Morgunblaðið - 01.08.1962, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.08.1962, Blaðsíða 11
Miðvikudagtfr 1. ágúst 1962 MORGVNBLAÐIÐ 11 Verður framtíð efnahagsbandalags- ins ráðin í þessari viku? EINS OG fram hefur kom ið í fréttum, kom þar á föstudag, að talið var, að umræður um aðild Breta að efnahagsbandalaginu hefðu farið út um þúfur. Tvö atriði voru það eink um. sem vitað var, að hart yrði deilt um, er-umræður hófust á nýjan leik í síð- ustu viku. Annað var, á hvern hátt skyldi farið með landbúnaðarframleiðslu Breta sjálfra, en hitt, hvað gert skyldi til að forða þeim Samveldislandanna brezku, sem hvað mest hafa átt undir útflutningi landbúnaðarvara til Bret- lands frá skaða, kæmi til aðildar Breta. Fram kom af fréttum í síðustu viku, er umræður nar voru nýhafnar, að ríki efnanh.bandalagsins vildu koma til móts við Breta og Samveldislöndin með sér- stöku verðkerfi á landbún aðarvörum. Á föstudag varð heyrin kunnugt . í hverju þetta verðkerfi var fólgið, og þá kom í ljós, að þótt það, í orði kveðnu, miðaði að því að tryggja tekjur þessara tveggja aðila, þá fól það í sér slíka vankanta, að full- úar töldu sig tilneydda að íta umræðunum þangað I á morgun. miðvikudag. Það eru Frakkar, sem standa að baki hugmynd- inni um þetta verðkerfi, og munu tillögur frönsku fulltrúanna hafa komið illa við marga af fulltrúum hinna bandalagsríkjanna. Hefur fregnin um þetta víða vakið furðu, því að almennt var talið, að af- staða Frakka til inngöngu Breta hefði breytzt til hins betra eftir heimsókn Mac- millans til DeGaulle í vor. „Kjarni má.lsins" Er viðræður hófust í fyrri viku var álitið að þeim yrði 'haldið sleitulaust áfram, þar til Ijóst yrði, hvort Bretar sæju sér fært að ganga i efna hagsibandalagið, eða ekki. Hefðu þær viðræður, sem fram fóru um afstöðu til Sam- veldislandanna, orðið árang- ursríkar, hefði flestum hindr unum fyrir aðild Breta verið rutt úr vegi. í>að má því segja, að þarna hafi verið til umræðu „kjami málsins“ Er umræður fulltrúa banda lagsríkjanna hófust, á föstu- dagsmorgun, varð vart við stefnubreytingu hjá frönsku fulltrúunum. Þeir tóku þá að leggja áherzlu á, að Frakkar hefðu þegar fallizt á öll þau fríðindi til handa Bretum, er eðlilegt væri samkvæmt Róm arsamningnum. Ef Bretar vildu ganga í bandalagið, yrðu þeir að sýna fórnfýsi og þann amda, sem ríkti meðal með- limaríkjanna. Pisani-áætlunin Nánar tiltekið komu frönsku fulltrúarnir nú aftur fram með tillögu um lausn á vanda málum Breta og Samveldis- landanna, tillögu, er flestir héldu að Frakkar hefðu lagt á hilluna. Áætlun þessi hefur gengið undir nafninu Pisani-áætlun- in, og er kennd við landbúnað arráðherra Frakka. Hún geng ur út á það, að kröfum Sam- veldislandanna verði mætt með sérstöku verðkerfi. Það að tryggja bæði þeim lönd- um og brezkum land- 'búnaði sömu tekjur, eftir að gengið hefði verið frá aðild Breta, og áður var, þó þannig. að dregið verði stórkostlega að magni til, úr innflutningi Iandbúnaðarvara frá Sam- veldislöndunum — það, sem hins vegar á að tryggja, að ekki verði um tekjumissi að ræða, er hærra verð, sem Frakkar vilja taka upp al- mennt á landbúnaðarvörum innan bandalagsins. Frakkar myndu græða mest. Þessi krafa Frakka hef- ur hingað til verið talin óaðgengileg af fulltrúum hinna aðildarríkja banda- lagsins. Kemur þar einlk- um til, að önnur ríki telja þessa kröfu — dulbúna