Morgunblaðið - 15.08.1962, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 15.08.1962, Blaðsíða 8
8 r MORGVNBLAÐ1L Miðvikudagur 15. ágúst 1962 Vökumenn með innra liós Á FYRSTU dögum júlímánaðar nú í sumar fluttu búferlum frá Sauðárkróki til Reykjavíkur Jón Þ. Björnsson, fyrrv. skólastjóri og frú Rósa Stefánsdóttir, hús- mæðraikennari, kona hans. Höfðu Sauðáxikróksbúar og fleiri Skag- firðingar áður haldið þeim hjón- um veglegt kveðjusamsæti á Sauðárkróki, til þess að votta þeim virðingu og þakklæti fyrir vel unnin störf í þágu skagfirzkr ar menningar. Jón Þ. Björnsson ólst upp í grennd við hin fagra fjali Tinda- stól í Skagafirði. Virðist hann á margan hátt hafa erft hið and- lega svipmót frá ættföður sínum, skáldinu frá Heiði, er orti Vara- . bálk. Ungur stundaði Jón nóxn í Möðruvallaskóla. Sneri sér síðan að barnakennslu í heimalhögum. Brátt lágu leiðir þessa unga og giæsilega æskumanns til Dan- mierkur í leit að fjölþættri og hagnýtri kennaramenntun. Það rættist á hinum unga og gáfaða kennara, að „að röm er sú taug er rekka dregur föðurtúna til.“ Hann gat valið á milli vel- launaðra skólastjórastarfa bæði hérlendis og í Danmörku, en Skagafjörður dró hann til sín aftur. Á Sauðárkróki við rætur Tindastóls beið hans langt og giftudrjúgt lífsstarf sem barna kennara, skólastjóra, sóknar- nefndarformanns, meðhjálpara Sauðái’krókskirkju og sívakahdi æskulýðsleiðtaga. Eiga bindindis félögin á Sauðárikróki Jóni mikið að þakka, þar var hann sem ann- ars staðar hinn ötuli, óeigingjarni starfsmaður, enda þótt ekki sé alltaf létt starf að vera „hróp- andi í' eyðimörkinni." Vegna hinnar mi/klu starfs- orku Jóns Þ. Björnssonar, skóla- stjóra, og þess að hann var jafn an boðinn og búinn til þess að rétta hverju góðu málefni hjálp- arhönd hlóðust á hann fjöldi op- inberra starfa, m.a. oddvitastörf Sauðárkróks um langt skeið, ein mitt á þeim árum þegar fátækt- in var fylgikona margra alþýðu- manna. Þótti Jón leysa hin vandasömu oddvitastörf af hendi með ein- beittni og skilningi hins hjarta- hlýja manns. Kennarahæfileikar Jóns skólastjóra telja kunnugir og allir dómbærir nemendur hans góða og óvenjulega fjöl- þætta. Hefi ég sérstaklega heyrt getið með mikiili aðdáun kennslu hans í dráttlist og leikfimi og kristnum fræðum. Jón Þ. Björns- son er sá gæfumaður að hafa öðlast hið þýðingarmikla innra ljós hinnar glöðu og þróttmiklu Guðstrúar, — þess vegna hefur hann jafnan getað gefið öðrum á því sviði . Jón Þ. Björnsson er tvikvænt- ur. Fyrri konu sína, frú Geir- laugu Jóhannesdlóttur, hina á- gætustu mannkostakonu, missti hann frá stórum hópi af mann- vænlegum börnum, sem enn voru nokkur á æskuskeiði. Var þá þungur harrnur kveðinn að nán- ustu ættmennum hinnar gáfuðu og glæsilegu konu. Varð því Jón um tíma að taka að sér hið vandasama hlutverk að vera börnum sínum bæði faðir og móðir. En eftir nókkurt árabil kynntist Jón annarri góðri og gáfaðri konu og gekk að eiga hana. Þessi kona var Rósa Stef- ánsdóttir, húsmæðrakennari. Hef ur hún verið samhent manni sín- um í veitulli gestrisni og verið honum traustur og umhyggju- samur lífsförunautur, og leyst hið vandasama hlutverk stjúp- móðurinnar af hendi með fórn- fýsi og kærleiksríkum skilningi. Má því með sanni segja að Jón Þ. Björnsson hefur verið gæfu- maður. örlögin hafa hagað því svo til, að gera mér þann greiða að fá að kynnast frú Rósu Stefánsdótt- ur og marga ánægjulega stund hef ég átt í grennd við