Morgunblaðið - 16.09.1962, Síða 12
12
T MORCUNBLAÐIÐ
r
Sunnudagur 16. sept. 1962
JMwgtsttiritafeifr
Ctgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefónsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
\ Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
UM ÞAÐ KJÓSA
LAUNÞEGAR
Ctjómarandstæðingar hafa
enn gert samkomulag
sín á milli urn það að reyna
að hagnýta launþegasamtök-
in í flokkspólitískum tilgangi
og gera kosningarnar til Al-
þýðusambandsþings enn á ný
rammpólitískar, en láta hags
'munamál launþega sitja á
hakanum.
Það er yfirlýst stefna
bandalags kommúnista og
leiðtoga Framsóknarflokks-
ins að reyna að nota Alþýðu-
samband íslands til þess að
berjast gegn hagsmunum
þjóðarheildarinnar og þar
með launþega. Það á að nota
samtökin til þess að hindra
þá hagstæðu efnahagsþróun,
sem nú á sér stað og færir
mönnum stöðugt batnandi
kjör. Að dómi þessara manna
eiga launþegasamtökin að
vera pólitískt valdabrölts-
tæki.
Gegn þessari ófríðu fylk-
ingu standa þeir, sem gera
sér grein fyrir því að laun-
þegasamtökin eiga hér, eins
og í öðrum lýðfrjálsum lönd-
xim, að miða starfsemi sína
við það eitt að gæta hags fé-
lagsmanna og tryggja þeim
þau beztu kjör, sem á hverj-
um tíma er unnt að ná. Aug-
ljóst mál er að kjarabætur
fást því aðeins að atvinnulíf
sé blómlegt og fjárhagur
þjóðarheildarinnar traustur.
Þess vegna hlýtur það að
verða hlutverk sérhvers þess
manns, sem af einlægni vill
vinna að hagsmunamálum
verklýðsfélaga, að berjast
harðri baráttu gegn þeim
öflum, sem einskis svífast til
, að reyna að hindra heil-
brigða efnahagsþróun, íþeim
eina tilgangi að ná sjálfir
pólitískum völdum.
VIÐREISN AÐ
VERKI
Ityrst eftir að viðreisnarráð-
* stafanirnar hófust höfðu
launþegar ekki afstöðu til að
dæma um þær af reynd. Þeir
urðu þá að marka afstöðu
sína eftir því, hvort þeir tóku
trúanleg orð ríkisstjórnar-
innar og sérfræðinga hennar
um það að unnt væri að reisa
við fjárhag landsins án veru-
legra byrða og einkum þó
þeirrar staðhæfingar að veru
legar kjarabætur myndu
skjótt fylgja, ef heilbrigt
efnahagslíf næði að þróast.
Stjórnarandstæðingar héldu
því sem kunnugt er fram að
hér myndi allt fara í kalda
kol, verða kreppa og hörm-
ungar, sem jafnvel var líkt
við móðuharðindi af manna
völdum. — Milli þessara
tveggja fullyrðinga urðu
launþegar að velja, án þess
að geta byggt það val á
reynslunni.
Nú er hins vegar komin
reynsla á viðreisnina. Efna-
hagur landsins hefur verið
reistur við. í stað þess að
stöðugt var safnað skuldum,
sem vandséð var hvernig
hægt yrði að komast út úr,
er nú safnað gjaldeyrisvara-
sjóðum. í stað þess að efna-
hagslífið var reyrt í fjötra,
vöruframboð var lítið og lé-
legt og atvinnutæki nýtt ver
en skyldi, er nú blómlegt um
að litast mn allt land. Fram-
kvæmdir eru eins miklar og
mannafli frekast leyfir, mikl
ar og góðar vörur eru á boð-
stólum og lífskjör batna jafnt
og þétt.
Viðreisnin er að verki. Og
nú dæma launþegar um það
hvort þeir vilja áframhald
hinnar hagstæðu efnahagsr
þróunar og þau stórbættu
lífskjör, sem í kjölfarið fylgja
ár frá ári. — Eða hvort þeir
vilja fela skemmdarverka-
mönnum, sem hafa lýst því
yfir að þeir hyggist hindra
þessa þróun, forystu mála
sinna og þar með stofna á
ný til þeirrar kyrrstöðu í
kjaramálum, sem hér átti sér
stað meðan nágrannaþjóðirn
ar stórbættu sín lífskjör.
