Morgunblaðið - 21.07.1962, Page 8
8
MORGVNBLAÐIÐ
Laugardagur 21. júlí 1962
FRETTAMYNDIR
40 alsírsk börn dveljast nú í um Rauöa krossins. — Grace sumarbúðanna fyrir skömmu
sumarbúðum í Monaco á veg- furstaynja kom í heimsókn til og rædði við börnin, en þau
færðu henni blómvönd.
Hér sjáið þið Ben Bella,
varaforsætisráðherra serk-
nesku útlagastjómarininar í
Alsír, sem á í deilum við Ben
Khedda og aðra ráðherra
stjórnar hans, snæða morgun-
verð í garðinum fyrir utan
hús sitt í Telmcen. Hægra meg
in við Ben Bella blaktir fáni
Alsír.
Þessi mynd var tekin af
Arthur H. Dean, aðalfulltrúa
Bandaríkjamanna á afvopnun-
arráðstefmunni í Genf, 16. þ.m.
er hann steig út úr bifreið
sinni fyrir framan Þjóðabanda
lagshöllina, en þar er ráðstefn
an haldin.
Frá því að Sir Winston
Churchill lærbrotnaði í Monte
Carlo í lok júnímánaðar sl.
hefur allur heimurinn fylgzt
með líðau hans. Hér sést Lady
Ohurchill koma út úr Middle-
sex-sjúkrahúsinu í London frá
því að heimsækja mann sinn,
en hún hefur oftast heimsótt
hann tvisvar á dag.
Brezka kappaksturshetjan
Donald Campell, hefur nú end
urbyggt kappaksturbifreið
sína ,,BláfugI“ og áformar að
setja nýtt heimsmet í hrað-
akstri fyrri hluta sumars 1963 í
Ástralíu Campbell særðist
hættulega er bifreið hans, sú
fyrsta með nafninu „Bláfugl“,
sem knúin var túrbínum,
missti undan sér tvö hjól og
laskaðist stórlega. Þegar þetta
kom fyrir var Campbell í síð-
ustu reynsluferðinni áður en
hann ætlaði að gera tilraun
til að hnekkja heimsmetinu í
hraðakstri haustið 1960. Camp
bell hafði náð 500 km hraða
þegar óhappið varð. Campbell
segir að „Bláfugl“ endurbyggð
ur geti náð allt að 650 km
hraða. Heimsmetið í hraðakstri
er nú 634 km, það setti John
Cobb 1947.
Kennedy Bandaríkjaforseti
var fyrir skömmu viðstaddur
baseball keppni á íþróttaleik-
velli í Washington. Forsetinn
fylgdist með leiknum af mik-
illi athygli og myndin af hon-
um var tekin á spennandi
augnabliki.