Morgunblaðið - 01.08.1962, Síða 3
f.
Míðvikudagur 1. águst 1962
MORGVNBLAÐ1Ð
íóbyggðum
Forustumenn Ferðafélags
Húsavíkur hafa haft mikinn á-
huga á brúarsmíði yfir Jökuls
á á Fjöllum, uppi á öræfum,
til þess að komast á bílum í
Hvannalindir og til Kverk-
fjalla, en á þeirri leið er Jök-
ulsá óyfirstíganlegur farar-
tálmi, nema með brúargerð.
Um síðustu helgi fór svo
áhugamannaflokkur frá Húsa-
vík og Akureyri með efni og
verkfræðilega útreikninga og
fyrirmæli og hófu þarna brúar
gerð og luku henni, og komust
suður yfir. En þar sem þeim
þótti ekki nægilega tryggilega
gengið frá undirstöðum öðrum
megin, tóku þeir brúna af í
bráðina, en ætla að fullgera
brúarsmíðina við fyrsta tæki-
færi. Brúarsmiðirnir fóru upp
eftir seinnihluta föstudags og
komu aftur aðfaranótt þriðju-
dags.
Ferðafélag Húsavíkur hefur
veitt styrk til þessa verks, en
að öðru leyti hafa áhugamenn-
irnir kostað þetta sjálfir.
Efri myndin sýnir brúarstæð-
ið, en sú neðri bíl á brúnni
eftir að hún var smíðuð.
(Ljósm.: Haukur Logason
Húsavík).
I
Ágætt héraðsmót sjálfstæðis-
manna í Króksfjarðarnesi
6ÍÐASTLIÐINN sunnudag efndu
Sjálfstæðismenn í Austur-Barða-
etrandarsýslu til héraðsmóts, er
Ibialdið var að Króksfjarðarnesi.
Var mótið 'hið ánægjulegasta,
íórvel fram og var mjög fjölsótt.
Mótið setti Sveinn Guðmunds-
eon, Miðlhúsum, og stjórnaði því.
Dagski'áin hófst með því, að
Kristinn Hallsson, óperusöngv-
•ri, söng einsöng, en undirleik
ennaðist Skúli Halldórsson,
|)íanóleikari.
Þá flutti Gunnar Thoroddsen,
Áburður á af réttar
lönd Kjalar-
nesþings
BÚNAÐARSAMBAND Kjalar-
þings ihefur safnað fé til áburð-
urdreifingar á afréttarlönd í Kjal
arnesþingi til að freista að verja
Iþau uppblæstri og græða þau
upp.
1 í gærmorgun var unnið að því
nð dreifa áburði í Helgafell sunn
«n við Hafnarfjörð, og gekk það
mjög vel. Seinni hluta dags flutti
flugvélin sig svo á Sandskeið og
var farið að dreifa áburði á af-
réttarlönd þar í kring.
TEZPRH, 28 júlí — NTB —
Reuter — í þorpinu Missamari
í norðaustur Indlandi létu í gær
cjö manns lífið af völdum flug-
elyss. í flugvélinni, sem fórst, var
aðeins einn maður, flugmaður-
inn, en hinir sex urðu fyrir vél-
inni er hún hrapaði til jarðar.
fjármálaráðherra, ræðu. Síðan
söng Þórunn Ólafsdóttir, söng-
kona, einsöng.
Þessu næst flutti Þorvaldur
Garðar Kristjánsson, foamkvstj.
Sjálfstæðisflokikssins, ræðu.
Fluttur var gamanleikurinn
, Mótlætið göfgar“ ecftir Leonard
White og fóru með hlutverk leik
ararnir Valur Gílason og Helga
Valtýsdóttht
Að leiksý'mngu lokinni sungu
iþau Kristinn Hallsson og Þórúnn
lafsdóttir tvisöng við undirleik
Skúla Halldórssonar.
Var ræðumönnum og listafólk-
inu ágætlega tekið.
Samkomunni lauk síðan með
því, að stiginn var dans fram
eftir nóttu.
