Morgunblaðið - 12.09.1962, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 12.09.1962, Qupperneq 12
12 MORCVTSBT 4fí1 Ð Miðvikudagur 12. §epí. 1962 tJtgefandi: Hf. Árvakur 'kjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. KOSNINGAR TIL ALÞ ÝÐ USAMBANDS- ÞINGS TVTæstkomandi laugardag -*■ ’ hefjast kosningar full- trúa á næsta þing Alþýðu- sambands íslands og standa þær yfir til 7. október. 330— 340 fulltrúar verða kjörnir í yfir 160 launþegafélögum. Þar að auki er þess að vænta að samtök verzlunarmanna fái viðurkenndan rétt sinn til þátttöku í Alþýðusambandi íslands og bætast þá við 30 —40 fulltrúar. Eins og kunnugt er ráða kommúnistar nú lögum og lofum í Alþýðusambandi ís- lands með tilstyrk Fram- sóknarmanna. Sem betur fer er skilningur nú vaxandi á því að stefna og starfsemi „íslenzkra“ kommúnista mið ast ekki við hagsmuni laun- þega heldur beinist hún að því að vinna hinni rússnesku heimsvaldastefnu gagn. Af því leiðir að kommúnistar telja nauðsynlegt að sann- færa menn um hve afleitt lýðræðislegt stjómarfar sé, og þess vegna telja þeir sér líka skylt að gera allt, sem í þeirra valdi stendur, til þess að hindra raunhæfar kjara- bætur og þjóðfélagsumbæt- ur almennt. Þeir eru því and stæðingar þeirra manna, sem falið hafa þeim umboð í Al- þýðusambandi íslands, verka mannanna. Þeir menn, sem gera sér grein fyrir þessu eðli hinn- ar kommúnisku baráttu, hljóta að hafa náið samstarf til að hindra áframhaldandi yfirráð kommúnista. Þess vegna er ekki nema eðlilegt og sjálfsagt að Sjálfstæðis- menn og Alþýðuflokksmenn starfi saman í verkalýðsfélög unum. Hitt vekur furðu að Framsóknarmenn skuli að undanförnu hafa stutt erind- reka heimskommúnismans til valda. Enn er ekki sýnt hvort áframhald verður á þeim stuðningi, og vill Mbl. ekki gera því skóna að ó- reyndu að foringjar Fram- sóknarflokksins skipi liðs- mönnum sínum enn einu sinni að styrkja kommúnista, enda eðlilegt og sjálfsagt að allir lýðræðissinnar hafi sam starf í verkalýðsfélögunum hvað sem líður samstiórn flokka á hverjum tíma. ORÐHENGILS- HÁTTUR ¥ Tímanurn í gær birtist rit- stjórnaxgrein um afstöðu íslendinga til Efnahags- bandalags Evrópu og er hún býsna kyndug. Þar er því fyrst réttilega lýst að enn sé óljóst hvemig samningum um aukaaðild geti verið háttað og á það bent að í henni geti falist allt frá 1% til 99% af skuld- bindingum Rómarsamnings- ins. Síðan segir: „Þess vegna er orðið auka- aðild alls ekki nothæft eins og sakir standa í umræðum um hugsanlegar leiðir fyrir ísland í samningum við EBE. Það segir ekki neitt. Af þessum ástæðum hefur Framsóknarflokkurinn ekki minnzt á aukaaðild í álykt- unum sínum um ísland og EBE. Miðstjómin hefur mótað þá leið að leita tengsla við EBE, þegar tímabært verð- ur með sérstökum samningi um tolla og viðskiptamál — án þess að ganga í Efnahags- bandalagið.