum
klukkan sex og át svo máltíð,
sem átti að vera hvort tveggja í
senn, morgunverður og hádegis-
verður, eftir þrjú hundruð mílna
ferð, á stað sem heitir Edenburg
í Óraníu friríkinu. Það var ekki
mikið liðið á síðdegið þegar ég
fór yfir Vaal-ána, og um kaffi-
tima var ég kominn inn í miðja
umferðarþvöguna í Jóhannesar-
borg. Það er orðtak í þeirri borg,
að ef gangandi maður sést þar á
götu, þá sé það maður, sem hef
ur verið svo heppinn að ná í
stæði fyrir bílinn sinn. Ég svip-
aðist ekki einusinni um eftir
stæði, því að Jóhannesarborg er
staður, sem ég stanza ekki á, ef
ég get komizt hjá því. Eg ók
gegn um borgina eins hratt og
ég gat fyrir umferðinni og tók
ekki umferðarreglurnar hátíð-
legar en ég þurfti, en mér miðaði
nú ekki mikið áfram fyrir því og
klukkan var orðin sex þegar ég
kom til Pretoríu. Eg kom mér
iþar inn í lítið gistihús í útjaðri
horgarinnar, og sofnaði þar með
ianga rönd af malbiki fyrir aug-
unum og glamrið í bílunum, sem
Hljómsveit
ÁRItiA tlfAR
ásamt vestur-íslenzka
söngvaranum
HARVEY mm
KALT BORÐ
með léttum réttum frá kl.
7—9. Borðapantanir í síma
15327.
Opið á II í hvítasunnu til ki. 1.
fram úr mér óku, glymjandi í
eyrunum.
Þriðja daginn fór ég enn eld-
snemma af stað, en í þetta sinn
hafði ég brauðpakka við hlið-
ina á mér í sætinu, og bar ekk-
ert til tíðinda og allt gekk sam-
kvæmt áætlun. Fjórða daginn
var ferðalagið auðvelt og ánægju
legt: fyrst til Umtali og svo það
an til Salis'bury eftir ágætum,
malbikuðum vegi. Þangað kom
ég síðdegis, eftir hálfs fjórða
dags ferð yfir sautján hundruð
mílur frá Höfðaborg. Fyrsta verk
mitt var að hringja til Harry
Clewes í skrifstofunni hans.
Hann er trygginga-umboðsmað-
ur. Símastúlkan hjá honum lét
mig bíða nokkra stund, og svo
kom hann í símann, önugur, eins
og von var til jafn niðursokkinn
og hann hafði verið í krossgát-
una sína. Clewes hér!
Halló, Clewes! Ted hér.
Andartaks þögn. Síðan sagði
hann, einhvernveginn svo
áherzlulaust: Ted. Skrítið, að þú
skyldir einmitt hringja.
Ég hafði ekki búizt við þess-
um viðbrögðum. Það var hvorki
undrun né fögnuður í málrómn-
um. Ég spurði því dálítið hvasst:
Hvernig er það skrítið?
Aftur varð ofurlítil þögn og
ég gat heyrt andardrátt hans í
símatólið. Svo spurði hann: Hver
fjandinn sjálfur var í þessu glasi,
sem þú varst að gseða mér á í
gærkvöldi?
Eg hló. Þú hefur fengið vit-
lausan Ted. Þettá er Ted Car-
penter. Eg drakk einn í gær-
kvöldi. Það tók dólitla stund að
sannfæra hann um, að ég væri
raunverulega Ted Carpenter, en
loksins þegar hann hafði sann-
færzt um það enda þótt hann
væri eitthvað óvenju seinn að
hugsa komst allt í lag okkar í
milli. Við ákváðum, að hann og
Viktoría, konan hans, skyldu
borða með mér þá um kvöldið í
gistihúsinu mínu og daginn eltir,
sem var laugardagur, skyldi ég
borða með þeim hádegisverð í
Nýja Klúbbnum og fara svo með
þeim á veðreiðarnar. Harry er
ágætur til að fara með honum
á veðreiðar í Salisbury — hann
á tvo hesta og veit alltaf, hverj-
ir af öllum hinum eru líklegast-
ir til að sigra.