Stofnað Sjálfstæðisfélag
A-Barðarstrandasýslu
HINN 29. -júlí sl. var haldinn
stofnfundur Sjálfstæðisféilags fyr
ir Austur-Barðastrandarsýslu. —
Fundurinn var haldinn að Króks
fjarðarnesi. Fundarstjóri var
Sveinn Guðmundsson, Miðhús-
um, Reykhólahreppi, og fundar-
ritari Jóhann Jónsson, Mýrar-
tuneu, Reykhólahreppi. Stofn-
endur voru 70. Axel Jónsson,
fulltr. framkvæmdarstjóra Sjálf-
stæðisflokfcsins flutti erindi um
skipulagsmál flokksins og lagði
fram frumvarp að lögum fyrir
félagið, sem síðan var samþykkt,
og hlaut félagið nafnið „Sjálf-
stæðisfélag Austur-Barðastrand-
arsýslu“ og félagssvæði þess á-
kveðið allir hreppar Austur-
Barðastrandarsýslu.
í stjórn félagsins voru kjörin:
Sveinn Guðmundsson, Miðhús-
um, formaður, Aðalsteinn Aðal-
steinsson,^ Hvallátrum, Flateyjar-
hreppi, Óskar Þórðarson, Firði,
Múlasveit, Karl Guðmundsson,
Valshamri Geiradalshreppi, og
Unnur Stefánsdóttir, Reykhól-
um, Reykhólahreppi.
Varastjórn skipa: Nikulós Jens
son, Svefneyjum, Flateyjar-
ritari Jóhann Jónsson, Mýrar-
tungu, Alma Friðriksdóttir,
Hafrafelli, Reykhólahreppi, Ein-
ar Guðmundsson, Kvígindisfirði,
Múlasveit, og Ingimar Eyjólfs-
son, Gillastöðum, Reykhóla-
hreppi.
Endurskoðendur voru kjörnir
Guðmundur Jónsson, Mýrar-
tungu, og Ineibjörg Árnadóttir,
Miðhúsum.
Á fundinum fór fram kosning
fulltrúa í fulltrúaráð og kjördæm
isróð Sjálfstæðisflokksins í Vest-
fjarðarkjördæmi.
Gunnar Thoroddsen, fjármála-
ráðherra, ávarpaði fundinn og
ræddi um verkefnin, sem fram-
undan væru í flokksstarfinu og
árnaði hinu nýstofnaða félagi
heilla í störfum.
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son, framkvæmdarstjóri Sjálf-
stæðisflokksins, ræddi um gildi
hins nýja skipulags flokksins og
flutti félaginu árnaðaróskir.
STAKSTEIIVAR
Lúðrasveit
Akraness
Akranesi, 25. júlí 1962
HÉR Á Akranesi hefur verið
starfandi lúðrasveit síðast liðin
2 ár. Hefur hún átt við ýmsa
byrjunarörðugleika að stríða og
ber þar hæst vöntun á föstum
stjórnanda og fjárhagsörðugleik-
Fyrir skömmu var gripið til
þess ráðs„ sem ef til vill er hvað
hvimleiðast til fjáröflunar, að
senda söfnunarlista um bæinn og
freista þess að bæjarbúar tækju
þessu vinsamlega, enda varð raun
in sú, að undirtektir bæjarbúa
voru yfirleitt góðar og gekk söfn-
unin vonum framar.
Eins og þeim er kunnugt, sem
gáfu til þessarar söfnunar, verð-
ur peningunum varið til kaupa á
hljóðfærum. Er í ráði að fá nokk-
urt fé að láni, til viðbótar því, er
safnaðist og búa lúðrasvetina
þeim hljóðfærum, er nauðsynleg
geta talizt.
En það er undirstaða þess að
sem mestui og beztur árangur
náist, ásamt því að fastráðinn
stjórnandi fáist fyrir næsta starfs
ár lúðrasveitarinnar, sem mun
hefjast í byrjun september, og
vonumst við til að ráðandi menn
á Akranesi leysi þetta mál fyrir
þann tíma.