þá konu, bæði á heimili þeirra hjóna á Sauðárkróki og á Löngumýri. Þótt stundum hafi mangþættar annir umkringt okkur. Mörg góð ráð hefi ég þegið af henni og marga skemmtilega vísuna hef- ur hún kennt mér. Frú Rósa er margra manna maki í vinnuafköstum og hag- sýni hennar er viðbrugðið. Enda hafa henni verið falin á hendur mörg trúnaðarstörf við vikjandi veizluhöldum og forstöðu stórra mötuneyta, bæði hér í Skaga- firði og annars staðar. En þrátt fyrir það þótt mörg- um séu kunnir góðir kennslu- hæfileikar frú Rósu og framúr- skarandi dugnaður hennar og hagsýni í störfum, þá hygg ég sámt að gáfur og djúphyggja þessarar yfiriætislausu konu hafi ekki öllu verið augljós samferða- fólki hennar né hversu hún á yfir skemmtilegri kímnigáfu að ráða. Jón Þ. Björnsson, maður þess- arar ágætu vinkonu minnar, verður áttræður í dag 15. ágúst. 'Áttræður \ dag: Jón Þ. Björnsson JÓN Þ. BJÖRNSSON, fyrrver- andi skólastjóri á Sauðárkróki, er áttræður í dag. Fátt er mér, gömlum nemanda Jóns, ljúfara eo að minnast hans nú með nokkrum fátæklegum orðum, þótt ég viti vel, að svo hug- stæðum og atorkusömum manni hæfir lengri og verðugri afmæl- isgrein að þessu sinni. Að vísu er það svo, að störf og áhrif mikilhæfra kennara og uppal- enda er örðugt að vega og meta ttl fulls, því hið góða, sem af þeim hefur leitt, verður aðeins að litlu leyti höndum þreifað, — það er ósýnilegt. Jón er fæddur að Háagerði í Húnavatnssýslu. Foreldrar hans voru Björn Jónsson, síðar bóndi og hreppstjóri á Veðramóti x Gönguskörðum, og kona hans Þorbjörg Stefánsdóttir frá Heiði. Frá þeim hjónum er komin mikil ætt og merk. Jón ólst upp í föðurgarði, í stórum systkinahópi, en var síð- an settur til mennta og tók próf úr Möðruvallaskóla árið 1899. Hann hóf kennslu í Sauð- árhreppi sama ár og gegndi henni til ársins 1905, að hann sigldi til framhaldsnáms í kenn- araskólanum í Jonstrup á Sjá- landi og lauk þaðan prófi árið 1908. Jón gerðist skólastjóri barnaskólans á Sauðárkróki þegar eftir heimkomur.d (1908) og hafði hana með höndum óslit- ið til ársins 1952. Einnig var Enn er hann léttur í sp>ori og liðlegur í hreyfingum, sem göml um íþróttakennara sæmir, skemmtilegur í viðræðum og veit ull fræðandi,. Margur með fornmanna inn- ræti mundi hyggja að hollvætt- ir Tindastóls og annarra skag- firskra fjalla muni senda þess- um heiðurshjónum hlýjar vinar- kveðjur, þakklæti og heillaóskir í dag. Vil ég gjöra slíkt hið sama. Löngumýri, Skagafirði, 9. ágúst 1962. Ingibjörg Jóhannsdóttir. ★ FEGURDARSAMKEPPNIN á Langasandi hófst á fimmtu- daginn var og lýkur nú um helgina. íslenzki fulltrúinn, María Guðmundsdóttir, flaug' til-New York með Loftleiða- vél sl. mánudagskvöld. í New York var tekið vel á móti henni og hún Ijösmynduð frá öllum hliðum, en á leiðarenda komst hún ekki fyrr en á miðvikudagsmorgun. Engar fréttir hafa borizt af Maríu enn sem komið er, enda stendur hin stranga keppni sem hæst, og lítill tími gefst til bréfaskrifta. Fegurðar- drottningarnar eru önnum kafnar frá morgni til kvölds, þeim er boðið 1 ótal veizlur, þær koma fram1 í sjónvarpi o.s.frv. Eitt kvöldið heimsóttu þær ýmsa íbúa í Kaliforníu, Langasandskeppnin stendur sem hæst annað skiptið kynntust þær ævintýraheimi Disney-lands- ins og þannig mætti lengi telja. Eins og áður hefur verið skýrt frá hér í blaðinu hefur María orðið landi sínu og þjóð til sóma þann stutta tíma sem hún dvaldizt í Par- ísarborg í vetur og náði þar miklum