sem samningstil'boð við Breta og Samveldislöndin — draga svo mjög hlut Frakka í viðskipt- um með landbúnaðarvörur við önnur bandal.ríki, að stappi nærri ósvífni. Frakkar framl, eins og kunn ugt er, mun meira af landbún aðarvörum, en þeir hafa þörf fyrir. Þeir hafa því mesta þörf, allra bandalagsiþjóðanna Þróun mála undanfarin ár Rómarsamningurinn, sem er grundvöliurinn að efna hagsbandalaginu, og sam- starfi ríkjanna sex á því sviði, var undirritaður í marz 1957, en hlaut stað- festingu í júlí sama ár. Skömmu eftir undirritun ina kom fram hjá brezku sfcjórninni sú hugmynd, að stofna verzlunarbandalag, er öll ríki V-Evrópu ættu aðild að. Fól stjórnin Reg- inald Maudling, er nú hef ur nýlega verið skipaður fjármálaráðherra, að ann- ast frumundirbúning þess máls, í samráði við OEEC. Á þeim tima beindist á- hugi sex-ríkjanna, er lagt höfðu drögin að efnahags- bandal., aðallega að því að fá komið fótum undir þá hugmynd sina, en áhugi fyr ir viðræðum við önnur lönd um viðfeðmara efna- hagssamstarf, var mun minni. Atburðir þeir, sem áttu sér stað í -Alsír 1958, og sið ar leiddu til þess að fjórða franska lýðveldið leið und ir lok höfðu sín áhrif á skoðanir ráðamanna sex- landanna. Aftur fór að bera á hugmyndum um að gera Frakkland að stórveldi inn an Evrópusamveldis. Skömmu síðar komst De Gaulle til valda í Frakk- landi. f nóvemiber 1958 féllu niður allar frekari umræð ur um verzlunarsamband. V- Evrópuríkjanna. Á því ári fór fyrst að heyrast um „ytri löndin sjö“. Ári síðar, eða um það leyti, er löndin í efnahags- bandalaginu framkvæmdu fyrstu tollalækkun sína, 10%, hófust umræður um stofnun verzlunarsambands með aðild Stóra-Bretlands Sviss, Austurríkis, Portú- gals og Norðurlandanna þriggja, Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur. f nóvember það ár var undirritaður samningur þessara sjö landa, og þar með var komið á fót EFTA (Europeau Free Trade Association). Finnland hafði fyrr lát- ið upp ósk um að gerast meðlimur EFTA, en við- skiptasamningar þeir, sem Finnar höfðu gert við Rúss voru þó Þrándur í Götu. Þá fyrst, er farið var að gera sérsamninga, varð það mögulegt fyrir Finna að taka þátt í samstarfi EFTA-lanöanna á sviði toll mála. Það var 1961. í júní í fyrra var fyrst farið að ræða það, á fundi fulltrúa EFTA-landanna, sem haldinn var í London, að ganga ætti til samninga við Efnahagsbandalagið. Höfuðmarkmiðið var að reyna að gera öllum með- limum EFTA kleift að ganga til samstarfs við önn ur Evrópulönd, með það fyrir augum að mynda heildarmarkað Evrópuland anna. Mikil áherzla var á það lögð, í því sambandi, að gera engu einu eða fleiri EFTA-löndum erfitt fyrir, heldur miða að því að öll löndin sjö gætu í einu lagi gengið til slíks samstarfs. Ekki leið þó á löngu, fyrr en raddir fóru að heyr ast um að Bretar ætluðu, einir að leita samninga við efnahagsbandalagið. Stað- festing á þeim orðrómi kom í júlí í fyrra, er tilkynning var gefin út um satnkomu lagsumleitanir. Danir fóru að ráðurn Breta og óskuðu viðræðna um aðild. Svíar hafa aðeins beðið um viðræður um aukaað- ild, þar eð stjórn landsins telur sig ekki geta ger/íð til nánara samstarfs, hlut- leysisstefnu sinni vegna. Umsóknir um slíka aðild hafa einnig borizt frá Sviss og Austurríki. I apríl sl. ákvað norska stórþingið, að óskað skyldi eftir viðræðum um fulla að ild Noregs að efnahags- bandalaginu. fyrir að