Morgunblaðið - 01.08.1962, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 01.08.1962, Qupperneq 20
Fréttasímar Mbl — eftir lokun — Erleutlar fréttir: 2-24-85 Innlendat fréttir: 2-24-84 SUS-síða Sjá blaðsíðu 13. 173. tbl. — Miðvikudagur 1. ágúst 1962 Strengur inn til Eyja I GÆRMORGUN var Iokið við að tengja neðansjávar- rafstrenginn frá Krosssandi í Landeyjum við land í Vest- mannaeyjum, en búizt er við, að raforkuflutningur tun hann hefjist innan tveggja mánaða. Minni myndin sýnir vita- skipið Arvak, þar sem það er komið með sæstrenginn inn í Klettsvík og liggur þar á 5 metra dýpi. Þar er land- takan, en síðan verður lögð loftlína upp á Heimaklett og þaðan yfir á Skansinn, svo að strengurinn hangir yfir innsiglingunni. — A stærri myndinni, sem tekin er niðri í lest, sést, þegar verið er að tengja landvírana við streng- inn. Ljósm. Mbl.: Sigurg. Jónass. BERLÍN 31. júlí (NTB) — Austur-þýzkir lögreglumenn, sem tekizt hefur að flýja til | V.-Berlínar, .skýrðu frá því V.-Berlín í dag, að allt að 20 þús. a.-þýzkir lögreglumenn yrðu á verði á mörkum A.- og V.-Ber)ínar 13. ágúst n. k., en þá er liðið ár frá því að múrinn var reistur á svæðamörkunum. Er sagt, að öryggisríðstafanir séu gerðar til að hindra nýjan flótta- mannastraum. Farþegaflugið á Kefla- víkurvelli stöðvast Flugumsjónarmenn o.fL leggja niður vinnu KI. 12 á miðnætti í nótt lögðu flugumsjónarmenn og verkstjór- ar við flugafgreiðslu farþegaflugs ins á Keflavíkurflugrvelii niður vinnu. Þegar Loftleiðir tóku við þess- ari starfsemi á Keflavíkurflug- velli úr höndu-m ríkisins 1. júní sl., gengu fyrxverandi starfsmenn ríkisins í þjónustu Loftleiða og voru ráðnir til 2ja mánaða upp á væntanlega samninga. Samn- ingaumleitanir hófust nú fyrir skömmu, en á miðnætti í nótt, iþeg ar ráðningartíminn var útrunn- inn, hafði samkomulag eikki tek- izt. Lögðu flugumsjónarmenn og flugafgreiðslumenn þá niður vinnu. Getur afgreiðsla á far- iþegaflugi iþví ekki farið fram, nema Loftleiðir sendi menn úr Reykjavík til starfsins. Flugum- sjónarmenn í Keflavík og Reykja vík eru í sama félagi, Pélagi ísl. flugumsjónarmanna, svo að ekki er víst, að af því geti orðið. Þeg- ar Mbl. fór í prentun í nótt, voru engir komnir til að taka við störfum mannanna. Ekki var þá von á neinni ----------él i bili. Sæmilegur síklarafli á mörgum miðum FRÁ því kl. 8 á mánudagsmorg- un til kl. 8 í gærmorgun íengu 39 skip alls 24.990 mál og tunn- nr, aðallega austan Bjarnareyjar og norður af Þistilfjarðargrunni og Haganesdjúpi. I gærkvöldi var útlitið bvorki vont né gott; sæmilegur reyt- ingsafli var þá á mörgum stöð- um. 1. Nokkur skip öfluðu sæmi- lega á Sporðagrunni á Húnaflóa- svæðinu í fyrrinótt en ekkert í gærdag. 2. Á mánudagskvöld fann Fanney töluverða síld rétt fram- an við Kjölsensbanka á Þistil- fjarðargrunni. Þar fengu nokkur skip góða veiði um kvöldið og aðfaranótt þriðjudags, t. d. Sól- HeildarsöSfumn 240.340. tunnur A MÁNUDAGSMORGUN var heildarsöltun á landinu öllu orð- in 240.340 tunnur. Mest hafði ver ið saltað í Siglufirði (80.510), Raufarhöfn (67.227) og Seyðis- íirði (21.308). Á Óskarsstöð á Raufarhöfn hafði verið saltað mest, eða í 14.706 tunnur. í Sigluifirði voru þessar stöðvar hæstar: Hafliði (7.806), ísafold (6.821), Haraldur Böðvarsson (6.552) og Nöf (5.942) BRÆÐSLAN Síldarverksmiðjur rí'kisins (SR) höfðu þá alls brætt 486.336 mál, eem skiptast þannig: Siglufjörð- ur 305.249, Raufarhöfn 147.308, Skagaströnd 29.988, Húsavík 3.701. í þessum tölum er úrgangs- síld ekki talin. Rauðka’á