Morgunblaðið - 17.08.1962, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 17.08.1962, Qupperneq 3
Föstuílagur 17. águsl 1962 m o r G v iv n r 4 r> 1 ð 3 VIÐ áttum leið fram hjá Vöku portinu við Síðumúla og datt í hug að líta þar inn. Inn í þetta port eru oft fluttir bíl- ar, sem lent hafa í árekstrum og eru óökufærir og einnig er þar komið í geymslu bifreið- um, sem af einhverjum ástæð- um hafa verið dæmdir úr leik við akstur um götur bæjarins. Getur það stafað af því, að ekki hafa verið greidd til- skilin gjöld af bílunum, eða einfaldlega af því, að eigand- inn vill ekkert við farartækið kanmast og skilur það eftir í reiðileysi, þangað til lögregl- an sér sig tilneydda að ryðja því úr vegi. Nú kannast enginn við hann lengur. bíll“. — skýrsiu lögreglunnar stendur aðeins „Gamali kassa- „Gamli Ford“ og „Pálína" Nú situr Pálína og lætur sig dreyma um forna dýrðardaga inni á Öræfum. : Er við gengum inn í portið, blasti við okkur stór haugur af gömlum ibíllhurðum, felg- um, stuðurum, mótorum og stýrum, sem rifið hafði verið úr flökum og er til sölu. Björn Ólafsson, starfsmaður Vöku, sagði, að alltaf væri stöðug eftirspurn eftir dóti iþessu, sem sannarlega lítur ekki glæsilega út, og væru iþað aðallega eigendur eldri bíla, sem kæmu þangað til að fá hluti x bíla sína. Margir bílar sem enn eru í gangi, eru orðnir svo gamlir, að ekki er lengur unnt að fá í þá neina varahluti hjá umboðunum og þá getur það komið sér vel að geta leitað til bílakirkju- garðsins í Vökuportinu. „Gamli Ford“ Á leið okkar um portið, sem hefur að geyma óteljandi bif- reiðir og fyrrverandi bifreiðir, bar hina furðulegustu hluti fyrir augu okkar. I>ar voru nýlegir bílar, sem lent höfðu í árekstrum, og stóðu, harla ömurlegir á að líta, undnir og snúnir, vélahlífamar uppi á þaki, rúður brotnar og gljá- andi krómlistar sfóðu út í loft ið, eins og broddar á brodd- gelti. Af bílum sem teknir hafa verið úr umferð, er einnig nóg og Björn benti okkur á einn ævafornan pallbíl, sem ert hafði augu lögreglunnar og var 'þess vegna kominn til Vöku. Engin leið var að gera sér grein fyrir því, hvaða teg- und. né hve gamall hann væri. !VÖ ser un. Hann var bara af þeirri gerð, sem venjulega er kölluð „gamli Ford“. Ekki hafði lög- reglunni gengið betur við að skilgreina ætt og aldur þess gamla, því á skýrslu var hann aðeins nefndur „gamall paU- bíll“. Björn sagði ökkur, að sú tegund, sem flesta fulltrúa ætti í Vökuportinu, væri Buick. Eru þar ,,bjúikkar“ allt frá árinu 1938, til 1862 og flest ar árgerðir þar á milli. „Pálína" Allt í einu rákum við aug- un í weapon-bíl, sem kom kunnuglega fyrir sjónir. Kom það upp úr kafinu, að þar var komih „Pálína“, sem verið hafði í eigu ferðaskrif- stofu Páls Arasonar Og eiga fjölmargir ferðalangar skemmtilegar endurminningar við hana bundnar. Pálína hafði verið á reisu norður Sprengisand, sumarið 1959, en gefizt upp á miðri leið og var dregin til Reykjavíkur. I>ar situr Pála nú og gamnar eng- um lengur með ferðalögum um fjöll og firnindi. — Hérna sjáið þið einn, sem sennilega er aldursforseti portsins, sagði Björn og benti á fyrirferðamikinn, brezkan herbíl af Humber-gerð. — Það hættir enginn á að reyna að gera þennan gangfæran. Hann er þungur og klossaður eins og skriðdreki og myndi senni- lega gleypa benzín eins og tveir skriðdrekar, ef hann kæmist einhvern tíma í gang. Ekkert í lagi — Þessi hérna er að mörgu leyti dæmigerður fyrir bíla þá, sem notaðir eru af Banda- ríkjamönnum suður á Kefla- víkurflugvelli, sagði Björn, er við gengum fram hjá bláum Plymouth af árgerð 1952. Lög- reglan stöðvaði