Morgunblaðið - 12.09.1962, Side 2

Morgunblaðið - 12.09.1962, Side 2
2 MORGVNRLAÐIÐ Miðvikudfagm' 12. sept. 1961 %Ma Danski leikarinn Mogens Wieth latinn niniTR f RPFTf.ATSim Var af íslenzkum ættum og heimsútti Ísland tvívegis I HINN kunni danski leik- ari, Mogens Wieth, fannst á mánudag látinn í hótel- herbergi sínu í Lundún- um. Hann var 42 ára gam- all. Wieth, sem var einn af fremstu leikurum Dana, átti til íslendinga að telja í móðurætt — og kom tví- vegis hingað til lands. — Lék hann þá m. a. í Iðnó. Wieth hafði nýlega ráðist tfl „Old Vic“ leikhússins víð- fræga í Lundúnum og var tekinn til við æfingar á hlutverki Antonios í leikriti Shakespeares, „Kaupmaður- inn í Feneyjum". Þegar hann kom ekki til æfingar, var hans saknað af félögum sín- um. Þeir tóku að grennslast eftir honum og fundu hann laust eftir hádegið látinn í herhergi sínu í gistihúsinu. Kunnugt er, að Wieth hefur verið haldinn alvarleg- um sjúkleika um árabil — og hefur hann gengist undir margar læknisaðgerðir. Sam- kvæmt upplýsingum lög- reglu, átti andlátið sér stað með eðlilegum hætti. VIÐURKENNDTJR UISTAMAÐUR Mogens Wieth var sonur leikarans Carlo Wieth, sem starfaði við Konunglega leik- húsið. Hann lauk stúdents- prófi árið 1937 og var sama ár veitt innganga í leikskóla Konunglega leikhússins. — Tveim árum síðar fór hann MaMMMMkMMMlWkMi þar með fyrsta hlutverk sitt og starfaði við leikhúsið fram til ársins 1959. Arið 1956 hylltu danskir stúdent- ar hann sem „heiðurslista- mann“ sinn og á þessu ári var hann enn heiðraður, þá af verðlaunasjóði Poul Reu- merts. Eins og fleiri Danir neydd- ist Wieth til að flýja land á styrjaldarárunum. — Komst hann með fiskibát yfir til Svíþjóðar og hélt þaðan til Englands og gekk í herinn. Var hann m. a. í fallhlifalið- inu. DAÐUR 1 BRETLANDI Hinn danski leikari hafði áður leikið í Lundúnum og hlotið mikið lof brezkra gagnrýnenda fyrir leik sinn í ,3rúðuheimili“ Ibsens árið 1953. Var hann að þessu sinni ráðinn til að fara með þrjú hlutverk hjá „Old Vic“, þ. e. auk hins áðurnefnda, titil- hlutverkið í „OtheIlo“ eftir Shakespeare og einnig hlut- verk í leikriti eftir Ben John- son. LÉK 1 IÐNÓ Hann var þekktur langt út fyrir endimörk Danmerkur og hafði m. a. leikið sem gest- ur á flestum Norðurland- anna. Arið 1948 lék hann í Iðnó, hlutverk Kurts sóttvarnastjóra í leikriti Strindbergs, „Dauðadansin- um“, en í leikritinu léku einnig þau hjónin Anna Borg og Poul Reumert, sem var leikstjóri. Þótti það mikill leikviðburður. Mogens Wieth hafði mik- inn áhuga á islandi og mun þar hafa ráðið mestu að hann var af íslenzkum ætt- um. Var langafi hans Bergur Thorberg, landshöfðingi. — — Wieth var mikill vinur Reumert-hjónanna og eign- aðist að auki marga kunn- ingja og vini hér á landi. — Er að honum hinn mesti mannskaði. SVIPLEGT FRAFALL Eiginkona Wieth var leik- konan Lily Weiding, en þau giftu sig árið 1954. Var hún stödd í móttöku í ísraelska sendiráðinu, í tilefni heim- sóknar Davids Ben-Gurion, þegar henni barst hin svip- lega fregn af andláti eigin- manns síns. [ NA /S hnútor [ SV 50 hnútar ¥ Sn/ókoma > 06 i V Skúrir EC Þrumur ’WXZ KuUaakil ^ HiUtkH H^Hmt 1 