Það á sannarlega ekki að
vera vandi að velja, svo aug-
Ijósa yfirburði sem viðreisn-
arstefnan hefur yfir kyrr-
stöðu „vinstri stefnunnar“.
SÚRIR Á SVIP
t'ramsóknarmenn eru dálítið
* heimóttarlegir og súrir á
svipinn þessa dagana. Ástæð-
an er sú að samkomulag hef-
ur náðst í sex manna nefnd
um verð landbúnaðarafurða,
en leiðtogar Framsóknar-
flokksins höfðu heitið komm
únistum því að leggja sitt af
mörkum til að koma af stað
upplausn í þjóðfélaginu og
átti það að gerast með sölu-
stöðvun landbúnaðarafurða,
sem kommúnistar gætu svo
talið réttlæta allsherjarverk-
föll.
Nú er þessi vígstaða líka
horfin eins og allar aðrar,
sem Framsóknarmenn hafa
undanfarin ár tekið sér og
síðan hopað úr. Þannig
gagnar nú lítið talnafölsun
eins og sú sem einn þing-
Anette Stroýberg, danska kvik
myndaleikikonan, sean giftist
Roger Vadim fyrrverandi eigin-
manni Brigitte Bardot hefur und
anfarið átt mjög vingott við
ítalska kvikimyndaleikarann og'
kvennagullið Vittorio Gassmann.
— Er altalað að brúðkaup þeirra
muni ekki dragast mikið á lang-
inn úr þessu. En núna nýlega
var Anette í frii á baðströnd
nokkurrri og hafði hún engan
með sér nema yngri systir sína.
— Þótti öðrum baðstrandargest-
um hin yngri systir ekkert gefa
þeirri eldri eftir í fegurð.
mwíSi
★
í síðustu viku munaði mjóu
að Margrét Englandsprinsessa
lenti í bílslysi. Sat hún í fram-
sæti Mercedes-bifreiðar en henni
ók de Vesci lávarður, sem er
kvæntur systur Amstrong-Jones.
Var þétt rigning og göturnar
mjög hálar. — Mercedesbifreið-
in var á hægri ferð er 20 tonna
vöruflutningabifreið kom út úr
rigningunni á móti. En lávarð-
inum tókst með snarræði sínu að
forða slysi. Hann beygði snar-
lega út af veginum og fór um
þrjá metra út á graskantinn fyr-
Þessi laglega stúlka með rúll-
urnar“ heitir Anita Gillette og
er enn alveg „óþekkt“. En
hún verður það væntanlega
ekki lengi því hún leikur eitt
aðalhlutverkið í nýjum söngleik
eftir Irving Berlin, „Herra for-
seti“ sem frumsýnt var í Bost-
on sl. mánudag. — Er þetta fyrsta
frumsýning Berlins síðan „Call
me Madam“ var sýnd fyrir um
það bil 12 árum. — Berlin sem
fæddur er í Rússlandi (á tímum
keisarastjórnarinnar) er einhver
þekktasti sönglagahöfundur
vorra tíma. Hann varð marg-
milljóneri á hinum gamalkunnu
lögum sínum, „Alexander Rag-
time Band“, „Always", „Easter
Parade" og „White Christmas"
og mörgum fleiri og hefði þess
vegna getað setzt í helgan stein,
f hinum nýja söngleik eru 21
lög, sem hvert um sig eru lík-
leg til þess að syngjast inn í
huga og hjörtu mannfólksins,
alveg eins og gömlu lögin.
maður Framsóknarflokksins
viðhafði í útvarpsumræðum
og síðan hefur verið marg-
prentuð sem staðreynd í Tím
anum, þ.e.a.s. að hækkun af-
urðaverðs hafi verið miklu
minni en svaraði til kaup-
gjaldshækkana, og hagur
bænda væri því hinn hörmu-
legasti.
fréttunum
Konstantin, krónprins Grikkja
nú er 21 árs að aldri, hefur sí-
fellt verið að gera grísku hirð-
inni gramt í geði með hinum
mikla áhuga sem hann hefur
haft á kvikmyndastjörnum lands
ins. En nú andar hirðin léttara
því hann virðist vera búinn að
fá áhuga á ungfrú nokkurri, sem
þeim finnst honum samboðin.
Er það yngsta dióttir Danakon-
ungs, Anne-Marie, sem er ekki
ir utan veginn. Prinsessan sat
í framsæti bifreiðarinnar og
hafði ekki spennt öryggisólina.
☆
nema 15 ára gömul,