Morgunblaðið - 17.08.1962, Síða 18
18
MORGUIKBLAÐIÐ
Föstuaagui’ 17. ágúst 1962
Körfuboltamenn taka Skot-
land með í landsleikjaför
Itíikil verkefni en erfiður
fjárhagur hjá KKÍ
EINS og fyrr hefir verið sagt frá,
hefir Körfuknattleikssamband ís
lands tilkynnt þátttöku í Polar
Cup keppnina í Stokkhólmi í
byrjun nóvember í haust.
Keppni þessi er fyrst og fremst
haldin í tilefni af 10 ára afmæli
Svenska Baskebollförbundet, en
jafnframt hefir verið ákveðið að
keppni þessi gildi, sem Norður-
landameistai akeppni.
Samkvæmt tillögu KKÍ, sam-
þykkti FIBA að Polar Cup keppn
in verði einnig svæðiskeppni í
undanrásum Evrópumeistara-
keppninnar, sem haldin verður
í Wroclaw 1 Póllandi dagana
4. — 13. okt. 1963.
Stjórn KKÍ hefir undanfarið
staðið í bréfaskiptum við Körfu-
knattleikssamband Skotlands um
landsleik þar, um leið og ís-
lenzka íandsliðið fer til Stokk-
hólms. Hefir nú endanlega verið
ákveðið að íandsleil ir milli ís-
lands og Skotlands fari fram í
Glasgow, ménudag kvöldið 29.
október n.k.
1 Ferðaáætlun og leikjaröð
íslenzka landsliðið mun fara
frá Reykjavík á mánudagsmorg
un 29. okt. og leika í Glasgow
um kvöldið. Um hádegi daginn
eftir verður ferðinni haldið
áfram bg komið til Stokkhólms
um kvöldið.
Gist verður að Bosön á
Lindingö, en þar eru þjálfunar
búðir sænska íþróttasambancjsins
Munu öll landsliðin búa þar og
æfa, en sjálf Polar Cup keppnin
fer fram í Eriksdalhallen í Stokk
hólmi.
Dagskrá Polar Cup keppninn
ar er þannig-
Föstudagur 2. nóv.
Kl. 19:00 Setningarathöfn.
— 19:15 ísland — Svíþjóð.
— 20:45 Finnland — Danmörk
Laugardagur 3. nóv.
Kl. 13:30 ísland — Finnland.
— 15:00 Svíþjóð — Danmörk.
Um kveldið verður 10 ára af-
mælishóf sænska sambandsins.
Sunnudagur 4. nóv.
Kl. 18:00 Svíþjóð — Finnland.
— 19:30 ísland — Danmörk.
Landsleik Finnlands og Sví
þjóðar verður sjónvarpað um
Norðurlönd.
— 21:00 Verðlaunaafhending.
Ráðstefna um körfuknattleiksmál
í sambandi við Polar Cup
keppnina, er ráðgert að haldin
verði fyrsta norræna körfuknatt
leiksráðstefnan. Verður þar
m. a. samþykkt reglugerð um
Polar Cupinn sjálfan, en auk
þess rædd ýmis sameiginleg
áhugamál körfuknattleiksmanna
á Norðurlöndum.
Norðmenn taka ekki þátt í
keppninni, en þeim hefir verið
boðið að senda fulltrúa til að
fylgjast með keppninni og til að
sitja ráðstefnu þessa.
Mr. R. William Jones, aðal-
ritari FIBA mun verða heiðurs-
gestur sænska sambandsins á
ráðstefnunni ^ Polar Cup keppn
inni.
Körfuknattleiksþing í Munchen
Formaður KKÍ sótti í júlíbyrj
un VII. þing Evrópu- og Mið-
jarðarhafsdeildar FIBA, sem
haldið var í húsakynnum Æsku-
lýðsdeildar UNESCO í Gauting/
Munich, Vestur-Þýzkalandi. Þing
þetta sóttu 40 fulltrúar frá 25
þjóðum.
f tilefni af 30 ára afmæli FIBA,
sem er ný afstaðið, voru heiðurs-
gestir þingsins, herra Leon Bouf
fard og frú frá Svisslandi, en hr.