“ Sannleikurinn er sá að ná- kvæmlega er jafnóljóst enn hvað felast kann í „tengsl- um“ við Efnahagsbandalag- ið eins og aukaaðild að því. Þetta er því orðhengilshátt- ur, sem minnstu máli skipt- ir. En Tíminn heldur áfram: „Ennfremur hefur mið- stjórnin og talsmenn Fram- sóknarflokksins á fundum og í Tímanum lagt og leggja höfuðáherzlu á að bíða á- tekta — og það telja Fram- sóknarmenn þýðingarmest af öllu að fara sér hægt og fá málefni íslands leyst sér- staklega, vegna þess að Is- land hafi algjöra sérstöðu meðal þjóða heimsins.“ íslenzka ríkisstjómin hef- ur einmitt beðið átekta, en jafnframt lagt sig fram um að fylgjast sem rækilegast með þróun mála og kynna málstað íslands meðal þeirra þjóða sem úrslitaáhrif hafa. En ástæðan til þess að beðið er átekta er einmitt sú að erfitt er í dag að mynda sér skoðun á því hvers konar „tengsl“ eða „aðild“ að Efna- hagsbandalaginu sé heppi- legust. Þess vegna er bæði ótímabært og óskynsamlegt að tala eingöngu um samn- inga um tolla og viðskipta- mál eins og Framsóknar- menn gera. í því efni á að láta hagsmuni íslendinga eina ráða, en ekki einhverja ímyndaða áróðurshagsmuni. UTAN UR HEIMI Þrír forsætisráðherrar, sem sitja ráðstefnuna í London: Frá vinstri: Keith Holyoake, Nýja-Sjáland, Robert Menzies, Astralía og John Diefenbaker, Kanada. Búizt við vinsamiegum fundi forsætisráðherra Samveidislanda I NÚ er hafin í London ráð- stefna forsætisráðherra brezku Samveldisland- anna. Þessarar ráðstefnu hefur verið beðið með all- mikilli eftirvæntingu und- anfarna mánuði, vegna þess, að margir telja, að þar kunni að ráðast, hvort af aðild Breta í Efnahags- bandalaginu verður. Ekki dró úr eftirvænt- ingunni, er hlé varð á við- ræðum Breta við fulltrúa bandalagsins fyrr á þessu hausti. Þá virtist um tíma sem vandfundin myndi sú leið, er leiða myndi til að- ildar Breta, því að tals- verður ágreiningur ríkti milli fulltrúa bandalags- ríkjanna og brezku full- trúanna, sem Edward Heath, varautanríkisráð- herra, hefur að mestu haft orð fyrir. Ætlunin var, eft ir að ákveðið var að halda ráðstefnuna í Lundúnum, að reyna að fá gengið end- anlega frá þeim skilyrð- um, sem sett yrðu fyrir aðild Breta, áður en ráð- stefnan hæfist. Þetta tókst ekki eins og kunr.ugt er. Er svo var kom- ið, tók i auknum mæli að gæta þeirrar skoðunar, að mjög hefði dregið úr líkun- um fyrir aðild Breta og tals- menn þess, að Bretar gengju í bandalagið, myndu eiga í vök að verjast á ráðstefnu forsætisráðherranna. Nokkrir þeirra hafa látið í ljósi vantrú á því, að tengslin innan Samveldisins gætu haldizt óbreytt ef Bretar gengju í bandalagið. Hefur þeirrar andstöðu, sem þann- ig hefur gætt, mjög verið haldið á lofti. Hins vegar er það stað- reynd, að minna hefur verið gert úr afstöðu þeirra Sam- veldislanda, sem eru fylgj- andi aðild Breta, en þau lönd eru í alimiklum meiri- hluta. Þá er þess að gæta, sem ekki hefur komið oft fram, að jafnvel andstæðing- ar þess, að Bretar gangi í bandalagið eru margir ekki ýkja harðir í andstöðu sinni, eða andmæltir aðild að öllu leyti. Því er ekki gert ráð fyrir, að neitt þessara landa muni segja sig úr Samveldinu, né reyna að gera Bretum erfitt fyrir á annan hátt, þótt sú skoðun verði ofan á, að Bretar eigi að ganga í banda- lagið. Þetta hefur komið í ljós af ummælum meirihluta