Morgunblaðið - 21.07.1962, Blaðsíða 19
Laugardagur 21. júlí 1962
MORGUNBLAÐIÐ
19
Gylfi Þ.
s Framh. af bls. 1
hagSbandalagsins, og tvo aðra
af framkvíemdastjórum þess,
J>á Ray, sem fer með utarílkismál
bandalagsins, og Manslholt, sem
er forimaður þeirrar deildar þess
sem fjallar um landbúnað og sjáiv
arútvegsimál. Að þessum viðræð-
um loiknum fórum við síðan til
Bonn og áttum þar mánudaginn,
9. júlí fund með Ludwig Erhaixi,
efnahagsmálaráðlherra Þýzka-
lands, og helztu embættismönn-
um hans í viðskiptamálaráðuneyt
kinu, og annan fund með Rolf
iLahr, þeim ráðuneytisstjóra ut-
anríkisráðuneytisins, sem fer
með viðskiptamáL
60% til V.-Evrópu
Tilgangur allra þessara við-
ræðna hefur verið sá að skýra
fyrir rikisstjórnum Sex-veldanna
og framkivæmdastjórn Efnahags-
Ibandalagsins þau vandamál,
sem stofnun þess og stækkun
mun smám saman hafa í för með
Eér fyrir islenzlk utanríkisvið-
skipti og leggja áherzlu á nauð-
syn þess fyrir íslendinga að geta
haldið viðskiptasamböndum sín-
um í V.-Evrópu. Á s.l. ári fluttu
íslendingar um 60% af útflutn-
ingi smurn til þeirra landa, sem
nú eru aðilar að Efnahagsbanda-
laginu og mjög líklegt verður að
telja að verði aðilar að þvi áður
en langt um líður. Þegar áfc-væði
stofnskrár Efnahagsbandalags-
ins um tollamál verða komdn til
fullra framkvæmda, munu tollar
þeir, sem íslendingar yrðu að
greiða af innflutningi til Efna-
hagsbandalagsins verða um það
bil helmingi hærri en þeir voru,
áður en 'Efnahagsbandalagið tók
til starf. Með þessu er sagan þó
ekki fullsögð, því að tollurinn
é aðalútflutningsvöru okkar, freð
fiski, þeirri vöru, sem líklegast
er að eftirspurn vaxi mest eftir í
Evrópu á næstu árum, og íslend
ingar ættu að geta aulkið útflutn
ing sinn á mjög verulega, hefur
verið áfcveðinn mjög hár eða
18%. Augljóst er, að það yrði
miklum erfiðleikum bundið fyr
ir íslendinga að halda freðfisk-
mörkuðum sínum í Vestur- Evr-
ópu hvað þá að auka söluna þang
að, ef þeir yrðu að sæta 18%
tolli en td. norskir, brezkir og
þýzkir freðfiskframfeiðendur
gætu selt sínar afurðir tollfrjálst
é hinum nýja og geysistóra mark
aði. Hitt er og ekki síður mikil-
vægt, að stofnun og stæfckun
Efnahagsbandalagsins gerir það
að ýmsu leyti torveldara en eUa
fyrir íslendinga að koma hér á
fót nýjum greinum útflutnings-
iðnaðar, sem selt gæti á Vestur-
Evrópu markaði. Tollur efnahags
bandalagsins á aluminíum verð-
ur t.d. 9% og mundi slíkur toll-
ur útiloka aluminíumvinnslu hér
ó landi, ef helzti keppinautar
okkar á þessu sviði, Noregur,
væri aðili að bandalaginu. Svip-
að á við t mörgum öðrum grein-
um.
Þrír möguleikar
Allir íslendingar bljóta að
Bjálfsögðu að óska þess, að að-
etaða okkar til þess að selia af-
urðir okkar á hinum stóra og vax-
andi markaði V.-Evrópu versni
ekki, heldur batni, og jafnframt
að skilyrði okikar til þesa að
fcoma hér á fót nýjuir. iðngrein-
um, sem gætu hagnýtt orfculind
ir landsins fari batnandi, en ekki
versnandi. Þetta getur hina veg-
«r ekki orðið án einhvers konar
tengsla við Efnahagsbandalagið.
