Morgunblaðið - 12.09.1962, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.09.1962, Blaðsíða 1
24 síðui 49 árgangur 201. tbl. — Miðvikudagur 12. september 1962 Frentsmiðja Morgunblaðsins Leibtogar Samveldislandanna Telja Bretum enn sett of strfing inntökuskilyrði Áhyggjufullir, vegna ótryggbra hagsmuna rikja sinna London, 11. sept. — NTB-AP — LEIÐTOGAFUNDUR brezka samveldisins hélt áfram hér í Lundúnum í dag. Gerðu ýmsir leiðtogar samveldis- landanna grein fyrir afstöðu stjórna sinna til inngöngu Breta í Efnahagsbandalag Evrópu og voru þeir yfirleitt Skotið á sykui- skip Kúbu — segir útvarpsð í Havana KEY WEST, Florida, 11 sept. — (NTB/AP) — Útvg.pið í Havana tilkynnti árdegis á þriðjudag að tvö flutningaskip á leið frá Kúbu hefðu orði fyrir skotárás úti fyrfix norðurströnd eyjarinnar. Var komist svo að orði, að skofihríðin hefði komið frá sjóræn ingjaskipi. Bæði f lutn ingaskipin voru með sykurfarm á leið til komm únistaríkja, sagði ennfremur í fréttinni, "»g var annað þeirra kúbanskt en hitt brezkt. Ber hið fyrnefnda heitið „San Pascual". Sagði útvarpið, . bað hefði orð dð fyrir 18 skotum en hið brezka þretcán. Samkvæmt fréttinni átti árás þessi sér stað nálægt eynni Cayo Frances útti fyrir strönd Las Villas héraðsins, eigi langt frá hafnarbænum Caribarian. sammála um þá skoðun, að enn sem komið væri hefði ekki náðst nægilegur árangur í samningaviðræðum við bandalagsríkin, til þess að telja mætti að hinum marg- víslegu og víðtæku hagsmun- um samveldislandanna væri borgið. Þá vakti Diefenbak- er, forsætisráðherra Kanada, máls á því, að leiðtogar sam- veldislandanna kæmu saman til fundar á ný, þegar samn- ingaviðræðum Breta við Efnahagsbandalagið væri lok ið. — Þeir, sem fluttu aðalræðurnar á fundi ráðstefnunnar fyrir há- degi á þriðjudag, voru þeir Ayub Khan, forseti Pakistan, John Diefenbaker, og Kebh Holyoake, forsætisráðherra Nýja-Sjálands. Kváðu þeir allir, að skilyrði þau, sem Bretum væri sett varðandi aðilda að EBE væru enn of ströng og sá árangur, sem náðst hefði í samningaviðræðunum til þessa ekki nægan. í ræðu sinni vék Diefenbaker lið fyrir lið að flestum veigamestu atriðunum í framsöguræðu Macmillans í gær og ræddi ýmiss þeirra frá fleiri hliðum. M. a. varpaði hann fram þeirri spurningu, hvort að- ildin og sú stjórnmálalega eining sem áformuð væri mundi ekki verða til þess að binda hendur Breta í utanríkismálum og selja þá undir áhrif Evrópulandanna. Þá lýsti hann áhyggjum sínum yf ir því, að Kanadamenn mundu við aðildina glata mörkuðum í Bandarikjamenn segja: Rússar gerðu sjálfir tiiraunir í háloftunum — og gráta þvl krókódilatárum New York 11. sept. (NTB). BANDARÍKJAMENN fullyrtu það í dag, á fundi þeirrar nefndar Sameinuðu þjóðanna, sem fjallar um friðsamlega hagnýtingu himinihvolfsins. að Sovétríkin hefðu sjálf gert kjarnorkutilraunir í háloftun- um, áður en Bandaríkjamenn gerðu slíka tilraun í Van AUen-beltiiMi yfir Johnston- eyju á Kyrrahafi í júlímánuði síðaslliönum. Með þessum upplýsingum visaði bandaríski fulltrúinn, F. T. Plimpton, gjörsamlega á bug ásökunum sovézku stjóm- arinnar í garð Bandarikja- á fumdi nefndarinnar -— og kvað hina sovézku full- trúa gráta krókódílatárum í þessu sambandi. Enda þótt Sovétstjórnin hefði ekki gefið út neinar tilkynningar bar að lútandi, væri það staðreynd, að hún hefði gert slíkar til- raunár i mikilli hæð, þegar eftir að hún rauf samkomulag kjarnorkuveldanna um að gera engar tilraunir fyrir ári Aðrar tilraunir Sovétríkjanna sem farið hefðu í kjölfarið, hefðu leitt mikla geislunar- hættu yfir allt mannkyn. Sovézki fulltrúinn, Platon Morozov, vísaði staðhæfing- um þessum þegar á bug. Bretlandi. Ekki kvaðst Diefen- baker hafa fram að bera neina gagntillögu gegn áformum Breta um aðild að bandalaginu, þrátt fyrir þetta, enda mundi slíkt verða skoðað sem algjör andstaða gegn inngöngu þeirra. TiIIit til vanþróaðra. Forseti Pakistans, Ayub Khan. kvað árangur þann, sem Bretar hefðu r.