Morgunblaðið - 17.08.1962, Qupperneq 1
20 siður
49 árgangur
186. tbl. — Föstudagur 17. ágúst 1962
Prentsmiðja Mergunblaðsins
Lönd í Asiu, Afríku, Evrópu
og V-lndíum ganga í EBE
*
segir de Pous, efnahagsmálaráðherra Hollands, i
vidtali i Osló i gær — Er hlynntur aðild Noregs
oc telur enga ástæðu til svartsýni i framtiðinni
Osló, 15. ágúst. — (NTB)
'EFNAHAGSMÁL.ARAÐHERRA Hollands, Willem de Pous, sagði
í Osló í dag, að Hollendingar væru þeirrar skoðunar, að aðild
Noregs að efnahagsbandalaginu myndi marka nýtt spor í efna-
bagssamstarfi Evrópu.
De Pous hefur dvalizt í Noregi undanfarna viku og m. a. rætt
■við Kjell Holler, iðnaðarmálaráðherra og t). C. Gundersen, við-
c>kiptamálaráðherra. — De Pous lýsir því yfir, að einkum. hefði
verið rætt um iðnaðarmál, viðskiptasamband Noregs og Hollands
og önnur mál, sem nú væru ofarlega á baugi vegna umsóknar
Noregs um aðild að EBE.
Ráðherrann tók fram, að ástæðulaust væri að vera bölsýnn á
framtíðina, efnahagsbandalagið væri nú sem óðast að treysta tengsl
fcín við nær öll lönd heims. Fullyrti hann, að bæði lönd í Afríku,
Asíu og Evrópu, auk V.-Indía, myndu senn ganga í efnahags-
handalagið. —
• Það kom fram af svörum de
Pous við spurningum frétta-
manna, að hann er sjálfur mjög
hlynntur aðild Noregs. Lagði
hann einkum áherzlu á það, sem
líkt væri með Norðmönnum og
Hollendingum á iðnaðarsviðinu.
Hann sagði nokkrar iðngreinar í
Hollandi, sérstaklega í vefnaði,
hafa orðið allhart úti í fyrstu
vegna samkeppni innan banda-
lagsins. Þetta kvað hann nú
mjög hafa breytzt til batnaðar,
einkum vegna þess, að áherzla
hefði verið lögð á aukin gæði í
þessum greinum, auk þess sem
sérhæfing hefði farið mjög í
vöxt.
• Taldi de Pous, að þróunin
myndi verða mjög á sama veg
í Noregi, ef af aðild yrði.
Rekinn frá
Rússlandi
London, 16. ágúst — NTB.
RÚSSNESK yfirvöld hafa
ákveðið að vísa úr landi
fréttaritara bandaríska viku-
ritsins „Newsweek“, William
Bassow að nafni. Er hann
sakaður um að hafa birt rang
ar og niðurlægjarrdi fréttir í
blaði sínu um ástandið í Rúss
landi.
Er kunnugt varð um þessa
ákvörðun, tilkynnti ritstjóri
„Newsweek", að Bassow
hefði verið mjög árvakur og
samvizkusamur maður i
starfi sínu, og mundi ein aðal
ástæðan fyrir bví, að honum
hefði niú verið vísað úr landi,
vera sú, að Bassow hefði
heimsótt skóla einn þar
eystra, án þess að hafa fengið
til þess leyfi viðkomandi yfir
valda.
í rússnesku tilkynningunni
segir auk þess, að frásagnir
Bassow hafi vakið almenna
undrun og reiði í Ráðstjórnar
ríkjunum.
„Newsweek" mun 'hafa gert
ráðstafanir til þess að fá leyfi
til að senda annaa rréttarit-
ana til Rússlands.
Mikill árangur í viðræðum
við Breta
Þá vék de Pous að samninga-
viðræðum Breta og EBE. Hann
sagði það ekki vera rétt, að upp
úr þeim viðræðum hefði slitnað
— þvert á móti hefði náðst sam-
komulag um mörg veigamikil
atriði. Hins vegar ætti enn eftir
að finna lausn á ýmsum atrið-
um, en að því væri nú unnið.
