Morgunblaðið - 15.08.1962, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.08.1962, Blaðsíða 6
6 MORGVNRLAÐ1Ð Miðvikudagur 15. ágúst 1962 Ýmsar framkvæmd- ir á Siglufiröi Flóðcgarður endurbyggður og fjallskurður grafinn SIGLUFIRÐI, 14. ágúst. Ýmsar íramkvæmdir standa nú fyrir dyrum Hjá Siglufjarðarkaupstað. Hingað kemur á morgun sand- dæla, sem Flugmálastjórnin á, og dregur Drangur hana frá Akur- <eyri. Verkefni sanddælunnar á að ,vera að dýpka við járnþilið í höfn inni og dæla uppmokstrinum sem fyllingu í innri höfnina. í þessum mánuðj er fyrirhugað að byggja uþp flóðvarnargarð norðan Eyiarinnar. Er garðurinn mjög illa farinn og brýn nauð- syn að endurbyggja hann. Ef þessi garður væri ekki væri flóða hætta mikil hér í stórstreymi og norðanátt Landssjmi fslands er að byggja radíóstöð í Hvanneyrarskál og er hún ætluð til þess að bæta síma samband Siglfirðinga við um- heiminn, sem ekki var vanþörf á. í því jambandi hefur verið lagður jeppafær vegur upp í Hvanneyrarskál. Verður þessi vegur notaður til þess að koma vélgröfu upp í hlíðina til þess að grafa þar fjallskurð fyrir ofan bæinn. Á skurðurinn að koma í veg fyrir vatns- og aurrennsli úr fjallinu i íbúðarhverfin efst í bænum; — Stefán. Sextugur: Einar Olgeirsson EINAR OLGEIRSSON alþingis- anaður átti í gær sextugsafmæli. Hann er fæddur á Akureyri 14. tágúst árið 1902, sonur Olgeirs Júlíussonar bakara og konu hans Sólveigar Gísladóttur. Hann lauk gagnfræðaprófi á Akureyri 1917 og Stúdentsprófi frá Menn/ta skólanum í Reykjavlk árið 1921. Síðan stundaði hann um skeið tungumála- og bókmenntanám í Ðerlín. Hann var kennari við fram haldsdeild Gagnfræðaskólans á Aikureyri árin 1924 til 1928. For- stjóri Síldareinkasölu íslands var hann árin 1928 til 1931. Forstjóri íslenzik-rússneska verzlunarfé- lagsins var hann árin 1931 til 1935. ' Árin 1935 til 1936 var hann rit stjóri Verkalýðsblaðsins, sem var aðalmálgagn Kommúnistaflokiks ins. Árin 1936 til 1941 var hann ritstjóri Þjóðviljans. Einar Olgeirsson hefur átt sæti í ýmsum stjórnum og milliiþinga nefndum fyrir flokk sinn. Hann átti um skeið sæti í Útvarps- ráði. Einnig átti hann sæti í Nýbyggingarráði á árunum 1944 til 1947. Einar Olgeirsson var kosinn á r Arekstur ÁREKSTUR varð á mánudags- ikvöld um kl. hálfsjö á veginum nálægt Þórisstöðum í Hvalfjarð- arstrandarhreppi. Lentu í hon- um jeppabíll frá Snæfellsnesi og varnarliðsbifreið. Skemmdist sú síðarnefnda töluvert, og Englend ingur, sem var í jeppanum, skarst á enni, þó ekki alvarlega. þing fyrir Reyfkjavík árið 1937 og hefur átt þar sæti síðan. For- seti Neðri deildar Aliþjngis var hann árin 1956 til 1959. Síðast- liðin 30 ár hefur hann ver-ið á- hrifamesti leiðtogi íslenzkra kommúnista, m.a. gegnt for- mennsku í Sameiningarflokki al- þýðu Sósialistaflokknum, fró því, að hann var stofnaður. Milli Einars Olgeirssonar og Morgunblaðsins hefur jafnan ríkt djúptækur skoðanamismun- ur. En það mun jafnt skoðun andstæðinga hans sem fylgis- manna, að hann sé mikillhæfur baráttumaður og boðandi þeirr- ar stefnu, sem hann hefur gert að lífsstarfi sínu að berjast fyrir. Góðir gestir frá Finnlandi: Karlakór í heimsókn „Muntra Musikanter” í LOK þessa mánaðar er vænt- anlegur hingað til lands karla- kórinn „Muntra musikanter“ frá Helsingfors, einn allra fremsti og víðfrægasti kór á Norðurlönd- um, Munu margir fagna því að fá nú loks færi á að heyra hér þennan nafnkunna hóp „glaðra söngvasveina", sem í meira en 80 ár hefir varpað sérstökum frægðarljóma á finnskt tónlistar- líf og borið hróður finnskrar sönglistar víða um lönd. Kórinn fór fyrstu söngför sína til útlanda árið 1882, fyrstur finnskra kóra. Síðan hefir hann farið fleiri slikar ferðir en nokk- ur annar finnskur kór, einkum um Norðurlönd. Má furðulegt telja, að hann skuli ekki fyrr hgfa lagt leið sína hingað til lands, en sú hugmynd skaut fyrst rótum, þegar karlakórinn „Fóst- bræður“ kom til Finnlands í söngför sinni á sl. hausti. Stjórnandi „Muntra Musikant- er“ er tónskáldið Erik Bergmann, og hefir hann stýrt kórnum síð- an 1951. Hann er meðal frægustu núlifandi tónskálda Finna, mjög vel menntaður tónlistarmaður og aðhyllist í verkum sínum ný- tízkulegan stíl, en þó