Morgunblaðið - 01.08.1962, Qupperneq 16
16
MORGVyBLAÐIÐ
Miðvikudagur 1. ágúst 1962
__HOWARD SPRING:___2 _
RAKEL ROSiNG
~ & m m m m m m m ^ »
með mér og láttu mig um allt
hitt, sagði hann.
3.
Og áður en hún vissi almenni-
lega aí því, var hún komin á
harða sprett út á sjóinn. Vélin
var í kassa í miðjum bátnum og
á þóftunni, rétt hjá vélinni, sat
Mike Hartigan og mélt um stýris-
sveifina. Sjálf sat hún aftur í,
íklsedd brakandi olíuikápu, og
gat rétt almennilega greint
skuggamynd hans, því að nú var
tekið fast að dimma.
Hann leit við og beit um munn
stykkið í pípu með málmloki yfir
hausnum, en reykurinn úr henni
barst til hennar þar sem hún
sat. Er þér heitt? æpti hann til
hennar.
Já, þakka þér fyrir. Hún kom
sér betur fyrir í sessunum, sem
hann hafði útvegað henni og sér
til mestu furðu, fann hún, að hún
hafði bara gaman af þessu. Nú
er þáu voru komin vel frá landi
var ekki mikill sjór. Hartigan
stýrði bátnum beint á öldurnar,
og brátt hafði Rakel vanizt hreyf
ingunni, svo að hún losaði takið á
borðstokknum og hugsaði sér að
dauðinn gaeti hirt hana hvenær
sem væri. Vindurinn lamdi and-
litið á henni og öldurnar klofn-
uðu, svo að sjórinn slettist eins
og hagl á olíukápuna. Hana hit-
aði í andlitið Og einihver fiðring-
ur fór um allan líkamann, og
henni fannst sér líða betur en
nokkru sinni síðan hún fór frá
Manchester, fyrir nokkrum vik-
um. Því að þá hafði henni fund-
izt hún vera við dauðans dyr.
Báturinn þaut áfram og ekkert
sást nema svartur sjórinn, og
ein eða tvær stjörnur, sem voru
eins og að vakna. Enginn annar
bátur var sýnilegur. Það var rétt
eins og þau ættu allan heiminn
fyrir sig. En þá varð sjórinn
kring um þau að einu ljóshafi,
og Mike Hartigan æpti upp: Þeir
eru búnir að kveikja. Haltu þér
fast! Svo snarbeygði bóturinn til
hægri og um leið og alda skall á
hliðinni á honum, beit Rakel í
vörina á sép og hefði getað æpt
upp af sársauka. Það lá við að
borðstokkurinn færi í kaf, en þá
voru þau komin í áttina til
lands og aldan lyfti nú undir bát
inn að aftan og rak þau áfram að
iþví, sem Rakel fannst vesa borg
í ljósum logum.
Komdu hingað, æpti Mike. —
Hvernig lízt iþér á þetta?
Rakel steig varlega yfir þóft-
una, því að oliukápan hefti för
hennar nokkuð. Hún settist við
hliðina á Hartigan, sem Ijómaði
allur í birtunni, sem kom fpá
upplýstri borginni. Er þetta ekki
stórkostlegt? æpti hann enn.
Dásamlegt, samþykkti Rakel.
Hún hafði aldrei séð annað
eins. Allt neðan frá sjávarmáli
og alla leið upp í töpp á Turn-
inum, voru ljós í löngum röðum
og þetta ljóshaf var næstum enn
meira á breidd en hæð. Alla leið
írá Skemmtigarðinum og til Suð-
urfjörunnar og margra mílna
langt ijóshaf — rautt, gult grænt
cg blatt. Lýsandi flugvélar flögr-
uðu um himininn, festar og blóm
vendir af eintómu ljósi blossuðu
og dönsuðu og jafnvel strætis-
vagnamir sniðgluðust áfram eins
og uppljómuð skriðdýf. Þarna
'hefði tæpast verið hægt að koma
fyrir einu Ijósi í viðbót og svo
téll öll þessi ljósadýrð út á sjó-
inn og uppljómaði öldujmar.