Af þeim atriðum, sem hann
sagði samkomulag hafa náðst
um við Breta, nefndi hann
hvernig haga bæri lausri aðild
EBE og landa í Afríku og V.
Indíum, innflutning landbúnað-
arvara frá Indlandi, Pakistan,
Ceylon og nokkurra annar
landa í tempraða beltinu. Þetta
taldi de Pous mikilsverðan
árangur.
Hins vegar kvað hann ómögu-
Barizt í N-Katanga
Briissel, Accra, 16. ágúst — NTB
Komið hefur til hernaðarátaka
i N-Katanga undanfarna daga.
Hefur stjórn Adoula haldið því
fram, að hcr Tshombe sé nú að
undirbúa samfeUdar aðgerðir til
að taka hcrskildi nokkur þorp,
og séu aðgerðirnar einn liður í
því að herja að stjórnarmiðstöð-
inni í AlbertviUe.
Fréttir frá Leopoldville segja,
að í dag hafi evrópskur leiguher
maður úr liði Tshombe verið
felldur, og hafi lík hans nú verið
flutt til LeopoldviUe, þar se
reynt verði að ganga úr skugga
um hver maðurinn hafi verið.
Tshomibe sagði í dag í viðtali
við blaðið „Le Soir“, er gefið er
út í Briissel, að hann sé mjög
hlynntur tillögum þeim, er Cyr-
Framhald á bls. 19.
legt að segja, hvenær Bretar
semdu um aðild. „Við vitum að-
eins, að það þarf að leysa vanda
málin, fyrr eða síðar“, sagði ráð-
herrann,
Tengsl EBE við flest lönd
heims nú treyst
Af öðrum yandamálum, sem
i bíða úrlausnar, nefndi de
Pous sambandið milli EBE og
Efta-landanna. Hann sagði, að
engin ástæða vaeri til svartsýni
um þróun mála í náinni fram-
tíð. Efnahagsbandalagið væri nú
vel á veg komið með að binda
tengsl sín við nær öll lönd
heims. Hann fullyrti, að bæði
lönd í Afríku, Asíu, Evrópu og
V.-Indíum myndu ganga 1 banda
lagið. „Því eru vandamálin mik-
il og þarfnast úrlausnar", sagði
de Pous.
Óráðið um austurviðskipti
Er hann var að því spurður,
hver yrði framtíðarskipan við-
skipta við lönd austan j árn-
tjaldsins, sagði ráðherrann, að
engar ákvarðanir hefðu verið
teknar af EBE um þau mál enn
þá. Hann sagði Hollendinga vera
talsmenn frjálsra viðskipta við
Framhald á bls. 2.
Wernher von Braun.
ekki slíkrar breytingar, heldur
aðeins stuðnings almennings í
landinu.
Von Braun skýrði frá því,
að í þessum mánuði yrðu gerð
ar tilraunir með nýja eldflaug
af Saturnusgerð, sem nefnd
hefur verið C-l. Er afl hennar
sagt hið sama og þeirra eld-
flauga, sem Rússar hafa notað
við síðustu tilraunir sinar.
Sagði von Braun enn frem
ur, að í kjölfar þessara til-
rauna fylgdu tilraunir með
endurbætta gerð Saturnuseld-
flaugar, og ætti hún að geta
flutt þriggja manna geimfar
til tunglsins.
Þá minntist hann á enn ný ja
eldflaug, C-5, en þungi hennar
Eldflaug með 40
tonn til tunglsins
Vfernher von Braun lýsir áœtlun Banda-
ríkjamanna um mönnuð geimför
Blaksburg, 16. ágúst. — er sagður samsvara þyngd 25
Wernher von Braun, fram- fullhlaðinna þota af gerðinni
kvæmdastjóri bandarísku áætl Boeing 707. Afl C-5 væri svo
unarinnar um að senda menn mikið, að hún gæti flutt 40
til tunglsins, sagði á fundi með tonna þunga tU tunglsins. —
fréttamönnum í Blacksburg í Kostnaður við að senda geim
morgun, að engin ástæða far þangað, er að sögn von
væri fyrir Bandaríkjamenn að Braun mjög mikill, allt að 40
breyta nckkru í þessari áætl- milljarðar dala.
un sinni, þrátt fyrir hið «[tir Að lokum sagði Wemher
tektarverða flug sovézku von Braun, að Bandaríkja-
geimfaranna. Þvert á móti menn stæðu Rússum framar
mætti engan tíma missa með á margan hátt, en hefðu þó ver
breytingum á áætlunum. — ið á eftir í smiði eldflauga, er
Bandaríkjamenn þörfnuðust hefðu mikið burðarafl.
