Morgunblaðið - 12.09.1962, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 12. sewt. 1962
MOltfíltNBL AfílÐ
13
x
x
ef Jr Fritz I\Iasc!«itz9 aðalræðismann Uand. I Ssrael
Nýtt hverfi í Jerúsalem.
HEIMSÓKN Guðmundar í. Guð
mundssonar, utanríkisráðherra ís
lands til ísraels var stærsti liður
inn í samskiptum þjóðanna árið
1960. Sama máli gegndi um heim
sókn frú Golda Meir, utanríkis-
ráðherra ísraels til íslands 1961,
en þá endurgalt hún heimsókn
Guðmundar í. Guðmundssonar.
Þessi heimsókn frú Golda Meir,
þakklæti hennar fyrir framúr-
skarandi gestrisni, sem henni
mætti á íslandi og hin djúpstæðu
áhrif, sem heimsóknin hafði á
hana, urðu til þess að auka áhuga
á íslandi í ísrael. Kom þetta fram
í auknum áhuga almennings, fyr-
irlestrum, útvarpsdagskrám, kvik
Fritz Naschitz.
myndasýningum, blaðagreinum
og fleiru frá íslandi.
Á meðan- frú Meir dvaldist á
íslandi ræddi hún við ýmsa fram
ámenn t.d. forseta Islands herra
Ásgeir Ásgeirsson, ráðherra og
fleiri. Einnig gafst henni tækifæri
til að kynna sér nánar efnahags
samstarf rikjanna. Auk þessa er
vert að minnast á viðtöl, sem frú
Meir veitti íslenzkum blaðamönn
um.
Árið 1961 heimsóttu tveir þekkt
ir ísraelskir blaðamenn, Dan
Hahter frá „Davar“ og Arnon
Magen frá „Lamerchav“, ísland.
Rituðu þeir langa greinaflokka í
blöð sín, báðir mjög vinsamlega.
Þessir greinafiokkar voru mikið
lesnir í ísrael og urðu til þess
að auka þekkingu margra ísraels
búa á íslandi.
Starfsemi vináttusamtaka ísra-
els og íslands var einnig mjög
mikil á þessu ári. Á ráðstefnu
allra vináttusamtaka ísraels og
annarra landa voru íslenzk-ísra-
elsku samtökin talin athafnasöm
ust og hafa náð beztum árangri.
Af hinum mörgu verkefnum
vináttusamtaka íslands og fsra-
els árið 1961 má nefna Sýningar,
fyrirlestra o. s. frv., en sérstak-
lega skal sagt frá kvikmynd um
Norðurlöndin öll, sem samtökin
beittu sér fyrir að sýnd var í hin
um stóra sal „Zionist House of
America". Var hún sýnd oftar en
einu sinni vegna mikillar aðsókn
ar.
Engin meiri háttar þróun átti
sér stað í viðskiptum ísraels og
íslands á árinu 1961. Eftir að
clearing-viðskipti lögðust niður
og gerðir voru viðskiptasamning
ar, sem fólu í sér greiðslu í er-
lendum gjaldeyri, dró úr kaupum
íslendinga á ýmsum útflutnings
vörum frá ísrael, en íslenzkir
innflytjendur gátu áður aðeins
keypt flestar þessar vörutegundir
frá clearing löndum. Sem dæmi
má nefna nælonsokka, hjólbarða
o.fl. Svo virðist sem hin skyndi
lega breyting, sem varð, hafi leitt
til þess, að margir íslenzkir inn
flytjendur, sem nú gátu keypt
þessar vörur frá löndum, sem áð-
ur var ekki skipt við, hafi hætt
að kaupa þær frá ísrael, þó að
ísraelskar framleiðsluvörur séu
samkeppnishæfar hvað verð og
gæði snertir.
Þar sem enginn vafi leikur á,
að viðskipti milli þessara tveggja
landa muni halda áfram að byggj
ast á gagnkvæmum hagsmunum,
þá mundi hvatning frá íslenzkum
yfirvöldum vafalaust vera gagn-
leg og leiða til þess, að margir
aðal kaupendurnir myndu á nýj-
an leik beina viðskiptum sínum
til hinna ísraelsku framleiðenda.
Annað vandamál hefur komið
til sögunnar þar sem ýmsar af
aðal útflutningsvörum fsraels svo
sem sælgæti ýmiskonar, sem áð
ur var hægt að kaupa þaðan hindr
unarlaust, er nú aðeins hægt að
kaupa frá clearing löndum, en
ísrael er ekki lengur í þeirra
hópi. Þetta er áfall fyrir ísraelska
útflytjendur, sem selt hafa til
íslands og einhverja lausn þyrfti
að finna á þessu vandamáli.
Hins vegar hefur útflutningur
aukizt á appelsínum, sítrónum og
ávaxtasafa írá ísrael til íslands.
Tölur tveggja síðustu ára eru,
sem hér segir:
1959/60 .... 13.035 kassar.
1960/61 .... 16.895 kassar.