Frá fræðilegu sjónarmið i eru
tnöguleiikamir þrír: Full aðild,
aukaaðild og viðskiptasamning-
ur. Þeir, sem gerast fullgildir að-
llar, fá frjálsan og ótafcmarkað-
an aðgang að hinum víðlenda
marfcaði, en verða jafnframt að
taka á sig skuldbindingar, sem
eumpart eru þess eðlis, að lítil
þjóð eins og íslendingar getur
ekki tekizt þær á herðar. Á ég
þar t.d. við ákvæði stofpskrár
(Efnahagsbandalagsins um jafnan
rétt til avinnurekstrar, sem geta
leitt til þess, að aðildarríki hafi
ekiki tii frambúðar eigin fiskveiði
- Síld
Þessi mynd var tekin á sögulegasta augnabliki uppreisnarinnar í Peru, er bryndrekar hers-
ins héldu inn í garð forsetahallarinnar í Lima. Skömmu síðar var forsti landsins, Prado,
neyddur til að koma út. Var hann síðar settur í gæzluvarðhald. (AP-mynd).
Framh. af bls. 20.
(talið í málum): Baldur EA
756, Fram GK 582, Smári 480,
Húni 316, Hilmir KE 616, Gylfi
II. 228, Helga Björg 406, Hann-
es Hafstein 188, Þórkatla 242,
Sigurfafc 238, Freyja ÍS 628,
Súlán 1152, Hrcnn II. 240,
Manni 124.
Veiði er óhemju mikil. Salt-
að er á öllúm plönum. - Einar.
Seyðisfjörður.
Ekki var mikið saltað þar f
gær, en kvöldið áður í 7.216
tunnur. 800 tunnur fóru í fryst-
ingu.
Neskaupstaður.
20. júlí.
Eftirtaldir bátar hafa korpitt
hér með síld síðan í gærkvöldi
(talið í málum): Þráinn 850,
Glófaxi 900, Hafrún 600, Björg
600 og Guðbjörg GK 700. Lítil-
lega var saltað af Hafrúnu og
Glófaxa. — Hér er nú nokkurt
þróarrúm laust og landað af
krafti. — Jakob.
Norðmenn hafa aflað
840 þúsund mál.
landhelgi. Hins vegar gerir stofn
skrá bandalagsins einnig ráð fyr-
ir því, að ríki geti verið auka-
aðilar og eru þá bæði réttindi
þeirra og akyldur takmarkaðri en
fullgildra aðila. Einn slíkur auka
aðildarsamningur befur verið
gerður, þ.e.a.s. samningur Efna-
hagsbandalagsins við Grikkland.
Efnahagsbandalagið er ekki enn
farið að ræða við neitt þeirra
ríkja annnarra, sem sótt hafa
um aukaaðild, svo að enn hefur
ekki verið mótuð nein almenn
stefna að því er snertir aukaaðild
að bandalaiginu. Þriðju leiðinni,
að gera viðskiptasamning við
Efnahagsbandalagið, mundu
fylgja minnst réttindi og minnst
ar skyldur, þ.e.a.s. forrmleg tengsl
við Efnahagsbandalagið væru þá
engin, en reynt að semja um þau
atriði, sem mestu máli skipta í
viðskiptunum, þ.e. tolla og inn-
flutningshöft. í þessu sambandi
er þó rétt að geta þess, að Efna-
hagsbandalagið getur ekiki sam-
ið við ísland eitt um að lækka
tolla á þeim vörum, sem koma
frá íslandi. Ef Efnahagsbanda-
lagið vildi lækka tolla á þekn
vörum, sem við höfum áhuga á
að selja til Efnahagsbandalags-
svæðisins þá yrði sú tollalæklk-
un að ná til allra annarra þjóða
jafnframit, og gerir það slíka
samninga að sjálfsögðu erfiðari
en ella.
Engar tillögur
Enn er ekki tímábært fyrir ís-
lendinga að taka ákvörðun um
í hvaða formi þeir æskja þess að
gæta viðskiptahagsmuna sinna
í V.-Evrópu. í þeim viðræðum
sem átt hafa sér stað og ég hefi
hér greint frá, hafa af íslands
toálfu engar tillögur verið gerð-
ar um tengsl fslands við banda-
lagið, og engar skoðanir verið
látnar í ljós um það, hvernig
íslendingar teldu viðskiptahags-
muni sina verða bezt tryggða.