Mike stöðvaði vélina og hélt
hendinni um stýrissveifina og lét
bátinn horfa beint til lands. öld-
urnar iyftu honum upp og niður
og skiluðu honum hægt Og bit-
andi til lands. Rakel hélt niðri í
sér andanum af hrifningu af þess
ari dýrðapsjón. Þetta skildi hún
og elskaði og girntist. Það hreif
hana á sama hátt og dýr bíll
hefði gert, eða þá loðkápur og
skrautblém, eða fína fólkið, sem
hún hafði stundum séð köma út
| úr leikhúsunum, þegar hún var í
London. Þetta var eins glæsi-
legt, skrautlegt og girnilegt og
það var tilgangslaust.
Hún varð gripin kvíða fyrir
:þvi, sem hennar kynni að bíða.
Meir en nokkru sinni þráði hún
að geta notað Mike Hartigan sem
meðal til að losna frá þessu ölliu.
Gráðug, eigingjörn og laus við
'hugmyndaflug var hún, en þó
nægilega rómantisk í sér til þess
að finnast þessi sjóferð þeixra
táknræn. Ó guð minn, kveinaði
hún í huga sínum, losaðu mig
úr þessari eymd. Gefðu mér tæki
færi til að rétta við.
Þau voru komin næstum móts
við miðbryggjuna, þegar Mike
setti vélina aftur í gang. Farðu
í sætið þitt og láttu fara vel um
þig sagði hann. Nú sláum við
almennilega í.
Hún brölti aftur í sæti sitt í
skutnum og lét fara vel um sig í
sessunum. Hartigan tók stóran
ullartrefil upp úr vasa sínum Og
fleygði til henar. Settu hann á
þig, öskraði hann til hennar upp
yfir skröltið í vélinni. Hún gerði
svo og kom honum fyrir á hálsin
um, svo að egghvöss olíukápan
meiddi hana ekki lengur, og
ihenni leið betur aftur. Þá lét
Mike vélina ganga af fullum
krafti. og þau beygðu í stóran
hring og út til hafs aftur. Vindur
inn þaut um eyrun á Rakel og
löðrið gusaðist yfir bátinn. Hún
kreppti hnén og teygði olíukáp-
una niðuj- á tær. Hartigan söng
ein/hverja gamanvísu meðan bát-
urinn dansaði á öldunum, og nú
vap himinninn orðinn alsettur
stjörnom, sem höfðu opnað aug-
un til fulls.
Aftur varð Rakel hrædd. Henni
var það ljóst, að í fyrra skiptið
hafði Hartigan alls ekki látið vél
ina gera það, sem hútn gat. En
þar sem hún sat nú á þóftunni,
var henni innanbrjósts eins Og
knapa í veðreiðum, sem er búinn
að missa vitið og reynir að pína
hestinn til að fremja ótrúlegustu
afrek. Rakel hugsaði sér að sjór-
inn væri fullur af torfærum og
blindskerjum og hvers konar
hættum. Borgarbarn, eins og hún
vap, vissi hún ekki hverju við
mætti búast og vænti því alls
hins versta.
Loks kom þay, að hún þoldi
tkki við lengur heldur skreið
fram eftir bátnum og náði taki á
stýrissveifinni. Hún snerti hand-
iegginn á Hartigan og hann hætti
sð syngja og snarsneri sér við
rétt eins og hann hefði verið bú-
inn að gleyma nærveru hennar.
Snúðu við og farðu ekki svona
hart, æpti hún.
Ertu hrædd, öskraði hann á
móti.
Já.
Bara betra, sagði hann. Þú ert
Iþá að minnsta kosti hreinskilin
Hún varð kyrr við hlið hans og
hann dró úr ferðinni og snej-i
bátnum við. Borgin ummyndaða
var nú horfin. Ekkert sást nema
einhver kvikandi birta, líkust
norðurljósum í mílpa fjarlægð
til austurs. Og hátt uppi yfir
henni glotti máninn með fyrir-
litningarsvip.
Þetta er skrítið, sagði Mike.
Máninn svona steindauður eins
og hann er, að hann skuli geta
tíeyft tíu milljón kerta rafmagns
ljós.
Rakel svaraði engu.
Hefurðu ekki unun af að hugsa
heimspekilega? spurði Hartigan.
Nei svaraði hún.
Þú ert að minnsta kosti hrein-
skilin, sagði ha-nn aftur, en svo
sögðu þau ekki meira alla leið-
ina til Blackpool, sem brátt kom
aftur í ljós eins og upp úr sjón-
um.
4.