þeirra ráðherra, sem ráðstefnuna sitja. Afstaða einstakra sam- veldislanda. í>ótt málin standi þannig, sem nú hefur verið sagt frá, þá er ekki þar með fullyrt, að þau lönd, sem fylgja aðild Breta, séu ánægð með þau skilyrði, sem fram til þessa hafa verið sett fyrir inn- göngu þeirra í bandalagið. Pakistan, Kýpur og Sierra Leone vilja ganga sem lengst í því að tryggja útflutnings- möguleika sína og efla þá. Löndin í Karabiska hafinu horfast í augu við efnahags- legt hrun, nema þau fái að njóta sérréttinda um sykur- útflutning, en núverandi stefna bandalagsríkjanna er sú, að fyrst og fremst beri að gæta hagsmuna sykurfram- leiðenda í Evrópu — þá á kostnað þeirra ríkja, sem að ofan er getið. Nýja-Sjáland á við sína sér stöku erfiðleika að etja, ef af aðild Breta verður, vegna nú verandi útflutnings síns á mjólkurafurðum og afurðum af sauðfjárrækt. Afríkulöndin hafa sett fram sínar kröfur, en ekki er talið, að erfitt muni reynast að fullnægja þeim — ef Efna- hagsbandalagið fellur frá þeirri uppástungu sinni, að þessi lönd gerist aukaaðilar. Bandalagið hefur viljað fá því framgengt, ef þessi lönd eigi að fá notið sérréttinda í viðskiptum sínum. Nigeria, Ghana, Tanganyika og Uganda (hlýtur sjálfstæði í næsta mánuði) munu öll frekast hagnast af aðild Breta, en hitt. Andmæli þau, sem gætt hefur hjá fulltrú- um þessara landa, eru ekki runnin af ástæðum hagfræði- legs eðlis, heldur er það skoðun margra þeirra, að í kjölfar aðiidar Breta mtinj fylgja stjórnmálaeining, sem muni hafa óheppileg áhrif — og því telja þessir fulltrúar ekki heppilegt, að lönd þeirra gerist aukaaðilar bandalags- ins. Hins vegar er ekki talið, að Efnahagsbandalagið muni halda fast við þá kröfu sína, þannig að frekar auðvelt er Framhald á bls. 15 «%r> Meginatriðið er hins vegar að Islendingar hljóta að verða aðilar að þeirri þróun, sem nú á sér stað í Evrópu, í einhverju formi, og skal fúslega viðurkennt að þetta gera Framsóknarmenn sér ljóst. Þess vegna er þess að vænta að þeir forðist sleggju dóma og hagi málflutningi sínum í samræmi við þá yf- irlýsin^u að þeir vilji bíða átekta og kynna sér málin sem rækilegast, því að enn veit enginn hvaða form hent- ar okkur bezt. Akvörðun um það hlýtur að byggjast á framvindu mála, einkum í sambandi við umræður um fiskveiðimálefni og umsókn- ir Breta, Norðmanna og Dana. GÖÐ SÍLDVEIÐI Cíldarvertíðinni fer nú sexm ^ að ljúka, og jafnvel þótt ekki fiskaðist meiri síld en þegar er komin á land er um ágætan afla að ræða, sem mjög mun styrkja fjárhag fjölda manna og þjóðarheild- arinnar. Fregnir berast nú einnig af því að góð veiði sé hjá tog urunum á Nýfundnalands- miðum. Ef framhald verður á þeim veiðum og aftur verð- ur um svipuð aflabrögð að ræða þar og 1958 er sannar- lega ástæða til bjartsýni. Góð aflabrögð auðvelda út gerðinni að standa undir reksturskostnaði. Þess vegna eru þeim mun meiri líkur til að menn fái notið kjarabóta, sem hagur útgerðarinnar er betri. Hann snertir því í raun inni kjör hvers manns þegar til lengdar lætur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.