L*Lmg» j Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi: SV-land, Faxaflói og miðin: SV gola og dálítil súld eða rigning fyrst, hægviðri og létt ir til síðdegis. Breiðafjörður og miðin: SV gola og súld fram á daginn, létt ir til með NA golu. Vestfirðir og miðin: Hæg- ’Viðri og dálítil rigning í nótt, en gola og bjart sunnan til á morgun, kaldi og rigning norðan tii. Norðurland, NA-land og mið in: Hægviðri og skýjað í nótt en NA gola og sums staðar dá- lítil rigning síðdegis. Austfirðir, SA-land miðin og austurdjúp: Hægviðri og léttskýjað. Fjölsótt héraðsmót á Ólafsfirði og Dalvík LAUGARDAGINN 1. sept. s.l. héldu Sjálfstæðismenn á Ólafs- firði héraðsmót sitt í samkomu- húsi bæjarins. Var hað vel sótt og fór hið bezta fram. Bæður á mótinu flutti þeir Ingólfur Jónsson, landbúnaðar- ráðberra, og Gísli Jónsson, menntaskólakennari, og var gerð ur góður rómur að máli þeirra. Á sunnudagskvöldið 2. "“ptem ber .fndu svo Sjálfstæðismenn á Dalvík einnig til mannfagnaðar í samkomuhúsi sínu. Var mót þettf. mjög fjölsótt og þótti tak- ast með miklum ágætum. Sam- komuna setti og stjórnaði for- maður Sjálfstæíisfélagsíns, Egill Júlíusson útg.m. Ræðuir á þessu móti fluttu Ingólfur Jónsson, ráðherra, og Jónas G. Rafnar, alþingismaður. Var ræðumönnum mjög vel fagn að. Sexmaimasiefnd- in enn á fundum MBL. átti tal við Svein Tryggva- son, framkvæmdastjóra Fram- leiðsluráðs landbúnaðarins. í gær kvöldi og innti hann eftir fund- um í hinni svonefndu sexmanna- nefnd sem skal ákveða verð landbúnaðarafurða. í nefndinni eru þrír fulltrúar neytenda Og þrír fulltrúar bænda. Sveinn sagði að nefndin hefði setið á fundi í fyrrakvöld og fyrrinótt en hvorki hefði verið samið með aðilum né málinu vísað til yfir- nefndar, sem ákveður endanlega verðið, náist samkomulag ekki í sex mannanefndinn. Fundur var boðaður í sexmannanefndinni klukkan 9 í gærkvöldi og sagði Sveinn að hann teldi að málin myndu skýrast í nótt og í dag mundi séð hvort samið yrði eða málinu vísað til yfirnefndar. • • r m Sjo nygar otj telpna KOMNAR eru út hjá Leiftri 7 nýjar barnabækur. Meðal þeirra eru smásögur um hinn fræga tyrkneska skólameistara, Nasa- reddin en ungir og gamlir um víða veröld skemmta sér enn við kímnisögurnar um hann, þó hann hafi verið uppi á 14. öld- inni. Eru sö~urnar í þessari bók í þýðingu Þorsteins Gíslasonar og hefur Barbara Ámason mynd skreytt bc' !na. Önnur bókin er Cómul æfin- týri í þýðingu Teodórs Árnason ar, skreytt myndum eftir Hall- dór Pétursson. The >dór Árnason þýddi á sínum tíma Grimms ævin týrin, sem kunnugt er. drengja- hækur Hinar bækumar eru drengja og telpnabækurí venjulegum stíL I>ar á meðal er sjötta BoL Moran bókin, og segir frá spennandi af reksvcrkum hetjunnar. Heitir þessi bók Eldklóin. Önnur drengjasaga er sjötta bókin um hetjuna Kim og heitir Kim hvergi smeykur. Telpunabækurn ar eru um Kötu og Hönnu. Er þetta 13. Hönnubókin og heit- ir „Hanna kann ráð við öllu.“ Kötubókin heitir „Eg er kölluð Kata“ ' er ætluð yngri lesend um í hópi telpnanna. Loks er ný bók handa drengjum og telpum og heitii sú Kalli og Klara HÉRAÐSMOT Sjálfstæðismanna á Snæfellsnesi 16. sept. HÉBAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Snæfellsnes- og Hnappa- dalssýslu verður haldið að Breiðabliki sunnudaginn 16. september klukkan 6 eftir hádegi. 