Þau höfðu skilað bátnum þang
að sem þau höfðu tekið hann á
ieigu, og stöppuðu nú niður fót-
unum á malbikinu á gangstétt-
inni, til þess að ná dofanum úr
Iþeim.
Ertu búin að borða? spurði
Hartigan og sneri sér að því hag-
ræma.
Eg bý í ódýrasta gistihúsinu í
borginni, sagði Rakel. Þar borð-
um við miðdegismat klukkan
eitt.
Þér er þá orðið mál á að fá
eitíhvað ofan í þig. Komdu.
Þau sátu hvort andspænis öðru
við lítið borð í Metropole, með
lítinn, skyggðan lampa á milli sín.
Þar sem þau komu beint inn úr
allri ljósadýrðinni, var þetta eins
cg að koma í viðkunnanlegan
helli utan úr sólskini. Rakel tók
af sér hanzkana og hallaði sér
værðarlega aftur á bak á stóln-
um. Hún hafði haft ánægju af
sjóferðinni, sem hafði hrist af
henni þetta máttleysismók, sem
vax tekið að ásækja hana. Að
láta fara vel um sig innan dyra
var í hennar augum miklu meiri
nautn en það sem bezt gat verið
hugsanlegt úti undir beru lofti.
Hún lét Hartigan um að velja
matinn, en á meðan vó hún hann
og mældi og reiknaði út, hvaða
árangur gæti nú orðið af þessu
móti þeirra, sem varð svona fyr-
ir hreina tilviljun, og vonaði, að
hann færi bráðum að verða opin-
skár um sjálfan sig. Flestir menn
urðu það tiltölulega fljótt. Matur
inn og drykkurinn mundu flýta
því. Hún var fegin, að hann
skyldi panta kampavín. Ekki af
því að hana langaði neitt sér-
lega í það sjálfa, en það bar
vott um örlæti hans og gaf góð-
ar vonir um, að tunguihaftið
mundi bráðlega losna af honum.
Jæja þá, sagði Hartigam, þegax
þjónninn var farinn. Eg er hissa á
þessu, sem þú varst að segja
um ódýra gistilhúsið. Þú lítur
ekki þannig út.
Rakel yppti öxlum og bandaði
hendi eins og í afsökunar skyni.
Hjálpi mér, sagði Hartigan. Þú
hefur þegar sagt allt sem segja
þarf án þess að opna munninn.
Hefur enginn sagt þér, að þú
værir mikil leikkona ?
Mér þykir sennilegt, svaraði
hún með ögrandi brosi, að mér
hafi þegar verið sagt flest það,
sem karlmenn geta komið orð-
um að.
Ertu hissa á því? sagði Harti-
gan. Þú ert einmitt þannig kona.
Líttu á mig. Eg gæti ekki frem-
ur stillt mig um að tala við þig
— Hvað finnst yður að ég ætti að kaupa í dag?
X- >f
Við höfum venð gabbaðir, dr.
Draco. Öryggisráðið er á hælum
akkar. Við skulum forða okkur!
Bíddu! Okkur vantar ekkert nema
þriðja og lokr teyndarmálið um
eldflaugina
Það ætti ekki að vera erfitt að
finna þennan falda vísindamann.
Við spyrjum hann.......Hann mun
“*uía okkur það!! -----^
en api gæti stillt sig um að elta
flugur. Þykir þér fyrir þvi,.
Ef mér þætti fyrir því, hefði
ég látið þess getið. Ég var bara
að geta mér til um, hversvegna
:þú fórst að tala við mig.
Æ, hvers vegna talar karlmað-
ur við fagra konu? Erum við
kannski ekki allir vitlausir bjart*
sýnismenn? Við stingum okkur
bara og vonum það bezta.
Hann leit á hana, vingjarnlega
og ósvífnislega í senn, en ekki gat
hann lokkað fram neitt bj-os sem
svar. Andlitssvipur hennar var
dularfullur. Hún gerði ekkert til
að hjálpa hönum. í heilt ár hafði
Mfið leikið hana grátt og hún
ætlaði ekki að láta leika sig
þannig aftur. Hún tók dökkleitt
blóm úr vasanum á lx>rðinu,
braut það af leggnum og síðan
táðu naglrauðir fingur hennar
Iþað niður á borðið. Þessi at-
höfn hafði mikil áhrif á Harti-
gan. Honum fannst hún táknræn
og hann lagði í hana merkingu,
sem honum sjálfum fannst
heimskuleg, en hann gat samt
ekki losað sig við. Lampinn varp
aði kringlóttum ljósbletti á borð-
ið og í þessum bletti sá hann hvít
ar, grannar hendur hennar. Hann
sá ekkert nema hendurnar, sem
tættu blómið sundur, hægt og
SHtltvarpiö
Miðvikudagur 1. ágúst.