Á því ári, sem nú er að líða var
í fyrsta skipti gerður samningur
við hóp stærstu ávaxtainnflytj-
endur á íslandi og vonir standa
til að þessir kaupendur, ásamt
öðrum, muni kaupa um 25 þús.
kassa í ár. Þetta er ekki mikið
magn, ef miðað er við heildarút
flutning ísraels (gert er ráð fyrir
að 10 milljónir kassa verði flutt
ir út á þessu ári), en þó er þetta
mesta magn, sem íslendingar
hafa samið um kaup á til þessa.
Árið 1961 komu tvö skip með
íslenzk fiskfiök til hafnar í Haifa.
Hið fyrra þeirra, hollenzkt leigu
skip S.S. Auriga, kom með 400
tonn í febrúar og M.S. Vatnajök-
ull með 780 tonn í október. Eftir
að innflutningur og sala fiskflaka
var gefinn írjáls og dreifing á
vegum ríkisstjórnarinnar og nið-
urgreiðslur voru felldar niður,
hefur komið í ljós að góður mark
aður er fyrjr fiskflök, sem eru
vinsæl vara. Þessar tvær sending
ar eru þær fyrstu, sem komu frá
íslandi, frá því að tekið var að
fella niður viðskiptahömlur (inn
flutningsleyfi þarf þó enn til),
og í ljós kom, að bæði innflytjend
ur og neytendur eru ánægðir með
vöruna. Eins og.nú standa sakir
leyfir stjórmn aðeins innflutning
á frystum fiski frá tveimur lönd
um, íslandi og Noregi. Þetta staf
ar að nokkru leyti af áeggjan full
trúa þessara tveggja landa og að
nokkru leyti er það gert til að
ganga til móts við óskir ísraelskra
fiskimanna, að svo miklu leyti,
sem hægt er. Vonir standa til, að
engin breyting verði gerð á þessu
og ísrael muni halda áfram að
vera tryggur kaupandi íslenzkra
fiskflaka, en þau verða þá að brr
ast til ísraels reglulega.
Aukinn áhugi á fslandi veldur
því, að aðalræðismannsskrifstoíu
íslands í ísrael hafa borizt marg-
ar fyrirspurnir um möguleika á
ferðalögum til fslands og gert er
ráð fyrir, að mikill fjöldi ferða
manna muni leggja leið sína þang
að á næsta ári. Vegabréfsáritanir
til íslands sem veittar voru 1961
eru fleiri, en nokkru sinni áður.
Á fyrstu níu mánuðum ársins
1962 kom í ijós, að vel hefur m.ð
að í áttina til nánara samstar 's
þjóðanna. Er það framhald þeirr-
ar þróunar, sem átt hefur s’-r
stað undanfarin ár á sviði stjórn-
mála, viðskipta og í öðrum mál-
um. Aðstoð ísraels við lönd i
Afríku og Asíu hefur hlotið al-
þjóðaviðurkenningu og hin óeig-
ingjarna aðstoð, sem veitt hefur
verið vanþróuðum löndum hefur
verið viðurkennd af mörguoi
ráðamönnum nýstofnaðra ríkja,
er þeir hafa heimsótt ísrael. —
Nefna má í því sambandi forseta
Líberíu og forseta Mið-Afríku-
lýðveldisins. Aukin vinátta í
garð þessara ríkja hefur ek 'ci
reynst hindrun í vegi nánari ssm
skipta við þau lönd, sem ísrsal
hefur tengzt gagnkvæmum bönd
um skilnings allt frá því að land-
ið fékk sjálfstæði í maí 1948.
Eitt fyrsta ríkið, sem viðwr-
kenndi hið nýja Ísraelsríki, var
ísland, sem hafði fengið sjái f-
stæði fjórum árum áður og rey /it
þá erfiðleika, sem eru því sam-
fara að vera öðrum háðir öldum
saman. Það er augljóst, að þj >ð
ir, sem hafa þá grundvallarsko I-
un að lifa í friði og leitast við að
þróa menningu sína og tungu,
sem byggist á gamalli hefð, finna
gagnkvæman skilning og styrkja
hvor aðra á sem flestum sviðum.
Þetta hefur oft komið í ljós þeg \r
um hefur verið að ræða þjóðar-
hagsmuni ísiands og ísraels og
það er rétt að geta þess í því sam
bandi, að ísrael lagði fram sina
skerf til stuðnings íslendingum
í landhelgisdeilunni.
Á fyrsta hluta þessa árs steig
ísrael þýðiugarmikið skref í þá
átt að auka viðskiptafrelsi. Þeg
ar núverandi fjárhagsári lýkur í
apríl næsta ár mun um 50—60%
innflutnings hafa verið gefinn
frjáls. Þáttaskipti urðu er gengi
ísraelska gjaldmiðilsins var fellt
í febrúar sl. og tekin var upp ein
gengisskráning í stað margfaldr
ar og niðurgreiðslur af hálfu rík
isstjórnarinnar felldar niður.
Þessar ráðstafanir voru gerðar til
þess að auðvelda væntanleg
tengsl ísraels við Efnahagsbanda
Framh. á bls. 15.
Gata í Tel-Aviv.
Ben-Gurion og frú Paula.