En ég hygg mér sé óhætt að full-
yrða, að ríkisstjórnum allra Sex-
veldanna og stjórn Efnahags-
bandalagsins í Bruxelles sé nú
ljóst, að íslendingar hafa mikilla
hagsmuna að gæta af því, að við-
skiptatengsl íslands við V.-Evr-
ópu rofni efcki og að viðskipta-
aðstaða þeirra á því mikla mark-
aðssvæði, sem nú er þar í mynd-
un versni ekki fré því, sem ver-
ið hefur, heldur batni. Ég hygg
mér sé óhætt að fullyrða, að full-
ur skilningur sé skilningur sé
ríkjandi á því hjá ríkisstjórnum
Sexveldanna og stjórn Efnahags-
bandalagsins í Bruxelles, að ís-
land getur etoki vegna smæðar
sinnar og margvíslegrar sérstöðu
tekið á sig þær kvaðir, sem fullri
aðild mundu fylgja. Það er rikj-
andi skilningur á því, að íslend-
ingar vilja varðveita tengsl sín
við V.-Evrópu og góður vilii til
>ess að leysa þau vandamál, sem
stofnun Efnahagsbandalagsins og
stæfckun þess hefur í för með
sér fyrir íslendinga, eins og raun
ar fjölmargar aðrar þjóðir á ein-
hvern þann hátt sem ekki legg-
ur á íslendinga kvaðir, sem þeir
treystast ekki til þess að takast á
herðar.
Ríkisstjórnin mun nú á næst-
unni ræða þær upplýsingar, sem
fyrir liggja. Það verður að sjálf-
sögðu hlutverk Alþingis að taka
allar ákvarðanir í þessu máli.
Það er þó ekki tímabært fyrr en
fengin er í meginatriðum niður-
staða í þeim viðræðum, sem nú
eiga sér stað við þau ríki, sem
sótt hafa um fulla aðild og hin,
sem sótt hafa um aukaaðild. Enn
er of snemmt að segja, hvenær
það getur orðið. En áfram þurfa
íslendingar að vera vel á verði
og fylgjast með öllu þv!, sem ger
ist í þessum efnum. Til þess að
það sé unnt er eflaust nauðsyn-
legt, að frekari viðræður við
framnkvæmdastjórn Efnahags-
bandalagsins eigi sér stað. Án
þess geta íslendingar ekki mynd
að sér raunhæfar skoðun á því,
hvernig hagsmuna þeirra verði
bezt gætt.
Þegar viðræðunum við Lud-
wig Erhard og þýzka embættis-
menn var lokið mánudaginn, 19
júlí, þáði ég boð þýzku ríkis-
stjórnarinnar um að fara ásamt
konu minni í átta daga ferðalag
um Þýzkaland og var Magnús V.
Magnússon hinn nýskipaði sendi-
herra íslendinga í Bonn, ásamt
dr. Gehrels, skrifstofustjóra í við
skiptamálaráðuneytinu, með í
förinni. Var hér um rúmlega
tveggja ára gamalt boð að ræða
sem ég hafði því miður ekki get-
að þekkzt fyrr. Við heimsóttuim
Wiesbaden, Heidelberg, Heiden-
heim, Munohen, Berlín, Bremen,
Bremerhaven og Hamborg. Mót-
tökur voru hvarvetna með ágæt-
um og voru allar þær viðræður
sem ég átti við þýzka stjóm-
málamenn, menningarfrömuði,
verkalýðsleiðtoga og atvinnurek-
endur framúrskarandi vinsam-
legar og mótuðust af einlægum
áhuga þeirra allra á sem beztum
og nánustum samskiptum við fs-
land og íslendinga. Mér er óhætt
að fullyrða að í Þýzkalandi er
ríkjandi sérstakur vinarhugur í
garð íslenzku þjóðarinnar. Það
er mjög mikils virði fyrir íslend
inga, að meðal Þióðverja, sem
eru ein áhrifamesta þjóð Evrópu,
skuli vera ríkjandi jafn mikil
þekking og jafngóður skilningur
á máilefnum íslands og raun ber
vitni.
Úr fréttaskeyti frá Björg-
vin (NTB).
Enn er mjög góð sfldveiði á
íslandsmiðum. Margir norskir
bátar eru á leið heim með full-
fermi, en aðrir eru á leið aft-
ur til miðanna eftir að hafa
landað í Noregi. Færri bátar
eru því að veiðum, og færri
tilkynningar berast til Álasunds
en fyrr í vikunni. Kl. 19 í dag
höfðu aðeins 6 bátar tilkynnt
komu sína ásamt flutningaskipi
með samtals 20.800 mál.
Eftir þvl ætti sfldarafli til
Noregs kominn að nema 840.000
málum í kvöld, og verðmæti
hans 23.5 milljónum norskra
króna. Nú vantar ekki nema
100.000 mál til þess að ná met-
aflanum í fyrra.
Flaug með viðgerðarmann
og somarbíinu var borgið
KELDHVERFINGAR ráku upp
stór augu á fimmtudagskvöld,
þegar lítil flugvél lenti í nám-
unda við Ásbyrgi. Héldu sumir,
að þama hefði nauðlent flugvél,
en þegar MÍL fór að kanna mál-
ið, ikom í ljós, að svo var etoki
sem betur fór.