Bouffard var fyrsti forseti FIBA
og er nú heiðursforseti sambands
ins. Annar heiðursgestur var
Giorgio Asinari di San Marzano,
markgreifi frá ítaliu, en hann
var einn af frumkvöðlum að stofn
un FIBA og átti sæti í fyrstu
stjórn sambandsins.
Ennfremur sat þingið hr. R.
Wiiliam Jones, en hann hefir
gegnt störfum aðalritara og fram
kvæmdastjóra FIBA í samfleytt
30 ár, eða frá stofnun sambands-
ins.
FIBA mun nú vera orðið eitt-
hvert stærsta sérsambandið í
heiminum. Tala þátttökuríkja er
nýlega komin upp í 101, en virk
ir körfuknattleiksmenn eru taldir
yfir 20 milljónir. Ennfremur eru
taldar aðra 20 milljónir körfu-
knattleiksmanna í Kína, en kín-
verska sambandið sagði sig úr
FIBA fyrir nokkrum árum vegna
ágreinings um þátttöku körfu-
knattleikssambands Pórmósu.
FIBA hefir á undanförnum ár-
um unnið merkilegt starf í þágu
íþróttalegra samskipta milli
þjóða, er annars eiga í pólitísk-
um erjum. Eru ótrúlegir erfið-
leikar, jafnvel innan Evrópu,
vegna pólitískrar afskiptasemi,
að framkvæma alþjóðlega keppni
eins og Bikarkeppni Evrópu í
körfuknattleik.
Er þess skemmst að minnast
að úrslitaleikur bikarkeppninn-
ar í ár, varð að fara fram í Sviss
landi, þar sem hvorugt liðið, sem
í úrslit komst, fékk vegabréfs-
áritun til að heimsækja hitt lið-
ið.
Liðin sem mættust í úrslita-
leiknum voru Real Madrid og
Dynamo Tbiiissi. Leikurinn fór
fram í Genf 29. júní sl. og sigr-
aði hið rússneska lið með 90:83.
Það var mál þeirra er leikinn
sáu að hann hafi verði óvenju-
lega vel og prúðmannlega leik-
inn og að leikmenn beggja liða
hafi skilið sem góðir vinir og
félagar.
Það kostaði aðalritara FIBA
mikla fyrirhöfn að fá ríkisstjórn
ir Spánai og Sovétríkjanna til
samþykkja að leikur þessi gæti
farið fram.
Ýms mál voru rædd á þing-
inu, en það mál, sem gæti haft
talsverða þýðingu fyrir íslenzka
körfuknattleiksmenn, var sam-
þykkt þingsins að stofna til Ev-
rópumeistarakeppni unglinga-
landsliða. Er aldur miðaður við
að piltarnir hafi ekki náð 19 ára
aldri þegar keppnin fer fram.
Aðeins 6 lið munu komast í úr-
slitakeppnina og munu undanrás
Frh. á bls. 19
Jafntefli KR og Vals
KR-ingar urðu af tveimur dýr
mœtum stigum í íslandsmót-
inu í fyrrakvöld. Eftir að hafa
haft yfirburði allan leikinn
gegn Val, yfirburði sem byggð
ust á betri samleik og betri
knattspyrnu en mótherjarnir
sýndu, glataðist ailt niður. Er
10 mín. voru til leiksloka
'hafði KR 2 mörk gegn 0, en
á 10 mínútum jöfnuðu Vals-
menn með marki úr horn-
spyrnu sem markvörður reikn
aði fyrir utan og með marki
sem markvörður hefði átt að
geta varið. „ ............
Svona geta úrslit í knatt-
spyrnu orðið. Það er ekki allt-
af betra liðið sem sigrar. Og
iþessi leikur var einn af bezt
leiknu leikjum KR-liðsins í
sumar.