hann í sumar og fannst eitthvað athugavert. Þegar farið var að huga að honum, kom í ljós, að það var harla fátt, sem var í lagi. Ekkert logaði af ljósum nema eitt inniljós, aftur í, hann var svo til alveg hemlalaus og hrökk úr gímum. Flestir þeir bílar, sem þarna standa, geta munað sinn fífil fegri. Gamlir bílar, sem eitt sinn voru stolt eigendanna, standa nú útslitnir oig ellimóð- ir og bíða þess eins að verða rifnir, en aðrir eru komnir í kirkjugarðinn fyrir aldur fram, eins og oft vill verða, sérstaklega þegar Bakkusi hef ur verið leyft að taka við stjórninni. Um allan heim gleðjast menn yfir þeim árangri, sem Sovétríkin hafa náð á sviði geimvísinda, nú síðast með för geimfaranna tveggja, Nikolajeffs og Popovitsj. Það varpar að vísu nokkrum skugga á gleði manna víðast hvar að leiðtogar Sovétríkjanna hafa ekki með framkomu sinni gefið hin minnstu fyrirheit um, að þeir muni í náinni framtíð nota þá vísindaþekkingu, sem þeir hafa yfir að ráða, til þess að stuðla að bættum hag þegna sinna, hvað þá jarðarbúa almennt. Fögnuður kommúnistaleiðtog- anna í austri og fylgifiska þeirra úti um heim vegna nýafstaðinna geimferða birtist með nokkrum sérstæðum hætti. Kom þetta m.a. fram í Moskvu-málgagninu „ís- lenzka í gær, en þar gat að líta fyrirsögn þá og birtist hluti af: kiausu, sem hér Enn einn sigur kommunismans Björn við bíl, sem tekinn var úr umferð í sumar. A honum kviknaði ekkert ljós nema eitt inniljós, aftur í. MOSKVU 15/8 — Sovétstjórn- in og miðstjórn. kommúnista- I flokksins hafa sent út ávarp II /cgna .gcimférðalags Niko'" éffs og Pcpovitsj o" m.a. að s>* b*'~’ Ætíð þegar eitthvað gerist í kommúnistaríkjunum, sem lofs vert má telja og það er því mið- ur ekki of oft — þá er það af kommúnistaforsprökkunum kall- að „sigur kommúnismans“, „nýr sigur kommúnismans“, „enn einu sigur kommúnismans“ o.s.frv. Svo langt er gengið í því að eigna hinum misheppnuðu stjórn málakreddum, sem kommúnismi kallast, árangur á ólíkum sviðum, að jafnvel íþróttasigrar, lista- sigrar, sem ekki eru tíðir, og ann að þvílíkt er þakkað kommúnism anum og „Flokknum". ,.Flokkurinn“, „Flokkur- inn“, „Flokkurinn“ Jafnframt því, sem þessir „sigr ar kommúnismans“ eiga að kenna fólki að dýrka „Flokkinn“ og líta upp til hans í einu og öllu, er þeim ætlað ánnað og víðtækara hlutverk. Þeir eiga að leiða at- hygli þessa sama fólks frá hin- um mörgu og örlagaríku ósigrum „Flokksins“ og þverbrestum kommúnismans. Og til þess að fá einhverju umþokað í því efni dugir áreiðanlega ekkert minna en tvöföld geimferð. Þetta gera leiðtogarnar sér ljóst — og ekki hvað sízt þess vegna leggja þeir slíkt ofurkapp og svo gífurlega fjármuni og vinnu í að ná fram- förum á þessu sviði. Með einræð- isskipulagi eins og því, sem kommúnistar hafa komið á í Sov étríkjunnm, er unnt að svipta fólk jafnvel öllum lífsþægindum, Iáta allan almenning lifa við ör birgð og fátækt, — en verja í staðinn hinum gífurlegu fjármun um, sem alhliða uppbygging og þjóðfélagslegar framfarir krefj- ast, til geimferða og kjarnorku- tilrauna. Eða hversu marga af hungraðra munna í Sovétríkjunum hefði ekki verið hægt að metta með t.d. þeim fjár munum, sem fóru í 50 megalesta kjarnorkusprengjurnar sovézku; og hversu mörgum þurfandi og þjáðum mönnum hefði ekki verið hægt að liðsinna fyrir þá fjár- muni, sem nú hefur verið varið til eldflaugasmiða og geimferða í Sovétríkjunum? Geimferðir, þótt góðar séu, og síendurteknar kjarn orkusprengingar munu hvorki í bráð né lengd bæta hin ömurlegu lífskjör í Sovétríkjunum. Kommúnísk gleði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.