Siglufirði hafði alls brætt 103.530 mál, þar af úrgangs síld 21.320. Samið við k j ö tiðnaðar menn FULLTRÚAR Félags kjötiðnaðar manna og fulltrúar atvinnurek- enda kjötiðnaðarmanna sátu á samningafundi á mánudag og að- faranótt þriðjudags. SamningEur tókust um töluverðar kjarabæt- ur, og var samið á svipuðum grundvelli og gert hefur verið við járnsmiði, rafvirkja o. fi. rún 1400 mál, sem hún landaði á Raufarhöfn í gærmorgun, og Áskell 900 mál. Jón Finnsson fékk 1300 og Haraldur frá Akra- nesi 1400 mál, sem þeir fóru með til Siglufjarðar. 3. Fremur léleg sild var á mánudag við Bjamarey, svo að sum skipin sigldu norður um kvöldið, þegar Fanney hafði fund ið síld á Kjölsensbanka. Lentu iþau þá í síld á Langanesdýpi um nóttina, og fékk Björgúlfur t.d. 1300 mál. Góð veiði var þar í gærdag. Fengu m.a. Dofri 900, Leifur Eiríksson 750 og Óiafur bekkur 950 mál. 4. Mikil síld hefur mælzt á Reyðarfjarðardýpi, en illa hefur gengið að ná henni. SIGLUFJÖRÐUR 31. júlí. Skip voru að koma inn í morg un og dag með síld, sem þau fengu um nóttina á Húnaflóa- dýpi. Lítill hluti aflans fór í sérverkun, en hitt í bræðslu. Síld þessi virðist að nokkru leyti blönduð Faxaflóasíld, magrari innan um. — Bv. Hallveig Fróða- dóttir kom í morgun með 3.000 mál frá Austurfjörðum. - Stefán RAUFARHÖFN Þar hefur ekkert verið saltað síðan fyrir helgi, en skipin halda áfram að koma inn með síld, sennilega tæp sex þúsund mál á dag. VOPNAFJÖRÐUR Á þriðja þúsund mál bárust þangað í fyrrinótt og gær. 850 lestir af sildarmjöli voru lestað- ar í gær á enskan markað. Beðið fyrir- mæla frá Hfoskvu í GÆRMORGUN ræddi Sáldar- útvegsnefnd við sovézka verzl- unarfulltrúann hér um sildarsölu til Sovétríkjanna. Ekki náðist samkomulag á fundinum, og mun sovézki verzlunarfulltrúinn nú bíða fyrirmæla frá Moskvu. Svars var ekki að vænta í gær, en e.t.v. í dag. Akureyrartog- arar halda út AKUREYRI, 31. júlí. — Axur- 'eyrartogararnir fimm að tölu eru nú í þann mund að leggja út til veiða, eftir hið langa verk- fall togarasjómanna. Svalbakur mun fara til veiða í kvöld og Harðbakur á fimmtudag. Hinir fara um eða eftir helgina. Vel hefur gengið að manna skipin, og virðist enginn hörgull á togarasjómönnum. Togararnir munu fyrst um sinn veiða fyr- ir heimamarkað. — St. E. Sig. IJrskurði gerðar- dóms mómælt MBL. HEFUR borizt afirit af eft- irfarandi brófi, sem skipverjar á 12 síldveiðibátum hafa sent Emil Jónssyni, sjávarútvegsmálaráð- herra. „Skipshafnir á undirrituðum bátum, sem eru staddir á Rauf- arhöfn fiöstudaginn 27. júlí 1962, vilja bera firam harðorð mótmæli gegn úrskurði gerðardómsins í sí ldarsamningum' Nöfn bátanna eru þessi: Helga RE, Leifur Eiríksson, Héðinn, Bjöm Jónsson, Smári ÞH, Víðir H., Valafell, Eldey, Hávarður, Gjafar, Fagriklettur Steingrim- ur trölli. HERAÐSMOT Sjálfstæðismanna I V.Húnavatnsýslu 4 ágúst H É R A Ð S M Ó T Sjálfstæðismanna í Vestur-Húnavatns- sýslu verður haldið að Laugarbakka n.k. laugardag 4. ágúst kl. 8,30 e. h. aðarráðherra, og Einar Ingi- ■pfv S mundarson, alþingismaður, a' ' í ■;.»&( flytja ræður. Þá verður sýndur gaman- flL. J vflfc leikurinn „Heimilisfriður“ JS .. M ^ eftir Georges Courteline, í þýðingu Árna Guðnasonar, magisters. Meö hlutverk fara Einar Ingólfur og Guðrún Ásmundsdóttir. Ennfremur verður til skemmtunar einsöngur og tví- söngur. Flytjendur eru óperusöngvararnir Guðmundur Jónsson og Sigurveig Hjaltested, og undirleik annast Ólaf- ur Vignir Albertsson. — Dansleikur verður lun kvöldið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.