Sveinn Þormóðsson tók þess
ar myndir er hér fylgja. Sú
stærri sýnir þvögu við mark
Vals. Lengst af fór leikurinn
fram á vallarhelmingi Vals og
oft var markið í hættu, eins
og hér. Minni myndin sýnir
er Gunnar Felixson skorar
fyrra mark KR, vippaði yfir
■Björgvin markvörð er kom
Allt eins og venjulega
VEGNA villandi og ósmekklegra
skrifa í einu af 'blöðum bæjarins
fyrir skömmu, varðandi heim-
sókn færeyska landsliðsins, vill
stjórn Knattspyrnusambands ís-
lands taka fram eftirfarandi:
Færeyska landsliðið kom til
Reykjavíkur að kvöldi 2. ágúst
sl. og tók stjórn knattspyrnu-
sambandsins á móti gestunum
við skipshlið og snæddi síðan
með þeim kvöldverð á hótel
Garði þar sem þeir gistu. Lands-
leikurinn fór fram, svo sem kunn
ugt er, föstudaginn 3. ágúst und-
ir blaktandi fánum Færeyja og
Islands. Að leik loknum var set-
in virðuleg veizla í boði borgar-
stjórans í Reykjavík, Geirs
Hallgrímssonar. Fór veizlan fram
í öllum atriðum svö sem endra-
nær eftir landsleiki og var I-
þróttasamfoandi Færeyja, svo og
hverjum einstökum þátttakanda
í ferðinni færðar þar gjafir.
Daginn eftir landsleikinn var
gestunum boðið í ferðalag og
var stjórnarmeðlimur K.S.Í. far-
hlaupandi úr markinu.
KR og Valur eiga nú tvo
leiki eftir. Þau hafa mögu-
leika á að komast í 13 stig
með sigri í báðum leikjunum
sem þau eiga eftir. Ólíklegt
er að það nægi til sigurs.
Akranes hefur möguleika á
að fá 16 stig og Fram í 16
stig. Á mánudaginn leika
Fram og Akranes í Reykjavík.
Sá leikur ræður miklu um úr-
slitin milli félaganna. KR á
svo eftir að mæta Akranesi
(síðasti leikur mótsins) og
stundum áður hafa KR-ingar
stöðvað sigurgöngu Skaga-
manna í mótinu — hvað sem
nú verður, en Akurnesingar
eru ásamt Fram — sigur-
stranglegastir í mótinu.
arstjórl f þeirri ferð. Heimsóttu
þeir m. a. ísafjörð, Akureyri,
Akranes og Keflavík og háðu
þeir kappleiki á hverjum stað,
svo sem kunnugt er. Pengu þeir
hvarvetna frábærar móttökur,
Þá má geta þess að flokknuna
var boðið til Þingvalla og Hvera-
gerðis af ríkisstjórn íslands. Að
lokum vill stjórn K.S.Í. undir-
strika að móttaka gagnvart fær-
eyska landsliðinu hefur að sjálf-
sögðu mótast af sama vinarhug
Og ríkt hefur gagnvart öðrum
þeim landsliðum, ér hingað hafa
komið.
Gunnlaugur Hjálmarsson
leikur með Heim
GUNNLAUGUR Hjálmarsson liðinu Heim, sem foingað kom
hinn kunni handknattleiks-
maður ÍR-inga er farinn utan
til Svíþjóðar, þar sem hann
mun dvelja um skeið og leika
handknattleik með sænska
í fyrravetur.
Gunnlaugur hefur lengi
verið í fremstu röð ísl. hand-
knattleiksmanna og var m. a.
3. markhæsti maður í úrslita
keppni 'heimsmeistarakeppn-
innar síðustu. Fyrir það, og
góðan leik almennt, varð
Gunnlaugur víðfrægur. Sví-
amir hafa gjarnan viljað fá
harnn í lið sitt og eftir því
sem blaðið veit bezt, en hefur
þó ekki fengið staðfest, þá
hafa Svíar greitt götu Gunn-
laugs til að auka þekkingu á
starfssviði hans og aðstoðað
hann við útvegun húsnæðis.
Óráðið mun vera hve
lengi Gunnlaugur dvelst í
Sviþjóð, en Svíarnir vilja
bafa hann sem allra lengst.