Morgunblaðið - 16.09.1962, Qupperneq 2
2
MÓ'RCUNTlLAÐlb
Sunnudagur 18. sept. 1962
DAVID Ben-Gurion og frú
kveðja Island í dag eftir
skemmtiiega og góða heim-
sóks. Hér á landi hafa þau
eignazt marga góða vini og
aðdáendur og er vonandi að
þau haldi heim til Landsins
helga með hlýjar endurminn-
ingar um fsland.
Fréttamaður Mbl. átti sam-
tal við Ben-Gurion í jær og
fer það í heild hér á eftir.
Þess má þó geta, að Ben-
Gurion hélt einnig fund með
íslenzkum blaðamönnum síð-
degis í gær og verður síðar
skýrt frá honum hér í blað-
inu. I»ar var Ben-Gurion ma.
spurður, hver hefði verið ör-
lagaríkasta stundin á stjórn-
málaferli hans. Hann svaraði
án þess að hika: „Það var
þegar sjálfstæði fsraels var
lýst yfir. í»á voru allir glaðir
og ánægðir og fögnuðu unn-
um sigri, en ég gat ekki fagn-
að eins og aðrir. Ekki vegna
þess að ég væri ekki glaður
heldur vegna hins, að ég vissi,
að á næsta leiti beið okkar
styrjöid við nágrannana og í
þeirri styrjöld gat svo farið
að hið nýja ísraelsríki yrði
lagt í rúst. Við vorum aðeins
650 þús. manns þá, en ná-
grannar okkar um 30 millj-
ónir.“
Þá var forsætisráðherrann
einnig spurður hvort hann
áliti enn, þegar hann leiddi
hugann til baka að Súez-
styrjöldinni, að hún hefði
verið rétt frá sjónarmiði
Vesturveldanna og fsraels.
Hann svaraði og hló við, „Já,
hárrétt. Ég var aldrei í nokkr
um vafa um að Súez-styrjöld-
in ætti rétt á sér. Og nú sjá
margir, sem áður fordæmdu
hana, að hún var nauðsyn-
leg, t. d. vinir okkar Banda-
ríkjamenn. DuIIes sagði sjálf-
ur við mig á sínum tíma, að
styrjöldin væri mistök."
SAMTAL MBL. VIB BEN-
GCJRION.
Samtal Mlbl. við David Ben-
Gurion átti sér stað í Ráð-
herrabústaðnum. Forsætisráð-
herrann var svo viðfelldinn
og hlýr í viðkynningu, að
fréttamaðurinn minnist þess
akki að hafa kynnst áður
sliku viðmóti. Hann sagðist
skyldu leysa úr öllum spurn-
ingum eins og hann bezt gæti.
Hann talaði lágt, en ákveðið
ag af bjargfastri sannfser-
ingu.
„Þér voruð fæddir í Pól-
landi, herra forsætisráðherra.
Hvaða tilfinningar berið þér
í brjósti til þessa gamla fæð-
ingarlands yðar?“
Án minnstu umhugsunar
svaraði Ben-Gurion. „Ég var
fæddur í þeim hluta Póllands,
sem var partur af Rússlandi
keisaratímabilsins. Þá gerðu
Rússar allt sem þeir gátu til
að merkja sér landið og setja
rússneskt yfirbragð á allt þjóð
lífið. Mér fannst ég aldrei
heyra til Póilandi eða Rúss-
landi, heldur leit ég á Pale-
stínu sem mitt land og ísraels
menn sem mína þjóð. Ég vissi
líka miklu meira um fsrael en
Pólland eða Rússland. Ástæð-
an var sú, að fyrsta bókin
sem ég lærði var Biblían, og
hún hafði djúp áhrif á mig.
„Hún hefur verið yður
leiðarst j arna? “
„Já, ekki aðeins mér held-
ur öllum Gyðingum í þúsund
ir ára, sérstaklega eftir að
þeir dreifðust um víða ver-
öld. Ég setti traust mitt á
að uppfyllt yrði það loforð
Biblíunnar, að við mundum
aftur fara heim til ísraels.
Sem barn dTeymdi mig um
að komast heim og þegar ég
var orðinn fullorðinn, ákvað
ég að fara og gerði það“.
„Var það nokkuð sérstakt
1 Biblíunni sem hafði meiri
þýðingu fyrir yður en ann-
að?“
„Fyrst og fremst það
sem Guð sagði við Abraham,
Börnum þínum hef ég gefið
þetta land. Vit það fyrir
víst að niðjar þínir munu
lifa sem útlendingar í landi
sem þeir eiga ekki. Bn fólk-
ið kom aftur. í þúsund ár
hefur þetta loforð verið veg-
vísir okkar og nú hefur það
verið uppfyllt. Og ég hef
alltaf verið þess fullviss, að
svo mundi fara“.
„Kona yðar nýtur mikilla
vinsælda hér á landi“.
„Já, ég á góða konu og
milli okkar ríkir kærleikur."
„Hún hefur verið yður
hjálparhella í erfiðu starfi“.