áð til þessa, algjörlega ó- fullnægjandi. Enn færi fjarri því, Dr. Soblen látinn í London } Lundúnum, 11. september. — NTB-AP — BANDARÍSKI lífeðlisfræð- ingurinn dr. Robert Soblen, sem dæmdur var í lífstíðar- fangelsi í Bandaríkjunum MhI Dr. Robert Soblen. fyrir njósnir í þágu Sovét- veldisins, lézt í Hillingdon- sjúkrahúsinu við Lundúni snemma á þriðjudag. Hafði dr. Soblen ekki komið til meðvitundar síðan að morgni fimmtudag sl., er hann tók inn stóran skammt svefnlyfja, til þess að hindra brottflutning sinn vestur um haf, þar sem fangelsun beið hans. Líkamskraftar þrotnir Skv. upplýsingum læknis þess, er gerði blaðamönnum grein fyrir andláti dr. Soblens, var eiturefna þeirra, sem hinn 61 ára gamli Bandaríkjamaður tók inn, hætt að gæta um það bil sólarhringi áður en dauða hans bar að. En allir líkams- kraftar hans voru þrotnir, vegna stöðugra krampakasta, er áttu rót að rekja til heilablæðinga. Sagði læknirinn, að sjúkdómur sá, hvítblæði, sem dr. Soblen hafði gengið með um þriggja ára skeið, gæti hafa haft áhrif til hins verra í þessu sambandi. — 'Sjúkdómurinn sjálfur hefði þó verið hægfara í dr. Soblen og síður en svo óhugsandi að honum hefði enzt líf í allmörg ár ennþá, ef ekki hefðu komið til hinir stóru svefnlyfjaskammt- ar. — Flýði undan fangelsisdómi Dr. Soblen hafði dvalizt í Lundúnum síðan í júlíbyrjun. Hinn 27. júní sl., kvöldið áður en hann átti að byrja að af- plána refsingu sína, hvarf hann ■ ÍBÚAR bæjarins Portland í Oregon í Bandaríkjunum fengu óboðinn gest í heimsókn 'laust fyrir síðustu helgi. Var það björn sá er hér sézt á myndunum. Eins og m.yndim ar bera með sér varð sumum íbúanna nóg u n gestakomu' þessa og hörfuðu til húsa sinna. Á neðri myndinni sézt einn þeirra spretta úr spori, meðan aðrir horfa hugdjarfir á. Björninn hafði lagt land undir fót og þrammað inn í bæinn úr hæðardrögum í ná grenninu — Heimsókninni lauk með bví að lögreglan; skaut gestinn, og þótti það lítil gestrisni. frá New York, en þar hafði hann fengið að ganga laus gegn tryggingu. Tveim dögum síðar var hann tekinn höndum 1 ísrael fyrir að hafa komið inn í landið með ólöglegum hætti. Hinn 1. júlí var hann sendur af stað vestur um haf með far- þegaþotu frá E1 Al-flugfélaginu, en hún fékk leyfi til að lenda með Soblen í Lundúnum, eftir að hann hafði rist úlnliði sína með hnífi og reynt að reka sig á hol. Var hann þá fluttur í sama sjúkrahúsið og hann nú lézt í. Allar tilraunir hans til að öðl- ast frelsi höfðu farið út um þúf- ur. — Prestur mun hafa vitjað dr. Soblens í sjúkrahúsið á mánu- dagskvöldið. Sovétstjórnin brigzlar Bandaríkj- unum um árásaráform - og hótar Dean Rusk visar ásökunum á bug og kvebur abeins um að ræða úreltan áróður Mosvku og New York, 11. sept. ' — NTB-AP — SOVÉZKA stjórnin bar í dag Bandaríkjunum á brýn árás- arfyrirætlanir og sakaði þau um að gera nú ráðstafanir, er leitt gætu til versnandi ástands í heiminum, jafnvel kjarnorkustyrjaldar. Ef ein- hver lönd yrðu fyrir árás, mundu Sovétríkin koma til skjalanna og vernda þau. — Asökurtum þessum hefur verið vísað gjörsamlega á bug í Washington, en Dean Rusk, utanríkisráðherra, tók jafn- framt fram, að Bandaríkin óttuðust hvergi hotanir Sov- étríkjanna. í yfirlýsingu, sem gefin var út í Moskvu á þriðjudag, er m. a. bent á það, að Kennedy Banda- ríkjaforseti hafi óskað heimild- ar þingsins til þess að kveðja 150.000 varaliðsmenn til vopna. Er síðan fullyrt, að hér sé um að ræða frekari undirbúning innrásar á Kúbu. Lýsir Sovét- stjórnin yfir því, að hún muni vernda Kúbu eða önnur ríki, sem fyrir árás kunni að verða, ef slíks verði óskað. Þau her- gögn, sem þegar hafi verið send Framh. á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.