Verður kosningum í
Alsír enn frestað?
Agreiningur um framboð milli stjórn-
arnefndarinnar og leiðtoga hersins
Algeirsborg, Kairó, 16. ágúst.
— (NTB) —
ILLA gengur að ganga frá fram-
boðslista til kosninganna í Alsír,
er fram eiga að fara 2. septem-
ber n. k. — Stjórnarnefnd Ben
Bella hefur ekki getað fengið
samþykki héraðsstjóra hersins
um það, hverjir vera skuli í
framboði. Framboðsfrestur renn-
ur út í kvöld og verði þá ekki
búið að ganga frá framboði,
verður enn að fresta kosning-
unum. Tilskilið er, að framboðs-
listi liggi fyrir 14 dögum fyrir
kosningar.
Eins og kunnugt er, þá er það
stefna Ben Bella að aðeins einn
listi verði í framboði.
Glasgow, 16. ágúst — NTB
Albert Luthuli, sá er hlaut
friðarveiðiaun Nóbels, hefur
þekkzt boð Glasgow-háskóla
um að vera gerður að heiðurs
doktor. Luthuli býr í S-Afríku
sem kunnugt er, og er þar und
ir eftirliti stjórnarinnar, vegna
andstöðu sinnar við hana í kyn
þáttamálum.
Tilkynnt var i Kairó í dag,
að ráð Arababandalagsins hafi
samþykkt upptöku Alsír í banda
lagið.
Takist stjórnarnefnd Ben
Bella að fá því framgengt, að
listinn verði skipaður eins og
nefndin vill, þá hefur það í för
með sér, að Ben Bella og stuðn-
ingsmenn hans verða nær einráð
ir um gang mála í Alsír, að
kosningum loknum.
Kosnir verða 196 fulltrúar á
þing, og verða 180 Serkir. Aðal-
viðfangsefni þingsins verður að
setja landinu lög, og er hætt við,
að þau v^rði mjög í anda stefnu
Ben Bella, enda stefnir hann að
því að verða allsráðandi í Alsir.
Tvisvar hefur orðið að fresta
kosningum í landinu, þar eð
framboð hefur ekki tekizt að
ákveða í 'tæka tíð.
Vopnaviðskipti
Tyrkja og Irana
Ankara, 16. ágúst — NTB —
Tyrkneska stjórnin lagði í dag
fram króftug mótmæli við stjórn
íraks, vegna atburða þeirra, er
átt hafa sér stað við landamæri
ríkjanna undanfarna 2 daga. —
Segir tyrkneska stjórnin, að báða
dagana hafi íranskar orustuþot-
ur — af gerðinni MIG, byggðar í
Rússlandi — gert vélbyssuárásir
á tyrkneska landamæraverði og
þorp. A.m k. tveir landamæra-
verðir eru sagðir hafa týnt lífinu,
auk þess sem sumar fregnir
herma, að 8 aðrir hafi beðið
bana.
íranska stjórnin er sögð hafa
lagt fram afsakanir á atburðum
þessum, og sagzt harma það mjög
að svo illa skuli hafa tekizt til.
Er stjórnin sogð hafa boðið bætur
fyrir tjónið.
Bandarískar fregnir herma, að
atburðir þessir kunni að standa
í sambandi við vopnaviðskipti
stjórnarhersins í íran og Kúrda
í norðurhluta landsins. Herma
þær fregnir, að stjórnarherinn
hafi verið rekinn af stóru svæði.
Tyrkir segja sjálfir, að þeir hafi
skotið niður eina orustuflugvél
og önnur hafi neyðzt til að nauð
lenda, er hún bafi orðið fyrir
skakkaföllum.