8.00 Morgun.útvarp (Bæn. — Tónleik-
ar. — 8.30 Fréttþ:. — 8.35. Tón-
leikar. — 10.10 Veðurfregnir).
12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. —
12.25 Fréttir og tilkynningar).
13.00 „Við vinnuna“: Tónleikar.
15.00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk.
Tónleikar. — 16.30 Veðurfregnir. —
— Tónleikar. — 17.00 Fréttir.
— tónleikar) .
18.30 Óperettulög. 18.50 Tilkynningar.
19.20 Veðurfregnir.
19.30 Fréttir.
20.00 Hugleiðing í Hallormsstaðaskógl
(Sigurður Bjarnason ritstjóri frá
Vigur).
20.15 Mantovani-hljómsveitin leikur
létt lög.
20.30 Öm Arnarson; síðara erindi (Stef
án Júlíusson rithöfundur).
21.00 Atriði úr óperunni „Don Carlos**
eftir Verdi. — Tito Gobbi, Mar-
io Filippeshi og Boris Christotff
syngja með hljómsveit óper-
unnar í Rómaborg. — Gabri-
iele Santini stjórnar.
21.20 Smásaga: „Leiguherbergi með
húsgögnum" eftir O. Henry. Málfríð-
ur Einarsdóttir þýðir. (Indriði Waage
leikari).
21.40 íslenzk tónlist:
a) Rómansa eftir Árna Björns-
son, Josef Felzman, leikur á
fiðlu og Fr. Weisshappel á pí-
anó.
b) Konsert í einum þætti fyrir
píanó og hljómsveit, eftir Jón
Nordal. Höfundur leikur með
Sinfóníuhljómsveit íslands. Wil-
helm Schleuning stjórnar,
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Kvöldsagan: „Bjartur Dagsson'*
eftir Þorstein í>. Þorsteinsson;
XIII. (Séra Sveinn Víkingur).
22.30 Næturhljómleikar: Dr. Hallgrím-
ur Helgason kynnir hollenzka
nútímatónlist: 4. kvöld. Sinfónía
nr. 4 eftir Guillaume Landré.
(Concertgebouw-hljómsveitin í
Amsterdam leikur. Stjórnandi:
Bernhard Haitink).
Fimmtudagur 2. ágúst
8.00 Morgftnútvarp (Bæn. — Tón-
Jeikar. — 10.10 Veðurfregnir).
12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. —
12.25 Fréttir og tilkynningar).
13.00 ,.Á frívaktinni" sjómannaþtáurt.
(Kristín Anna Þórarinsdóttir).
15.00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilfe.
— Tónleikar. — 16.30 Veður-
fregnir. — Tónleikar. — 17.00
Fréttir. — Tónleikar).
18.30 Óperulög. — 1845 Tilkynningar.
— 19.20 Veðurfregnir.
19.30 Fréttir.
20.00 Henryk Sztompka leikur á pf-
anó marzúrka eftir Chopin.
20J20 Vísað til vegar: Um sveifluháls
og Trölladyngju. (Óttar Kjart-
ansson).
20.40 Emila Della Rocca syngur lög
eftir rússnesk tónskáld.
20.55 Erindi: Jóhannes páfi XXIII,
(Sigurveig Guðmundsdóttir).
21.20 Tveir óperuforleikir eftir Joseph
Haydn:
a) „List und Liebe*' — Sinfóníu-
hljómsveit útvarpsins í Leip-
zig leikur. Heinz Rögner
stjómar.
b) „Die Welt auf dem Monde**
— Sinfóníuhljómsveit Berlín-
arútvarpsins leikur. AdoW
Fritz Guhl stjórnar.
21.35 Úr ýmsum áttum (Ævar R.
Kvaran leikari).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Kvöldsagan: „Bjartur Dagsson'*
eftir Þorstein Þ. Þorsteinsson;
XIV. — Sögulok. (Séra Sveinn
Víkingur).
22.30 Harmonikulög: Twunxy Gumina
leikur.
23.00 Dagskrárlok.