Ef ykkur finnst þetta útúrdúr,
vil ég geta þess, að það var
einmitt þennan laugardag síðdeg
is, í girðingunni, sem var ætluð
félögum veðhlaupaklúbbsins, sem
allt byrjaði.
3.
SAGA TEDS — II.
Þegar ég nú segi söguna á
svona löngu færi, ef svo mætti
segja, svo langt frá þeim ein-
kennilegu atburðum, sem urðu
upphafið að henni, verð ég að
loka huganum fyrir Öllu öðru og
reyna að handsama allt andrúms
loftið, eins og það hiýtur að hafa
verið þegar sagan gerðist. Eg
býst að vísu við, að í þá daga
hafi ég stundum haft einhverjar
smávægilegar áhyggjur, svo sem
af verkinu, sem ég átti að fara
að vinna, vafa um hagsmunaleg-
an ábata af þvi, kostnaðarhiið-
inni af fyrirtækinu og svo því,
hvort bíllinn hans Jimmys mundi
standast raunina, án þess að
koma mér í vandræði. En þegar
ég nú lít til baka, man ég ekki
eftir að neitt af þessu hafi legið
neitt sérlega þungt á huga min-
um. Ég var hraustur og sæmi-
lega stæður, einkalíf mitt var
ekki lengur nærri því eins flók
ið og margbrotið og það hafði
verið — ég átti að fara að horfa
á veðreiðar, eingöngu til að
skemmta mér, og mér var ná-
kvæmlega sama hvort ég ynni
eða tapaði á veðmálunum. Yfyr-
leitt hef ég líklega verið alveg
ánægður, enda þótt ég geti
kannske ekki fullyrt neitt um
það eftir öll þessi ár.
Ég hafði að minnsta kosti etið
ágætis hádegisverð með Harry
og Viktoríu. Klúbburinn þeirra
hafði verið troðfullur af fólki,
sem ætlaði — eins og við — að
eyða því sem eftir væri dagsins
á veðhlaupasvæðinu, og þarna
var andrúmsloftið svo fullt af
kæti og gleði, að það mátti næst-
um snerta það. Mér hafði alltaf
fundizt Salisbury glaðlegur stað
ur — staður þar sem menn njóta
lífsins af því að dagurinn í dag
sé góður og morgundagurinn
verði líklega enn betri.
Fyrir hádegisverðinn, fengum
við okkur að drekka við skenki-
borðið. í augum Suður-Afríku-
búa eru þessi skenkiborð aðlað-
andi einkenni á gistihúsum í
Ródesíu, af því að þar koma
SHtltvarpiö
Laugardagur 9. júní.
8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05
Morgunleikfimi — 8.15 Tónleik-
ar. — 8.30 Fréttir — 8.35 Tón-
leikar. — 10.10 Veðurfregnir).
12.00. Hádegisútvarp (Tónleikar. —
12.25 Fréttir og tilkynningar).
12.55 Óskalög sjúklinga (Bryndís
Sigurjónsdóttir).
14.30 Laugardagslögin. — (15.00 Fréit-
ir).
15.20 Skákþáttur (Ingi R. Jóhanns-
son).
16.00 Framhald laugardagslaganna.
16.30 Vfr. — Fjör í kringum fóninn:
Úlfar Sveinbjörnsson kynnir
nýjustu dans- og dægurlögin.
17.00 Fréttir. — I>etta vil ég heyra:
Kristján Árnason menntaskóla
kennari velur sér hljómplötur.
17.40 Vikan framundan: Kynning á
dagskráefni útvarpsins.
18.00 Söngvar í léttum tón.
18.30 Tómstundaþáttur barna og ung-
linga (Jón Pálsson).
18.55 Tilkynningar. — 19.20 Veður-
fregnir.
19.30 Fréttir.
20.00 ,,Faust“f ballettmúsik úr 5.