Þannig var mál með vexti, að
maður einn í tatomörkuðu sumar-
frii hafði tekið bál á leigu hjá
hílaleigu einni í Reykjavík og
lagt. upp í ferðalag með fjöl-
skyldu sinni. Þegar toomið var
norður í Ásbyrgi, bilaði bifreið-
in, og þótt maðurinn væri vaniur
að fást við bfla, gat hann ekki
gert við bilunina. Nú voru góð
— Kvikmyndir
Framh. af bls. 18.
hefur gerst meðan á rannsókninni
stóð.
Mynd þessi er býsna góð,
spennan allmikil, persónurnar
eru eru mjög í samræmi við um-
hverfið og þá tíma sem atburðirn
ir gerast á. Og Sherlock Holmes
er í sínu gamla gerfi, — sem allir
kannast við sem lesið hafa sög
urnar. — Hlutverkin í myndinni
eru allmörg og yfirleitt vel leik
in. Peter Cushing leikur Sherlock
Holmes og Andre Morell dr.
Watson.
ráð dýr: átti sumarfríið að rernia
út í sandinn? Þá minntist maður
inn þess að í leigunni var inni-
falin viðgerð vegna eðlilegra or-
saka. Hringdi hanin því í bifreiða
leiguna, sem var Bílaleigan Bíll-
inn, kl. að ganga sjö í gærtovöldi
og sagði frá því, hvernig komið
væri.
Syðra var brugðið skjótt við,
náð í viðgerðarmann og hann
sendiur með vertofæratösku og
varahluti með Cessna-flugtvél frá
Þyti. Lent var rétt hjá bíinium,
og tók viðgerðin tæpan klutotou-
tíma, svo að fjölskyldan þurfti
ekki að hafa frekari áhyiggjur.
Flugvélin beið á meðan, og flaug
viðgerða rma ðu rinn síðan affcur
til Reykjavíkur.
VegagerSin í
Kjörvogshlíð
GJÖGRI, 20 júlí. — Vegagerðin
inn Kjörvogshlíð gengur vel,
enda er hér nú 15 tonna jarðýta
með tveim vönum jarðýtustjór-
um. Vegaverkstjórinn í Árnes-
hreppi, Guðjón Magnússon odd
viti, áttar sig ekki á þessum
hraða og verður að flytja tjöldin
og matarskálann með nokkurra
daga millibili. — Regi.j.
— Þýðingamiklar
Framh. af bls 1
í efnahagsmálum. Sagði Lloyd,
að sú stefna, sen hann hefði
fylgt í þeim málum, hefði verið
til góðs, sérstaklega hefði henn-
ar gætt á hagkvæman hátt hjá
útflytjendum. Hann lagði á-
herzlu á, að hagkvæmra áhrifa
myndi halda áfram að gæta,
svo lengi sem þeirri stefnu yrði
fylgt, þ. e. að gæta hófs í lán-
veitingum og launahækknum.
f dag var haldinn fundur i
London á vegum samtakanna
Forward Britain“, en þau hafa
hvað mest beitt sér gegn aðild
að Efnahagsbandalaginu. Meðal
þeirra, sem fundinn sátu, var
Ragnar Frisch.
Samþykkt fundarins var á
þann veg, að ekki væri hægt
að benda á neinar þær efna-
hagsástæður, sem gerðu aðild
nauðsynlega.
Fulltrúamir á fundinum, sem
voru bæði frá EFTA og Sam-
veldislöndunum, lögðu á það
áherzlu, að þótt þeir aðhyllt-
ust þá stefnu í utanríkis- og
varnarmálum, sem Frakkland
og V-Þýzkaland fylgdu, þá
myndi aðstaða EFTA og Sam-
veldislandanna til málamiðlun-
ar milli stórveldanna vera
betri í framtíðinni, ef þau
héldu sig fyrir utan Efnahags-
bandalagið.
í yfirlýsingu utanríkisráð-
herra Austurríkis, Bruno Krei-
sky, í dag, á fundi þingsins,
segir, að Austurríki muni taka
þátt í Efnahagslegri og stjórn-
málalegri sameiningu Evrópu,
á eins víðtækan hátt og hægt
sé.
Lagði ráðherrann áherzlu á,
að austurríska stjórnin hefði
skýrt aðstöðu sína bæði í
Moskvu og á Vesturlöndum og
hvergi hefði verið beitt þving-
unum til að hafa áhrif á stefnu
stjórnarinnar.