'W*% Gunnar Thoroddsen, fjar- málaráðherra, og Jón Árna- son, alþingismaður, flylja % ræður. íiWj^'js í*'!§ Þá verður sýndur gaman- Ieikurinn „Heimi!is£riður“ 'Æk t's ite 1' Í-Slí'; iuumuu Sf lÉ’J 5! 01 eftir Georges Courteline, í (Smí... ~ dtot M ‘ ÍSlW 1SM þýðingu Árna Guðnasonar, & ^ssf y ■SÆi. ,i-n L SlímtflÍBJlll ■k ' fstei fsBmm magisters. Með hlutverk fara leikararnir Rúrik Haraldsson Gunnar 0g Guðrún Ásmundsdóttir. Ennfremur verður til skemmtunar einsöngur og tví- söngur. Flytjendur eru óperusöngvararnir Guðmundur Jónsson og frú Sigurveig Hjaltested, og undirleik annast Fritz Weisshappel, píanóleikari. Dansleikur verður um kvöldið. Greiðsla skatta og útsvara STJÓRN Bandalags starfs- manna ríkis og bæja gerði svo- fellda ályktun á fundi sínum 7. september 1962: í ágústmánuði síðastliðnum var tilkynnt að framvegis ætti að draga hluta af útsvörum og ' þinggjöldum launamanna frá desemberlaunum. Þar sem þetta hlýtur að valda launþegum miklum erfiðleikum í jólamánuðinum mótmælir stjórn B.S.R.B. eindregið um- ræddri breytingu og skorar á stjórnarvöldin að breyta inn- heimtunni aftur í það horf, sem áður var, að skattar og útsvör verði eigi dregið frá launum manna í jólamánuðinum. (Frá Bandalagi starfsmanna rík- is og bæja.j Á báðum þessum héraðssam. kornurn var fluttur hin ágæti gamanleikur „Mótlætið göfgar“ eftir Leonard White, en meS hlutverkin fóru leikararnir Valur Gíslason og Helga Valtýsdóttir, Enr.fremur var til skemmtun- ar einsöngur og tvísöngur en flytjendur voru Kristinn Halls. son, óperusöngvari, Þórunn Ól. afsdóttir, söngkona og Skúli Hall dórsson, píanóleikari. Var listafólki s»m og ræðumönnunum mjög vel teki# á báðum þessum samkomum. Sauðárkrókur vaim Húsavík Sauðárkróki 10. sept. SUNNUDAGXNN 9. sept for fram á Sauðárkróki bæjankeppni í knattspyrnu milli Húsavikur og Sauðárkróks. Keppt var i tveimur flokkum, fyrsta og fjórða flokki. Úrslit urðu þau að lið Sauðárkróks vann báða leikina, í fyrsta flokki 5:1 og í fjórða flokki 2:0. Einnig fór fram hand knattleikskappleikur kvenna. Húsavíkurstúlkur unnu með 8:3 sameinuð lið frá Sauðárkróki og Hofsósi. — jón — Synti til lands Framih. af bls. 24. — Á föstudagsmorguninn var ágætt veður og sjór til- tölulega sléttur. Álandsvind- ur var og við gáfum eftir á tóunum og létum bátinn reka upp undir land. Hallgrímur synti síðan til lands, nokkur hundruð metra, og upp i klettana, en þar var nokkuð brim, því þarna er eilífur súgur. Sundið gekk ágætlega og Hallgrímur gekk síðan meðfram klettunum þar til hann komst upp, og hélt til Malarrifs þar sem hann til. kynnti hvernig komið væri. Þá hafði frétzt þangað að bátur lægi úti og eitthvað væri að. Um fjögur leytið kom síðan dragnótabáturinn Garðar og síðar Víkingur, báðir frá Ólafsvik. Við feng- um rafmagn til þess að koma vélinni í gang og sigldum síðan heim. — Ég er ekki skipsmaður á Farsæl, sagði Ottó að lok- um, — heldur fór með í þessa ferð að gamni mínu og lenti þá í þessu ævintýri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.