flytja úi þær vörur. Kostnaðurinn félli á Breta Næði þessi áætlun Frakka fram að ganga. myndi kostn- aðurinn af henni fyrst og fremst falla á Breta, annað hvort brezkan almenning beint, eða þá óbeint, þ.e. að brezka ríkið yrði að greiða niður þær vörur, sem það myndi kaupa frá Samveldis- löndunum og bandalagsríkj un um, eftir að það hefði gengið í bandalagið. Bretar þurfa að flytja mikið inn af landbúnaðarvörum. Væru þeir meðlimir í efna- hagsbandalaginu, myndi inn- flutningur landbúnaðarvara, hvort sem væri frá Samveldis löndunum eða einhverju bandaríkjanna, verða stór- aukin kostnaðarliður. Þeir fengju, skv Pisani-áætluninni mun minna vörumagn en áður fyrir sömu greiðslu — en það myndi þýða stóraukin útgjöld til að mæta landbúnaðarvöru- þörfinni. Þetta myndi ekki bitna eins illa á Þjóðverjum eða Ítölum sem eru sjálfum sér nógir á þessu sviði. Hvað vilja Bretar greiða fyrir aðild? Það sem raunverulega ligg ur því í þessari áætluh er, hve háu verði Bretar vilja greiða aðgang sinn að bandlaginu. Þessi skoðun Frakka, að hægt sé að fá Breta til að greiða aðild sína svo háu verði kann að standa í nokkru sam bandi við þá hugmynd, sem nokkuð virðist hafa gætt með al einstakra ráðamanna efna hagsbandalagsins, að Bretar „þurfi“ að gerast meðlimur. Kannske hefur þessu bezt ver ið lýst með orðum Gaitskellsr er hann sagði, að mesti mis- skilningur Breta hefði verið að koma biðjandi að dyrum efnahagsbandalagsins. Er leið fram á föstudag, varð Ijóst, að ekki var neinnar lausnar að vænta þann dag og loks var það ráð tekið, að Framhald á bls. 19. Ríkin i E.E.C. ! í BELGÍA með um 9 millj. íbúa. | I engu bandalagsríkjcmna! hafa þjóðartekjurnar vaxið { eins hægt að undanfömu, | aukningin nemur aðeins | 16% á árunum 1953—1960.! Um helmingur utanríkis-1 viðsklpta Belga er við hin j banoalagsríkin 5. FRAKKLAND í með um 45.5 millj íbúaj Þjóðartekjurnar hafa vaxí ið um 28% á árunum 1953 i —1960. Mun meiri aukning! ar hefur gætt sl. áratug en! nokkru sinni áður. Iðnvæðj ing landsins hefur gengiði mun betur en nokkru sinnij áður, og fjármál rikisins! eru góð. Aðeins fjórðungur j utanríkisviðskipta Frakkaj önnur bandalags-j V-ÞÝZKALAND ír.eð um 53,5 millj íbúa! er fólksflesta meðlimaríki! efnahagsbandalagsins. Þarj hefur aukning þjóðartekn j er við ríki. anna orðið mest á árunum 1953—1960, eða um 48%.j Um þriðji hluti! utanríkisviðskipta V-Þjóðj verja er við hin bandalagsj ríkin. ÍTALÍA j með 50 millj. íbúa ogj þar hafa þjðartekjurnar- vaxið næstum eins ört ogj í V-Þýzkalandi. Þrátt fyrj ir það eru lífskjör á Ítalíui langt frá því að vera eins. - Eitt aðalvandamálið er, hvej N-ftalía stendur mikluj framar í iðnvæðingu en S-j Ítalía. Þriðji hluti utanrík; isviðskipta er við önnur! bandalagsríkin. HOLLAND með 11.5 millj. íbúa.j Þjóðartekjurnar hafa aukj ist um 30% 1953—1960. Iðnj aðarframleiðsla hefur aukj izt mjög hratt í Hollandi.! Um helmingur utanríkis-j viðskipta er við bandalagsj ríkin. LUXEMBOURG með 300 þús íbúa, eni er þó jafnrétthátt innanj bandalagsins og önnur ríki! og ræður jafn miklu umj framtíðarstefnu bandalagsj ins og þau. Kortið hér að ofan sýnir þau ríki (í svörtu), sem eru með- limir í Efnahagsbandalaginu, þau ríki (dökkrákótt), sem sótt hafa um fulla aðild og loks þau ríki (ljósrákótt), sem óskað hafa víðræðna um lausara samband.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.