Að lokum viljum við þafeka
Akurnesingum, er af velvilja og
skilningi létu fé af hendi rakna
til lúðrasveitarinnar, fyrir þeirra
skerf til menningarmála í bæn-
um.
Fjáröflunarnedn
Lúðrasveitar Akraness.
Knútur Gunnarsson
Guðjón Ólafsson
Gísli Guðjónsson.
„Landráðahugsunar-
háttur“
Morgunblaðið hefur bent á að
kommúnistamálgagnið „ís-
Ienzka“ opinberaði þjónkun
sina við heimskommúnismann,
þegar það hóf árásir á íslenzk
stjórnarvöld fyrir það að þau
reyna að gæta viðskiptahags-
muna Islendinga í samningum
við Rússa. Alþýðublaðið ræðir
þetta mál einnig og segir þar
m. a.:
Hitt er athyglisvert að í
hvert skipti sem viðskipti við
Sovétríkin eða önnur Austur-
Evrópuríki eru efst á baugi, er
Þjóðviljinn alltaf þeirra megin
í deilunni. íslenzkir kommúnist-
ar taka undantekningarlaust af-
stöðu með kommúnistaríkinn
gegn sínu eigin landi. 1 slíkum
málum skrifar Þjóðviljinn alltaf
þannig, að íslenzk yfirvöld hafi
rangt fyrir sér, séu að vinna
skemmdarverk eða hvað eina.
Rússar hafa hins vegar alltaf
rétt fyrir sér. Af þessu er aug-
ljóst, að kommúnistar taka
Sovétríkin fram yfir sitt eigið
land og er þetta að sjálfsögðu
ekkert annað en landráðahugs-
unarháttur.“
Utanríkismálin
og Framsókn
f Efnahagsbandalagsmálinu er
tilraun gerð til þess að ná lýð-
ræðislegri samstöðu, þegar að
því kemur að fslendingar verða
að gera upp sinn hug. Þess
vegna hefur leiðtogum Fram-
sóknarflokksins verið skýrt frá
gangi mála og samráð haft við
þá. í meðferð utanríkismála
gilda allt aðrar reglur en um
innanlandsmájf Smáþjóð eins
og við fslendmgar á mikið und-
ir því að þannig sé haldið á
málum í samskiptum við aðrar
þjóðir, að það auki virðingu
okkar, og ljóst sé að þrátt fyr-
ir smæðina erum við færir um
að halda skynsamlega á utan-
ríkismálum. Hins vegar gerir
minna íil þótt hastarlega sé deilt
um innanlandsmál.
En þótt tilraun sé gerð til
samstarfs við Framsóknarflokk-
inn um afstöðuna til Efnahags-
bandalagsins er hinu ekki að
neita, að sá flokkur hefur oft
hlaupið út undan sér í utanríkis-
málum og þess vegna er ekki
sýnt, hvort lýðræðisleg sam-
staða muni takast.
Ekki er vafi á því, að ráð-
stefna sú, sem félagið Frjáls
menning hélt um þetta mál, þar
sem það var rætt öfgalaust,
greiddi mjög fyrir skilningi á
mismunandi sjónarmiðum, og á
hún rikan þátt í því, ef sam-
staða tekst um málið.
Afstaða kommúnista
skiptir ekki máli
Kommúnistar berjast hatram-
lega gegn öllum tilraunum til að
tryggja viðskiptahagsmuni fs-
lendinga á hinum nýja Evrópu-
markaði. Er það í samræml
við þá skoðun þeirra að fyrst
og fremst beri að reyna að stíta
okkur úr tengslum við ná-
granna- og vinaþjóðir. En fs-
lendingar þekkja það mikið til
starfa kommúnista, að and-
' staða þeirra er venjulega álitin
e beztu meðmælin með málum
þeim og sjónarmiðum, sem þetr
ráðast á, og auðvitað kemur
ekki til mála að leita neins
samstarfs við þá, þegar ráða
þarf mikilvægum og viðkvæm-
um málum til lykta. Þess vegna
láta menn gauragang „Þjóðvilj-
ans“ sem vind um eyrun þjóta.