vinsældum sem sýn- ingarstúlka og ljósmynda- fyrirsæta. Myndir af henni hafa þegar birzt á forsíðu sjö þekktra, franskra blaða, þeirra á meðal stórblaðanna Paris Match, Elle, Jardin de Mode o. fl.; einnig mun stærsta tízkulblað Þýzkalands, „Elegante Welt“, birta bráð- lega forsíðumynd af Maríu. Rétt áður en María hélt til Langasands tók hún þátt í keppni í París, sem efnt var til í sambandi við haust- tízkusýningarnar. Þar var María kosin þriðja bezta sýn- ingarstúlka Parísarborgar og ein af tíu beztu í heimi. Framtíðaráætlanir Maríu næsta árið eru í stórum drátt- um á þessa leið: Að aflokinni keppni heldur hún aftur til Parísar, búizt er við henni hingað til lands um jóla-leyt- ið, en héðan heldur hún til New York, og hefur frá ára- mótum ráðið sig sem ljós- myndafyrirsæta hjá Irene Ford í New York, sem er eitt stærsta fyrirtæki sinnar teg- undar þar í borg. Víst er að margir bíða með óþreyju eftir úrslitunum í Langasandskeppninni nú um helgina, og ef þau falla eins og flestir vona er ómögulegt að segja nema framtíðaráætl- anir Maríu kunni að breytast. Að því er Morgunblaðið hefur frétt, gerir María sjálf sér litlar sigurvonir í keppni þeirri sem nú stendur yfir — enda hlédræg að eðlisfari, að því er kunnugir telja — og var jafnvel dálítið kvíðin. Meðfylgjandi mynd var tek- in af Maríu, þegar hún heils- aði upp á fulltrúa Brazilíu, Julieta Strausz, á Langasandi. hann skólastjóri unglingaskóla þar frá 1908—46. Jón var frumkvöðull í ýms- um félagsmálum á Sauðárkróki, stjórnaði bindindisfélögum á staðnum og rauðakrossstarfsemi og er nú bæði heiðursfélagi Stórstúku íslands og Rauða Kross íslands. Árið 1912 kvæntist Jón fyrri konu sinni, Geirlaugu Jóhannes- dóttur, af eyfirzkum ættum, og eignaðist með henni tíu börn, sem öll eru á lífi. Meðal þeirra má nefna Stefán, arkitekt, Björn, lækni í Kanada og Jóhannes Geir, listmálara. Geirlaugu konu sína missti Jón árið 1932. Hann kvæntist að nýju 1940, Rósu Stefánsdóttur frá Króks- stöðum í öngulstaðahreppi, hinni ágætustu konu, og eru þau hjón nýlega flutt frá Sauðár- króki og búa nú á Reynimel 52 hér í bænum. Jón Þ. Björnsson má óhikað telja til merkustu skólamanna landsins á þessari öld. Stuðlar margt að því. Hann er ágætum og fjölþættum gáfum gæddur, búinn drenglund, skapfestu og einurð og hlaut á uppvaxtarár- um menntun, sem skaraði fram úr því, sem þá var títt um verð- andi kennara. Hann fékk í veg- arnesti bjartsýna trú á landið og þjóðina og sannan metnað að vinna hvorutveggja allt það gagn, sem hann framast kunni. Þegar hann snýr heim í ætt- byggðir sínar að loknu námi beið hans mikið verksvið og hann tók fljótt til óspilltra mál- anna, hóf kennslu sína og önn- ur skóla- og félagsstörf, sem alla tíð hafa notið góðs af þeirrl heppilegu menntun, sem hann varð aðnjótandi. Hann kostaði jafnan kapps um að siðmennta nemendur sína, ekki síður en bókfræða þá, og var þar sjálfur hin lifandi fyrirmynd, því reglu- samari, snyrtilegri og dagfars- agaðri maður er ekki auðfund- inn. Hann lagði sig og fram um að hafa sem nánast samneyti við nemendur utan skólatím- ans, með því að taka sjálfur virkan þátt í félagslífi þeirra og skemmtunum. Hann var óþreyt- andi að brýna fyrir þeim vönd- un móðurmálsins og vakti, eftir því sem honum var unnt, yfir heill þeirra og farsælum fram- gangi í hvívetna. Skólastörfin voru Jóni hugsjónamál, urðu Framh. i bls. 16. •

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.