áheyrileg- an og persónulegan í senn. Hafa verk hans hlotið óskorað lof hinna ströngustu gagnrýnenda, og margvíslega viðurkenningu hefir hann hlotið fyrir þau heima og erlendis. ' Söngskrá „Muntra Musikanter" í íslandsferðinni ber því vitni, að um hana hefir fjallað mennt- aður og smekkvís tónlistarmaður, og er hún næsta ólík þvi, sem algengast er um verkefnaval karlakóra. Hún hefst á nokkrum lögum eftir 17. aldar tónskáld og endar á lögum eftir söngstjór- ann, sem mjög gaman verður að fá að heyra. önnur verkefni eru m. a. eftir Schumann, Straw- insky, Sibelius Og Palmgren. — Eitt íslenzkt lag er á efnis- skránni, „Gimbillinn mælti“, þjóðlag í útsetningu Ragnars Björnssonar. Söngmenn 1 „Muntra Musik- anter“ eru háskólamenn ein- göngu, sem flestir hafa áður fengið kórþjálfun í finnska háskólakórnum, „Akademiska Sángföreningen“, sem að því leyti má telja einskonar „for- skóla“ þessa kórs. Söngmennirn- ir, sem hingað koma, eru 67 að tölu, og eru í þeim hópi ýmsir atkvæðamenn í menningar-, stjórnmála- og atvinnulífi Finn- lands. Einsöngvari með kórnum er tenórinn Kurt Klockars, sem um árabil hefir verið einsöngvari með „Muntra Musikanter" og finnska útvarpskórnum. „Muntra Musikanter" koma hingað á vegum karlakórsins „Fóstbræðra". Þeir dveljast hér á landi aðeins fáa dága, og verð- ur því ekki unnt að endurtaka samsöng kórsins, sem haldinn verður í samkomuhúsi Háskól- an þriðjudaginn 28. ágúst. Að loknum þeim samsöng fer kór- inn til Akureyrar í boði bæjar- stjórnarinnar þar, í tilefni af aldarafmæli bæjarins. Á Akur- eyri syngur kórinn fimmtudag- inn 30. ágúst. Leiðrétting SÚ VILLA varð í frásögn af sjó- stangaveiðimóti í Keflavík í blað inu í gær að nafn Birgis J. Jó- hannssonar misritaðist og leið- réttist það hér með. ★ Jahve hyggt út „Það höfum við nú fengið að vita, að hafizt skuli handa um nýja þýðingu Gamla testamet- isins. Nýtt skip á að smíða, og smíðin er hafin á neglunni; því það fylgir fregninni, að Jahve skyldi ekki hafa þarna húsa- skjól lengur. Hann kom inn í íslenzku þýðinguna sem gerð var úr frummálinu, hebresku. Og þeg ar presti einum þótti óviðfelld ið að heyra Aron segja: Jahve blessi þig (4. Mós. 6), spurði Þórhallur biskup: „Var eigi rétt og skylt, að blessunarformáli Gyðinga sæist í biblíunni með því guðsheiti, er honum ber?“ Jæja, fari hann í friði; ekkert tjón hefir hann unnið landslýðn um, svo vitað sé. Jahve er bara í Gamla tesia- mentinu. En hvernig fer nú um Nýja testamentið? Jahve er hebreska, Kristur er gríska. Er hún þolanlegri? Og hvað eigum við nú að gera við halelúja? En ekki meigum við brosa að þessum málum. „Gráskeggur“ Eldur af himni Maður einn leit inn til Vel- vakanda í gær og sagði sínar farir ekki sléttar: Hann var á gangi fyrir fram- an eina helztu skrifstofubygg- ingu hér í 'bænum þá um morg- uninn. Veit hann þá ekki fyrri til en eitthvað létt fýkur um axlir hans og lendir á götunni íyrir framan fætur honum. Þetta vsir þá logandi sígarettu- stubbur, sem skildi eftir ösku á fötum hans, og einhver hafði kastað út um glugga fyrir ofan hann. Sagði maðurinn, að hann hefði eins getað lent í hári eða höfuðbúnaði einihvers og vald- ið þar með tjóni á klæðnaði og mönnum. Verra hefði þó verið, ef bíll hefði verið nærstaddur, sem smábenzínlögg hefði lekið ór. Þá hefði e.t.v. getað orðið sprenging á almannafæri. Tillitsleysi í um- gengnisvenjum Þetta þykir ýmsum nú kannske lítilfjörlegt atvik, en þó sýniir það, hve íslendingar eru ótrú- lega kærulausir stundum í um- gengni. Skrifstofumaðurinn, sem sat við gluggann uppi á efri hæðum, hefur sennilega ekki nennt að teygja sig eftir ösku'bakka og ekki látið sig muna um að fleygja logandi sígarettunni út á götuna, án þess að hugsa til þess, að það gæti ihaft hættulegar afleiðing- ar. Sama kæruleysið birtist f þvi, hve fólk er ófeimið við að kasta alls konar hlutum út um bílglugga, án þess að hugsa nokkuð um þann, sem á eftir kemur. Sums staðar erlendia liggja háar sektir við því að fleygja hlutum út á vegi, hvort sem það eru nú naglar eða ís- form, og jafnvel er hægt að sekta þá, sem sjá þvílíkar að- farir en láta undir höfnð loggj- ast að kæra þær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.