þætti óperunnar eftir Gounod
(Hljómsveit Philharmonia leik
ur; Herbert von Karajan stj.).
20.20 Leikrit: ,,I>egar dauðir upp rísa"
eftir Henrik Ibsen. Þýðandi:
Árni Guðnason cand. mag. —
Leikstjóri: Lárus Pálsson. Leik
endur: Guðbjörg í>orbjarnar-
dóttir, Kristbjörg Kjeld, I>or-
steinn Ö. Stephensen, Valur
Gíslason o. fl.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 l>ættir úr vinsælum tónverkum.
23.30 Dagskrárlok.
Sunnudagur 10. júnl.
(Hvítasunnudagur)
9.00 Morguntónleikar: — (10.10 Veð-
urfregnir).
a) ,,Góði hirðirinn", hljócm-
sveitarsvíta eftir Hándel (Kon-
ungl. fílharmoníuhljómsveitin í
Lundúnum leikur; Sir Thomas
Beeoham stjórnar).
b) Passacaglia eÆtir Sammar-
tini (Mischa Elman leikur á
fiðlu og Joseph Seiger á píanó).
c) Magnificat í D-dúr eftir
Bach (Use Wolf, Helen Watts,
Richard Lewis, Thomas Hems-
ley og kór og hljómsveit flytja;
Geraint Jones stjómar).
d) Píanókonsert nr. 1 í C-dúr
op. 15 eftir Beethoven (Claudio
Arrau og hljómsveitin Philharm
onia í Lundúnum leika; Alceo
Galliera stjórnar).
11.00 Messa í hátíðarsal Sjómanna-
skólans (Prestur: Séra Bjarni
Jónsson vígslubiskup. Organ-
leikarí: Gunnar Sigurgeirsson).
12.15 Hádegisútvarp.
14.00 Messa í kirkju Óháða safnaðar-
ips (Prestur: Séra Emil Björns-
son. Organleikari: Jón G. Þór-
arinsson).
15.15 Miðdegistónleiikar: íslenzkir lista
menn leika og syngja.
a) Björn Ólafsson leikur á fiðlu
forleik og tvöfalda fúgu yfir
nafnið BACH eftir Þórarin
Jónsson.
b) Sigt veig Hjaltested syngur
og Kjartan Sigurjónsson leik-
ur á orgel Kristskirkju í Landa
koti verk eftir Gabrieli, Bach
Hándel, Franck, Buxtenhude,
Páll ísólfsson og Karl Ó. Run-
ólfsson.
c) Sinfóníuihljómsveit íslands
leikur tvö tónverk eftir Sigurð
Þórðarson: Forleik op. 9 og
svítuna „Ömmusöngur". Stjórn
endur: Hans Antolitsh og Hans-
Joachim Wunderlich.
16.30 Vfr. — Endurtekið leikrit: ,,Gras
ið í skónum“ eftir George Bern
ard Shaw (Áður útv. í maí
1958). Leikstjóri og þýðandi
Karl Guðmundsson.
17.30 Barnatími (Baldur Pálmason):
Söngur og kvæði eftir Margréti
Jónsdóttur skáldkonu. — Lesar
ar: Skáldkonan sjálf, Bríet
Héðinsdóttir, Hugrún Gunnars
dóttir og Ingimar Jóhannesson.
Telpnakór úr Melaskólanum
syngur undir stjórn Guðrúnar
Pálsdóttur.
18.30 Miðaftantónleikar:
a) Hornkonsert nr. 1 í D-dúr
(K412) eftir Mozart (Alan Civil
og hljómsv. Philharmonia; Otto
Klemperer stj.).
b) Teresa Stich-Randall syngur
aríur eftir Mozart.
c) Walter Gieseking leikur píanó
lög eftir Ravel.
d) Hollywood Bowl sinfóníuhlj.
leikur vinsæl hljómsveitarlög;
Felix Slatkin stjórnar.