„Já, hún hefur lagt sig
fram um að ég gæti sinnt
þeim störfum, sem lögð hafa
verið á herðar mér fyrir
land mitt og þjóð. Hún hef-
ur séð um heimilið, hún hef-
ur séð um börnin og ég hef
séð um hana.“
„Þér eruð þá þeirrar skoð-
unar að góð kona sé mikill
styrkur hverjum stjórnmála-
manni“.
„Já. Én ekki aðeins hverj-
um stjórnmálamanni, heldur
hverjum manni“.
„í Þjóðminjasafninu um
daginn minntist ég á Jesú
Krist við konu yðar. Hvað
segið þér um hann, herra
forsætisráðherra?“
„Hann var aðeins góður
Gyðingur eins og margir
aðrir.“
„En orð hans í Nýja
Testamentinu? “
„Þegar hann var uppi í
Gyðingalandi, voru þar marg-
ir trúflokkar og í bókum
þeirra lesum við svipaða hluti
og hjá Jesúm.“
„Trúið þér að hann hafi
verið sonur Guðs?“
„Nei“.
„En hann sagði það sjálf-
ur?“
Gamael Nasser
„Það hefur verið misskilið.
Enginn góður Gyðingur getur
sagt að hann sé sonur Guðs.
Páll misskildi þessi orð Jesús
og lagði í þau bókstaflega
merkingu, Jesús var ekki
þeirrar skoðunar sjálfur. Þeg-
ar hann sagði: Ég er Guðs
sonur, átti hann við það sama
og allir Gyðingar, þ.e. að
Guð á himnum er skapari
alls; hann er í öllu og alls
staðar, var til fyrir sköpun
heimisins og verður til eftir
heimsendi, ef svo mætti segja.
Eins og Guð skapaði alla
hluti, þannig skapaði hann
einnig Jesú Krist. Það var
það sem Jesús átti við, þegar
hann sagði þessi orð, en síð-
ar hafa þau verið misskilin
og rangtúlkuð. Við Gyðingar
lítum ekki á Guð eins og ein-
hvern efnislegan Guð. Guð
okkar sést ekki, samt er hann
alls staðar. Þetta var einnig
Guð Jesús Krists Páll postuli
tók orð hans of bókstaflega.
Ég get fullvissað yður urn,
að það er á misskilningi byggt
MÓUMÓMMmum%
þegar fólk heldur að Jesús
Kristur hafi talað um föður
sinn á himnum eins og þér
talið um foreldra yðar.“
„Og þér trúið á sama Guð
og Jesú Kristur?“
„Já, það geri ég. Við erum
öll sköpuð af Guði í þeim
skilningi sem ég minntist á áð-
an, en hann er ekki faðir
okkar eins og um væri að
ræða föður og móður. Þetta er
mín trú.“
„Hverjum augum lítið þér á
spámennina og spádóma Bibl
íunnar? Trúið þér þeim?“
„Já, það geri ég. En það
er misskilningur að halda að
spádómar Biblíunnar séu í því
fólgnir að segja fyrir um ó-
orðna hluti. Það sem gerir
Biblíuna svo stórkostlega er
fremur hitt, að spámennirnir
skildu óskir og þarfir okikar
fólks. Þeir vissu t.d. að í styrj-
öld tapa allir, bæði þeir sem
sigra og hinir sem bíða ósig-
ur. Þjóðirnar munu ekiki lyfta
sverði gegn náttúrunni, segja
þeir, né heldur vilja þær
heyja styrjaldir. Spádómar
Biblíunnar eru í því fólgnir
að skilja lögmál náttúrunnar.
Spádómarnir anda djúpum
skilníngi á þörfum fólksins.
Ef við lítum á ástandið í dag
og virðum fyrir okkur bá
stjómmálaleiðtoga, sem ein-
hvers eru megnugir. sjáum
við, að allir tala þeir um frið
og nauðsyn þess að halda frið
hver við annan. Og ég vona
að við öðlumst þennan frið,
meðan við erum enn ofan
moldar."
Og svo bætti Ben-Gurion
við, „Nei, nei, spádómarnir
eiga ekkert skylt við krafta-
verk ,heldur eru þeir einung-
is skarpur skilningur á nátt-
úrunni og þörfum fólksins."
„Þér haldið þá ekki að i
Biblíunni séu t. d. spádómar
um blóðferil Adolfs Hitlers?
„Nei, það held ég ekki.“
„Þér trúið á reisn mannsins
og göfgi“
„Já, það geri ég. Öll viljum
við byggja nýtt land. Það er
einhver þörf f oklkur sem
krefst þess, þó við séum ekki
alltaf þeirri kölluin trú.“
„Svo við snúum ofckur að
öðru, hr. forsætisráðherra,
hvað vilduð þér segia um
Nasser. Haldið þér að hann
hafi þennan skilning á spá-
dómunum?“
„Nei, það held ég ekki.“
„En hvað vilduð þér segja
um hann?“
„Hann er mjög gáfaður
maður og hæfur í starfi; sá
leiðtogi Araba sem nú er hæf
astur. Hann skilur samt ekki
mikilvægi mannlegs frelsis
og mannlegrar reisnar. Og
hann trúir á einræði, treystir
á her. Við ísraelsmenn trú-
um því aftur á móti, að bezt
sé að fól'k velji sjálft og
hafni; að það sé frjálst og
geti óhindrað samið sín eigin
lög; að fólkið ráði sér sjálft,
David Ben-Gurioa
en sé ekki þviogað. Við trú-
um því, að það njóti sín að- <
eins frjálst og óháð. Þetta
skilur Nasser þvi miður ekki 1
ennþá, en þeir dagar munu 1
koma. Nasser er maður eins
og við hin, og hann barf að
læra eins og aðrir.“
„Munduð þér vilja hitta
hann?“ spurði fréttamaður
Mbl.