19.20 Veðurfregnir. — 19.30 Fréttir.
20.00 „Minningaland“, síðari hluti frá-
sagnar frá æskustöðvum við
Breiðafjörð (Séra Árelíus Níels-
son).
20.20 Kórsöngur: Karlakórinn Geysir
syngur. Söngstjóri: Árni Ingi-
mundarson. Einsöngvari: Jóhann
Konráðsson. Píanóleikari: Guð-
rún Kristinsdóttir.
a) „Svanurinn" eftir Járnefelt.
b) „t>ú komst í hlaðið“, þýakt
þjóðlag.
c) „Grænkandi dalur" eftir
Plam.
d) „Litla skáld“ eftir Meri-
kanto.
e) ,,t>ei þei og ró ró“ eftir
Björgvin Guðmundsson.
f) „Svansöngur á heiði“ eftir
Jóhann Ó. Haraldsson.
g) ,,Brennið þið, vitar“ eftir
Pál ísólfsson.
h) „I>ér, landnemar" eftir Sig-
urð Þórðarson.
i) „Svörtu skipin" eftir Karl O.
Runólfsson.
j) „Kaprí Katarína" eftir Jón
Jónsson frá Hvanná.
k) „Tarantella Napoliitana" eftir
Rossini.
l) „Hirðingjarnir" eftir Schu-
mann
21.00 Kristniboð, — samfelld dagskrá
Kristilegs stúdentafélags. Flytj
endur: Auður Eir Vilhjálmsdótt
ir cand. theol., Ástráður Sigur-
steindórsson akólastjóri, Felix
Ólafsson kristniboði, Frank Hall
dórsson cand. theol. og ÓLaf-
ur Ólafsson kristniboði.
22.00 Vfr. — Kvöldtónleikar:
„Missa Solemmnis" í D-dúr op.
123 Beethoven (Louis MarshaU
Nan Merriman. Eugene Conley,
Jerome Hines og Robert Shaw
kórinn syngja; NBC-sinfóníuhlj.
leikur; Arturo Toscanini stjóm-
ar).
23.30 Dagskrárlok.
Mánudagur 11. júnl.
(Annar hvítasunnudagur)
8.30 Létt morgunlög. — 9.00 Fréttir.
9.10 Morguntónleikar: — (10.10 Veður«
fregnir).
a) Strengjakvartett í g-moll op
10 eftir Debussy (ítalski kvartett
inn leikur).
b) Eileen Farell syngur óperuarí
ur eftir Gluok, Tjaikovsky, Deb-
ussy og Menotti.
c) Sónatína nr. 6 eftir Busoni
(John Ogdon leikur á píanó).
d) Konsert í Es-dur fyrir hörpu
og hljómsveit eftir Gliére (Jutta
Zoff og Fílharmoníusveitin í
Leipzig flytja; Rudolf Kempe
stjórnar).
11.00 Messa í Hallgrímskirkju (Prest-
ur: Séra Jakob Jónsson. Org-
anleikari: Páll Halldórsson).
12.15 Hádegisútvarp.
14.00 Miðdegistónleikar:
a) Carneval op. 9 eftir Schu-
mann (György Gziffra leikur á
píanó).
b) Vitoria de los Angeles og
Dietrich Frischer-Dieskau
syngja dúetta; Gerald Moore
léikur undir.
c) „Skóladansleikurinn", ball-
etttónlist eftir Strauss-Dorati
(Sinfóníuhljómsveitin í Minnea
polis leikur; Antal Dorati stj.).
15.30 Kaffitíminn: „Árni Elfar og
hljómsveit hans leika.
16.00 Ahdi Guðs með eilíft ljós*‘:
Stúdentafélagið á Akranesi minn
ist séra Friðriks Friðrikssonar
(Dagskráin hljóðrituð í Akra-
neskirkju 25 f.m.).
Ávörp og erindi flytja Jón Ás-
mundsson, séra Bjarni Jónsson.
vígslubiskup, séra Sigurjón Guð
jónsson prófastur og séra Jón
Guðjónsson. Úr verkum séra
Friðriks lesa Björn Pétursson,
Ólafur Haukur Árnason og
Sverrir Sverrisson. Jón Gunn-
laugsson, Baldur Ólafsson,
kvartett og kirkjukór Akraness
syngja. Organleikari: Haukur
Guðlaugsson.