„Já, ég er reiðubúinn að
hitta hann og ræða við hann
hvenær sem er“, sagði Ben 1
Gurion með áherzlu. Og hann
bætti við, „Mættu slíkar við-
ræður leiða til betrl skiln- •
ings milli þjóða okkar.“
„En hvað vilduð þér segja
um eldflaugarnar sem Egypt-
ar hafa smíðað?”
„Þeir hafa fengið þýzka !
sérfræðinga til að smíða þær
fyrir sig. Það er alvarlegt <
mál, en vonandi finnum við
einhverja leið til að sigrast
á þessari nýju hættu.“ '
Svo bætti forsætisráöherr-
ann við, „Arabar standa okk-
ur að baki. Þeir þurfa að
menntast og þroskast og að
því mun koma að þeir sjá
svart á hvítu, að það sem
gildir er ekki her og styrjöld,
heldur friður. Við munum
öðlast frið, en ég veit því <
miður ekki fyrir víst, hvaða
dag það verður.“
Tíminn var naumur. Frétta
maður Mbl. ræddi aðeins við
David Ben-Gurion í 15 mín- '
útur og nú var komið að því
að kveðja. En áður varpaði
fréttamaðurinn fram þessari
spurningu:
„Hvað vilduð þér segja um '
förina til íslands. Hvernig
lítzt yður á land og þjóð?“
„Drottinn hefur blessað
ykkur með mörgum hlutum,
ám, vötnum, hverum, þeir
eru stórkostlegir! En eins og
við, þurfið þið einnig að
glíma við eyðimörk. Mikill
hluti lands ykkar er ís og
eyðimörk — eða ætti ég held-
ur og segja ís og eldur? Ætli
það mundi ekki eiga betu>
við, því ég hef fundið þess-
ar andstæður í lyndiseink- 1
unn þjóðarinnar. Þið eigið
hjarta með logandi eldi, en
höfuð ykkar er fullt af ís.“
M.
Lange sextugur
HALVARD Lange utanríkisráð-
herra Noregs er sextugur í dag.
Lange hefur oft komið til fs-
tands, nú siðast í sumar í opin-
bera heimsókn. Hann á marga
vini á fslandi, enda einn þeirra
stjórnmálamanna erlendra sem
mestu ástfóstri hefur tekið við
landið. Hafa fslendigar lönigum
átt hauk í horni har sem hann
hefur verið.
Háskóla-
fyrirlestur
PRÓFESSOR, dr. jur. Stephan
Hurwitz, umboðsmaður danska
þjóðlþingsins, flytur fyrirlestur í
boði Háskóla íslands miðvikudag
19. sept. n.k. kl. 5,30 eh í hátíða-
sal háskólans. Fyrirlesturinn
nefnist „Om den nordiske om-
budsmandsinstitution", og verð-
ur þar einkum fjallað um aðdrag
anda að stofnun embættis um-
boðsmanns danska þjóðþingsins
og reynsluna af þvl Umboðs-
maðurinn hefir einkum það starfs
svið að rannsaka kvartanir og
kærur borgara og annarra aðilja
um misfellur í starfi opinberra
starfsmanna.
Prófessor Hurwitz er einn
kunnasti lögfræðingur á Norður-
löndum, og hér á landi er hann
ekki sízt kunnur vegna þess að
kennslurit hans í refsirétti hafa
verið notuð hér við háskólann
um langt árabil.
Aðgangur að fyrirlestrinum er
öllum heimill.
Tónlistarskólinn
VÆNTANLEGIR nemendur Tón-
listarskólans á komandi vetri
eiga að senda umsóknir um skóla
vist til Hólmfríðar Sigurjóns-
dóttur. ritara skólastjóra, Öldu-
götu 12.
Um myndlist...
PRENTVILLA slæddist inn í
grein Kurt Zier um myndlist í
blaðinu í gær. Rétt er viðkom-
andi setning þannig: „Milli
manns og myndar skapast líf-
rænt, andlegt samband, eining,
sem auðgar líf mannsins. .,“
hreyfingu norðaustur, en yfir
Grænlandi og Grænlandishafi er
hæð. Því er ljóst, að um helg-
ina verður norðan-vindur. Á
Suðurlandi verður sólskin, en
heldur kalt í veðri, því að hiti
verður undir 10 stiguon og veð-
urhæðin 4-7* vindstig.
Norðan lands verður rigning i
láglendi ag hiti varla hærri ea
3-5 stiig. Til fjalla mun snjóa.
og víða grária niður undír sjó,
einkum vestan til.