17.30 Barnatími (Helga og Hulda Val
týsdætur):
a) Leikritið „Rasmus, Pontus og
Joker" eftir Astrid Lindgren;
V. þáttur. Leikstjóri: Jón Sigur
björnsson.
b) Tívolí-dagar í Kaupmanna-
höfn, frásaga eftir Thorbjörn
Egner.
18J30 „Tlna vil ég blómin blá“S
Gömlu lögin sungin og leikin.
19.00 Tilkynningar. — 19.20 Veðurfr.
19.30 Fréttir.
20.00 „Nótt í Moskva": Rússneskiir
listamenn syngja og leika
(Hljóðritað í Austurbæjarbíói f
april); Pétur Pétursson kynnir.
21.00 i>ví gleymi ég aldrei: „Fyrsti
fiskiróðurinn minn“, frásaga
eftir Guðmund J. Einarsson á
Brjánslæk (Árni Tryggvason
leikari).
21.20 Músik eftir Strauss-bræður
(Boston Promenade hljómsveit-
in leikur; Arthur Fiedler stj.).
a) „Kennisetningar" op. 79 eftir
Edvard Strauss.
b) „Himinhljómar" op. 236 eftir
Josef Strauss.
c) „Suðrænar rósir" op. 388 eft-
ir Johann Strauss yngri.
21.43 Gamanvísur að vestan og norð-
an: Jón Kristjánsson á Suður-
eyri syngur við undirleik séra
Jóhannesar Pálmasonar, og
Benedikt Benediktsson á Stóra
Vatnsskarði syngur við undir-
leik Péturs Sigfússonar og Sig
fúsar Péturssonar í Álftagerði,
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Danslög, þ.m. leikur Neó-tríóið;
Margit Calva syngur.
02.00 Dagskrárlok.
>f >f
GEISLI GEIMFARI
>f X-
— Ég vissi ekki að andúð ríkti
milli íbúanna á stjörnunum Aspen
og Karz, Fleming, foursti. Hvernig
Btendur á henni?
En áður en Fleming getur gefið
skýringu .......
— f>eir eru að koma herra. Geim-
skipin frá Aspen eiga að lenda eftir
20 mínútur.
— Við verðum þar til að taka
móti þeim. Þú skalt fara Geisli, og
eangi þér vel .... Ekki veitir af!
Þrlðjudagur 12. júnf
8.00 Morgunútvarp (Bæn. — Tón-
leikar. — 8.30 Fréttir. — 8.3ð
Tónleikar. — 10.10 Veðurfregn-
ir).
12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. —
12.25 Fréttir og tilkynningar).
13.00 Við vinnuna": Tónleikar.
15.00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tón-
leiikar. -- 16.30 Veðurfregnlr.
— Tónleikar. — 17.00 Fréttir,
— Endurtekið tónlistarefni).
18.30 Harmonikulög. — 18.50 Tilkynn
ingar. — 19.20 Veðurfregnir.
19.30 Fréttir.
20.00 ,3umarkveðja frá Bæjarlandi“t
Þjóðlög sungin og leikin.
20.15 Igor Stravinsky: Leifur Þórarins
son talar um tónskáldið og
kynnir verk þess; I.
21.00 íþróttir (Sigurður Sigurðsson).
21.15 Tónleikar: Dansrapsódía nr. i
eftir Delius (Konungl. fílharm,
sveitin 1 Lundúnum leikur; Sir
Thomas Beecham stjórnar).
21.30 Útvarpssagan: „Urðar-Jói“ eftir
Sigurð Heiðdal; II. (Þorsteinn
Ö. Stephensen).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Um fiskinn (Stefán Jónsson
fréttamaður).
22j25 Lög unga fólksins (Úlíar
Sveinb jörnsson).
23.15 Dagskrárlok.